Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011
Sudoku
Frumstig
4
2 3 4 7
7 5 2 6
1 7 4 3
8 6
1 3 2 6 8
1 7 6
5 4 2
6 2
1 7 9
6 4 7
2
4 1 9 6
5 4 2
2 3 5 1
5 7 6 9 2
5
1 6 7
4 3
2 8 5 6
5 2
3 1 4
7 1 9 2
2 3 8 1
4 6 5
4 7 6 5 2 9 3 1 8
5 9 8 3 6 1 4 2 7
2 1 3 8 4 7 6 5 9
1 6 9 7 8 2 5 3 4
8 4 5 1 3 6 9 7 2
3 2 7 9 5 4 8 6 1
6 3 2 4 1 8 7 9 5
7 8 1 6 9 5 2 4 3
9 5 4 2 7 3 1 8 6
4 9 6 1 7 8 5 3 2
1 3 8 5 9 2 6 4 7
7 2 5 6 4 3 9 8 1
6 8 7 2 1 4 3 5 9
3 4 1 9 5 6 2 7 8
2 5 9 3 8 7 4 1 6
8 6 2 4 3 1 7 9 5
9 7 4 8 6 5 1 2 3
5 1 3 7 2 9 8 6 4
7 3 4 5 1 8 2 6 9
1 5 9 4 6 2 7 3 8
2 8 6 9 3 7 4 1 5
6 1 7 3 8 4 5 9 2
4 9 3 7 2 5 1 8 6
8 2 5 6 9 1 3 7 4
5 4 8 1 7 6 9 2 3
9 6 1 2 5 3 8 4 7
3 7 2 8 4 9 6 5 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 10. janúar,
10. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Ef von vor til Krists nær
aðeins til þessa lífs, þá erum vér
aumkvunarverðastir allra manna.
(1. Korintubréf 15, 19.)
Háskóli Íslands á, eins og framhefur komið í fjölmiðlum und-
anfarið, í töluverðum vandræðum
með að láta enda ná saman, enda
verða framlög ríkisins til skólans
dregin saman á þessu ári. Til um-
ræðu hefur komið hvort hækka eigi
innritunargjöld í skólann, en þær
hugmyndir hafa mætt töluverðri
andstöðu þeirra, sem líklega telja
betri niðurstöðu að setja fjöldatak-
mörk á nemendur skólans.
x x x
Önnur leið, sem ekki hefur fengiðnægilega umfjöllun, er sú að
innheimta bílastæðagjöld af nem-
endum og öðrum sem leggja leið
sína í skólann. Bílastæðagjöld eru
innheimt af þeim sem nota örfá
stæði við aðalbyggingu Háskólans,
en langflest bílastæði við skólabygg-
ingarnar eru gjaldfrjáls.
x x x
Við núverandi aðstæður, þar semnemendur og aðrir gestir þurfa
ekki að greiða fyrir afnot af bíla-
stæðum, er eftirspurn meiri en
framboð og geta margir lent í því að
þurfa að eyða löngum tíma í að finna
stæði. Vafalaust væru einhverjir
þeirra, sem nú fylla stæðin við Há-
skólann, tilbúnir að skilja bílinn eftir
heima ef skólinn tæki upp á því að
innheimta sanngjarnt bílastæða-
gjald. Þeir sem tilbúnir væru að
greiða slíkt gjald myndu hins vegar
hjálpa til við að halda uppi rekstri
skólans.
x x x
Sama sjónarmið á að sjálfsögðuvið hjá menntaskólum á höfuð-
borgarsvæðinu, en við marga þeirra
eru stór bílastæði, sem nemendur
hafa aðgang að án þess að þurfa að
greiða gjald.
x x x
Það hlýtur að skjóta skökku viðþegar nær öll bílastæði við
bráðamóttöku sjúkrahúsa eru gjald-
skyld en mennta- og háskólanem-
endur þurfa ekki að greiða krónu
fyrir að leggja bílum sínum heilu og
hálfu dagana við skólabyggingar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fúla, 4 heilbrigð,
7 tóbaks, 8 brúkar, 9 nöld-
ur, 11 líkamshlutinn, 13
karlfugl, 14 samgöngu-
leiðina, 15 digur, 17 grann-
ur, 20 frostskemmd, 22
hæðin, 23 þyrmum, 24 brýt-
ur í smátt, 25 rýja.
