Morgunblaðið - 14.01.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.01.2011, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2011 Sudoku Frumstig 9 4 1 7 6 8 4 1 3 8 9 7 2 8 3 7 4 6 1 3 2 7 6 9 1 4 2 9 2 1 4 8 8 2 3 4 3 2 1 4 5 3 5 1 8 9 7 5 1 8 9 7 6 2 8 4 3 3 4 5 7 8 3 5 6 4 2 1 7 7 1 5 2 6 4 8 7 9 5 3 1 3 5 8 4 1 2 7 9 6 9 7 1 5 6 3 2 8 4 8 4 3 1 5 7 6 2 9 6 2 9 3 4 8 1 5 7 7 1 5 9 2 6 8 4 3 5 8 6 7 9 4 3 1 2 4 3 7 2 8 1 9 6 5 1 9 2 6 3 5 4 7 8 5 4 7 9 2 8 3 1 6 3 1 9 6 7 5 4 2 8 8 6 2 3 1 4 7 9 5 2 5 6 1 3 7 8 4 9 7 9 8 4 5 2 6 3 1 4 3 1 8 9 6 5 7 2 1 2 5 7 6 3 9 8 4 6 8 3 2 4 9 1 5 7 9 7 4 5 8 1 2 6 3 1 7 5 9 8 4 3 6 2 8 4 9 2 6 3 1 7 5 2 6 3 1 7 5 9 4 8 3 5 8 4 1 2 6 9 7 6 2 4 7 9 8 5 1 3 9 1 7 5 3 6 2 8 4 7 8 2 6 5 1 4 3 9 5 9 1 3 4 7 8 2 6 4 3 6 8 2 9 7 5 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 14. janúar, 14. dag- ur ársins 2011 Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jb. 36, 15.) Þegar íslenska karlalandsliðið íhandbolta er á ferðinni fylgist þjóðin með. Nú er það heimsmeistarakeppnin sem hófst í Svíþjóð í gærkvöldi, en fyrsti leikur Íslands verður í Norrköping klukkan 16 í dag. Þá verður leikið við landslið Ungverjalands. Síðan er það Brasilía á laugardag, Japan á mánudag, Austurríki á þriðjudag og loks Nor- egur á fimmtudag í næstu viku. Þá liggur fyrir hvort „strákarnir okkar“ halda áfram í milliriðil eða ekki. x x x Glæsilegt HM-blað fylgdi meðMorgunblaðinu í gær. Þar fara íþróttafréttamenn blaðsins yfir allt sem skiptir máli í sambandi við HM á 32 síðum. Haft er eftir Michael Kraus, lykilmanni í þýska landslið- inu, að Íslendingar geti unnið hvaða lið sem er og eigi möguleika á að berjast um verðlaun, en Dagur Sig- urðsson, fyrrverandi fyrirliði ís- lenska landsliðsins og nú þjálfari þýska liðsins Füchse Berlin, segir óraunhæft að ætla að Ísland leiki um verðlaun. x x x Hefð er fyrir því að geraákveðnar kröfur til landsliðs- ins, burtséð frá stöðunni hverju sinni. Því hefur draumur oft breyst í martröð. Samt sem áður hefur lands- liðið skapað sér ákveðið nafn á und- anförnum árum og ekki síst eftir silfrið á Ólympíuleikunum í Peking og bronsið í Evrópukeppninni í fyrra. Fyrir vikið telja margir sjálf- sagt að liðið vinni til verðlauna á þriðja stórmótinu í röð. x x x Óvissan er mikil í handbolta oghún gerir hann ekki síst skemmtilegan og spennandi. Þó allir reyni ávallt að gera sitt besta geta ótrúlegustu atriði haft áhrif til hins verra. Næstu heimsmeistarar tryggja sér þátttöku á Ólympíu- leikunum í London 2012 en liðin sem verða í 2.-7. sæti fara í 12 liða for- keppni um sex sæti á leikunum. Því hlýtur markmiðið að vera að verða heimsmeistari og til vara að komast í forkeppnina. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 sefa harm, 4 skríll, 7 grasflöt, 8 rótar- ávöxturinn, 9 sigað, 11 kyrr, 13 espi, 14 líkamshlutinn, 15 krukka, 17 álfa, 20 spíra, 22 tré, 23 aldni, 24 einskæran, 25 ójafnan. Lóðrétt | 1 nærgætin, 2 dreggjar, 3 bylgja, 4 sjálfs- hreykni, 5 ólmir hestar, 6 dreg í efa, 10 hnöttur, 12 tangi, 13 samtenging, 15 gin, 16 yf- irhöfnum, 18 búið til, 19 fædd- ur, 20 tímabilin, 21 sníkjudýr. