Morgunblaðið - 10.01.2011, Síða 32
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 10. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Líðan Péturs stöðug
2. Man.Utd lagði Liverpool
3. Ferguson: Sorgleg niðurstaða
4. Eldborgin rakst á ísjaka
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Heimildarleikritið Elsku barn eftir
Dennis Kelly verður frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu nú á fimmtudaginn en
það er byggt á sannsögulegum at-
burðum sem áttu sér stað í Bretlandi.
Ung móðir var sökuð um að hafa myrt
börnin sín. Leikstjórinn Jón Páll Eyj-
ólfsson segir verkið vera mjög erfitt
verk tilfinningalega. »26
Elsku barn er saga
um sannleika og lygi
„Oskaras Kors-
unovas og aðrir
Litháar ollu of-
viðri í Borgarleik-
húsinu í Reykja-
vík.“ Þannig er
fyrirsögn ítarlegs
leiklistardóms
sem birtist í
Lietuvos rytas,
stærsta dagblaði Litháens, í byrjun
þessa árs. Helmutas Abaseviius fer
þar lofsamlegum orðum um uppsetn-
ingu Oskaras Korsunovas á Ofviðri
Shakespeares sem nú er sýnt í Borg-
arleikhúsinu. Ingvar E. Sigurðsson í
aðalhlutverkinu sem Prospero er
sagður halda áhorfendum í heljar-
greipum „með einstökum hæfi-
leikum, vel þjálfaðri líkamsbeitingu
og rödd“. Kristín Þóra Haraldsdóttir í
hlutverki Aríels er sögð „rösk og
fantagóð leikkona, sem umbreytist
eins og búningur hennar“. Ljósa-
meistarinn Björn Bergsteinn Guð-
mundsson fær mikið hrós og sama er
að segja um Vytautas Narbutas og
leikmynd hans. Verkið er sagt „magn-
ast upp í nær ólýsanlega fegurð í
meðförum listamanna leikhússins“.
Ofviðrið fær mikið lof
í lithásku dagblaði
Á þriðjudag Norðaustlæg átt, 8-15 m/s, hvassast V-til. Víða él eða dálítil snjókoma, en
úrkomulíitð SV-lands. Frost 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á miðvikudag, fimmtudag, föstudag og laugardag Ákveðin norðaustlæg átt með élj-
um, en lengst af bjartviðri V-lands. Fremur kalt í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-13 og víða él, en úrkomulítið á V-landi. Fer að snjóa
N- og A-lands í kvöld. Frost 3 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
VEÐUR
Frammistaða íslenska lands-
liðsins í handbolta gegn
Þjóðverjum gefur tilefni til
bjartsýni og þá sérstaklega
þegar haft er í huga að hóp-
urinn er nánast skipaður
sömu leikmönnum og unnu
til verðlauna fyrir ári. Sér-
staklega var uppörvandi að
sjá varnarleik íslenska liðs-
ins sem minnti mjög á varn-
arleik Íslands á Ólympíu-
leikunum í Peking.
» 4-5
Frammistaðan til-
efni til bjartsýni
Umdeild atvik í bikar-
slagnum á Old Trafford
Hrafn Kristjánsson, þjálfari körfu-
boltaliðs KR, vonast eftir því að
mæta Grindvíkingum á heimavelli í
undanúrslitum bikarkeppninnar. KR
vann Fjölni í átta liða úrslitunum í
gær og Hrafn sagði að stöðugleikinn
væri að koma hjá liðinu en hann hef-
ur vantað í vetur. Haukar og Tinda-
stóll komust líka í undanúrslit
keppninnar í gærkvöld. » 8
Hrafn vill mæta Grinda-
vík í undanúrslitum
ÍÞRÓTTIR
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir
ingibjorgrosa@mbl.is
Hjónin Gunnþór Jónsson og Þór-
unn Hrund Óladóttir á Seyðisfirði
eiga þrjá syni, sem væri varla í
frásögur færandi nema vegna þess
að tveir þeirra bera nöfn sem bera
því vitni hvar þeir fæddust. Elstur
er Óli Jóhannes, sex ára, sem
fæddist líkt og flest börn á fæðing-
ardeild inni á sjúkrahúsi, en yngri
bræðrum hans lá talsvert meira á
að komast í heiminn.
