Morgunblaðið - 24.03.2011, Page 21
24. mars 2011 21 bílar
Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 - is-band@isband.is - www.isband.is
Nýr Dodge Ram 1500 Sport Hemi
Metan - Núna er hægt að fá hann metan breyttan
á sama frábæra verðinu. Rekstrarkostnaður sem
samsvarar eyðslu upp á aðeins 8-9 lítra á 100 km.
Nýtt útlit - meira rými afturí - leður - lúga - hiti í stýri og
sætum - kæling í sætum - bakkmyndavél
- fjarstart - Alpine hljómkerfi með útvarp með snertiskjá
og hörðum disk til að vista tónlist og myndir -
gormafjörðun að aftan - 390 hestöfl
- skriðvörn - spólvörn - dráttarbeisli – eigum fullt af
aukahlutum til á þessa bíla
Verð aðeins 7.490 þús. kr. stgr.
Sérpöntum alla bíla frá USA
Nýjar pall og van bifreiðar
1. janúar 2008 var allur innflutningur á Super
Duty pallbílum og vanbifreiðum stöðvaður með
tilkomu nýrra laga um hraðatakmarkara.
Íslensk-Bandaríska hefur nú opnað fyrir þann
innflutning á ný og getum við boðið allar gerðir
af þessum bílum á hagstæðu verði.
Hafðu samband við okkur og við
gerum þér tilboð í bílinn fyrir þig.
Sérpöntum alla varahluti frá USA
Óeðlilegt slit í framhjólslegum?
Spurt: Ég er með 1999 árgerð af Ford Explorer með 4.0 V6-vél. Driflokur
eru handvirkar og dekk af upprunalegri stærð. Vandinn er sá að los myndast
alltaf í nafarlegunum að framan báðum megin, þó meira bílstjóramegin. Sé
hert upp á legunum er komið los í þær eftir 7-8 þús. km. Ég endurnýjaði leg-
urnar bílstjóramegin og herti þær samkvæmt bókinni en los var komið í þær
tæpu ári seinna. Er þetta eitthvað þekkt og algengt í þessum bílum? Hvað
getur valdið þessu?
Svar: Þetta er þekkt í fjórhjóladrifnum bílum með Dana-liðhásingu að fram-
an. Í þínu tilfelli er hásingin af gerðinni Dana/Spicer 35-IFS. Vegna þess að
hún er samsett um lið fjaðrar hvort hjóla sjálfstætt. Til að mæta inn- og út-
hreyfingu sem sveifla hjólanna myndar eru dragliðir á öxlinum farþega-
megin. Óeðlilegt slit í framhjólslegum er vegna lakrar hönnunar, stundum
vegna ofherslu, stundum vegna ónýtra hjöruliðskrossa eða rangrar hjólastill-
ingar (millibil á þessum bíl að vera jafnt, þ.e.s á núllinu). Ytri dragliðurinn
vinstra megin á það til að festast en við það geta hjóllegur slitnað. Oft má sjá
á dekkjum hvort vísun þeirra sé rétt eða röng. Slitni framdekk meira á innri
jaðrinum er bíllinn of útskeifur. Slitni þau meira á ytri jaðrinum hann of inn-
skeifur (sú hlið dekks, sem bíllinn ryður á undan sér, slitnar meira).
Range Rover: Úr 17 lítrum í 12,5
Spurt: Eyðsla Range Rover SE 1997 með 4.0 V8-bensínvél hefur verið að
aukast smám saman úr 12,5-13 í 17 lítra á sl. 6 mánuðum og fylgdi leiðinlegur
gangur í vélinni sem breyttist ekkert með ísvara. Fyrir skömmu kviknaði
„Check Engine-ljósið.“ Kóðalestur skilaði „Misfiring.“ Eitt af 4 háspennu-
keflum reyndist ónýtt. Ég skipti sjálfur um keflið og kertin um leið. Gang-
urinn varð eðlilegur og eyðslan stórminnkaði. En bilunarljósið lýsir áfram.