Lóðrétt | 1 viðburðarás, 2
geisladýrð, 3 svara, 4 fóstur
í dýri, 5 bumba, 6 skipulag,
10 missa marks, 12 þegar, 13
skinn, 15 á buxum, 16 gesta-
gangur, 18 tignarmanns, 19
langloka, 20 þvingar, 21
óþétt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kunngerir, 8 kosts, 9 reiði, 10 kið, 11 kargi,
13 innan, 15 hrátt,
18 flakk, 21 afl, 22 skarð, 23 orgar, 24 glaðsinna.
Lóðrétt: 2 ufsar, 3 níski, 4 eirði, 5 iðinn, 6 skák, 7 vinn,
12 gat, 14 nál, 15 hæsi, 16 áfall, 17 taðið, 18 floti, 19
argan, 20 korg.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Dd8 4. Rf3
Rf6 5. Bc4 e6 6. d4 Be7 7. O-O O-O 8.
Bb3 a6 9. a4 Rbd7 10. He1 Rb6 11. Dd3
Rbd5 12. Re2 c5 13. c3 Dc7 14. Re5
cxd4 15. Rxd4 Bd6 16. Rdf3 b6 17. Bg5
Bb7 18. Had1 Be7 19. Bc2 Hfd8 20.
De2 h6
Staðan kom upp í fyrstu deild Ís-
landsmóts skákfélaga en fh.mótsins
var í Rimaskóla sl. október. Andri Áss
Grétarsson (2324) hafði hvítt gegn
Einari Valdimarssyni (1824). 21. Rxf7!
hxg5 svartur hefði einnig tapað eftir
21… Kxf7 22. Dxe6+ Kf8 23. Bg6. 22.
Dxe6 Bc8 23. Rh6+ Kh8 24. Dg8+ og
svartur gafst upp enda mát í næsta
leik. Skákhátíðin í Wijk aan Zee í Hol-
landi hefst nk. föstudag og munu þar
bestu skákmenn heims leiða saman
hesta sína, m.a. Magnus Carlsen,
Vishy Anand og Vladimir Kramnik.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tækifærið. S-NS.
Norður
♠D8654
♥K94
♦KD4
♣G9
Vestur Austur
♠KG9 ♠732
♥DG1085 ♥3
♦103 ♦G8762
♣KD7 ♣8543
Suður
♠Á10
♥Á762
♦Á95
♣Á1062
Suður spilar 3G.
Við spilaborðið koma langir kaflar
þar sem allt gengur sinn vanagang og
ekkert kemur á óvart. Flatur eins og
pönnukaka opnar suður á grandi, norð-
ur yfirfærir í spaða og stekkur í 3G í
næsta hring. Traust og lýsandi sagn-
röð, en ákaflega þreytt. Og ekki leiftr-
ar útspil vesturs af frumleik: hjarta-
drottning, ofan af röð í lengsta og besta
lit. Menn gætu spilað svona í svefni.
En svo allt í einu og fyrirvaralaust
kemur tækifæri til að rjúfa endurtekn-
inguna og lýsa upp hversdagsleikann.
Sagnhafi drepur á ♥K, spilar spaða á
ásinn og … hvað?
Þetta er stundin sem gefst – nú
verður vestur að vakna til lífsins og
láta spaðakónginn flakka! Þannig bein-
ir hann sagnhafa af sigurbraut í spað-
anum og tælir hann til að tvísvína í
laufi í staðinn.
10. janúar 1884
Ísafold, fyrsta stúka góðtempl-
ara, var stofnuð í Friðbjarnar-
húsi á Akureyri. Stofnendur
voru tólf. Góðtemplarareglan
breiddist hratt út um landið og
á þriðja áratug tuttugustu ald-
ar voru félagsmenn á tólfta
þúsund.
10. janúar 1940
Togarinn Hafsteinn bjargaði
62 manna áhöfn af þýska flutn-
ingaskipinu Bahia Blanca, sem
sökk út af Látrabjargi. Sumir
óttuðust að þetta væru her-
menn sem ættu að gera upp-
reisn um leið og þýskur innrás-
arher kæmi til landsins.
10. janúar 1994
Þyrlusveit varnarliðsins bjarg-
aði sex skipverjum af Goðanum
í Vöðlavík á Austfjörðum. Að-
stæður voru mjög erfiðar og
þótti þetta frækilegt björg-
unarafrek. Einn maður fórst
þegar Goðinn strandaði.
10. janúar 1994
Tugmilljónatjón varð í fárviðri
á Siglufirði. Meira en þrjátíu
hús skemmdust. Þrjú húsþök
fóru af í heilu lagi og eitt þeirra
flaug fjögur hundruð metra og
yfir mörg hús.
