Morgunblaðið - 03.05.2011, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
:
Þann 10. maí gefur Morgunblaðið út
sérblað tileinkað Eurovision.
Undankeppnin verður 10. og 12. maí.
Aðalkeppnin er laugardaginn 14. maí.
Þetta er blaðið sem
lesendur hafa við höndina þegar
Eurovision verður sýnt í sjónvarpinu.
MEÐAL EFNIS:
Allt um Eurovision.
Stiklað á stóru í sögu
Eurovision í máli og myndum,
helstu lögin og
uppákomurnar.
Íslenska lagið og sagan
á bak við það.
Kynning á keppendum
í undankeppni
og í aðalkeppni.
Frammistaða íslendinga
í gegnum tíðina.
Íslensku lögin í gegnum tíðina
Klæðaburður keppanda, tíska og tískuslys.
Ásamt fullt af spennandi efni um Eurovision
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, fimmtudaginn 5. maí.
Eurovision 2011
SÉ
R
B
LA
Ð
Aðalfundur
Grafarholtssóknar
Aðalsafnaðarfundur Grafarholtssóknar verður
haldinn 10. maí kl. 18 í Guðríðarkirkju.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd Grafarholtssóknar.
Það er óhætt að
segja að undirritaður
hafi lent á milli steins
og sleggju nýlega.
Ástæðan var mál-
flutningur Velbús,
hins nýstofnaða fé-
lags áhugamanna um
bætta velferð búfjár.
Sleggjan er að ég sé
dýralæknanemi, sem í
framtíðinni mun
sverja þess eið að
standa vörð um hagsmuni málleys-
inga þessa heims. En steinninn á
hinum endanum er sá að ég hef
margt að athuga við þann mál-
flutning sem þetta ágæta félag
viðhefur.
Sem dæmi hefði mátt byrja á
því að reyna að skilgreina hug-
takið velferð. Donald Broom, pró-
fessor í dýravelferð við Háskólann
í Cambridge, komst ágætlega að
orði um hvað sé í raun velferð árið
2004 (hér lauslega þýtt): „Velferð
dýrs er ástand þess í tilraunum
sínum við að aðlagast umhverfinu.
Það inniheldur tilfinningar, ýmis
lífeðlisfræðileg og atferlisviðbrögð
og heilsu þess. Dýr sem ná ekki
að aðlagast umhverfi
sínu eru líklegri til að
verða veik, ólíkregri
til að búa til fóstur,
ólíklegri til að koma
afkvæmum á legg og
líklegri til að lifa
skemur.“
Að meta velferð bú-
fjár er ekki einfalt
mál og hægt er að
skrifa mörg orð um
hvernig slíkt er fram-
kvæmt. Í stuttu máli
er það gert með at-
hugun á viðbrögðum dýranna
varðandi hegðun og líffræði
þeirra, sérstaklega þeim við-
brögðum sem vitað er að koma frá
dýrum sem eru að reyna að aðlag-
ast umhverfinu en geta það ekki.
Þegar búið er að gera grein fyrir
velferð dýranna á hlutlausan hátt
er hægt að taka siðferðilegar
ákvarðanir út frá þeim upplýs-
ingum.
Ástæðan fyrir því að ég vil
reyna að skilgreina velferð betur
er að koma á framfæri þeirri
skoðun minni að í svona umræðu
er nauðsynlegt að ekki sé neitt
haft í lausu lofti og fari bara eftir
skilgreiningu hvers og eins. Dæmi
um það er að Velbú heldur því
fram að minkabúr á Íslandi séu of
lítil. Formaður Sambands ís-
lenskra loðdýrabænda svaraði
þeim fullyrðingum síðar með því
að spyrja á móti, miðað við hvað
búrin væru of lítil, því stærð
þeirra stenst reglur. Hvað annað á
þá að miða við?
Mér var eitt sinn kennt hug-
takið „kranablaðamennska“. Með
því er átt við að málflutningurinn
renni aðeins í eina átt og aðeins
eitt sjónarmið komi fram. Svoleið-
is fréttaefni og greinaskrif leiðast
mér óskaplega. Því þótti mér mið-
ur að sjá fullyrðingar frá Velbú
um að verksmiðjubúskapur sé að
færast yfir í íslenskan mjólk-
uriðnað (hver er skilgreiningin á
verksmiðjubúskap?) og nefnir fé-
lagið þar til sögunnar skort á úti-
veru mjólkurkúa sem hýstar eru í
lausagöngufjósum. Ef eingöngu
fyrripartur vísunnar er kveðinn,
eins og í þessu tilfelli, þá fara þeir
sem á hlusta og eru ekki eins vel
inni í þessum málum og best verð-
ur á kosið að hugsa um hvernig
kýr haga sér þegar þeim er hleypt
út að vori og kemur þá upp þessi
staðlaða mynd þar sem aldeilis er
slett úr klaufunum.