Mér var sagt að það myndi slokkna væri rafgeymirinn aftengdur í 2-3 mín en
það breytir engu! Hvað veldur?
Svar: Ný 4ra lítra V8-vél tók við af eldri 3,9 lítra í Land Rover (Discovery og
Range Rover) frá og með árgerð 1996. 4ra lítra vélin er með annað vél-
stýrikerfi sem er frábrugðið því eldra, m.a. á þann hátt að bilunarkóðar verða
ekki afmáðir úr minni né bilunarljós slökkt nema með OBD-lesara eða grein-
ingartölvu.
Toyota Corolla: Bensíneyðsla aftur eðlileg
Spurt: Ég er með gamlan sjálfskiptan Toyota Corolla með 1800 vél. Bíllinn
hefur fengið reglulegt þjónustueftirlit og aldrei bilað þótt 150 þús. km séu að
baki – þ.e. fyrr en nú að mér finnst eyðslan hafa aukist verulega og jafnframt
er komin gangtruflun sem lýsir sér þannig að þegar inngjöf er sleppt og
hægt á, t.d. farið inn á afrein af Vesturlandsvegi, hikstar vélin og drepur á
sér. Hún fer strax í gang aftur og gengur eðlilega þar til aftur er hægt á.
Þetta gerist aldrei þegar vélin er köld. Bilunarljós lýsir ekki og engin auka-
hljóð fylgja þessu.
Svar: Lýsing þín bendir ákveðið til að bilun sé í svokölluðum „hringrásar-
loka“ (EGR) sem veitir hluta af súrefnissnauðum útblæstri aftur inn í bruna-
hólfin til að lækka brunahitann (veikir blönduna) og minnka mengun í út-
blæstri vélarinnar. Oft er þessi loki (leggur hans) stirður af sóti eða sótúfell-
ingar á keilu koma í veg fyrir að hún setjist þétt – lokinn lekur – blandan
verður of veik fyrir heita vélina þegar inngjöf er sleppt. Oft dugar að losa
EGR-lokann, sem þekkist af því að hann er í laginu eins og hattsveppur, af og
þrífa þar til hann er laus og liðugur og helst þéttur. Framtakið er nokkurs
virði því nýr EGR-loki kostar sitt. Þetta er einföld aðgerð sem flest lagtækt
fólk getur leyst sjálft af hendi. Öll verkstæði geta leyst þetta mál á tveimur
klst.
Leó M. Jónsson svarar spurningum um bílamál
Smábilun sem stórjók bensíneyðslu
Morgunblaðið/ÞÖK
„Mér finnst eyðslan hafa aukist og jafnframt er komin gangtruflun,“ segir bréf-
ritari. Orsökin virðist ekki vera ýkja flókin og viðgerð auðveld viðfangs.
Leó M. Jónsson véltæknifræðingur leoemm@simnet.is
(Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á www.leoemm.com)
Að undanförnu hef ég, Leó
M. Jónsson, verið að prófa
bensín. Bíllinn er handskiptur
station-bíll með 1600-vél.
Bílnum, sem er í topplagi, er
ekið 5 daga vikunnar frá
Suðurnesjum á ákveðinn
stað í Reykjavík og til baka.
Hleðsla bílsins er alltaf sú
sama og veður hefur verið
svipað. 25 ml af ísvara er
blandað í hverja tankfylli.
Niðurstaða minna mælinga
(dagsetning á við enduráfyll-
ingu):
A. 24/2/11: N1, 98 oktan,
40 lítrar. 434 km. Eyðsla
9,21 l/100 km.
B. 2/3/11: Skeljungur, 95
oktan, V-Power, 43 lítrar.
491 km. Eyðsla 8,75 l/100
km.
C. 8/3/11: Orkan, 95 oktan,
47 lítrar. 461 km. Eyðsla
10,2 l/100 km.
Mestur munur er 14% á
þessum 3 mælingum. Mæl-
ingum verður haldið áfram.
Ábending
Mismunandi
eldsneyti –
mismunandi
eyðsla?