Morgunblaðið - 14.01.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Heimagreiðslum verði hætt
Fjármununum fremur varið í ný leikskólapláss og eflingu dagforeldrakerfisins
Kjartan Kjartansson
Ingveldur Geirsdóttir
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að afnema svo-
kallaða þjónustutryggingu fyrir foreldra í borg-
inni, 20 þúsund króna greiðslu á mánuði til for-
eldra við lok fæðingarorlofs til aðstoðar á meðan
leitað var vistunarúrræða fyrir barnið.
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins
gagnrýnir ákvörðunina og bendir á að þetta sé
gert á sama tíma og gríðarleg fjölgun leikskóla-
barna sé fyrirsjáanleg í haust. „Í grunninn erum
við á móti því að afnema þetta úrræði en þetta er
sérstaklega vond ákvörðun á þessum tímapunkti
því útlit er fyrir að á fimmta hundrað börn verði
án leikskólapláss í haust,“ segir Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
menntaráði.
Þorbjörg telur að biðlistar lengist og eftirspurn
eftir plássum hjá dagforeldrum aukist um 400
börn frá síðasta ári. Ráða þurfi áttatíu dagfor-
eldra til að mæta slíkri eftirspurn. Hún segir
þjónustutryggingunni hafa verið komið á árið
2008 til að brúa bil. „Hugmyndin var að úrræðið
myndi eyðast upp af sjálfu sér þegar útvegaðar
væru lausnir. Nú er þetta tekið af og engar lausn-
ir í boði.“
Leikskólinn færður upp í forgangsröðinni
„Þjónustutryggingin hefði stefnt í 250 milljónir
á þessu ári. Það er sú upphæð, eða 300 milljónir,
sem við setjum í ný leikskólapláss svo börn sem
verða tveggja ára á þessu ári komist að. Þó að það
sé sársaukafullt að taka þessa þjónustu í burtu
stóla foreldrar fyrst og fremst á að koma barninu
inn á leikskóla á árinu sem það verður tveggja ára
svo við völdum að forgangsraða,“ segir Oddný
Sturludóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Óttarr Proppé, borgarfulltrúi Besta flokksins,
segir ákvörðun um afnám tryggingarinnar vera
fjárhagslega og til að geta tryggt þjónustu inni á
leikskólunum og hjá dagforeldrum. „Það er verið
að vinna í því að fjölga dagforeldrum svo það kerfi
geti afkastað meiru. Það sem liggur fyrir er að
reyna að taka á móti um 400 fleiri börnum á
næstu tveimur árum en hefur verið á venjulegu
ári. Þjónustutryggingin er tiltölulega nýtilkomin
og hefur verið skorin niður reglulega síðan. Hún
hefur verið slegin af í mörgum öðrum sveitar-
félögum þar sem hún var tekin upp. Á hagræðing-
artímum stendur maður frammi fyrir því að reyna
að verja grunnþjónustuna.“
Á hagræðingartímum
stendur maður frammi
fyrir því að reyna að
verja grunnþjónustuna
Óttarr Proppé
Ellilífeyrisþegi
sem býr í leigu-
húsnæði hlaut að-
alvinning í Happ-
drætti DAS en
dregið var út í
gær. Vinning-
urinn er að verð-
mæti 14,6 millj-
ónir króna, þ.e.
Audi A4 bifreið,
að verðmæti 7,3
milljónir kr., auk 7,3 milljóna kr. í
farangursrými ef vinningshafi ætti
tvöfaldan miða, sem var raunin.
Vinningshafinn reyndist vera
roskinn karlmaður á Akureyri sem
sagðist frekar vilja fá peninginn og
sleppa bifreiðinni – enda ekki með
bílpróf. Var það auðsótt mál.
Að sögn Sigurðar Ágústs Sigurðs-
sonar forstjóra Happdrættis DAS,
sagði maðurinn að vinningurinn
kæmi sér afar vel enda hann hættur
að vinna og lifði bara á ellilífeyri. Þá
sagðist hann ætla að huga að íbúðar-
kaupum enda væri hann í leigu-
húsnæði sem stendur. Var hann afar
þakklátur og sagðist hafa átt núm-
erið í mörg ár og vildi með því styðja
við málefnið. Ekki væri slæmt að fá
vinning öðru hverju en svona há
upphæð var fjarri hans draumum.
Í lok samtalsins við umboðsmann
happdrættisins bað hann þó um að
vinningsupphæðin yrði endurtekin
svo hann væri viss um að hann hefði
heyrt rétt.
Vildi frekar
pening en
nýjan bíl
Eldri borgari Dett-
ur í lukkupottinn.
Ellilífeyrisþegi hlaut
aðalvinning í DAS
Óvíst er enn hvenær Icesave-
frumvarpið verður afgreitt út úr
fjárlaganefnd. Unnið hefur verið í
tvo daga frá morgni til kvölds og
fundað með þeim umsagnaraðilum
sem óskað hefur verið eftir. Fundað
verður með slitastjórn og skilanefnd
Landsbankans eftir helgi.
