Morgunblaðið - 14.01.2011, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.01.2011, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2011 Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið - SÍÐUSTU SÝNINGAR!) Fös 14/1 kl. 20:00 besti höf. besta leikona 2008 Fös 21/1 kl. 20:00 besti höf. besta leikona 2008 Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið - sýningum lýkur í vor) Fös 25/2 kl. 20:00 besti höf. besta leikari 2007 Fös 4/3 kl. 20:00 besti höf. besta leikari 2007 Fös 11/3 kl. 20:00 besti höf. besta leikari 2007 Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið HETJA eftir Kára Viðarsson (SÖGULOFTIÐ- fjögurra stjörnu leiksýning) Fim 27/1 kl. 17:00 kitlar hláturtaugarnar Þetta er lífið 5629700 | opidut@gmail.com Þetta er lífið...og om lidt er kaffen klar. Lau 22/1 kl. 20:00 Fös 28/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 Fös 4/2 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00 Fim 24/2 kl. 20:00 FIMM STJÖRNU KABARETT með Charlotte Bøving. Íslenska óperan 511 4200 | midasala@opera.is Svanasöngur eftir Schubert Fös 4/2 kl. 20:00 Flytjendur: Ágúst Ólafsson, Gerrit Schuil og Lára Stefánsdóttir Hádegistónleikar ungra einsöngvara Þri 25/1 kl. 12:15 Gestasöngvari: Snorri Wium Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Ofviðrið (Stóra svið) Þri 18/1 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 20:00 Brúðuheimar í Borgarnesi 530 5000 | hildur@bruduheimar.is GILITRUTT Sun 16/1 kl. 14:00 Ö síðastu sýn.ar Sun 16/1 aukas. kl. 16:00 Sun 23/1 kl. 14:00 allra síðasta sýn. Dísa ljósálfur 5629700 | pok@islandia.is Dísa ljósálfur (Austurbær) Sun 16/1 kl. 14:00 síðustu sýn.ar Lau 22/1 kl. 20:00 síðustu sýn.ar Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Íkvöld verður ný íslensk kvik-mynd, Rokland, frumsýnd.Leikstjórinn og handritshöf-undurinn Marteinn Þórsson hefur lengi starfað við dagskrárgerð hér á landi. Hann gerði einnig frá- sagnarkvikmyndina Eina gráðu, árið 2004, en hún var valin í aðalkeppnina á Sundance-kvikmyndahátíðinni það ár og hefur síðan ratað víða um heim. Rokland er aðlögun á samnefndri metsölubók Hallgríms Helgasonar frá árinu 2005 en bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs tveimur árum síðar. Eðli málsins samkvæmt straumlínulagar kvikmyndaaðlögunin skáldsöguna þannig að áherslur breytast og nýtt verk fæðist enda um afar ólíka miðla að ræða. Sagan segir af andhetjunni Bödda Steingríms sem líkt og eitt átrún- aðargoðið hans, Grettir Ásmund- arson, er bellinn bæði í orðum og til- tektum. Báðir eru þeir fæddir og uppaldir á Norðurlandi vestra en ólíkt Gretti, sem fór í útlegð til Drangeyjar, verður Böddi eiginlegur útlagi í mannlegu samfélagi eftir mis- heppnaða ferð út í eyjuna. Böddi reynir af fullmiklu offorsi að „end- urhæfa“ sveitunga sína á Sauðár- króki frá villu síns vegar með því að upphefja menningararfinn, þjóðleg gildi og rómantískan skáldskap á kostnað óheftrar efnishyggju og smá- borgaralegar forheimsku. Sér til halds og trausts hefur Böddi tilvist- arspekilegar kenningar Nietzsche og skáldskap Goethe en í faustískum of- urmennisham geta örlög hans ekki orðið annað en grimm. Líkt og Nietzsche virðist Böddi sturlast að lokum en á leið sinni til glötunar held- ur hann úti bloggi sem rímar ágæt- lega við lauslega sjálfsævisöguleg skrif Goethe í Raunum Werthers unga. Eins og í bókinni rennur