„Sá í miðið fæddist í sjúkra-
flugvél, við vorum á leiðinni á
sjúkrahúsið á Akureyri af því að
barnið var sitjandi. En fæðingin
gekk samt svo hratt fyrir sig að
hann bara fæddist rétt fyrir lend-
ingu,“ segir Þórunn. Hún og mað-
ur hennar ákváðu í framhaldinu
að seinna nafn sonarins yrði Loft-
ur. „Hann heitir Heimir Loftur, af
því að hann fæddist í loftinu. Og
það var því ekki hægt annað en
nefna næsta dreng Vagn, þar sem
hann fæddist í bíl.“ Sá heitir fullu
nafni Vilberg Vagn og fæddist í
október, í bíl við sjúkrahúsið í
Neskaupstað. „Við fórum á Norð-
fjörð, því það er hvergi annars
staðar hægt að eiga börn á Aust-
urlandi. Við náðum hins vegar
ekki alla leið og hann fæddist í
bílnum.“
Ljósmóðir með í för
Um einn og hálfan klukkutíma
tekur að aka frá Seyðisfirði til
Norðfjarðar, við góðar aðstæður,
og þrír fjallvegir á leiðinni. Þótt
veður væri með skárra móti þegar
fæðingu Vilbergs Vagns bar að
ákváðu Þórunn og Gunnþór að
koma við á Eskifirði og taka með
ljósmóður sem þar býr, vitandi að
fæðingin gæti gengið hratt fyrir
sig. Ljósmóðirin gat því tekið á
móti barninu í bílnum á bílastæð-
inu og skömmu síðar voru mæðg-
inin komin í hendur starfsfólksins
á sjúkrahúsinu. Drengirnir fædd-
ust allir hraustir og hafa dafnað
vel síðan.
Undanfarið hafa verið mikil
vetrarveður við Seyðisfjörð og
segir Þórunn að ef hún ætti von á
sér núna væri hún ekki mjög ró-
leg. „Hér er allt á kafi í snjó og
búið að vera ófært í marga daga,
ég byði ekki í það að eiga von á
mér nú. Ég væri þá bara löngu
farin til Reykjavíkur, Akureyrar
eða á Norðfjörð og þyrfti að liggja
þar uppi á ættingjum eða vinum.“
Nöfn Óli Jóhannes, sex ára, Heimir Loftur, þriggja ára, og Þórunn sem heldur á Vilberg Vagni, þriggja mánaða.
Nöfnin réðust af fæðing-
arstöðum drengjanna
Tveir sonanna fæddir um borð í flugvél og í bifreið
Frá því í haust hafa miklar endur-
bætur staðið yfir á Hótel Loftleið-
um. 30-40 iðnaðarmenn hafa verið
við vinnu í hótelinu að staðaldri síð-
ustu mánuði og með hönnuðum og
þeim sem eru að smíða innréttingar
úti í bæ telur hópurinn um 50
manns.
Um miðja síðustu viku voru gesta-
móttaka og skrifstofur hótelsins
fluttar til bráðabirgða í álmuna sem
snýr að Nauthólsvík og þar er nú
nýr inngangur. Með nýju ári hófust
framkvæmdir við endurnýjun gesta-
móttöku, veitingasala og sundlaug-
ar. Allar lagnir verða teknar í gegn í
miðhúsinu og herbergi lagfærð. Fyr-
ir sumarið verður þetta 220 her-
bergja hótel búið að fá mikla andlits-
lyftingu og öll herbergin komin í
fulla notkun, eftir að hótelið hefur
starfað á hálfum krafti í vetur.
Kostnaður við breytingarnar á
hótelinu er áætlaður rúmlega millj-
arður. „Hótel Loftleiðir er fjögurra
stjörnu hótel og með þessum breyt-
ingum viljum við styrkja stöðu okk-
ar í þeim flokki,“ segir Sólborg
Steinþórsdóttir, hótelstjóri á Hótel
Loftleiðum. »4
Morgunblaðið/Ómar
Breytingar Iðnaðarmenn ráða nú
ríkjum í gestamóttöku Loftleiða.
Nóg að gera
á Hótel
Loftleiðum
Atvinna fyrir 50
manns við breytingar
Umdeild atvik settu svip sinn á viður-
eign Manchester United og Liverpool
í enska bikarnum í gær, þar sem
Kenny Dalglish stýrði Liverpool í
fyrsta skipti í 20 ár. Sitt sýndist
hverjum um vítaspyrnu í byrjun leiks
og rautt spjald á Steven Gerrard eftir
hálftíma. »7