Þeir sem hafa séð kýr koma út
úr lausagöngufjósi geta vitnað um
hversu rólegra er yfir kúnum en
þeim sem koma úr básafjósi, en
eins og orðið gefur til kynna þá
ganga kýrnar lausar allan ársins
hring, þó þær séu inni yfir vetr-
artímann.
Þó má ekki skilja orð mín sem
svo að ég telji útivist nautgripa
óþarfa, ég vil bara að það sé bar-
ist fyrir þeim rétti á skynsaman
og öfgalausan hátt.
Ef tilgangurinn með öllum þess-
um öskrum er að koma velferðar-
umræðunni af stað, þá er hægt að
benda á að innan Landbúnaðarhá-
skóla Íslands hefur þessi umræða
átt sér stað í nokkur ár. Sem
dæmi um það má nefna að árið
2006 skrifaði Sigtryggur Veigar
Herbertsson um aðbúnað hrossa í
lokaverkefni sínu til BS-gráðu við
LBHÍ. Tveimur árum síðar skrif-
aði undirritaður svo lokaverkefni
um velferð mjólkurkúa til sömu
gráðu. Árið 2010 gaf LBHÍ síðan
út rit nr. 28 sem ber heitið „Vel-
ferð mjólkurkúa í lausagöngufjós-
um“ og í því verkefni var notið að-
stoðar frá evrópskum sérfræðingi.
Ég vil ítreka að mér líkar til-
gangur og markmið Velbús og að
ég er mikill áhugamaður um
bætta velferð búfjár, en ég gagn-
rýni málflutning Velbús í um-
ræðunni undanfarna daga. Það er
því miður gömul saga og ný að
hróp og köll og bendingar í allar
áttir eru góð húsráð til að komast
á forsíður stórra fréttamiðla. Það
sem gerist þá oft er að umræðan
þróast út í að vera drullupyttur,
þar sem þeir sem reyna að nálgast
hlutina af skynsemi og ró verða
sjálfkrafa dæmdir sem andstæð-
ingar (í þessu tilfelli velferðar)
bara vegna þess að þeir taka ekki
undir upphrópanirnar. Það getur
vel verið að ég verði dæmdur svo
eftir þessa grein, en læt mig samt
hafa það.
Til að hafa þessa grein ekki of
langa vil ég benda á málflutning
Ólafs Dýrmundssonar hjá Dýra-
verndunarsambandi Íslands. Hægt
er að segja að þar sé staðið með
báða fætur á jörðinni. Á meðan
ekki verður hægt að segja það
sama um Velbú ætla ég að halda
mig sem lengst frá þeim fé-
lagsskap.
Á milli steins og sleggju
Eftir Axel Kárason » Ástæðan fyrir því að
ég vil reyna að skil-
greina velferð betur er
að koma á framfæri
þeirri skoðun minni að í
svona umræðu er nauð-
synlegt að ekki sé neitt
haft í lausu lofti og fari
bara eftir skilgreiningu
hvers og eins. Axel Kárason
Höfundur er BS í búvísindum og
dýralæknanemi.
Nýlega var bein útsending frá
breska þinginu á Sky-sjónvarpsstöð-
inni. Það stóð yfir umræða um ýmis
mál. Eftir því sem best verður séð
var ekki eitt einasta sæti autt í þing-
mannabekkjum þingsins og þar að
auki voru nokkrir standandi í enda
þingsalarins. Síðan íslenska sjón-
varpið fór að senda út myndir frá al-
þingi Íslendinga hefur það komið í
ljós að stór hluti af stólum þingsins
er alla jafna galtómur. Það er eins
og þingmenn hafi þann vana að láta
kjósa sig til setu á þinginu bara til
þess að hafa frátekinn stól. Stór
hluti þingmanna er „á þinginu“,
kannske einhvers staðar í bygging-
unni, og það telst vera „á þingi“!