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 feðrungar, 8 legum, 9 uggir, 10 ufs, 11 tírur, 13 týnir, 15 fjöld, 18 galli, 21 urr, 22 flóin, 23 urðar, 24 haganlegt. Lóðrétt: 2 elgur, 3 rómur, 4 naust, 5 angan, 6 glit, 7 grár, 12 ull, 14 ýta, 15 fífl, 16 ölóða, 17 dunda, 18 grufl, 19 liðug, 20 iðra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 b6 4. Bg2 d5 5. Rf3 Bb4+ 6. Rbd2 O-O 7. O-O Rbd7 8. Re5 Bxd2 9. Rc6 De8 10. Bxd2 Bb7 11. cxd5 exd5 12. Hc1 De6 13. Rb4 Hac8 14. Rd3 Hfe8 15. Rf4 Dd6 16. b4 Ba6 17. He1 Re4 18. f3 Rxd2 19. Dxd2 He7 20. e4 dxe4 21. fxe4 c5 22. Rd5 Hee8 23. e5 Db8 24. bxc5 bxc5 25. Hb1 Rb6 26. a4 Hcd8 Staðan kom upp í fyrstu deild Ís- landsmóts skákfélaga en fyrri hluti mótsins fór fram í Rimaskóla sl. októ- ber. Franski stórmeistarinn Sebastien Maze (2572) hafði hvítt gegn Gylfa Þórhallssyni (2200). 27. Rf6+! gxf6 28. exf6 Kh8 29. Dh6 Hg8 30. Be4 og svartur gafst upp enda fátt til varna. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Af fingrum fram. S-Allir. Norður ♠8532 ♥642 ♦K1065 ♣Á6 Vestur Austur ♠G976 ♠D10 ♥G1097 ♥853 ♦984 ♦G732 ♣93 ♣G1075 Suður ♠ÁK4 ♥ÁKD ♦ÁD ♣KD842 Suður spilar 6G. Eftir að hafa margtalið punktana opnar suður á alkröfu og stekkur í 4G við 2♦ makkers. Þannig sýnir hann 27- 28 hápunkta og jafna skiptingu. Svig- rúm til alslemmuleitar er ekki mikið eftir þessa byrjun og norður lyftir hæversklega í 6G. Útspilið er ♥G. Við sjáum hvað gerist ef sagnhafi leikur af fingrum fram: Leggur niður ♦Á-D, fer inn í borð á ♣Á og tekur ♦K. Ekki kemur ♦G og ekki fellur laufið 3-3. Úrslitatilraunin er að gefa austri laufslag í þeirri von að hann sé ekki með ♦G. Því miður. Hér þarf að spila eftir nótum til að tryggja vinning í sem flestum stöðum. Best er að taka ♦Á-D og dúkka síðan lauf. Þá er slemman örugg ef laufið fellur ekki verr en 4-2, og líka í 5-1 lauf- legu ef ♦G kemur í þrjá efstu. 14. janúar 1984 Páfi staðfesti helgi Þorláks biskups Þórhallssonar (f. 1133, d. 1193) og viðurkenndi hann sem verndardýrling íslensku þjóðarinnar. Messur hans eru 20. júlí og 23. desember. 14. janúar 1991 Geysir BA kom til Patreks- fjarðar úr línuróðri út af Arn- arfirði með stærstu ýsu sem vitað var að veiðst hefði við Ís- land. Hún var 109 sentimetra löng og vó 8,5 kg slægð. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Ég ætla að fá fólkið mitt til mín í mat og hugguleg- heit og bara hafa það skemmtilegt,“ segir Ragnhild- ur Ólafsdóttir, þjónustufulltrúi hjá Morgunblaðinu, um það hvernig hún ætlar að fagna 60 ára afmælinu í dag. Af tilefninu er hún búin að bjóða 25 af sínum nánustu, fólki úr innsta hring eins og hún orðar það, í matarboð í kvöld. Hún segist jafnan hafa haldið upp á stórafmælin með stæl en að þessu sinni langi hana að eiga rólega stund með þeim sem standa henni næst. Ragnhildur á tvær dætur með manni sínum Har- aldi Sigurðssyni og eina stjúpdóttur. „Svo er von á sjötta barnabarninu en ég á líka eitt langömmubarn sem verður tveggja ára í apríl,“ segir hún og bætir því við að að sjálfsögðu sé börnunum boðið í afmælið, þetta verði sko alls ekkert fullorðinspartí. Það er auðheyrt að afkomendurnir eiga stóran hlut í afmælisbarninu. „Einhvern tímann þeg- ar ég var yngri þá sagði ég að ég yrði heppin að fá að verða amma. Svo varð ég amma og varð frek og sagði að nú yrði ég að lifa það að fá lang- ömmubarn.