Morgunblaðið - 14.01.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2011
Ljósmynd/Zoe Robert
Kæra Höfuðstöðvar Eftirlitsstofn-
unar EFTA (ESA) í Brussel.
FRÉTTASKÝRING
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Við mat Ríkiskaupa, fyrir hönd
Varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, á samningsaðilum
vegna leigu á ljósleiðaraþræði vó
örvun samkeppni mun þyngra en
aðrir þættir sem horft var til, þar á
meðal boðið leiguverð. Svo fór að
Vodafone gekk frá samningi til tíu
ára um leigu á þræðinum, en um er
að ræða einn af átta þráðum í sama
streng, sem liggur hringinn í kring-
um landið.
Líkt og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur fjarskiptafyrir-
tækið Míla, sem fer með yfirráð yfir
fimm þráðum af átta í strengnum,
kært leigusamninginn til Eftirlits-
stofnunar EFTA (ESA). Í kærunni
er því haldið fram að leiguverðið sé
langt undir eðlilegu markaðsverði og
því sé um að ræða verulegan ríkis-
styrk til handa fyrirtæki í sam-
keppnisrekstri. Vodafone þurfi ein-
ungis að greiða hluta af
rekstrarkostnaði og sé laust við
kostnað af lagningu, endurnýjun og
afskriftum.
„Þetta er hljóð úr horni einokun-
araðila sem er að missa spón úr aski
sínum,“ segir Hrannar Pétursson,
upplýsingafulltrúi Vodafone. Hann
segir tilkomu þráðarins gera Voda-
fone sjálfstæðara í sínum rekstri, þó
fyrirtækið eigi áfram í viðskiptum
við Mílu á öðrum sviðum. Vodafone
hafi raunar verið einn stærsti ein-
staki viðskiptavinur Mílu. „Nú get-
um við boðið fyrirtækjum og stofn-
unum þjónustu í samkeppni við
Mílu,“ segir hann. Míla sé þannig
bæði að missa einn stærsta við-
skiptavin sinn og þurfi að takast á við
aukna samkeppni á markaðnum.
Hrannar segir ýmislegt villandi í
málflutningi Mílu. Fyrir það fyrsta
sé leiguupphæðin gengistryggð.
Hún sé 25 milljónir á þessu ári, en
ekki 19 milljónir eins og haldið hafi
verið fram. Hann segir jafnframt að
ekkert sé óeðlilegt við það að Voda-
fone greiði einungis hluta rekstrar-
kostnaðar strengsins. „Við teljum
það þvert á móti fullkomlega eðli-
legt, af því við erum að leigja hluta af
strengnum, en ekki allan strenginn.
Þá borgum við hluta af rekstrar-
kostnaðinum,“ segir Hrannar. Hann
segir fyrirtækið hafa þurft að leggja
út á annað hundrað milljónir í kostn-
að vegna kaupa og uppsetningar á
búnaði til þess að taka þráðinn í
notkun. „Þannig að kostnaður okkar
af þessu er auðvitað miklu meiri en
sá sem fer í leigu á þræðinum.“
Verð ekki veigamesti þátturinn
Kæra Mílu vegna leigu Vodafone á ljósleiðaraþræði „hljóð úr horni einokunaraðila sem er að missa
spón úr aski sínum,“ segir upplýsingafulltrúi Vodafone Örvun samkeppni veigamest í auglýsingu
Þráðurinn sem Vodafone leigir
nú er leigður af utanríkisráðu-
neytinu, sem tók yfir hluta af
starfsemi Varnarmálastofnunar
frá áramótum. Þegar stjórnvöld
tóku rekstur Ratsjárstofnunar
yfir árið 2007 fylgdu þrír ljós-
leiðaraþræðir NATO með.
Þræðirnir fluttust síðan til
Varnarmálastofnunar en rekst-
ur þeirra heyrir nú undir ráðu-
neytið. Ekki liggur fyrir hvernig
rekstrarfyrirkomulagi þeirra
verður háttað til langframa.
Ráðuneyti
leigusalinn
LJÓSLEIÐARAÞRÆÐIR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mikill austanstormur geisaði með
suðurströndinni í gær. Hvasst var í
Öræfum og sandrok og stormur á
Mýrdalssandi, undir Eyjafjöllum
og í Vestmannaeyjum.
„Það er bara snælduvitlaust,“
sagði Sigurjón Pálsson á Steinum
undir Eyjafjöllum þegar hann var
spurður um veðrið í gær. Veðurstöð
Vegagerðarinnar hjá Steinum
sýndi mjög sterkar hviður, þar af
þrjár sem slógu í eða yfir 50 m/s í
fyrrinótt, en svo datt allt í dúnalogn
á mælinum upp úr klukkan níu í
gærmorgun. Sigurjón sagði að ekki
hefði lægt heldur hefði vindmælir-
inn fokið niður í gærmorgun.
„Þetta er með því verra nú á seinni
árum,“ sagði Sigurjón um óveðrið.
En hafði orðið eitthvert tjón á
Steinum?
„Ekki sem maður veit um en við
förum ekki nema rétt í fjós,“ sagði
Sigurjón. Hann sagðist hafa þurft
að ganga með húsveggjum og sæta
lagi á milli bylja til að stökkva á
milli húsa.
„Það er ekki gefandi neinum
skepnum úti og ekki hægt að opna
neinar dyr. Þetta er bara sand- og
öskubylur og grjóthríð.“ Mikil aska
hafði smeygt sér inn í bæinn á
Steinum í gær. Hvergi var skjól þar
í gær til að aska safnaðist fyrir. Sig-
urjón hafði þó heyrt að ösku væri
farið að draga í skafla á einum bæ.