Það vill nú til að ég var fyrir um
það bil 50 árum samferða vini mín-
um til þess að hitta einn þingmann-
inn fyrir kjördæmi það sem tilheyrði
þessum vini mínum. Umræða stóð
yfir á alþingi og það mátti heyra óm-
inn af henni þar sem við vorum
staddir í þinghúsinu. Vinur minn
spurði viðkomandi þingmann hvort
við værum ekki að trufla hann frá
þingstörfunum en hann svaraði sem
svo að hann hlustaði bara með öðru
eyranu.
Þegar ég ber saman starfshætti
þessara tveggja þjóðþinga, annars
vegar hjá Bretum og hins vegar hjá
Íslendingum, finnst mér augljóst að
vanræksla á alþingi Íslendinga er al-
gjör. Þessi þykjustuleikur sem fram
fer er augljóslega til skammar. Það
er greinilegt að engar lágmarks-
kröfur eru gerðar til þeirra sem eiga
að vera á fundinum. Í þeim félögum
sem ég hef tekið þátt í hafa yfirleitt
verið gerðar þær kröfur að það séu
nógu margir viðstaddir til þess að
það sé „fundarfært“. Á alþingi virð-
ist vera kappnóg að fundarstjóri sé
viðstaddur.
Eftir að hafa borið saman þessi
tvö þing er það alveg augljóst að al-
þingi Íslendinga virðist bara vera
frekar lélegur brandari. Þetta er
kannski skýringin á því hvernig hið
herfilega Schengen-samkomulag
hefur komist í gegnum alþingi Ís-
lendinga. Þetta samkomulag var
aldrei samþykkt í þjóðaratkvæði og
ætti fyrir löngu að hafa verið fellt í
einni slíkri. Þeim sem vita ekki í
hverju það samkomulag er fólgið er
bent á að þetta skelfilega samkomu-
lag heimilar evrópskum glæpa-
gengjum ótakmarkaðan aðgang að
landinu til þess að fremja sína glæpi.
Þrátt fyrir að það ætti að vera öllum
Íslendingum ljóst að þetta ófremd-
arsamkomulag er ein alversta skelf-
ing sem yfir landið hefur dunið
heyrist ekki eitt einasta hljóð í ein-
um einasta núverandi alþingismanni
um að það þarf að afnema þetta fá-
ránlega heimskulega samkomulag
og það núna strax.
Það hefur því miður komið í ljós
að sofandaháttur þingmanna í mik-
ilvægum málum er alveg ótakmark-
aður. Það má alveg kalla það nöfn-
um eins og foringjaræði eða
frekjuræði en það afsakar ekki að
þingmenn skuli beygja sig fyrir
slíkri tilhögun.
Samkvæmt hinni venjulegu reglu
eiga þingmenn að fara eftir sam-
visku sinni en ekki frekju annarra.
Það skapar hins vegar vandamál
ef einhverjir þeirra eru algjörlega
samviskulausir. En síðustu lögbrot
ráðherra í núverandi ríkisóstjórn
eru orðin svo alvarleg að það er
löngu kominn tími til þess að end-
urreisa alþingi landsins og reisa það
upp úr því botnlausa óþverrasiðleysi
sem það er sokkið í.
BERGSVEINN
GUÐMUNDSSON,
Garði.
Frá Bergsveini Guðmundssyni
Alþingi og Schengen
Bréf til blaðsins
Móttaka að-
sendra greina
Morgunblaðið birtir alla útgáfu-
daga aðsendar umræðugreinar frá
lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til
að hafna greinum, stytta texta í sam-
ráði við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni eða í bréf-
um til blaðsins.
Blaðið birtir ekki greinar, sem eru
skrifaðar fyrst og fremst til að
kynna starfsemi einstakra stofnana,
fyrirtækja eða samtaka eða til að
kynna viðburði, svo sem fundi og
ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Formið má m.a. finna undir
Morgunblaðshausnum efst t.h. á for-
síðu mbl.is. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/sendagrein.
Ekki er lengur tekið við greinum
sem sendar eru í tölvupósti og grein-
ar sem sendar eru á aðra miðla eru
ekki birtar.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið, en næst þegar kerfið er notað
er nóg að slá inn netfang og lykilorð
og er þá notandasvæðið virkt.
Nánari upplýsingar gefur starfs-
fólk greinadeildar.