Morgunblaðið - 03.05.2011, Síða 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Víkverji tilheyrir eflaust hópi efa-semda- og svartsýnismanna.
Víkverji efast um líf eftir dauðann og
hann efast einnig um Biblíusögurnar
og meira að segja Íslendingasög-
urnar. Allt er þetta líklega skáld-
skapur upp frá rótum, en sem slíkur
þó býsna góður skáldskapur. Fengi
fjórar af fimm stjörnum mögulegum,
ef skrifa ætti ritdóm.
Víkverji efast einnig um að sum-
arið verði gott, og telur tíðarfarið 1.
maí aðeins forsmekkinn að því sem
koma skal. Ætli við séum ekki á leið-
inni inn í ísöld, og gefur Víkverji lítið
fyrir kenningar um gróðurhúsaáhrif-
in. Telur þær vafasöm vísindi og
meiri líkur en minni á að hitastigið á
jörðinni gangi bara í náttúrulegum
sveiflum. Á norðurhveli gætu hlýind-
in því verið að baki og kuldatíð að
taka við með hverfandi Golfstraumi.
En hann gæti komið aftur eftir ein-
hverja áratugi.
x x x
Jafnframt efast Víkverji stórlegaum að ríkisstjórn Jóhönnu Sig-
urðardóttur ráði við hlutverk sitt. Nú
fyrst virðist kreppan vera að skella á
af fullum þunga, með auknu atvinnu-
leysi, hækkandi verðlagi, minnkandi
kaupmætti og auknu þunglyndi
landsmanna. Allsherjarverkfall fram-
undan og frekari fólksflótti í kort-
unum. Við þessar aðstæður á Víkverji
afskaplega erfitt með að vera bjart-
sýnn, jafnvel þó að hann hafi fengið
einhverjar krónur í vaxtaniður-
greiðslu um mánaðamótin. Þær
hrökkva skammt, duga kannski til að
fylla bensíntankinn austur á Seyðis-
fjörð til að komast í Norrænu og það-
an af landi brott – hver veit?
x x x
Að endingu leyfir Víkverji sér aðefast um að Ísland komist í úr-
slit Eurovision þetta árið. Lagið er
miðlungsgott, ágætt sem slíkt og vel
flutt af drengjunum, en bara ekki
vænlegt til sigurs í þessari fáránlegu
keppni. Vonandi hefur Víkverji rangt
fyrir sér í öllu því sem að framan
stendur, og engin ástæða til að taka
mark á þessu svartsýnisrausi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 alveg ber, 8 lund,
9 blóðsugum, 10 elska, 11
fantarnir, 13 híma, 15 stöðv-
un, 18 grískur bókstafur, 21
ílát, 22 sjúga, 23 smámynt,
24 málsvari.
Lóðrétt | 2 kút, 3 jurtin, 4
eldstæði, 5 slæmur, 6 bílífi, 7
litla, 12 greinir, 14 snák, 15
pest, 16 koma í veg fyrir, 17
geðs, 18 djarfa, 19 hlífðu, 20
siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 andóf, 4 sænsk, 7 akkur, 8 orður, 9 nár, 11 læða, 13
biti, 14 stóra, 15 fork, 17 klám, 20 sag, 22 ráðum, 23 eldur, 24
innan, 25 afurð.
Lóðrétt: 1 apall, 2 díkið, 3 forn, 4 slor, 5 niðji, 6 kargi, 10 ámóta,
12 ask, 13 bak, 15 ferli, 16 ræðan, 18 lyddu, 19 múruð, 20 smán,
21 geta.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
3. maí 1943
Fjórtán bandarískir hermenn
fórust er flugvél af gerðinni
Boeing 24 brotlenti á Fagra-
dalsfjalli á Reykjanesi,
skammt austan Grindavíkur.
Meðal þeirra var yfirmaður
alls herafla Bandaríkjanna í
Evrópu, Frank M. Andrews.
Við starfi hans tók Dwight D.
Eisenhower sem síðar varð
forseti Bandaríkjanna.
3. maí 1986
Gleðibankinn lenti í sextánda
sæti þegar Íslendingar tóku
þátt í söngvakeppni sjónvarps-
stöðva í Evrópu í fyrsta sinn.
3. maí 2002
Alþingi samþykkti að leggja
aflagjald á handhafa aflaheim-
ilda. Gjaldið átti að taka gildi á
árunum 2004 til 2009 og
hækka í áföngum úr 6% í 9,5%
af aflaverðmæti að frádregn-
um ákveðnum kostnaði. Í rit-
stjórnargrein Morgunblaðsins
daginn eftir sagði að þetta
markaði „þáttaskil í baráttu
fyrir því að íslenska þjóðin
njóti sanngjarns afraksturs af
auðlindum“.