Björn Valur Gíslason, varafor-
maður nefndarinnar, sagði í samtali
við mbl.is í gærkvöldi að engin tíma-
pressa væri til staðar „en því lengur
sem verið er að ljúka málum, þeim
mun erfiðara er að klára þau“.
Engin pressa
vegna Icesave
Iðnaðarmenn sem vinna við endurbyggingu húsanna á horni Austurstrætis
og Lækjargötu þurftu að dúða sig vel í gær til að klæða af sér nístandi
kuldann í borginni. Veðrið virtist þó engin teljandi áhrif hafa á vinnuget-
una því þakpappinn var fljótt festur á. Framkvæmdum miðar að öðru leyti
vel og ekki annað vitað en borgarbúum falli endurgerð gömlu húsanna á
reitnum afskaplega vel.
Vel dúðaðir við vinnu í kuldanum
Morgunblaðið/Ómar
BAKSVIÐ
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Þetta var mjög málefnalegur og góð-
ur fundur. Það var náttúrlega verið að
spyrja út í stöðuna í þingflokknum og
við fengum mjög góð svör,“ segir
Andrea Hjálmsdóttir bæjarfulltrúi
Vinstri grænna á Akureyri að loknum
félagsfundi Vinstri grænna sem fór
fram á Akureyri í gærkvöldi áður en
almennur stjórnmálafundur flokksins
hófst. Steingrímur J. Sigfússon og
Lilja Rafney Magnúsdóttir sátu fé-
lagsfundinn sem 27 manns sóttu.
„Það hefur verið öflugt og gott
starf hjá Vinstri grænum hér fyrir
norðan og fundurinn endurspeglaði
það svolítið. Við vorum aðeins að velta
fyrir okkur hvert við erum að stefna
og að hanga ekki í þeim efnum sem
hafa verið mest í kastljósinu, minna
okkur á að það er meira sem sam-
einar okkur en sundrar okkur.
Þingflokksdeilan eða ágreiningur-
inn hefur ekki endurspeglast í flokks-
starfinu hér en maður veit aldrei
hvernig hlutirnir þróast og ég bjóst
við að sjá fólk skiptast meira í fylk-
ingar á þessum fundi, en það var ekki.
Frekar var verið að spyrja og leita
skýringa, því fyrir venjulegan flokks-
mann er oft erfitt að átta sig á fjöl-
miðlaumfjölluninni og hvað er raun-
verulega að gerast. Fólk var að
fókusera á hvert við ætluðum að
halda, leggja áherslu á að við gleymd-
um ekki því sem sameinar okkur og
að við ættum að ýta undir það sem vel
er gert.
Það var líka rætt hvernig við getum
haft meiri samræðu á milli sveitar-
stjórnarstigsins og þingflokksins, það
hefur kannski gleymst í því havaríi
sem hefur verið í ríkisstjórninni. Þá
hefur orðið meira bil á milli sveitar-
stjórnar og þingflokksins, eðli máls-
ins samkvæmt, enda þau að takast á
við stór verkefni,“ segir Andrea og
bætir við að mikil ánægja sé með að
forystusveit flokksins hafi lagt upp í
þessa fundaherferð um landið núna.
„Það er gott fyrir okkur, sem erum
mislangt frá, að fá góðar skýringar
frá fyrstu hendi um hvað er í gangi og
að við getum tjáð okkur. Það hefur
alltaf verið mikil samræðuhefð innan
VG og við verðum að sýna samstöðu
til að ná árangri í landsmálunum.
Fundaherferðin er gott framtak upp
á það að gera að almennur flokks-
félagi missi ekki þá tilfinningu að
hann hafi ekki neitt um flokksstarfið
að segja. Mér finnst þetta jákvætt og
góður tímapunktur,“ segir Andrea.
Margir lýstu yfir ánægju sinni
Félagsfundurinn hófst kl. 18 en kl.
20 hófst opinn stjórnmálafundur á
Hótel KEA. Um fjörutíu manns
mættu á fundinn þar sem Steingrím-
ur, Lilja Rafney og Þuríður Backman
héldu tölu og sátu fyrir svörum.
Steingrímur fór yfir ríkisfjármálin og
kynnti helstu tölur. Að sögn Andreu
voru fjármálin mikið rædd sem þykir
ekki óeðlilegt þegar fjármálaráðherra
er í heimsókn. „Steingrímur svaraði
því sem brann á fólki, það var verið að
spyrja um breytingar í skattakerfinu,
út í atvinnumál og verið að ræða það
hvort stjórnin geti kallað sig velferð-
arstjórn sem Steingrímur taldi vera.
Það var ekkert farið yfir ágreining í
þingflokki, hann bar ekki á góma.
Margir lýstu yfir ánægju sinni með
stjórnina og voru að velta fyrir sér
framhaldinu.“
Spurt og leitað skýringa á fundi VG
Rætt um að meira bil hafi orðið milli
sveitarstjórnar og þingflokks VG
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjármálin Steingrímur J. Sigfússon fer yfir erlendar fjárfestingar á fundi
Vinstri grænna sem fór fram á Hótel KEA á Akureyri í gærkvöldi.