Morgunblaðið - 14.03.2011, Side 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2011
Sudoku
Frumstig
6 7 2 5
2 9 4
5 9 4 8 7
4 2 7 8 6
5 3
7 2 3
9 3 2 7 6 4
1 4 5 2
3 8 4 1
4 3
2 5 1 3
8 5 2 4 7
2
9 8
7 1 8
6 9
7 1 9 2
9 4 2 5
7 6 3
5 7
3 1
2 7 5 3 4
4 3 2
1 7 9 4 6 3 5 2 8
3 6 8 9 5 2 1 4 7
2 5 4 7 1 8 3 6 9
4 8 5 6 3 9 2 7 1
7 3 1 5 2 4 8 9 6
9 2 6 8 7 1 4 3 5
8 9 7 3 4 5 6 1 2
6 4 2 1 8 7 9 5 3
5 1 3 2 9 6 7 8 4
8 2 6 5 7 4 3 9 1
9 5 3 6 8 1 2 4 7
4 7 1 2 9 3 5 8 6
1 6 5 9 4 2 8 7 3
3 8 4 1 6 7 9 2 5
7 9 2 3 5 8 6 1 4
5 3 8 4 1 9 7 6 2
2 4 7 8 3 6 1 5 9
6 1 9 7 2 5 4 3 8
1 2 7 4 8 5 6 3 9
3 9 6 2 1 7 8 4 5
8 4 5 6 3 9 7 1 2
9 3 2 5 6 4 1 7 8
4 7 8 3 2 1 9 5 6
5 6 1 7 9 8 4 2 3
6 1 4 9 5 2 3 8 7
2 8 9 1 7 3 5 6 4
7 5 3 8 4 6 2 9 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 14. mars, 73. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Og ég veit að boðorð
hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það
tala ég því eins og faðirinn hefur sagt
mér. (Jh. 12, 50.)
Víkverji er búsettur í Reykjavík og
greiðir þar sína skatta og skyldur.
Fyrir utan skattgreiðslur í ríkissjóð
renna ýmis gjöld í sameiginlegan sjóð
borgarbúa eins og útsvarið, fast-
eignagjald og sorphirðugjald, að
ógleymdum rafmagns- og vatns-
reikningum Orkuveitunnar. Öll hafa
þessi gjöld hækkað og nú stendur til
að koma á viðbótar sorphirðugjaldi,
hinu margumtalaða metragjaldi.
Með óbragði í munni neyðist Vík-
verji víst til að greiða þessi gjöld,
undan því verður vart komist nema ef
vera skyldi metragjaldið. Það ætlar
Víkverji ekki að greiða, enda ennþá í
rusli yfir bullinu sem nú kemur frá
meirihlutanum í borgarstjórn og
sumum embættismönnum.
x x x
Ef það væri nú svo gott að þjón-
ustan væri að aukast og batna með
hækkandi álögum væri greiðsluvilji
Víkverja mun meiri. En staðan er nú
ekki svo góð. Til stendur að skerða
þjónustu við börnin í leik- og grunn-
skólum borgarinnar, minnka á þjón-
ustuna í sorphirðunni og Strætó bs.
er að draga úr sinni þjónustu. Eftir
að Víkverji fækkaði í bílaflota heim-
ilisins úr tveimur í einn, svo ekki sé
nú talað um hækkandi eldsneyt-
isverð, þá hefur strætó meira verið
notaður, ekki síst til að komast í og úr
vinnu. Með því að hætta akstri fyrr á
kvöldin þarf Víkverji nú að koma sér
heim af kvöldvakt með leigubíl eða
reiða sig á velviljaða samstarfsmenn.
Þannig er því hins vegar ekki háttað
að félagar Víkverja á vaktinni búi í
næsta nágrenni. Er Víkverja skapi
næst að senda leigubílareikningana
beint á borgarstjóra og láta hann
borga brúsann. Og komi rukkun um
metragjaldið fyrir sorptunnuna verð-
ur sá reikningur sendur á sama stað.
Óánægja borgarbúa kom vel í ljós á
íbúafundum um helgina þar sem
skeytunum rigndi yfir borgarstjóra
og formann menntaráðs. Af myndum
af fundunum að dæma voru þau líka
gráti nær og bíður Víkverji í ofvæni
eftir því að bakkað verði með eitthvað
af þeim rugltillögum sem úr Ráðhús-
inu hafa komið.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 brynna músum, 4
mastur, 7 nýslegna heyið, 8
bárum, 9 hamingjusöm, 11
kvendýr, 13 at, 14 svali, 15
klína, 17 ágeng, 20 skelfing,
22 drekkur með tungunni,
23 óskar eftir, 24 sér eftir,
25 hinn.
