Morgunblaðið - 03.05.2011, Side 16

Morgunblaðið - 03.05.2011, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011 Hagtölur staðfesta að krafturinn í hagkerfum evrusvæðisins er fyrst og fremst tilkominn vegna upp- gangs í Þýskalandi og Frakklandi. Vöxtur mælist í framleiðslugeirum landanna tveggja en stöðnun og samdráttur einkennir stöðuna í flestum öðrum aðildarríkjum evru- svæðisins. Mæling vísitölu innkaupastjóra framleiðslufyrirtækja á evrusvæð- inu sýnir aukningu í 58 stig í apríl úr 57,5 stigum í mars. Vísitalan er þannig reiknuð að gildi fyrir ofan 50 stig sýnir vöxt í framleiðslugeiran- um á en mæling undir 50 stigum sýnir samdrátt. Vísitala innkaupa- stjóra þykir gefa glögga innsýn í hvert hagsveiflan stefnir hverju sinni og er til að mynda mikið notuð af sérfræðingum í seðlabönkum. Þrátt fyrir að mælingin sýni mik- inn kraft á evrusvæðinu í heild sinni er fyrst og fremst um að ræða upp- gang í Þýskalandi og Frakklandi. Samkvæmt mælingunni hækkaði vísitala innkaupastjóra í Þýskalandi í 62 í apríl úr 60,9 í mars. Er þetta nítjándi mánuðurinn í röð sem vísi- talan hækkar. Að sama skapi hækk- aði vísitalan í Frakklandi úr 55,4 í 57,5 í apríl og hefur ekki verið hærri í fimm mánuði. Þungur róður við Miðjarðarhaf En sömu sögu er ekki að segja af öðrum stórum hagkerfum evru- svæðisins á borð við Ítalíu og Spán. Mælingin á vísitölunni í apríl sýndi hægari vöxt í framleiðslu en í mán- uðinum á undan. Spánn stefnir í samdrátt miðað við mælinguna og á sama tíma heldur áfram að draga úr vexti í framleiðslu í Grikklandi. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir sérfræðingi Markit sem sér um mælinguna að vísitalan hafi ekki hækkað jafnmikið fyrstu fjóra mán- uði ársins í tæp tíu ár. Hinsvegar sýni mælingin skýrt að bilið á milli hagsveiflunnar í einstaka evruríki breikki nú ört. Þessi þróun mun gera Evrópska seðlabankanum enn erfiðara um vik í vaxtaákvörðunum sínum. Hann hækkaði stýrivexti í síðasta mánuði vegna vaxandi verðbólguþrýstings og væntingar eru um áframhaldandi vaxtahækkanir á komandi misser- um. Krafturinn í þýska hagkerfinu virðist gefa fullt tilefni til slíkra hækkana en það sama verður hins- vegar ekki sagt um ástandið í hag- kerfum á borð við það spænska, ítalska, gríska og írska. ornarnar@mbl.is Bilið breikkar á evrusvæðinu Reuters Kauphöllin í Frankfurt Þýska hagkerfið dregur hagvaxtarvagninn á evru- svæðinu um þessar mundir ásamt því franska.  Ekkert lát á krafti þýska hagkerfisins ● Sala á bílum í Japan dróst saman um 51% í apríl. Þetta er mesti samdráttur í bílasölu í landinu síðan mælingar hóf- ust árið 1968. Japanskt efnahagslíf varð fyrir miklu áfalli í jarðskjálftanum í mars og stöðvaðist framleiðsla margra fyrirtækja tímabundið. Samtals seldust rúmlega 100 þús- und bílar í Japan í apríl sem er 51% minna en í apríl í fyrra. Sölusamdrátt- urinn í mars var 37%. Helmings samdráttur STUTTAR FRÉTTIR ... ● Ný stjórn Lands- virkjunar var kjörin til eins árs á aðal- fundi fyrirtækisins 15. apríl. Sú breyt- ing varð að Arnar Bjarnason tók sæti í stjórn Landsvirkj- unar. Úr stjórn gekk Páll Magnús- son. Fram kemur á vef Landsvirkjunar að stjórnin sé þann- ig skipuð: Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Há- skólans á Bifröst, stjórnarformaður, Sigurbjörg Gísladóttir, efnafræðingur við Umhverfisstofnun, varaformaður, Arnar Bjarnason, viðskiptafræðingur, Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, og Stefán Arnórsson, pró- fessor við Háskóla Íslands. Ný stjórn Landsvirkjunar Arnar Bjarnason Hagnaður HB Granda í fyrra nam 7,8 millj- ónum evra, eða um 1,3 millj- örðum króna. Árið 2009 nam hagnaður fyr- irtækisins hins vegar þrettán milljónum evra, eða um 2,1 millj- arði króna á núvirði. Hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, var þó mun meiri í fyrra en árið á undan. Skattgreiðslur hækka milli ára Árið 2010 nam EBITDA 41,2 millj- ónum evra en var um 32 milljónir árið á undan. Lægri hagnaður eftir skatta skýrist annars