Morgunblaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 6
fasteignir Langabúð á Djúpavogi er eitt elsta hús landsins, reist árið 1790, ogvar lengi aðsetur danskra kaupmanna sem hér á landi höndl-uðu. Í áranna rás hefur verið margvísleg starfsemi íhúsinu en nú er þar menningar-starfsemi; söfn um Ríkarð Jónssonmyndskera og Eystein Jónsson ráðherra. Íslensk hús Langabúð Rúmlega 20 þúsund manns njóta skattaaf- sláttar í ár vegna framkvæmda við eigið íbúðarhúsnæði á sl. ári. Tekjuskattsstofn allra sem fóru út í framkvæmdir getur í mesta lagi lækkað um tæpa 3 milljarða en þar sem hámark er á skattafrádrætti hvers gjaldanda og tekjur fólks mismunandi er ekki vitað hversu mikla skatta ríkið í raun gefur eftir vegna þessa verkefnis. Einstaklingar og félög hafa fengið 1,9 milljarða í endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á bygging- arstað við íbúðarhúsnæði í fyrra. Það er held- ur meiri endurgreiðsla en árið á undan en nærri tvöfalt meira 2008. Endurgreiðsla virð- isaukaskatts var aukin úr 60% í 100% í mars 2009. Virðisaukaskattur var í heildina greidd- ur af 7,5 milljarða króna vinnu, samkvæmt upplýsingum Ríkisskattstjóra. 1,9 milljarðar endurgreiddir Um 20 þúsund manns fá skattaafsláttinn Áætlaðar fjárfestingar og framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar í ár eru pakki upp á hálfan sjöunda milljarð kr. Þetta kom fram á Mannvirkjaþingi Samtaka iðnaðarins sl. föstudag. Útgangspunkturinn er, skv. Degi B. Eggertssyni formanni borgarráðs, að fram- kvæmdir séu mannaflsfrekar og skapi tekjur og störf í framtíðinni. Meðal helstu verkefna er frekari uppbygging Sæmundarskóla í Graf- arholti og Norðlingaskóla. Margþætt verkefni framundan Morgunblaðið/Kristinn Ingvarss Framkvæmdir borgarinnar 6,5 milljarðar kr. í ár Íjanúarhefti Bo Bedre var innlit á heimili Katriarsem vakti mikla athygli. Smekklegt heimili hennarhefur orðið mörgum uppspretta hugmynda eftir aðblaðið kom út. Hún segist hafa fengið afar jákvæð og góð viðbrögð við greininni. Katri vakti fyrst athygli sem stílisti í Húsum og híbýlum en síðan í sjónvarpsþátt- unum Innlit/útlit á Skjá einum. Síðan hefur hún aðstoðað viðskiptavini Tekk Company og tekið að sér einkaráðgjöf. Katri er finnsk en flutti til Svíþjóðar þegar hún var fimm ára. Hún hefur búið hér á landi í 27 ár. Katrí segir að litlir hlutir geti skipt miklu máli þegar íbúð er sett á sölu. „Það getur borgað sig að mála í ljósum litum og fækka hlutum í kringum sig. Of mikið af alls kyns ólíkum hlutum getur virkað illa á ókunnugt fólk. Ég get nefnt sem dæmi að ekki er gott að vera með mikið af skófatnaði í forstofu. Betra er að setja skóna inn í skáp og hafa rýmið meira. Anddyrið er andlit hússins. Einnig er afar mikilvægt að ganga frá hlutum en oft vill dragast að klára eitthvað smávægilegt,“ útskýrir Katri. „Fólk er hrifnara af björtum íbúðum en dökkum. Þess vegna er ákjós- anlegt að leyfa birtunni að njóta sín.“ Ekki baka köku „Ef íbúðin er skoðuð að kvöldi ætti að kveikja á kertum, setja blóm í vasa og raða fallegum púðum á áberandi staði. Hér áður fyrr var stundum sagt að sniðugt væri að baka köku og hafa bökunarilm í húsinu. Ég heyrði nýlega að í Svíþjóð væri talað um að ef ilmandi kökur tækju á móti vænt- anlegum kaupendum teldu þeir að eigendur væru að fela eitthvað. Svo það þykir ekkert sniðugt lengur. Ég aðstoðaði systur mína, sem býr í Svíþjóð, nýlega við að standsetja húsið hennar fyrir sölu. Við máluðum veggi ljósa, fækkuðum hlutum og lögðum áherslu á þetta bjarta útlit. Þetta er parhús og hún hafði búið þarna í átján ár. Þessar litlu framkvæmdir sem við fórum í virkuðu svo vel að rifist var um húsið sem seldist síðan langt yfir því verði sem sett var á það. Húsið virtist líka höfði til bæði yngri og eldri kaupenda. Flestir höfðu orð á hversu bjart og notalegt húsið væri. Það skipti því gríð- arlega miklu máli að gera þessar litlu breytingar,“ segir Katri og bætir við að þær hafi ekki verið kostnaðarsamar. Sjálf hefur hún flutt oft á milli hverfa á Íslandi og hefur tvívegis byggt nýtt hús. „Ég gæti alveg hugsað mér að byggja aftur. Mér finnst svo skemmtilegt að hanna og skipuleggja,“ segir hún ennfremur. Í Svíþjóð eru það fasteignasalarnir sem sjá um að sýna þær eignir sem eru á sölu. Einnig tíðkast að þegar fólk hefur gert kauptilboð fær það fag- menn til að skoða húsið. Það telur Katri að sé mjög góður öryggisventill fyrir kaupendur. Hugsa þarf til framtíðar Katri hefur bæði verið beðin um að skoða íbúðir með væntanlegum kaupendum og hjálpað fólki að stílisera fyrir sölu. „Það getur margborgað sig að mála veggi ef þörf er á því. Einnig tel ég að fólk ætti að reyna að kaupa frekar stærri íbúðir en minni þegar um fyrstu íbúð er að ræða. Það er mjög dýrt að flytja og betra að hugsa til framtíðar. Að auki er nauðsyn- legt að huga að nágrenninu, t.d. leikskóla og grunnskóla eða hvort mikil umferð sé í hverfinu. Loks get ég nefnt með tilliti til hve bensínverð er orðið hátt að gott er að búa nálægt vinnustað. Annars hef ég á tilfinning- unni að leigumarkaðurinn eigi eftir að eflast hér á landi, líkt og tíðkast í Svíþjóð. En fyrir þá sem eru að setja á sölu ætti reglan að vera sú að minna er meira,“ segir Katri. elal@simnet.is Katri Raakel Tauriainen stílráðgjafi ráðleggur fólki sem er í söluhugleiðingum Ljósir litir selja íbúðina Morgunblaðið/Sigurgeir S „Mér finnst skemmtilegt að skipuleggja,“ segir stílistinn Katri Tauriainen sem hvetur fólk til að ganga frá öllu smálegu áður en íbúð fer í sýningu og sölu. Ef íbúðin er skoðuð að kvöldi ætti að kveikja á kertum, setja blóm í vasa og raða fallegum púð- um á áberandi staði. F A S T E I G N A S A L A N fasteign . i s Ólafur B Blöndal Lögg. fasteigna- fyrirtækja og skipasali. Suðurlandsbraut 18 • Reykjavík • Fax 5 900 808 5 900 800☎ Ólafur B Blöndal. Lgf.20 ára starfsreynsla Viltu selja – Viltu kaupa – Viltu leigja LAUSNIN ER fasteign.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.