Morgunblaðið - 03.05.2011, Side 14

Morgunblaðið - 03.05.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011 und manns hafi starfað við húsið, þeg- ar allt er tekið saman. Hún segir að starfsmenn séu samhentir og sam- stilltir á það að láta verkefnið verða farsælt og takast vel. „Við erum að horfa á hluti gerast sem ég hélt að væru ekki mögulegir. Á föstudag horfðum við á anddyrið hreinsast upp og nánast verða al- mennilegt, þó auðvitað eigi eftir að hreinsa og fínísera mjög margt. Hér er búin að eiga sér stað svo mikil vinna og hún safnar ryki og alls konar hlutum sem tekur tíma að losna við, þannig að það verður ekki allt spikk og span, það vitum við alveg fyrir víst. En þetta verður alla vega vel í stakk búið til að við getum opnað og gert það glæsilega.“ Fullkomin upplifun En munu tónleikagestir fá að upp- lifa húsið í allri sinni dýrð á opnunar- tónleikunum? „Ég get fullyrt það, því salurinn er tilbúinn og það er allt til taks. Hér er fyrsta flokks aðstaða, hljómburður, hljóðfæri, tónlistarmenn og hljóm- sveitarstjóri. Það er ekkert sem vant- ar upp á að upplifunin geti orðið full- komin.“ Tónlistarstjórinn segir það forrétt- indi að fá að standa í stafni fyrir þetta verkefni. „Tilfinningin er mjög margþætt. Hún er fyrst og fremst alveg ótrúleg gleði yfir því að þetta sé að takast. Hafandi alist upp í tónlistarumhverfi og tekið í arf þörfina fyrir þetta hús og þrána eftir því, þá er það líka fyrir mig, persónulega, stórkostlegt að upplifa þetta. Ég lít á þetta sem lang- hlaup, þó að þessum áfanga sé náð – að húsið opni – þá er það bara fyrsti þátturinn í langri og vonandi farsælli ævi þessa húss.“ Langur kafli senn á enda Iðnaðarmenn munu brátt kveðja tónlistarhúsið við höfnina. Alls hafa um þúsund manns komið að framkvæmdinni, með einum eða öðrum hætti. Ekki eftir neinu að bíða  Opnunartónleikar Hörpu fara fram á morgun  Opin æfing Sinfóníuhljóm- sveitarinnar fyrir helgi gaf góð fyrirheit Beðið eftir hljómsveitinni Aðalsalur Hörpu er nánast tilbúinn. Nú á aðeins eftir að fylla í sætin. Speglasalur Iðnaðarmenn bæði innan- og utanhúss sjást hér speglast í lofti Hörpu. BAKSVIÐ Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Komið er á endasprett í byggingu Hörpu við hafnarbakkann. Það fer ekki á milli mála þegar litið er inn fyr- ir dyr tónlistarhússins. Iðnaðarmenn keppa við tímann sem aldrei fyrr og reyna að leggja lokahönd á verkið. Steypan verður vart þornuð þegar fyrstu tónleikagestir Hörpu munu ganga inn í nýja húsið á miðvikudags- kvöld og hlýða á Sinfóníuhljómsveit Íslands spila undir stjórn Vladimírs Ashkenazy. Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpu, segir að ekkert muni vanta upp á það að upplifunin geti orðið fullkomin fyrir fyrstu tón- leikagestina á morgun, þrátt fyrir að húsið verði ekki fullkomlega klárað. Hún segir að opin æfing Sinfóníunnar á föstudaginn, sem var haldin fyrir starfsmenn hússins, hafi gefið góð fyrirheit. Opnunartímabil hefst á morgun „Það verður ýmislegt óklárað, enda vissum við það frá byrjun og lögðum áherslu á það að salirnir yrðu til og allt sem skiptir máli til að halda við- burði. Og við það stöndum við. Þó það verði kannski eitt og annað smálegt eftir þá veit ég að fólk verður svo glatt yfir því að koma að það tekur ekkert eftir því,“ segir Steinunn Birna. Opn- unartímabil Hörpu mun standa frá morgundeginum allt til 20. ágúst. Á þeim tíma mun húsið klárast í þrep- um. „Við tókum meðvitaða ákvörðun um það þegar við vissum að það yrði ekki allt tilbúið 4. maí að byrja samt, af því að húsið yrði tilbúið til að standa undir því að hýsa viðburði. Okkur fannst það miklu skynsamlegra held- ur en að láta húsið bíða eftir að allt yrði tilbúið utanhúss, að fara samt með það í gang, því þetta er langþráð hús, líklega langþráðasta tónlistarhús heims, þori ég að fullyrða, og það er ekki eftir neinu að bíða.“ Steinunn Birna segir að hátt í þús- Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið úr Hörpu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.