3. maí 2003
Einar Rúnar Sigurðsson og Ív-
ar F. Finnbogason urðu fyrstir
til að klífa austurvegg Þverár-
tindseggjar í Suðursveit, en
fjallið er 1.554 metra hátt.
Ferðin tók níu klukkustundir.
Morgunblaðið sagði þetta vera
sögulegan áfanga í íslenskri
fjallgöngusögu.
3. maí 2008
Forseta Íslands var afhent ný-
uppgerð Packard bifreið sem
Sveinn Björnsson forseti hafði
notað.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Þegar ég kem í vinnuna mun stimpilklukkan fara
með afmælislagið og svo mun mín væntanlega bíða
afmælisgjöf frá stjórn Grundar,“ segir Tryggvi V.
Líndal, þjóðfélagsfræðingur og skáld, sem fagnar
sextugsafmæli sínu í dag. Tryggvi sem starfar við
umönnun á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund seg-
ist hugsa sér að opna afmælisgjöfina með sam-
starfsfólkinu síðdegis en formleg veisluhöld bíði
hins vegar þar til í lok mánaðar eða byrjun næsta.
Tryggvi segist hafa hugleitt tímamótin undan-
farin ár, og meðal annars komið hugleiðingum sín-
um á framfæri í gegnum ljóðabækur sínar. Á síðasta ári gaf hann út
sína þrettándu í röðinni, Ævintýraljóð, og leyfði Tryggvi sér í bókinni
að gera afmælisdiktur „og læt ég þar skáldagyðjurnar í Grikklandi
segja skoðun sína á mínum kveðskap,“ segir Tryggvi en bætir við kím-
inn að í byrjun komi raunar fram að dómarnir verði ávallt jákvæðir
enda láti hann gyðjurnar vera stjúpmæður sínar.
Undanfarið hefur Tryggvi svo haft það fyrir sið að mæta til vinnu
með ljósmyndabók sem hann gluggaði í meðan hann velti fyrir sér líf-
inu, enda sextugsafmæli merkilegra en svo að hægt sé að humma það
af sér. andri@mbl.is
Tryggvi V. Líndal skáld sextugur
Stimpilklukkan mun syngja
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Haltu áfram að koma skipulagi á hlut-
ina bæði á heimilinu og í vinnunni. Treystu því
að þú verðir samþykkt/ur og láttu þína innri
rödd leiða þig áfram. Reyndu að sýna þolin-
mæði og jafnaðargeð.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Gerðu þér ekki upp skoðanir á mönnum
og málefnum. Einblíndu á jákvæðu þættina
og þú slærð í gegn.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hlustaðu á það sem aðrir hafa að
segja svona til tilbreytingar. Þú nærð tökum á
vandamáli sem hefur truflað þig. Slakaðu á
þegar þú getur.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Taktu ekki að þér verkefni nema þú
sért tilbúin/n til að fórna fjölskyldulífinu í ein-
hvern tíma. Grasið er ekki grænna hinum
megin þó þú haldir það.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú nýtur samskipta við vini þína í dag.
Þú veist að þú hefur ýmislegt til málanna að
leggja.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þig rámar í að hafa einhvern tíma ver-
ið í tímaþröng. Farðu þér ögn hægar svo þér
takist að leiða öll mál til lykta.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert friðarsinni í eðli þínu og vilt hafa
jafnvægi í umhverfi þínu. Einhver er í þeim
stellingum að hella sér yfir aðra.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Látið það ekki á ykkur fá þó hlut-
irnir gangi ekki upp. Sjálfsöryggi og þol-
inmæði skiptir miklu máli þegar þú leysir úr
vandamálum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Allir litlu hlutirnir fara í þínar fín-
ustu, en ekki stóru vandamálin. Ekki láta brot
ástvinar gott heita, bentu á mistökin.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þér getur reynst erfitt að standa
við allar þær skuldbindingar sem þú hefur
tekið að þér. Dagurinn er upplagður fyrir
ferskar og nýjar hugmyndir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú notar tíma þinn einstaklega
vel. Allt sem þú hefur fram að færa er ein-
hvers virði, mundu það.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það hefur ekkert upp á sig að stinga
höfðinu í sandinn. Mundu að það getur allt
gerst. Láttu umheiminn eiga sig – það kemur
dagur eftir þennan dag.
