Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 11

Morgunblaðið - 24.03.2011, Side 11
Tækin eru í fremstu röð. Starck og Páfagaukurinn gefa tóninn Græjur fyrir hugguleg og tæknivædd heimili Smekklega þenkjandi Íslendingar ættu að þekkja vel nafnið Philippe Starck. Frakkinn Starck, sem er orðinn rétt rösklega sex- tugur, þykir með helstu hönnuðum okkar tíma og vekja sköpunarverk hans iðulega mikla athygli. Á ófáum heimilum hérlendis má t.d. finna Pratfall stólinn skemmtilega, nú eða Ghost stólinn, og hvað þá safapressuna frægu sem minnir helst á geimskip Mars- búa. Nú geta unnendur Starcks byrjað að safna fyrir nýju húsgagni, og í þetta sinn hefur hönnuðurinn látið til sín taka í hljóm- tækjageiranum. Zikmu heitir græjan og er framleidd af franska raftækjakompaníinu Parrot. Sala hófst árið 2009 á þessu tveggja turna setti þar sem minimalisminn og notagildið er í aðalhlutverki. Á græjunum er sæti fyrir iPod eða iP- hone og líka hægt að streyma tónlistinni beint úr hvers kyns tæki með Bluetooth eða yfir WiFi tengingu. Hátalararnir eru svo hannaðir þannig að hljóðið dreifist vel og vandlega um rýmið, en flennistór bassinn situr í botninum. Loks er hægt að velja um fimm mis- munandi liti til að tryggja að græjurnar passi vel við innbúið. Eins og vera ber með háklassa hönnun og tækniundur er verðið ekki beinlínis það lægsta. Erlend- is kostar hátalaraparið í kring- um 1.600 dali sem skagar hátt upp í 200.000 kr, án op- inberra gjalda. ai@mbl.is 24. mars 2011 11 fasteignir Flottur lampi með boðskap Ekki beinlínis skot í myrkri Það getur verið vandasamt að finna huggulegan lampa, hvað þá ef innbúið á að hafa karllægt yfirbragð. Philippe Starck á heiðurinn að þessari allóvenjulegu og harla skemmtilegu lampalínu sem framleidd er af Flos. Hönnunin er frá árinu 2005 en á örugglega eftir að lifa í margar kynslóðir, eins og svo margt sem frá Starck hefur komið. 18 karöt í stofuna Velja má um þrjár stærðir: náttborðslampa, borð- lampa og standlampa, og er alveg öruggt að gestir á heimilinu munu taka eftir mublunni, ef tekst þá yfir höfuð að koma lampanum í gegnum tollinn stórá- fallalaust. Velja má um glansandi gylltan lampa með svörtum skermi eða krómaðan með gráum skermi. Rétt er að taka það fram að gyllti lampinn er húðaður með 18 karata gulli. Eins og svo oft vill gerast með listamenn er lamp- aþrenningin ekki aðeins til að fegra heimilið heldur líka ádeila. Með gullhúðinni vill Starck vísa í tengsl peninga og hernaðar, og svarti skermurinn er táknrænn fyrir dauðann. Á innanverðum skerminum má svo finna litla krossa sem eiga að minna okkur á þá látnu. Kannski er það svo við hæfi að lamparnir kosta morð fjár. Minnsta gerðin kostar frá um 1.000 dölum, og standlampinn er verðlagður í kring- um tæpa 3.000 bandaríkjadali. ai@mbl.is NÝTT12 mánaðavaxtalausargreiðslur Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00 Fermingartilboð Gerið GÆÐA- og verðsamanburð SAGA10.000 kr.vöruúttekt fylgir öllum fermingarrúmum IQ-CARE Stærð Verð áður Verð nú 120x200 131.880 kr. 109.900 kr. Stærð Verð 120x200 164.900 kr. Til sölu Vesturgata 6-8-10-10A Vesturgata 6-8 U.þ.b. 1000 fermetra veitingahús með öllum tækjum og búnaði. Sprinkler eldvarnarkerfi í öllu húsinu. Nýlegar hita- og raflagnir. Leigusamningur til 7 ára fylgir. Vesturgata 10-10A Samtals um 500 fermetrar. Sprinkler eldvarnarkerfi. Nýlegar sima- og tölvulagnir. Til greina kemur að leigja bæði húsin saman. Upplýsingar veitir Karl í síma 892 0160 og á karl@kirkjuhvoll.is 10A 10 8 6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.