Morgunblaðið - 03.05.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011
Í seinustu viku var undirritaður
samstarfssamningur milli Ice-
landair og Flugsafns Íslands á Ak-
ureyri sem felur það í sér að Ice-
landair verður aðalstyrktaraðili
safnsins næstu þrjú árin.
Við undirritunina í Flugsafninu
sagði Arngrímur Jóhannsson, for-
maður stjórnar safnsins, að samn-
ingurinn væri mikil lyftistöng fyrir
safnið, hann tryggði rekstur þess
næstu árin og gæfi færi á lifandi og
öflugu sýningarstarfi þess. Þá sagði
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, að saga flugsins
væri stór þáttur í sögu þjóðarinnar
og mikilvægt væri að halda vel utan
um hana og Icelandair hefði þar
hlutverki að gegna.
Styrkja flugsafn
UNESCO-nefndin, ásamt Blaða-
mannafélagi Íslands og Mannrétt-
indaskrifstofu Íslands, boðar til
málþings um réttinn til að mót-
mæla. Málþingið fer fram í Bíó
Paradís í dag, þriðjudag kl. 14-17.
Markmiðið er að efna til gagnrýn-
innar umræðu um mótmælaréttinn.
Frummælendur verða Ingólfur
V. Gíslason, dósent í félagsfræði,
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
Reykjavíkursvæðisins, Haukur Már
Helgason skáld og Sólveig Jóns-
dóttir sem var ákærð fyrir að ráð-
ast á Alþingi. Þátttakendur í pall-
borði verða auk frummælenda
Hjálmar Jónsson, formaður Blaða-
mannafélagsins, og Elfa Ýr Gylfa-
dóttir, deildarstjóri í menntamála-
ráðuneytinu.
Málþing um réttinn
til að mótmæla
Zontasambandið hélt landsfund
sinn í Hlégarði í Mosfellsbæ um
helgina þar sem fjallað var um
vændi og mansal og áhrif þess á
einstaklinginn og samfélagið.
Á fundinum var samþykkt álykt-
un þar sem því er beint til stjórn-
valda að taka fast á því samfélags-
meini sem vændi er og fylgja eftir
lögum um bann við vændiskaupum
sem samþykkt voru á alþingi árið
2009. Þá fordæmir sambandið þá
sem kaupa vændi og ennfremur þá
sem dreifa og selja sjónvarpsefni
þar sem aðgangur að klámstöðum
er innifalinn og þá sem dreifa að-
gangi að klámi á netinu.
Fastar tekið á vændi
Dagana 6.-8. maí
nk. munu sam-
tökin Blátt
áfram fara í
annað sinn af
stað með sölu-
átak og auglýs-
ingaherferð á
öllu landinu.
Fjáröflunin er
liður í starfi
samtakanna til
að vekja athygli
á kynferðisofbeldi gegn börnum.
Fjáröflunin er gerð í samstarfi við
íþróttafélög um land allt. Sam-
tökin hvetja alla landsmenn til að
taka vel á móti sölufólki og styðja
við íþróttafélögin og Blátt áfram
með kaupum á ljósinu, Vertu upp-
lýstur! Ljósið kostar 1.000 kr.
Blátt áfram fara í
gang með fjáröflun
Sigríður Björns-
dóttir hjá Blátt
áfram.
STUTT
Styrktartónleikar
Það leiðréttist hér með að í viðtali
við Vladimir Ashkenazy í Sunnu-
dagsmogganum var vitnað til tón-
leika Philharmonia Orchestra í
London til styrktar byggingu tón-
listarhúss á Íslandi.
LEIÐRÉTT
Patti Húsgögn
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Basel
Þú velur
og drauma sófinn þinn er klár
GERÐ (fleiri en 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (fleiri en 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Landsins mesta úrval af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
Torino
Bikini - Tankini
Sundbolir
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Hæðasmára 4
– Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan
Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355
A-FF
skálar
Gallabuxur
Verð 10.900 kr.
