Morgunblaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 14
14 24. mars 2011atvinna
Málmiðnaðarmaður
Óskum eftir að ráða málmiðnaðarmann í fullt
starf við nýsmíði og viðgerðir.
Upplýsingar í síma 565 7390, Jón Þór.
Vilt þú vinna í Noregi?
Bergen er næststærsti bær í Noregi og við erum leiðandi innan blikksmíðabransans á
vesturlandinu. Það eru mörg stór verkefni framundan í Bergen næstu árin og við tökum þátt í
þeim. Þess vegna leitum við eftir:
Blikksmiðum
Við óskum eftir mönnum með reynslu af:
- Læstum klæðingum á þök og veggi
- Flasningum og þakrennum
- Einangrun og suðu á þakdúkum
- Loftræsiskerfum
Við bjóðum startpakka fyrstu 3 mánuðina:
- Við borgum ferðakostnað til Noregs
- Laun eftir norskum standard og kunnáttu
- Við bjóðum húsnæði út prufutímann.
Umhverfið er alþjóðlegt og vinsamlegt. Við tökum vel á móti starfsmönnum frá öðrum löndum og
við viljum að okkar starfsmenn fái að njóta kunnáttu sinnar.
Eftir prufutímann vonumst við að fastráða fólk samkvæmt norskum vinnulögum og launum.
Viðtöl verða tekin í Reykjavík. Umsóknir eða spurningar umstöðurnar sendist til:
Espen Holum: espen.holum@bov.no. Tlf: +4755197860, Mobil: +4798211747
Jon Gunnar Svanlaugsson: post@bov.no, Mobil: +4795452214
Farið inná www.bov.no til að fá nánari upplýsingar um okkur.
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
AÐALFUNDUR NLFR
Aðalfundur Náttúrulækningafélags
Reykjavíkur verður haldinn
þriðjudagskvöldið 29. mars 2011 kl. 20:00
í Heilsuborg, Faxafeni 14, 108 Reykjavík
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Sérstakur gestur fundarins verður
Erla Gerður Sveinsdóttir
yfirlæknir HNLFÍ
„Hornsteinar heilbrigðs lífs“
Léttar veitingar í boði félagsins.
Stjórn NLFR.
Náttúrulækninga-
félag Reykjavíkur
Laugavegi 7
101 Reykjavík
Sími 552 8191
Tilkynningar
Fjársýsla ríkisins flytur
Fimmtudaginn 24. mars flyst starfsemi
Fjársýslu ríkisins frá Sölvhólsgötu 7 í Vegmúla
3, Reykjavík.
Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem
kunna að verða af flutningunum.
Símanúmer er óbreytt, 545 7500, og er gert ráð
fyrir að símsvörun á skiptiborði truflist ekki.
Einnig er bent á póstfang stofnunarinnar,
postur@fjs.is.
Starfsemi FJS verður komin í fullan gang
mánudaginn 28. mars.
Auglýsing
um breytingu á skipulagi Snæfellsbæjar
• Í samræmi við 1, mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010,
með síðari breytinum, er hér með auglýst tillaga að nýju
deiliskipulagi svæðis fyrir tómstundabúskap sunnan
Hellissands. Fjárborg, nýjar lóðir.Um er að ræða
endurauglýsingu á deiliskipulaginu.
Í tillögunni er gert ráð fyrir 6 nýjum lóðum undir
hesthús/fjárhús við Fjárborg á hellissandi. Lóðirnar eru 63 x
58m að stærð. Byggignarreitir eru 12 x 33m og innan þeirra
má reisa allt að 200 fm hesthúr/fjárhús á einni hæð.
Skipulagstillagan var samþykkt í bæjarstjórn Snæfellsbæjar
þann 10. mars 2011.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
• Í samræmi við 1. mgr. 43. gr skipulagslagna nr. 123/2011,
með síðari breytinum, er hér með auglýst tillaga að
breytingu á deilsikipulagi frístundahúsa á Hellnum.
Í tillögunni er gert ráð fyrir breytta aðkomu að Þórdísarflöt,
þannig að aðkoma sunnan lóðar Bálhóls verður flutt í nyrsta
hluta lóðarinnar Búðarbrunns og minnkar lóðin sem því
nemur. Byggignarreit Bálhóls er hliðrað um 6 m til vesturs.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðalskipulag
Snæfellsbæjar..