“ Hún segist bara vera hæstánægð með aldurinn og er þakklát fyrir að halda heilsu og eiga góða að, enda sé það alls ekki sjálfsagður hlutur. „Nú fæ ég að njóta barnanna og séstaklega barnabarnanna. Það er æðislegt að geta fengið þau í heimsókn. Og svo get ég skilað þeim aftur til mömmu þeirra,“ segir hún og hlær við. holmfridur@mbl.is Ragnhildur Ólafsdóttir er 60 ára í dag Ekkert fullorðinspartí Flóðogfjara 14. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 6.06 3,8 12.22 0,8 18.20 3,5 10.58 16.17 Ísafjörður 1.48 0,6 8.01 2,2 14.28 0,6 20.09 1,8 11.31 15.54 Siglufjörður 3.49 0,5 10.03 1,3 16.31 0,3 22.56 1,1 11.15 15.35 Djúpivogur 3.22 2,0 9.32 0,6 15.20 1,7 21.28 0,4 10.34 15.39 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Í lífinu er mikilvægt að gæta jafn- vægis. Árið færir þér rómantík, daður, frí og fleiri skemmtilega hluti. (20. apríl - 20. maí)  Naut Nú ert þú komin/n á rétta hillu í lífinu, á því er enginn vafi. Allt mun snúast þér í hag næstu árin, sannaðu til. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú hefur ákveðnar skoðanir. Hafðu hemil á þinni eðlislægu árásarhneigð. Sveitaferð er ánægjuleg og til þess að hlakka til. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þér er umhugað um fjármálin og því er þetta ekki góður dagur til innkaupa. Þú færð verðskuldaða viðurkenningu. Taktu þig nú á, drífðu þig út í göngutúr! (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Annríki þitt kallar á tíma fyrir slökun. En gleymdu þó ekki að halda utan um þína nánustu; það eru þeir, sem gefa þér kraftinn. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Virðing jafnoka þinna gleður þig, en samt ekki næstum jafn mikið og virðing fjöl- skyldu þinnar. Sýndu þolinmæði í uppeldinu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er kominn tími til að hitta gömlu fé- lagana og endurnýja kynnin og rifja um leið upp góðar minningar. Skoðaðu atvinnutilboð vel og vandlega áður en þú skrifar undir. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þótt það sé alltaf auðvelt að leita uppi gamlar lausnir er það lélegt til lengdar. Hafðu augun hjá þér svo ekki komi til þess að á þig verði snúið. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú hefur með ákveðni og þolin- mæði náð þeim áfanga sem þú hefur lengi stefnt að. Haltu ró þinni, brjóttu málin til mergjar og framkvæmdu svo. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú munt eyða tíma á erlendri grundu sem reynist þér síður en svo þægi- legt. Erfiðleikar hafa lítið að segja ef þú lyftir huganum yfir þau. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Láttu engan hafa svo mikil áhrif á þig að þú gerir eitthvað sem stangast á við réttlætiskennd þína. Samspil, eðlishvöt og hjartalag eru málið. Ýmislegt er í pípunum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi og lít- ilfjörlegustu atvik geta leitt til styrjalda. Sinntu vinum og vandamönnum sérstaklega vel næstu vikurnar. Stjörnuspá Ásgeir Bolli Kristinsson verð- ur sextugur á morgun, 15. jan- úar. Hann tekur á móti vinum sín- um og vanda- mönnum á Hótel Borg frá kl. 17 til 19 á afmælisdaginn. 60 ára Axel Sölvason, rafvélavirki og fyrrverandi starfsmaður verkfræðideild- ar Háskóla Ís- lands, verður áttræður á morgun, 15. jan- úar. Í tilefni dagsins býður hann öllum ættingjum og vinum til hófs á afmælisdaginn frá kl. 17 til 19 í Borgum, safnaðarheimili Kópa- vogskirkju, við Hábraut 1a (ská- hallt á móti Gerðarsafni). Allir velkomnir. 80 ára Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.