- háar í mittið -
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Sendum í
póstkröfu
Ferðafélag íslands • www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533
Örgöngur með FÍ
Stuttar kvöldgöngur um áhugaverðar
leiðir í nágrenni Reykjavíkur.
Fyrsta gangan um nágrenni Grafarholtsins
verður miðvikudaginn 4. maí.
Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl. 19.
Fararstjórar:
Höskuldur Jónsson og
Guðlaug Sveinbjarnadóttir
Kirkja á krossgötum er yfirskrift
prestastefnu 2011 sem hefst í dag.
Þar verður rætt um trú og kirkju í
samtímanum, þjónustu kirkjunnar
um allt land, sjálfboðið starf í kirkj-
unni og barnastarf kirkjunnar.
Á annað hundrað presta og
djákna taka þátt í stefnunni sem
hefst með messu í Dómkirkjunni í
Reykjavík kl. 18. Sr. Jón Aðalsteinn
Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum,
prédikar.
Setningarathöfn prestastefnu fer
að þessu sinni fram í hátíðarsal Há-
skóla Íslands. Þetta er í tilefni af
100 ára afmæli Háskólans, en guð-
fræðideild var ein af þremur deild-
um Háskólans þegar hann var
stofnaður.
Setningarathöfnin hefst kl. 20:30.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, flytur setningarræðu. Einnig
munu Kristín Ingólfsdóttir, há-
skólarektor, og Ögmundur Jónas-
son, innanríkisráðherra, flytja
ávarp. Flutt verður kveðja dr. Mun-
ib Younan, forseta Lútherska
heimssambandsins og biskups lúth-
ersku kirkjunnar í Landinu helga.
Prestastefnan
hefst í dag
Forseti Slóveníu dr. Danilo Türk og
eiginkona hans Barbara Mikliè
Türk koma í opinbera heimsókn til
Íslands í dag, þriðjudag, og munu
dvelja hér í tvo daga. Með forset-
anum koma þrír ráðherrar í ríkis-
stjórn Slóveníu, Darja Radic efna-
hagsráðherra, Irma Pavlinic Krebs,
ráðherra opinberrar stjórnsýslu, og
Roko Žarniæ, umhverfis- og skipu-
lagsmálaráðherra, auk embættis-
manna. Þá fylgja forseta Slóveníu
viðskiptasendinefnd með fulltrúum
ríflega 20 slóvenskra fyrirtækja og
blaðamenn.
Heimsóknin hefst með hátíðlegri
athöfn á Bessastöðum kl. 14:30. Þar
munu íslensku forsetahjónin ásamt
ráðherrum úr ríkisstjórn Íslands og
embættismönnum taka á móti hin-
um erlendu gestum. Í kjölfarið
fylgir viðræðufundur forseta land-
anna.
Forsetinn og fylgdarlið munu
m.a. heimsækja Alþingi, Háskóla Ís-
lands og fara til Þingvalla.
Forseti Slóveníu
í heimsókn
Samtals bárust 45 umsóknir til Forn-
leifasjóðs vegna úthlutunar fyrir árið
2011 þar sem óskað var eftir styrkj-
um upp á samtals 73.249.840 krónur.
Sjóðurinn hafði til ráðstöfunar 17,2
milljónir króna að þessu sinni og
voru 16 aðilar styrktir samtals um 18
milljónir króna samkvæmt frétta-
tilkynningu.
Meðal þeirra sem fengu styrki úr
Fornleifasjóði að þessu sinni voru
áframhaldandi fornleifarannsókn að
Skriðuklaustri og fornleifaupp-
gröftur í kirkjugarðinum á Hofs-
stöðum í Mý-
vatnssveit. Einnig
var styrkt verk-
efnið Eyfirsk ver-
stöð á barmi eyði-
leggingar, á
Siglunesi, úr-
vinnsla fornleifa-
rannsókna á mið-
aldakaupstaðnum
á Gásum 2001-
2006 og Skag-
firska kirkjurann-
sóknin, rannsókn á kirkjustöðum.
18 milljóna kr. styrkir
veittir úr Fornleifasjóði
Fornleifagröftur á
Hofsstöðum Mý-
vatnssveit.