sögu- mannsrödd Bödda saman við sjón- arhorn frásagnarinnar en andhetjan sjálf er líklega örlítið geðþekkari í myndinni. Ólafur Darri er magnaður í hlutverki Bödda en þokki leikarans smitast óhjákvæmilega, upp að vissu marki, yfir á persónuna sem hann ljær líf. Þetta er þó ekki ókostur því áhorfendur eiga fyrir vikið auðveld- ara með að samsama sig við angist Bödda. Myndin státar af miklu persónu- galleríi en af aukapersónum láta bæj- arskækjan Dagga, Viddi bróðir Bödda og draumadísin hans, Lára María, mest til sín taka. Elma Lísa leikur Döggu af mikilli sannfæringu en persóna hennar verður líkt og Böddi á einhvern óviðfelldinn hátt hrífandi. Sem skækja er hún í alla staði afar líkamleg en einnig hressi- lega hispurslaus og á sama tíma út- smogin við að ráðskast með karlmenn bæjarins. Stefán Hallur er í hlutverki plebba-gosans Vidda en persóna hans er ekki eins hrífandi og Böddi og Dagga, líklega vegna þess að hann hefur ekki orðið jafn illa undir í lífinu og þau og það sama gildir um Láru Maríu sem leikin er af Láru Jóhönnu. Persóna hennar er líklega sú flatasta í þeim skilningi að hún er of venjuleg og saklaus, eiginlega of góð fyrir þann heim sem hún er stödd í. Rokland hefur augljóslega haft að- gang að sæmilegu fjármagni eins og sést til að mynda á fjölda tækni- brellna og grafískri myndvinnslu sem heppnast stundum vel en stíllinn verður frekar ofhlaðinn á köflum. Þetta á sérstaklega við um teikni- myndaþætti myndarinnar því þó að þeir séu vissulega frumlegir rjúfa þeir svolítið töfra frásagnarinnar. Af- bökunin á myndfleti kvikmyndarinn- ar sjálfrar, sem eykst er á líður myndina og Böddi missir meira tökin á tilverunni, tengist frásögninni betur í þessu tilviki. Myndin er enginn sykurpúði, hún er hvorki ljúfsárt drama né ærsla- grín eins og svo oft vill verða í ís- lenskum kvikmyndum. Hér er á ferð sótsvört, meinfyndin og frekar gró- tesk mynd með áþreifanlegri angist og spennu sem magnast líkt og skrið- þungi er á líður. Enginn sykurpúði! Sambíóin Rokland bbbbn Leikstjórn og handrit: Marteinn Þórs- son. Aðlögun á samnefndri skáldsögu eftir Hallgrím Helgason. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Elma Lísa Gunn- arsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Laddi. 110 mín. Ísland, 2010. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR Magnaður „Ólafur Darri er magnaður í hlutverki Bödda en þokki leikarans smitast óhjákvæmilega, upp að vissu marki, á persónuna sem hann ljáir líf,“ segir gagnrýnandi m.a. um Rokland og er einkar sáttur við kvikmyndina. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Ofviðrið (Stóra sviðið) Fim 13/1 kl. 20:00 6.k Þri 25/1 kl. 20:00 Fim 10/2 kl. 20:00 10.k Þri 18/1 kl. 20:00 Mið 26/1 kl. 20:00 Sun 20/2 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 8.k Fim 3/3 kl. 20:00 Fös 21/1 kl. 20:00 7.k Fim 3/2 kl. 20:00 9.k Fim 10/3 kl. 20:00 Ástir, átök og leiftrandi húmor Fjölskyldan (Stóra svið) Lau 15/1 kl. 19:00 Fös 4/2 kl. 19:00 auka Sun 27/2 kl. 19:00 Sun 23/1 kl. 19:00 Fös 11/2 kl. 19:00 aukas Lau 29/1 kl. 19:00 Lau 19/2 kl. 19:00 aukas "Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu", BS, pressan.is Jesús litli - leikferð (Hof - Hamraborg) Lau 15/1 kl. 16:00 Sun 16/1 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 21:00 Lau 15/1 kl. 20:00 Þri 18/1 kl. 21:00 Fim 20/1 kl. 19:00 Sun 16/1 kl. 16:00 Mið 19/1 