Morgunblaðið - 14.01.2011, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2011
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarFIMM ÓKUNNUGIR FASTIR Í LYFTU OG EITT ÞEIRRAER EKKI ÞAÐ SEM ÞAÐ VIRÐIST VERA
THE TOURIST Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
ALFA OG ÓMEGA Í 3D Sýnd kl. 4 og 6 ísl. tal
GULLIVER’S TRAVELS 3D Sýnd kl. 4
SAW 3D Sýnd kl. 8 og 10
LITTLE FOCKERS Sýnd kl. 4, 6 og 8
DEVIL Sýnd kl. 10
STÓRSKEMMTILEG
GAMANMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
HHH
“Djöfulli” gott bara...
A.E.T - MBL
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
VINIRNIR KATA OG HAFFI ERU NUMIN Á BROTT FRÁ
HEIMALANDI SÍNU OG LENDA ÞAU Í ÓTRÚLEGUM ÆVIN-
TÝRUM ÞEGAR ÞAU REYNA AÐ FINNA LEIÐINA HEIM.
SJÁÐU SAW EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI
SÉÐ ÁÐUR Í ÓTRÚLEGUM LOKAKAFLA.
HROTTALEG SPENNA Í ÞVÍVÍDD
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
BURLESQUE kl. 8 - 10.10
ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 6
THE TOURIST kl. 10
GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 8
LITTLE FOCKERS kl. 10
L
L
12
L
12
Nánar á Miði.is
BURLESQUE kl. 5.20 - 8 - 10.35
BURLESQUE LÚXUS kl. 5.20 - 8 - 10.35
ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 3.30
THE TOURIST kl. 5.40 - 8 - 10.20
GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
LITTLE FOCKERS Kl. 8 - 10.20
GAURAGANGUR KL. 5.50
MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 3.40
NARNIA 3 3D KL. 3.30
L
L
L
12
L
12
7
L
7
BURLESQUE kl. 8 - 10.30
ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 6
THE TOURIST KL. 5.40 - 8 - 10.20
GULLIVER´S TRAVELS 3D KL. 5.50
DEVIL KL. 10.20
GAURAGANGUR KL. 5.50 - 8 - 10.10
NARNIA 3 2D KL. 8
L
L
12
L
16
7
7
HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR
Í 3-D OG 2-D
MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 3-D
-H.S, MBL-K.G, FBL
AF SJÓNVARPI
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Undirritaður hefur veriðlímdur við skjáinn sein-ustu daga en sleppt með
öllu að horfa á dagskrá íslenskra
sjónvarpsstöðva. Og hvað er það
sem heillar svo mjög? Jú, fjölda-
morðinginn Dexter. Það skal þó
tekið fram, áður en lengra er
haldið, að sá sem hér skrifar er
ekki aðdáandi fjöldamorðingja
og óskandi væri að slíkar skepn-
ur gengju ekki á meðal vor. En
Dexter er ekki til í raun og veru,
sem betur fer, hann er aðal-
persóna sjónvarpsþáttanna Dex-
ter sem hófu göngu sína árið
2006 í Bandaríkjunum og hafa
verið sýndir á Skjá einum.
Þættir þessir segja af blóð-slettusérfræðingnum Dexter
Morgan sem starfar fyrir rann-
sóknarlögregluna í hinni sólríku
og litríku borg Miami. Dexter
þessi er furðufróður um blóð-
slettur og getur séð nákvæmlega
fyrir sér hvernig morð hafa ver-
ið framin, enda morðingi sjálfur
og það fjöldamorðingi. Þá kemur
það samstarfsmönnum hans sí-
fellt á óvart hversu auðveldlega
hann getur sett sig í spor morð-
ingjans og hversu oft hann reyn-
ist hafa rétt fyrir sér þegar leysa
þarf morðgátur. Þó að Dexter sé
hinn alþýðlegasti og meinlaus á
yfirborðinu, m.a. mikil barna-
gæla, býr í honum skelfilegt
óargadýr sem fær aldrei nóg af
því að myrða fólk með hrottaleg-
um hætti, búta niður og sökkva í
ruslapokum í hafið, í skjóli nætur.
En Dexter er sérstakurfjöldamorðingi að því leyti
að hann drepur aðeins þá sem
drepið hafa aðra og þá fleiri en
einn. Fjöldamorðingi sem refsar
fjöldamorðingjum, skemmtilega
snúið það. Dexter er sannfærður
um að þetta sé í lagi og fylgir
ákveðnum reglum sem faðir hans
setti honum þegar í ljós kom að
Dexter byggi yfir skelfilegri
drápsþörf. Þeir sem fylgjandi eru
dauðarefsingum eiga sjálfsagt
auðveldara með að samþykkja
þessa hegðun Dexters, að komast
að þeirri niðurstöðu að morð-
ingjar séu réttdræpir. Við hin,
sem ekki erum fylgjandi dauða-
refsingu, eigum erfiðara með það
og sá sem hér skrifar fylltist hálf-
gerðu samviskubiti yfir því að
halda með Dexter. Það má
„þakka“ leikaranum sem túlkar
Dexter, hinum snjalla Michael C.
Hall.
Hall er afskaplega viðkunn-
anlegur leikari (hann var ógleym-
anlegur í hlutverki samkyn-
hneigða útfararstjórans í
þáttununum Six Feet Under) sem
nær að vekja með áhorfandanum
samúð með fjöldamorðingjanum.
Hall tekst snilldarlega að túlka
þessa persónu, getur á auga-
bragði breyst úr ljúflingi í djöful í
mannsmynd. Honum tekst að fá
áhorfandann á sitt band og fyrir
vikið óskar áhorfandinn þess að
morðinginn náist ekki. Það verð-
ur að teljast býsna sérstakt,
undirritaður man ekki eftir því
að hafa áður verið í liði með
fjöldamorðingja. Ekki gat maður
fundið til samúðar með mann-
ætunni Hannibal Lecter á sínum
tíma, í túlkun Anthonys Hopksins.
Enda átti maður ekki að gera
það. En maður naut þess að
skyggnast inn í skelfilegan hug-
arheim hans, engu að síður.
Þáttaraðirnar um Dexter erunú orðnar fimm og sú sjötta
á leiðinni. Undirritaður hefur séð
tvær þáttaraðir og því nóg eftir.
Dexter heldur væntanlega áfram
að kljúfa morðingja í herðar nið-
ur og blekkja lögregluna við dill-
andi salsatónlist í suðuramerískri
stemningu Miami-borgar. Tekst
lögreglunni að hafa hendur í hári
Dexters að lokum? Sennilega
ekki. Já, maður getur vissulega
haft samúð með djöflinum. Það er
notalega hrollvekjandi.
Samúð með djöflinum
»Hall tekst snilldar-lega að túlka þessa
persónu, getur á
augabragði breyst
úr ljúflingi í djöful
í mannsmynd.
Skrímslið Michael C. Hall í hlutverki viðkunnanlega fjöldamorðingjans og blóðslettufræðingsins Dexters.