Lóðrétt | 1 borguðu, 2 ófull-
komið, 3 beitu, 4 köld, 5 fisk-
ur, 6 vesælar, 10 heiðarleg,
12 keyra, 13 gyðja, 15 talaði,
16 málmur, 18 auðugan, 19
söngflokkar, 20 grunar, 21
blása kalt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 páskavika, 8 glæta, 9 kekki, 10 nón, 11 teigs, 13 ap-
ann, 15 hlass, 18 elfur, 21 tóm, 22 rugga, 23 jafnt, 24 hrakyrðir.
Lóðrétt: 2 ámæli, 3 krans, 4 vakna, 5 kikna, 6 ógát, 7 kinn, 12
gæs, 14 pól, 15 horf, 16 angur, 17 stakk, 18 emjar, 19 fífli, 20
rita.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 g6 2. g3 Bg7 3. Bg2 e5 4. Rc3 d6 5.
e4 Rc6 6. Rge2 f5 7. d3 Rf6 8. O-O O-O
9. Rd5 Re8 10. b4 f4 11. gxf4 exf4 12.
Bxf4 Bxa1 13. Dxa1 a5 14. b5 Rb4 15.
Bh6 Hf7 16. f4 Bg4 17. Rg3 Rxd3 18.
Bg5 Db8 19. Dd4 Rc5 20. f5 Rd7 21. h3
Bh5 22. Re7+ Hxe7 23. Bxe7 Da7 24.
Dxa7 Hxa7
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Nýju-Delhi á
Indlandi. Íslenski stórmeistarinn Hen-
rik Danielsen (2516) hafði hvítt gegn
indverska alþjóðlega meistaranum
Vikramaditya Kamble (2367). 25. e5!
Rxe5 26. Bd5+ Rf7 27. Rxh5 gxh5 28.
Kh2! og svartur gafst upp enda varn-
arlaus gagnvart hótunum hvíts. Í dag,
kl. 16.30, hefst 7. umferð MP Reykja-
víkurskákmótsins en mótið er haldið í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Vandfundin fórn. S-Allir.
Norður
♠D76
♥ÁK104
♦10863
♣104
Vestur Austur
♠842 ♠5
♥8 ♥D653
♦G97 ♦KD42
♣ÁK9872 ♣DG53
Suður
♠ÁKG1093
♥G972
♦Á5
♣6
Suður spilar 4♠.
Suður opnar á 1♠. Vestur dreifir úr
væng sínum, lítur snöggt á spilabakk-
ann, sér að allir eru á hættu og passar.
Norður hækkar í 2♠. Austur leikur
sama leikinn og félagi hans áður, skoð-
ar spil sín lauslega, lítur á stöður og
passar að svo búnu. Suður lýkur sögn-
um með 4♠. Tíu slagir eru fljótteknir
og það rennur upp fyrir A-V að þeir
eiga góða fórn í 5♣. Augu þeirra mæt-
ast í gagnkvæmri ásökun. En hvar
liggur sökin?
Vandinn er þessi: Vestur á ekki nógu
góðan lit í 3♣, en of lítinn styrk í 2♣.
Og þó svo að austur sé með réttu skipt-
inguna til að dobla 2♠ á hann varla nóg
af punktum. Báðir dæmast því saklaus-
ir að mestu.
Spilið er frá Íslandsmótinu í tví-
menningi og fórnin í 5♣ fannst aðeins á
þremur borðum.
14. mars 1948
Jóhannes S. Kjarval lagði til í
grein í Morgunblaðinu að Ís-
lendingar létu byggja hvala-
friðunarskip. Listmálarinn
spurði: „Er nokkuð frjálsara,
óháðara og hlutlausara en sjá
hvali fara stefnur sínar á flöt-
um hafsins?“ Þetta hefur verið
talin ein fyrsta hugmyndin um
hvalaskoðunarferðir.
14. mars 1958
„Borgin hló,“ fyrsta ljóðabók
Matthíasar Johannessen kom
út. „Snjallar svipmyndir úr lífi
borgarbarnsins,“ sagði einn
ritdómari og annar sagði:
„Nýliði sem fagna ber og gerð-
ar verða kröfur til.“
14. mars 1969
„Fiðlarinn á þakinu“ var
frumsýndur í Þjóðleikhúsinu.
Róbert Arnfinnsson fór með
aðalhlutverkið, Tevje. „Man
ég ekki dæmi þess að leikari
hafi verið hylltur jafn innilega
að leikslokum,“ sagði leikdóm-
ari Alþýðublaðsins. Fleiri
sóttu sýningar á þessu verki
en nokkru öðru í húsinu til
þess tíma.