Skipulagstillagan var samþykkt í bæjarstjórn Snæfellsbæjar
þann 10.03.2011.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar,
Snæfellsási 2, virka daga frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 -
15:30 frá og með 24.03.2011 til 05.05.2011. Einnig má sjá
tillöguna á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is . Þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á
að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila
inn athugasemdum er til 05.05.2011. Athugasemdir ef
einhverjar eru skulu vera skriflegar og berast bæjarskrifstofu
Snæfellsbæjar, Snæfellsási 2. Hver sá sem ekki gerir
athugasemdir innan tilskilins frests, telst samþykkja tillöguna.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Snæfellsbæjar.
SNÆFELLSBÆR
Félagslíf
Landsst. 6011032419 X
Samkoma fimmtudagur
kl. 20 Kvöldvaka með
happdrætti.
Kaffi Amen, föstudagur
kl. 21 Lifandi tónlist.
Allir velkomnir.
Samkoma sunnudag kl. 14
Umsjón: Anreny og Konni.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
g
Heimilasamband mánu-
dagur kl. 15 Konur koma
saman til að eiga ánægjulega
stund með Guði.
Söngstund og morgunbæn -
alla daga kl. 10.30.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opin alla virka daga kl. 13-18.
I.O.O.F. 11 19103248 Fl.
Fjárhagslega hliðin skiptir miklu þeg-ar ferðalag er skipulagt. Verðið áflugmiðanum liggur nokkuð ljóstfyrir, og eins er auðvelt að sjá hvað
gistingin kostar með heimsókn á hótelleit-
arvél. En hvað kostar allt hitt smáræðið sem
safnast upp yfir ferðina? Það getur breytt
miklu hvort kaffibollinn kostar 50 kr. eða 500
kr., eða hvort vegleg máltíð á almennilegum
veitingastað er verðlögð á við íslenskt mötu-
neyti eða étur upp megnið af heimildinni á
kreditkortinu.
Þessar upplýsingar liggja ekki alltaf á lausu,
og heimildir eins og ferðahandbækur geta ver-
ið bæði úreltar og ónákvæmar.
Ferskar tölur og samanburður
Þá bjargar að heimsækja tölfræðivefinn
Numbeo.com. Þar er safnað saman gögnum
um raunverulegan framfærslukostnað í fjölda
borga um allan heim. Tölurnar eru yfirleitt
frekar nýlegar og bæði gefin upp spönn og
meðaltal fyrir helstu flokka.
Ef stefnan er t.d. tekin á Buenos Aires í
Argentínu má sjá hratt og vel að mjólkurlítr-
inn kostar þetta frá 0,7 til 1,14 dali, úrbeinuð
kjúklingabringa er á um 9,5 dali kílóið og að
jafnaði má vænta þess að borga um hálfan
annan dal fyrir sígarettupakkann, 70 dali fyrir
rafmagn, gas, hita og sorphirðu og 32 sent fyr-
ir mínútuna með fyrirframgreiddu far-
símakorti.
Hræódýrt í Hanoi
Ef velja þarf milli tveggja borga má bera
þær saman í þar til gerðum glugga. Þar má sjá
samanburð lið fyrir lið, og einnig samantekt
sem sýnir að verð á nesyluvöru og veit-
ingastöðum virðist almennt vera 6,20 til 8,73%
lægra í Lundúnum en París. Ef leiguverð og
ráðstöfunartekjur er tekið með í reikninginn
kemst forritið að því að kaupmáttur íbúa er
um 42% hærri í Lundúnum en í París.
Numbeo er líka með töflu þar sem sjá má í
einni svipan hvaða borg er hagkvæmust eftir
því t.d. hvort ferðast er sem bakpokaferða-
langur eða farin viðskiptaferð. Fátt er t.d. dýr-
ara fyrir bakpokaferðalanga en fara til Stav-
anger í Noregi og geta þeir vænst útgjalda
upp á um 145 dali daglega. Í Hanoi í Víetnam
kostar dagurinn hins vegar ekki nema um
17,74 dali. Þeir sem vilja ekki fara svo langt
með bakpokann geta skellt sér til Krakár sem
kostar skv. töflunni 26,67 dali á dag.
Loks er hægt að gera samanburð á milli
borga byggðan á eigin vörukörfu. Þeir sem t.d.
drekka lítið af áfengi hafa litlar áhyggjur af
því þótt vínið þar sé um 180% dýrara en í Bue-
nos Aires, ef vatnsflaskan er ódýrari.
ai@mbl.is
Reiknivél á netinu heldur utan um kostnað við daglegt uppihald
Ódýru borgirnar reynist oft auðvelt að finna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hanoi er einhver ódýrasta borg heimsins. Fátækt
er áberandi sem breytir ekki því að gleði fólksins
er tær, eins og þessi mynd vitnar glögglega um.
Nokkuð nákvæm reiknivél á netinu heldur utan um ferðakostnað í veröldinni