10. janúar 2002
Úrkomumet var sett þegar sól-
arhringsúrkoma á Kvískerjum
í Öræfum mældist 293 milli-
metrar, 50 millimetrum meiri
en eldra met frá sama stað síð-
an 1. október 1979. Þetta jafn-
gildir rúmum helmingi af árs-
úrkomu á Akureyri og mun
vera met við norðanvert Atl-
antshaf.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Jenný S. Jörgensen fagnar í dag 50 ára afmæli
sínu en hún starfar sem matráður og leiðbein-
andi í heimilisfræði í Nesskóla í Neskaupstað.
„Það er æðislegt,“ svarar hún um hæl þegar ég
spyr hana hvernig henni líki að vinna með
krökkunum sem eru á aldrinum 6-13 ára. Sjálf á
Jenný fjögur börn, strák og stelpu sem enn búa
heima og tvo syni sem eru uppkomnir og búa í
Noregi.
Hún hyggur ekki á mikið veisluhald á afmæl-
isdaginn og segist yfirleitt halda upp á afmæli í
rólegheitum en vinir og vandamenn kíki gjarnan
í kaffi. Það er þó ekki þar með sagt að ekkert verði gert í tilefni af
stórafmælinu en maður Jennýjar, Jóhann Tryggvason leið-
sögumaður, verður einnig fimmtugur í mars næstkomandi og fengu
þau hjónin saman nokkuð myndarlega afmælisgjöf af tilefninu.
„Okkur var gefin ferð til Noregs og ætlum saman fjölskyldan að
hitta synina tvo og tengdadæturnar sem þar búa,“ segir hún en
uppljóstrar svo seinna að í raun felist enn stærri gjöf í ferðalaginu;
að fá að hitta barnabarnið sem býr þar líka.
holmfridur@mbl.is
Jenný S. Jörgensen er 50 ára í dag
Besta gjöfin er í Noregi
Nýirborgarar
Reykjanesbær
Iðunn Rós fædd-
ist 17. ágúst 2010
kl. 14. á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
nesja. Hún vó
4.420 g og var 56
cm löng. Foreldrar
hennar eru Eva
Stefánsdóttir og
Örvar Þór Sig-
urðsson.
Flóðogfjara
10. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.26 3,2 8.50 1,4 14.51 3,0 21.09 1,3 11.06 16.05
Ísafjörður 4.45 1,9 11.08 0,8 16.56 1,7 23.23 0,8 11.42 15.39
Siglufjörður 0.21 0,5 6.40 1,1 13.00 0,4 19.39 1,0 11.26 15.21
Djúpivogur 5.54 0,8 11.50 1,5 17.54 0,7 10.43 15.27
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er upplagt að eyða smátíma í
það að sýna sig og sjá aðra. Ef það er
valdabarátta á milli framans og vinanna,
leyfðu þá vinunum að vinna.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú mátt eiga von á ýmsum breyt-
ingum á dagskránni. Brettu upp ermarnar
og vertu ákveðin/n. Mundu bara að ofmetn-
ast ekki, því dramb er falli næst. Lífið leikur
við þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Uppbyggilegar viðræður við vini
geta leitt til ánægjulegrar samvinnu. Senni-
lega vekur vinnufélagi áhuga þinn.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Gengur allt á afturfótunum í dag?
Það fer eftir því hvernig þú lítur á það.
Málamiðlanir koma til greina.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú vilt ekkert frekar en að láta ein-
hvern heyra það. Ef maður upplifir þægindi,
frið eða lausn á maður bara að halda sínu
striki. Heimili er staðurinn þar sem málin
eiga að leysast.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú þarft ekki að hafa svona miklar
áhyggjur af því hvað öðrum finnst um þig.
Annars ætti þér að ganga allt í haginn í dag.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vinur þinn er ósammála þér í einhverju
sem tengist sameiginlegum eigum. Það er
alltaf gaman þegar fólk hefur mikinn áhuga
á manni.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það eru óveðursský við sjón-
deildarhring, tengd ósætti við vinnufélaga
eða vin. Þú ferð ekki alltaf hefðbundnar leið-
ir og stýrir lífi sínu meira af innsæi en aðrir.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er skynsamlegt að staldra
stundum við og hugleiða, hvað framtíðin
kann að bera í skauti sínu. Styrktu góðgerð-
arstofnun.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Fólkið í þínu nánasta umhverfi er
þér sem fjölskylda og það skiptir máli hvað
því finnst – stundum. Þú ert snillingur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér finnst allt vera mögulegt í
dag og því er svolítil hætta á því að þú
missir tengslin við raunveruleikann.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Vertu opin/n fyrir nýjungum en um
leið á varðbergi varðandi það sem hefur
reynst vel. Ekki láta smámuni ergja þig.
Stjörnuspá