14. mars 1981
Veitingastaðurinn Tomma-
hamborgarar var opnaður við
Grensásveg í Reykjavík.
Tommaborgari kostaði 22
krónur og franskar kartöflur
9 krónur. Síðar urðu staðirnir
fleiri og voru þeir mjög vin-
sælir í mörg ár.
14. mars 1987
Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, bjargaði níu manns
þegar Barðinn strandaði við
Dritvík á Snæfellsnesi. Að-
stæður voru erfiðar og í Morg-
unblaðinu var þetta sagt
frækilegt björgunarafrek.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Aldurinn leggst bara vel í mig. Þegar ég var barn
fannst mér þetta alveg svakalega hár aldur en nú
sé ég þetta frá öðrum sjónarhóli og er stolt af því
að vera komin á svona virðulegan aldur. Ég upp-
lifi mig þó talsvert yngri en ég er, ég á svo ung
börn sem halda mér ungri í anda,“ segir Birna
Lárusdóttir fv. bæjarfulltrúi og húsmóðir á Ísa-
firði sem er 45 ára í dag. Hún hefur búið vestra í
fjölmörg ár og gegnt trúnaðarstörfum fyrir
byggðir þar auk þess sem hún var um nokkurt
skeið fréttamaður Ríkisútvarpsins þar vestra. „Ég
er ekki vön að halda stórt upp á afmælið mitt og
hef ekkert planað daginn í smáatriðum. Ætli ég skelli ekki í eina köku
ef einhver skyldi líta inn, allur er varinn góður eins og stundum er
sagt. Kannski held ég upp á afmælið mitt á skíðavikunni hér á Ísafirði
um páskana eða á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem haldin er
um svipað leyti. Þá stútfyllist bærinn af fólki sem hingað kemur hvað-
anæva úr heiminum. En kannski er bara best að geyma öll meirihátt-
ar hátíðahöld þangað til maður verður hálfrar aldar gamall og það er
svo sem ekki langt að bíða þess. Það er fátt sem toppar þann flotta
aldur að verða fimmtug. Eða það finnst mér.“
Birna Lárusdóttir á Ísafirði 45 ára
Virðulegur aldur
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
14. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.49 2,9 7.20 1,5 13.33 2,6 19.51 1,5 7.51 19.24
Ísafjörður 3.12 1,5 9.52 0,7 16.04 1,3 22.20 0,6 7.57 19.28
Siglufjörður 5.18 1,0 11.59 0,5 18.41 1,0 7.40 19.11
Djúpivogur 4.21 0,8 10.24 1,2 16.42 0,7 23.24 1,5 7.21 18.53
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einhver reynir að setja þér stólinn
fyrir dyrnar og þú þarft að komast að því
hvað vakir fyrir viðkomandi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hvort sem þú gerir þér grein fyrir því
eða ekki, þá ertu að markaðssetja hæfileika
þína. Beina leiðin er heiðarleg.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér er mikið niðri fyrir og þarft
nauðsynlega að fá útrás fyrir tilfinningar þín-
ar. Ekki þola neinum að nota þig sem gólf-
tusku.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það mun reyna verulega á hæfni þína
á næstunni og þú mátt búa þig undir að sum
verka þinna verði fyrir óvæginni gagnrýni.
Gerðu kröfur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú verður að haga málum svo að þú sjá-
ir skóginn fyrir trjám. Sestu niður og gefðu
þér tíma til þess að fara í gegn um málin og
kippa því í liðinn sem þarf að lagfæra.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ýmislegt hefur tekið breytingum
heima fyrir frá því í fyrra og gert þér erfitt að
ná áttum. Öll él styttir upp um síðir, mundu
það.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert full/ur óþolinmæði gagnvart
breytingum, og ert líklega að fara á svig við
allt sem þú trúir á. Njóttu dagsins og deildu
með þínum nánustu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Undirbúðu matarboð fyrir vini
þína og láttu þá taka börnin sín með sér. Geta
þín til þess að hafa áhrif á aðra, sannfæra,
skrifa, læra og markaðssetja er í hámarki.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ef þú ert í umhverfi sem bælir
sköpunarmátt þinn sem stendur, er það
ástæðan fyrir doðanum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft á allri þinni þolinmæði að
halda í samskiptum við ótiltekinn einstakling
í dag. Kannski er það vandamálið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Afslöppuð sambönd eru ánægju-
leg. Nú reynir á getu þína til þess að fyrirgefa
hið liðna og sneiða hjá kjaftasögum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur átt í einhverjum erfiðleikum
með tjáskipti við þína nánustu og líka sam-
starfsmenn. Hvernig væri að setja markið
hátt og ryðja nýjar brautir?
Stjörnuspá