vegar af nei- kvæðum gengisáhrifum upp á 8,2 milljónir evra og því að skatt- greiðslur fyrirtækisins jukust mjög milli ára. Námu þær í fyrra tæpum 11 milljónum evra en voru um 2,6 milljónir evra árið á undan. Eignir HB Granda í árslok 2010 námu 303,7 milljónum evra, and- virði um 50 milljarða íslenskra króna, en voru um 288,7 milljónir evra árið á undan. Eigið fé jókst um 9,4 milljónir evra og var í árslok 2010 141,3 milljónir. Skuldir jukust um 6,5 milljónir og voru 162,4 milljónir. Eiginfjárhlutfall er því um 46,5 prósent, en var um 46 prósent í árs- lok 2009. HB Grandi skilar hagn- aði upp á 1,3 milljarða Gróði Fiskvinnsla HB Granda. Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Landssamband smábátaeigenda gagnrýndi stjórn Gildis lífeyrissjóðs harkalega á ársfundi sjóðsins fyrir helgi og hefur haldið þeirri gagnrýni áfram síðan þá. Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri LS, segist ósáttur við að tillögur sambandsins um aukið lýðræði í stjórn Gildis hafi ekki fengist ræddar á ársfundinum. „Við höfum gert tillögur um að fulltrúar launþega í stjórn lífeyrissjóðsins verði kosnir í opnum kosningum, LS fái fulltrúa í stjórn sjóðsins og að sjóðfélagar hafi kosningarétt á árs- fundum. Stjórn Gildis sendi hana hins vegar til aðildarfélaga sjóðsins, sem tóku svo ákvörðun um hvort hún skyldi rædd á fundinum eða ekki. Þetta þýðir að ársfundur fer ekki með æðsta vald í málefnum sjóðsins, sem hlýtur að vera eins- dæmi,“ segir Örn. Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Gildis, sagði að með- ferð tillagnanna hafi verið í sam- ræmi við samþykktir sjóðsins. „Við förum eftir samþykktum í þessum efnum eins og öðrum og þær segja að leita skuli eftir samþykki aðild- arfélaga hvað varðar framlagningu tillagna á ársfundi.“ Árni segir að tillaga LS um að sambandið fái full- trúa í stjórn gangi ekki upp. „Aðild allra annarra aðildarfélaga að Gildi byggir á kjarasamningum, sem kveður á um skyldur þeirra gagn- vart sjóðnum. Meðlimir í þessum fé- lögum eru skyldaðir til að greiða í sjóðinn. Smábátasjómenn eru ekki bundnir af slíkum kjarasamningum og geta fært sig í hvaða annan sjóð sem vill taka við þeim. Það er eðli- legt að þau félög sem bera skyldur gagnvart sjóðnum stýri honum. Þá verður einnig að athuga að iðgjalda- greiðslur smábátasjómanna eru að- eins lítill hluti iðgjalda sem sjóður- inn fær á ári.“ Ekki nýjar fréttir Á ársfundinum gagnrýndi Örn rekstur sjóðsins undanfarin tvö ár og sagði hann hafa tapað 23,8 millj- örðum króna á tímabilinu. Vísar Örn þar til þess fjár, sem færður er und- ir liðinn „endanlega tapað“ í umfjöll- un ársreiknings um niðurfærslur verðbréfa. Árið 2009 voru rúmir þrír milljarðar króna færðir sem endan- lega töpuð bréf og í fyrra nam þessi fjárhæð um 20,7 milljörðum króna. Árni segir þetta ekki nýjar fréttir og að stjórn sjóðsins hafi haldið sjóð- félögum upplýstum um stöðu mála frá upphafi. Hvað varðar þá gagnrýni Arnar og LS að skortur á gjaldeyrisvörn- um hafi kostað lífeyrissjóðinn fé segir Árni að í fyrsta lagi komi gjaldeyrishöft í veg fyrir gjaldmiðla- skiptasamninga í krónum. „Við er- um að skoða athugasemdir Arnar, en hafa ber í huga að samsetning er- lendra eigna sjóðsins er flóknari en virðist í ársreikningum. Stór hluti eigna okkar er í verðbréfasjóðum, sem gera upp í Bandaríkjadölum, en undirliggjandi eignir geta verið aðr- ar og dreifðari.“ Vill að ársfundur fari með vald  Landssamband smábátaeigenda gagnrýnir Gildi lífeyrissjóð  Segir einsdæmi að ársfundur fari ekki með æðsta vald  Framkvæmdastjóri Gildis segir að farið hafi verið eftir samþykktum Örn Pálsson Árni Guðmundsson                                         !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +01-.2 ++3-3 44-,41 4+-,35 +0-1,0 +4.-3. +-5/0/ +.2-13 +31-4/ +++-,+ +0/-41 ++3-21 44-,00 4+-+4/ +0-134 +40-,5 +-534/ +.2-22 +31-.+ 4+0-4105 +++-4. +0/-32 ++.-40 44-+/4 4+-+0. +0-/+3 +40-52 +-533/ +0,-/4 +3/-+. Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.