Morgunblaðið - 10.01.2011, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Á skattadegi Deloitte, sem haldinn
verður á morgun, mun Hólmfríður
Kristjánsdóttir, lögfræðingur á
skatta- og lögfræðisviði Deloitte,
fjalla um hömlur sem settar eru á
fjárfestingar íslenskra og erlendra
fjárfesta, hvort sem er í fjárfest-
ingu hérlendis eða erlendis.
Í erindi sínu mun hún taka fyrir
gjaldeyrishöftin, svokallaða 10 pró-
senta reglu um arð og söluhagnað
hlutabréfa og um niðurfellingu
krafna og umbreytingu í hlutafé.
Hvað varðar gjaldeyrishöftin
mun Hólmfríður rekja í stuttu máli
tilurð gjaldeyrisreglnanna og síðari
breytingar á þeim, en þær hafa tek-
ið veigamiklum breytingum frá því
að gjaldeyrishöft voru fyrst sett á
eftir bankahrun. Segir Hólmfríður
að breytingar, sem gerðar voru í
október 2009, hafi verið einkar mik-
ilvægar, en eftir það var bannað að
flytja til landsins krónur, sem
Seðlabankinn skilgreindi sem „afla-
ndskrónur“. Almenn skilgreining
Seðlabankans á aflandskrónum eru
krónur sem keyptar voru eftir setn-
ingu fyrstu reglna Seðlabankans,
númer 1130/2008.
Segir Hólmfríður að ætla mætti
að þetta þýddi að heimilt hefði verið
að flytja krónur inn til landsins fyr-
ir 30. október 2009 og að enn væri
heimilt að flytja inn krónur sem
keyptar voru fyrir setningu fyrstu
reglnanna árið 2008, því þær væru
ekki aflandskrónur samkvæmt skil-
greiningu Seðlabankans. Þess
vegna ættu þær ekki að vera háðar
þeim takmörkunum sem í gildi eru
um fjármagnsflutninga til og frá
landinu. Svo hefur þó ekki verið og
segir Hólmfríður að Seðlabankinn
hafi teygt sig ansi langt í því að
neita umsóknum um undanþágur
frá gjaldeyrisreglunum. Þá segir
hún að málshraði Seðlabankans hafi
ekki verið til fyrirmyndar og megi
gera ráð fyrir því þegar sótt er um
undanþágu að það taki að minnsta
kosti þrjá mánuði að fá svar.
Í erindi sínu mun Hólmfríður
jafnframt fjalla stuttlega um af-
greiðslur Seðlabankans á ýmsum
erindum um undanþágur frá regl-
unum
Dregur úr dreifðu eignarhaldi
Hin svokallaða 10 prósenta regla
gengur út á það að arðgreiðslur
milli fyrirtækja séu því aðeins frá-
dráttarbærar frá skatti ef eignar-
hlutur annars fyrirtækisins í hinu
er yfir tíu prósentum. Sama regla
gildir svo um frádráttarbærni
vegna hagnaðar af sölu hlutabréfa.
Þegar reglurnar voru settar gagn-
rýndu margir þær og sögðu Samtök
atvinnulífsins meðal annars að
hagnaður eða arður yrði margskatt-
aður í þeim tilvikum sem hann
gengur frá einu félagi til annars á
leið sinni til þeirra sem endanlega
njóta arðsins.
Tillögurnar ganga, að mati SA,
gegn þeim sjónarmiðum að stuðla
eigi að dreifðu eignarhaldi félaga og
muni gera fjárfestingu í innlendum
atvinnurekstri síður fýsilegan en
áður.
Samkvæmt lögum telst niðurfell-
ing krafna til tekna hjá þeim sem
hljóta slíka niðurfellingu. Hólmfríð-
ur segir að undantekningu sé að
finna, sem segir að eignaauki, sem
stafar af eftirgjöf skulda við nauða-
samninga skuli ekki teljast til
tekna, enda hafi skuldirnar ekki
myndast í sambandi við atvinnu-
rekstur skattaðila.
Í júní árið 2010 voru samþykkt
bráðabirgðaákvæði við tekjuskatts-
lög. Kemur þar fram að í stað þess
að telja að fullu til tekna eftirgjöf
skulda umfram rekstrartöp er fé-
lögum heimilt að tekjufæra einung-
is 50% af fengnum eftirstöðvum eft-
irgjafar skulda vegna rekstrar- og
greiðsluerfiðleika á tekjuárunum
2009, 2010 og 2011 allt að samtals
50 millj. kr., og 75% af eftirgjöf um-
fram samtals 50 millj. kr. á fram-
angreindu tímabili. Ákvæðið setur
það skilyrði að til skuldanna hafi
verið stofnað í beinum tengslum við
atvinnurekstur félagsins.
Morgunblaðið/Þorkell
Skattar Deloitte hefur um árabil haldið skattadaginn, sem er fundur um málefni tengd sköttum og skattlagningu.
Er dagurinn haldinn í samstarfi við Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptablað Morgunblaðsins.
Hömlur settar á
fjárfestingar
Á skattadegi Deloitte verður m.a. fjallað um hömlur, sem
settar eru í lögum, á fjárfestingar hér á landi og erlendis
Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra, mun setja Skatta-
dag Deloitte og er það í annað sinn
sem hann setur fundinn.
Aðrir ræðumenn eru Finnur
Oddsson, framkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs Íslands, sem flytur er-
indið Skattar og skynsamleg við-
brögð, Ragnar Árnason,
hagfræðiprófessor, sem fjalla mun
um efnahagskreppu og skatt-
heimtu og Vala Valtýsdóttir, sviðs-
stjóri skatta- og lögfræðisviðs
Deloitte, sem flytur erindið
Skattabreytingar – lausnir eða
vandamál.
Fundurinn er haldinn á Grand
Hótel Reykjavík og hefst hann
klukkan 8:15 í fyrramálið og stend-
ur í um tvo tíma. Fundarstjóri verð-
ur Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins.
Skattlagning krufin til mergjar
SKATTADAGUR DELOITTE
Steingrímur J. Sigfússon
Kaupmáttur fer nú rýrnandi í
Bretlandi, en launahækkanir hafa
ekki haldið í við verðlagshækkanir
að undanförnu. Í frétt Daily Tele-
graph segir að samkvæmt launa-
vísitölu VocaLink hafi laun í Bret-
landi, bæði í einkageiranum og
opinbera geiranum, hækkað um
1,1% á ársgrundvelli í september,
október og nóvember síðastliðnum.
Í nóvember hafði neysluverðs-
vísitalan hækkað um 3,3% næstu
tólf mánuði á undan og búist er við
því að hún hafi enn farið hækkandi
síðan þá. Telegraph ræðir við Mar-
ion King, yfirmann hjá VocaLink,
sem segir að hækkandi verðlag
komi niður á arðsemi fyrirtækja,
sem aftur valdi því að þau verði að
skera niður og forðast launahækk-
anir. „Þetta eru tvöfaldar slæmar
fréttir fyrir neytendur, því ekki
aðeins lækkar raunvirði launa,
heldur eykst verðbólgan einnig,“
segir hann við blaðið. „Þetta eru
ekki góðar fréttir fyrir efnahags-
lífið.“
Kaupmáttur
Breta rýrnar
Launahækkanir
halda ekki í við
verðhækkanir
Reuters
Bretland Raunlaun lækka, enda
hækkar verðlag meira en laun.
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og
skráning á www.kontakt.is.
• Rótgróin, sérhæfð heildverslun með vélar og tæki. Ársvelta 140 mkr.
EBITDA 25 mkr.
• Ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki í Reykjavík. EBITDA um 40 mkr.
• Þekkt matvælavinnsla. Ársvelta 300 mkr.
• Lítil heildverslun með sérhæfða vöru og góða afkomu. Heimsþekkt vörumerki.
• Meðeigandi/fjárfestir óskast að traustu tæknifyrirtæki til að nýta
vaxtamöguleika. Núverandi ársvelta um 160 mkr. og EBITDA um 30 mkr.
Viðkomandi gæti starfað við fyrirtækið sem fjármálastjóri.
• Veitingastaður og framleiðslufyrirtæki með indverskan mat, krydd, sósur og
brauð sem selt er í verslunum og til stórnotenda. Auðveld kaup.
• Vel þekkt innflutnings- og framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Velta á
uppleið og góð verkefnastaða. EBITDA 35 mkr. Kaupverð felst að stórum hluta
í yfirteknum langtímaskuldum en kaupandi þarf að leggja fram góðar
tryggingar fyrir rúmlega 100 mkr.
• Fasteignafélag með 9000 fm í öruggri útleigu. 25 ára leigusamningur.
Áhvílandi hagstæðar langtímaskuldir um 840 mkr. 100% hlutur á 600 mkr.
• Nýleg barnafataverslun með eigin innflutning að hluta. Ágætt tækifæri til að
byggja upp sjálfstæðan rekstur.