Stjörnuspá
Sudoku
Frumstig
2 3 7 5
5 4 1
8
7 1
9 3 8
4 3
3 9 2
2 8
1 5 9 4
4 1
3 7 6 9
6 4 2
8 2
3 4
7 8
1 3 8
2 9 6 7
4 9 7
1 8
2 4
5 9
8 5 1 3 2
6 8 9
3 4 2 5
4 6 9 3
5 3 8 2
8 7 2 4 5 6 9 3 1
9 6 3 8 1 2 7 5 4
5 1 4 3 7 9 2 6 8
7 5 1 6 8 4 3 9 2
2 9 8 1 3 5 4 7 6
3 4 6 2 9 7 1 8 5
1 3 9 5 4 8 6 2 7
4 2 5 7 6 3 8 1 9
6 8 7 9 2 1 5 4 3
4 1 5 6 3 8 2 9 7
8 6 9 2 7 5 1 3 4
3 2 7 4 1 9 6 5 8
6 8 3 5 9 1 7 4 2
2 9 1 7 8 4 3 6 5
7 5 4 3 6 2 9 8 1
9 7 8 1 4 3 5 2 6
5 4 6 9 2 7 8 1 3
1 3 2 8 5 6 4 7 9
8 9 3 7 4 6 2 1 5
4 7 5 1 2 3 9 8 6
2 6 1 8 9 5 4 7 3
6 3 8 4 1 7 5 9 2
9 4 7 6 5 2 1 3 8
1 5 2 3 8 9 7 6 4
3 2 6 5 7 1 8 4 9
7 8 9 2 3 4 6 5 1
5 1 4 9 6 8 3 2 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 3. maí, 123. dagur
ársins 2011
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 g6 2. e4 Bg7 3. Rc3 d6 4. Be3 Rc6 5.
f4 Rf6 6. Rf3 O-O 7. Be2 a6 8. Dd2 b5 9.
e5 Rg4 10. Bg1 dxe5 11. dxe5 Bb7 12.
Bc5 f6 13. h3 Rh6 14. exf6 Dxd2+ 15.
Rxd2 Bxf6 16. Rde4 Bg7 17. O-O-O
Hxf4 18. Be3 Hxe4 19. Rxe4 Rf5 20. Bc5
Re5 21. Bf3 Bc6 22. Rd2 Rxf3 23. Rxf3
e5 24. Hhe1 He8 25. Kb1 h6 26. a3 Kh7
27. c3 g5 28. Kc2 Rg3 29. Bf2 Rh5 30.
Be3 Bf6 31. Hf1 Rf4 32. Re1 Kg6 33.
Hd2 Be4+ 34. Kc1 Bc6 35. Kc2 Rd5 36.
He2 Bg7 37. g3 Rf6 38. Bg1 Re4 39. Bh2
Rc5 40. b4 Ra4 41. Rf3
Staðan kom upp á Skákþingi Íslands,
landsliðsflokki, sem lauk fyrir skömmu
á Hótel Eiðum. Guðmundur Gíslason
(2291) hafði svart gegn alþjóðlega
meistaranum Guðmundi Kjartanssyni
(2327). 41… Rxc3! 42. Kxc3 Bxf3 43.
Hee1 e4+ 44. Kc2 Hd8 og svartur inn-
byrti vinninginn skömmu síðar.
Svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sniðug sagnvenja. N-Enginn.
Norður
♠9
♥ÁKD10852
♦8
♣G542
Vestur Austur
♠G10643 ♠85
♥74 ♥9
♦1092 ♦ÁDG63
♣K9 ♣108763
Suður
♠ÁKD72
♥G6
♦K754
♣ÁD
Suður spilar 6♥.
Geoff Hampson og Fred Gitelman
spiluðu saman í bandarískri sveit í
Kína. Það tók þá tvær sagnir að kom-
ast á nákvæmlega réttan áfangastað í
spilinu að ofan: Gitelman vakti í norður
á 3G í merkingunni „þéttur hálitur án
hliðarstyrks“. Þær upplýsingar dugðu
Hampson til að stökkva strax í 6♥. Út-
spilið var ♠G. Hampson aftrompaði
mótherjana, henti tígli og laufi í há-
spaða og gaf á ♣K. Tólf áreynslulausir
slagir.
Hinum megin vakti Kínverjinn Kang
Meng á 4♥ í norður. Makker hans, Li
Xin, spurði um lykilspil með 4G, fékk
upp „tvö með trompdrottningu“ og
stökk þá í 6G til að vernda ♦K fyrir út-
spili. Grandslemmuna má auðvitað
vinna með því að spila að ♦K, en Li
valdi að svína í laufi og fór einn niður
fyrir vikið.
Hlutavelta
Vinirnir Konráð Jóel
Jónasson, Steinar Dúi
Jónsson og Ingólfur
Kjartansson héldu
tombólu í Spönginni
og færðu Rauða
krossinum ágóðann
sem hljóðaði upp á
2.038 krónur.
Flóðogfjara
3. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.25 0,5 6.28 3,5 12.33 0,5 18.43 3,8 4.54 21.57
Ísafjörður 2.34 0,3 8.26 1,8 14.39 0,2 20.40 2,0 4.42 22.19
Siglufjörður 4.33 0,1 10.55 1,1 16.42 0,2 22.56 1,2 4.24 22.02
Djúpivogur 3.40 1,9 9.43 0,5 15.59 2,1 22.13 0,5 4.19 21.30
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið