Morgunblaðið - 14.03.2011, Side 11
Kræsingar Það er séð til þess að einhver næring sé fyrir líkamann ekki síð-
ur en sálina þegar leshringurinn hittist og skeggræðir bókmenntirnar.
umst eiginlega ekkert í kringum jól-
in og áramótin svo mig var farið að
vanta eitthvað til að lesa. Ég greip
þá bara einhverjar bækur sem son-
ur minn var að stúdera í MH og las
þær á meðan. Maður finnur sér allt-
af eitthvað til að lesa.“
Ekki stendur á svari þegar
Bryndís er innt eftir því hvort ein-
hver bók sé eftirminnilegri en önn-
ur. „Það var mjög skemmtilegt að
lesa Tvíburana eftir Tessu de Loo
og fjalla um hana frá öllum hliðum.
Það var líka mjög gaman að taka
fyrir Sjálfstætt fólk, þótt margar
okkar væru búnar að lesa hana fyr-
ir. Stundum höfum við líka lesið bók
og horft svo á bíómynd sem hefur
verið gerð eftir henni, eins og þegar
við lásum Hroka og hleypidóma. Þá
ræddum við bókina fyrst og skellt-
um okkur svo í að horfa á myndina.“
Stöku sinnum hafa þær vinkon-
ur gert sér ferð út fyrir borgar-
mörkin. „Við fórum t.d. í fyrra á
Egluslóðir eftir að hafa lesið bókina
og eins höfum við farið saman í sum-
arbústað.“
Og þegar þær hittast er séð til
þess að líkaminn fái sína næringu,
ekki síður en sálin. „Við erum alltaf
með eitthvað til að borða; annað-
hvort eldum við eitthvað gott á
staðnum eða grípum með brauð og
með því úr bakaríinu. Við höfum
þannig oft slegið þessu saman við
góðan bröns á sunnudags-
morgnum.“
Börn kvennanna í leshringnum
eru nú uppkomin, orðin 23 ára. „Við
héldum áfram að hittast þótt börnin
hættu í skólanum. Þau halda reynd-
ar alltaf vinskap og það sama má
segja um okkur þannig að við höfum
orðið ágætis vinkonur í gegnum
þetta.“
Leshringurinn F.v. Gerður Kristjánsdóttir, Bryndís Gunnlaugsdóttir, Þóra
Halldórsdóttir, Þórunn Liv Kvaran og Þórdís Gunnarsdóttir lestrarhestar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2011
Vorið 2008 var ákveðið aðhefja skyldi endurskoðuná lögum um dýravernd ogjafnframt að skoða ákvæði
laga um búfjárhald og um friðun og
veiðar á villtum fuglum og spendýr-
um, með það fyrir augum að sam-
ræma sem best ákvæði þessara laga
og laga um dýravernd.
Markmið með endurskoðuninni
var m.a. að stjórnsýsla og eftirfylgni
mála á sviði dýraverndar yrði skil-
virk og sem einföldust í framkvæmd
og að fara yfir hvort endurskoða
þyrfti þvingunarúrræði og viðurlög
laga um dýravernd.
Endurskoðun þessi hefur reynst
umfangsmikil og nefnd sérfræðinga
á þessu sviði hefur annast þetta
verkefni og nú eru drög að frum-
varpi til laga nær tilbúin. Nefndin
kynnti sér löggjöf nágrannaþjóð-
anna á þessu sviði og þó einkum ný-
lega löggjöf Norðmanna, sem þykir
skara fram úr, enda vel til verksins
vandað á sex ára tímabili.
Í frumvarpinu er lagt til að heiti
málaflokksins verði breytt og að tal-
að verði um lög um dýravelferð, þar
sem talið er að hugtakið velferð dýra
lýsi betur efnisinntaki frumvarpsins.
Frumvarpið miðar að því að stuðla
að góðri meðferð dýra, t.d. með fyr-
irbyggjandi aðgerðum, en ekki ein-
vörðungu vernd gegn því að ekki sé
farið illa með dýr.
Mannúðleg aflífun meindýra
Fjölmargar nýjungar eru í frum-
varpinu, sem ætlað er að auka vel-
ferð dýra. Tekið er fram að nú verð-
ur skylt að fara vel með dýr, í stað
þess að bannað sé að fara illa með
dýr. Gildissvið frumvarpsins nær
m.a. til búfjár bæði í matvælafram-
leiðslu og í annarri þjónustu við
manninn, þ.e. nytja- og sýning-
ardýra og gæludýra, en einnig til
þeirra dýra sem við köllum meindýr
og tekið er fram að aflífun allra dýra,
þ.m.t. meindýra, skuli framkvæmd á
mannúðlegan hátt. Þá eru ákvæði
um aðgerðir og meðhöndlun á dýr-
um skýrð mun betur en áður hefur
verið í ljósi mikillar þróunar á þessu
sviði á undanförnum árum. Því er
lagt til að öll slík starfsemi skuli
verða leyfisskyld, svo sem dýraspít-
alar, endurhæfingarstöðvar, þjálf-
unarstöðvar, sýninga- og keppnis-
húsnæði, dýragarðar og dýragæslur,
hestaleigur og önnur sambærileg
starfsemi. Sama gildi um dýrahald í
atvinnuskyni. Þá er skylda til ein-
staklingsmerkinga aukin til muna og
talið að það muni hafa hagræði í för
með sér þegar kemur að handsömun
dýra sem tapast hafa. Það er talið til
góðrar dýravelferðar að hægt sé að
koma slíkum dýrum til sinna um-
ráðamanna fljótt og vel. Þá hafa
þvingunarúrræði verið gerð mun
markvissari og þeim ætlað að auð-
velda eftirlitsaðila að tryggja aukna
dýravelferð og að geta brugðist
hraðar við þegar um er að ræða brot
á lögunum. Í frumvarpinu er kveðið
á um fjölbreyttari heimildir til að
bregðast við ólíkum brotum að eðli
og alvarleika og m.a. koma inn ný-
mæli um stjórnvaldssektir við
ákveðnum brotum.
Að lokum skal þess getið að til
þess að einfalda stjórnsýslu og auka
á skilvirkni í þessum málaflokki þá
er gert ráð fyrir að fela hann einu
ráðuneyti, um hann gildi ein lög og
einni stofnun falið að hafa eftirlit
með því að ákvæðum laganna sé
framfylgt. Það verður sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra sem mun
fara með yfirstjórn mála og Mat-
vælastofnun verður falið allt eftirlit.
Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir
hjá Matvælastofnun
Heilbrigði og velferð dýra
Morgunblaðið/Eggert
Búpeningur „Tekið er fram að nú verður skylt að fara vel með dýr, í stað þess að bannað sé að fara illa með dýr.“
Dýravelferð í nýju ljósi
www.mast.is
Þær fylltu út spurningablöð um
neysluvenjur sínar þar sem þær voru
m.a. spurðar út í kaffidrykkju sína. Í
ljós kom að þær konur sem drukku
einn kaffibolla á dag eða meira áttu
síður á hættu að fá heilablæðingu en
hinar, sem drukku ekkert kaffi eða
minna en einn bolla á dag. Munurinn
var sá sami eftir að tekið hafði verið
tillit til annarra hugsanlegra áhrifa-
þátta, s.s. reykinga, holdafars, syk-
ursýki, ofvirkni og áfengisdrykkju.
Róar kaffidrykkjukonur
Þar sem kaffi er einn af vinsæl-
ustu drykkjum veraldar getur hinn
minnsti ávinningur af kaffidrykkj-
unni haft miklar afleiðingar. Vís-
indamennirnir segja þó of snemmt
fyrir fólk að breyta kaffidrykkjuvenj-
um sínum vegna þessara nið-
urstaðna. Hins vegar geti þær hugs-
anlega róað einhverjar konur sem
gætu haft samviskubit yfir kaffi-
drykkju sinni.
Vísindamenn hafa áður leitt líkur
að því að kaffi gæti haft góð eða
slæm áhrif á æðakerfið en fyrri
rannsóknir um þetta efni hafa verið
ófullkomnar.
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s
Pantaðu tíma í
heyrnarmælingu í síma
568 6880
og prófaðu Acto
Það er ástæðulaust að láta heyrnarskerðingu koma í veg fyrir að þú getir
notið þess besta í lífinu - að eiga samskipti við ættingja, vini og
samstarfsfólk í hvaða aðstæðum sem er.
Acto frá Oticon eru nýjustu heyrnartækin í milliverðflokki. Acto
heyrnartækin búa yfir þráðlausri tækni og endurbættri örtölvutækni
sem gerir þér kleift að heyra skýrar í öllum aðstæðum.
Acto eru falleg, nett og nærri ósýnileg á bak við eyra.
Ómótstæðileg heyrnartæki!