kl. 19:00 Fim 20/1 kl. 21:00 Sýnt í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í samstarfi við LA Faust (Stóra svið) Fös 14/1 kl. 22:00 Fim 27/1 kl. 20:00 aukas Sun 13/2 kl. 20:00 aukas Sun 16/1 kl. 20:00 Fös 28/1 kl. 20:00 aukas Fös 18/2 kl. 20:00 aukas Fim 20/1 kl. 20:00 Sun 6/2 kl. 20:00 aukas Lau 22/1 kl. 20:00 Lau 12/2 kl. 20:00 aukas Aukasýningar vegna fjölda áskorana Elsku Barn (Nýja Sviðið) Fim 13/1 kl. 20:00 frums Mið 26/1 kl. 20:00 5.k Mið 9/2 kl. 20:00 Fös 14/1 kl. 19:00 2.k Sun 30/1 kl. 20:00 6.k Fim 10/2 kl. 20:00 Fös 21/1 kl. 20:00 3.k Mið 2/2 kl. 20:00 Þri 25/1 kl. 20:00 4.k Fim 3/2 kl. 20:00 Nístandi saga um sannleika og lygi Afinn (Litla sviðið) Fim 13/1 kl. 20:00 fors Fös 21/1 kl. 19:00 6.k Fim 27/1 kl. 20:00 10.k Fös 14/1 kl. 20:00 frums Fös 21/1 kl. 22:00 aukas Fös 28/1 kl. 19:00 11.k Lau 15/1 kl. 20:00 2.k Lau 22/1 kl. 19:00 7.k Fös 28/1 kl. 22:00 aukas Sun 16/1 kl. 20:00 3.k Lau 22/1 kl. 22:00 aukas Lau 29/1 kl. 19:00 Mið 19/1 kl. 20:00 4.k Sun 23/1 kl. 20:00 8.k Lau 29/1 kl. 22:00 Fim 20/1 kl. 20:00 5.k Mið 26/1 kl. 20:00 9.k Sun 30/1 kl. 20:00 Óumflýjanlegt framhald Pabbans Elsku barn - frumsýnt í kvöld ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Sindri silfurfiskur (Kúlan) Sun 13/2 kl. 13:30 Sun 20/2 kl. 13:00 Sun 13/2 kl. 15:00 Sun 20/2 kl. 15:00 Sýningar að hefjast á ný! Miðasala hafin. Gerpla (Stóra sviðið) Fim 20/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 Síð.sýn. Sýning ársins. I.Þ Mbl. Aðeins tvær sýningar eftir! Fíasól (Kúlan) Sun 16/1 kl. 13:00 Sun 23/1 kl. 13:00 Sun 16/1 kl. 15:00 Sun 23/1 kl. 15:00 Yfir 100 sýningar. Síðasta sýning 23. janúar. Hænuungarnir (Kassinn) Lau 15/1 kl. 20:00 Fim 20/1 kl. 20:00 Sun 23/1 kl. 17:00 Allra síð.sýn. Sun 16/1 kl. 20:00 Lau 22/1 kl. 20:00 Sun 23/1 kl. 20:00 Síð.sýn Aukasýning 23.jan. kl. 17:00 komin í sölu. Allra síðasta sýning! Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Lau 15/1 kl. 19:00 Sun 23/1 kl. 19:00 Lau 5/2 kl. 19:00 Sun 16/1 kl. 19:00 Lau 29/1 kl. 19:00 Lau 22/1 kl. 19:00 Fös 4/2 kl. 19:00 Sýningum fer fækkandi. Ath! Sýningarnar hefjast kl. 19:00 Lér konungur (Stóra sviðið) Fös 14/1 kl. 20:00 7.sýn. Fim 27/1 kl. 20:00 Fös 11/2 kl. 20:00 Fös 21/1 kl. 20:00 8.sýn. Fös 28/1 kl. 20:00 Lau 12/2 kl. 20:00 Magnaður leiksigur. B.S Pressan Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Fim 3/2 kl. 18:00 Sun 13/2 kl. 14:00 Sun 20/2 kl. 17:00 Sun 6/2 kl. 14:00 Sun 13/2 kl. 17:00 Sun 27/2 kl. 14:00 Sun 6/2 kl. 17:00 Sun 20/2 kl. 14:00 Sun 27/2 kl. 17:00 Gerður Kristný og Bragi Valdimar! Hvað EF - skemmtifræðsla (Kassinn) Þri 18/1 kl. 20:00 Þri 25/1 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 20:00 Mið 26/1 kl. 20:00 Flott sýning fyrir foreldra og unglinga! Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is Rocky Horror (Hamraborg) Fös 11/2 kl. 20:00 24.sýn Lau 19/2 kl. 20:00 26.sýn Lau 12/2 kl. 20:00 25.sýn Fös 25/2 kl. 20:00 27.sýn Sýningin er ekki við hæfi barna Jesús litli (Hamraborg) Lau 15/1 kl. 16:00 1,sýn Sun 16/1 kl. 20:00 4. sýn Mið 19/1 kl. 21:00 6. sýn. Lau 15/1 kl. 20:00 2.sýn Þri 18/1 kl. 21:00 5. sýn. Fim 20/1 kl. 19:00 7. sýn. Sun 16/1 kl. 16:00 3. sýn Mið 19/1 kl. 19:00 Aukas Fim 20/1 kl. 21:00 8.sýn Villidýr og pólitík (Samkomuhúsið) Fös 28/1 kl. 20:00 1.syn Lau 29/1 kl. 20:00 2.syn Aðeins 2 sýningar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.