Hann taldi að það væri nær ófært
að ferðast undir Fjöllunum enda
ekki nema einn og einn bíll á ferð.
Þau í Steinum hreyfðu ekki bíl í
gær. Veðrið dúraði aðeins milli
klukkan þrjú og fjögur en svo bætti
hann aftur í á Steinum.
Kubbuðust í sundur
„Í versta veðrinu í morgun
brotnuðu hjá mér þrjár flaggsteng-
ur og það brotnuðu hjá mér rúður,“
sagði Elías Guðmundsson, eigandi
Víkurskála í Vík í Mýrdal. Hann
sagði að fánastangirnar hefðu legið
inn á miðjan þjóðveg í gærmorgun.
Engir fánar voru á stöngunum, sem
eru úr trefjagleri. Þær kubbuðust í
sundur niðri við festingu.
„Það var alveg ofboðslegt veður
hér í einn til einn og hálfan tíma í
morgun,“ sagði Elías í gær.
Flutningabílar og fólksbílar biðu
af sér veðrið við Víkurskála í gær
og voru fimm eða sex á planinu þeg-
ar mest var, að sögn Elíasar. Sand-
bylurinn var svo svartur á Mýrdals-
sandi að bílstjórarnir sáu ekki út úr
augum.
Björgunarfélag Vestmannaeyja
sinnti tíu til tólf verkefnum frá um
klukkan tíu í gærmorgun og fram-
undir klukkan sex. Við þetta voru
fimm til sex félagar í BV á einum
bíl.
„Þetta voru aðallega þök, utan-
hússklæðningar og ýmislegt þann-
ig,“ sagði Arnar I. Ingimarsson.
Síðasta verkefnið var að festa
svalahandrið sem var að fjúka af
fjölbýlishúsi. Við þrjú verkefnanna
þurfti að nota kranabíl. Arnar sagði
að flest verkefnin hefðu verið í vest-
urbæ Vestmannaeyja og veðrið
verst þar.
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Óveður Mjög vont veður var í Vestmannaeyjum í gær og mikið særok við höfnina. Björgunarfélag Vestmannaeyja sinnti 10-12 óveðursverkefnum.
Snælduvitlaust veður
Stormur og öskufok undir Eyjafjöllum Fánastengur og rúður brotnuðu
í Vík Blinda vegna sandbyls á Mýrdalssandi Útköll vegna storms í Eyjum
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) afhenti í gær Ögmundi Jón-
assyni innanríkisráðherra mótmæli
um 41.000 kosningabærra Íslend-
inga gegn vegatollum á leiðum til og
frá höfuðborginni. Er þetta ein
stærsta undirskriftasöfnun sem
fram hefur farið hér á landi, að sögn
FÍB. Undirskriftasöfnunin hófst 3.
janúar á vefsíðu FÍB og stóð í aðeins
átta daga.
Dagmar Björnsdóttir, ritari
stjórnar FÍB, afhenti Ögmundi inn-
anríkisráðherra undirskriftalistann
á minnislykli. Markmið FÍB með
undirskriftasöfnuninni var „að opna
augu stjórnvalda fyrir því glapræði
að reisa tollamúr í kringum höfuð-
borgarsvæðið til að fjármagna
margfalt dýrari vegaframkvæmdir
en þörf krefur,“ eins og segir í til-
kynningu.
41 þúsund
mótmæltu
vegatollum
Morgunblaðið/Kristinn
Slæmt ferða-
veður var á
Hellisheiði, líkt
og víðar, í gær-
kvöldi. Þar var
blint og verst frá
Hveradölum að
Kömbum.
Tveir flutn-
ingabílar komust
ekki um Kamb-
ana fyrir kvöld-
mat vegna mikillar hálku. Um síðir
tókst að koma bílunum sína leið. Þá
fór vörubíll þversum í Draugahlíð-
arbrekku og fékk hann aðstoð
Björgunarsveitarinnar í Hveragerði.
Fjórir bílar lentu í árekstri á
Reykjanesbraut, nálægt IKEA, um
kl. 18.00 í gær. Enginn slasaðist en
draga þurfti tvo bílana af vettvangi.
Þá varð tíu bíla árekstur í Hafn-
arfirði um kl. 15.30 á mótum Sel-
vogsgötu og Suðurgötu. Enginn
slasaðist þar.
Hálka og
blinda ollu
óhöppum
Umferð Nokkur
óhöpp urðu í gær.
Veðurstofan taldi að bálhvasst
yrði syðst á landinu í nótt og að
veður færi að ganga aðeins niður
með morgninum. Áfram verður
hvasst á sunnanverðu landinu og
allt að því stormur í dag.
Þá verður allhvöss NA-átt á
Vestfjörðum og gengur á með élj-
um þar. Á morgun getur hvesst á
NA-landi og orðið lítið skyggni.
Óveður var um sunnanvert
landið í gær, allt frá Hvolsvelli og
austur yfir Mýrdalssand. Eins var
hvasst og sterkar vindhviður í
Öræfasveit. Í Vestmannaeyjum
geisaði austanstormur og var 37
-39 m/s vindur á Stórhöfða og
allt að 49 m/s í hviðum.
Lægir með morgninum
ÚTLIT ER FYRIR AÐ ÁFRAM VERÐI LEIÐINDAVEÐUR VÍÐA
Morgunblaðið/Ómar