Morgunblaðið - 03.05.2011, Side 36
Hævnen segir af vináttutveggja þjakaðradrengja, Eliasar (Mark-us Rygaard) og Christi-
ans (William Johnk Nielsen), sem
tekur að kárna þegar Christian
verður smám saman ofbeldisfullur
og heiftúðlega grimmur. Þessi frá-
sögn fléttast saman við sögu af Ant-
oni (Mikael Persbrandt) föður Elias-
ar, lækni sem vinnur hjálparstarf í
Afríku við bágbornar aðstæður en
verður fyrir tilefnislítilli árás heima
fyrir sem kallar á hefnd drengjanna.
Í myndinni velta leikstjórinn Bier
og handritshöfundurinn Jensen upp
afstæðum en áleitnum siðferðis-
spurningum um mannlegt eðli,
manngæsku og illsku. Spurningar
um hvernig við mannfólkið tökumst
á við misrétti og ástvinamissi herja á
áhorfendur. Bjóðum við hinn vang-
ann, hyggjum við á hefndir eða
brotnum við saman? Með einstöku
innsæi nær kvikmyndagerðarfólkið
að hámarka dramatískustu augna-
blik aðstæðna hverju sinni, án þess
þó að flækja málin með óþarfa til-
finningasemi. Útkoman er tauga-
trekkjandi en hrífandi mynd sem
nær einkar vel að spegla ólíka til-
finningagreind og siðferðiskennd
barna og fullorðinna. Hún undir-
strikar ennfremur hversu mikilvægt
en erfitt það er fyrir þessa hópa að
læra að skilja og setja sig hvor í spor
annars.
Þó að lítill hluti myndarinnar ger-
ist í flóttamannabúðunum í Afríku
slá þær senur grunntón myndar-
innar. Mannúðarstarfið og óheft
illskan sem geisar þar kallast á við
raunir persóna í öryggi Danaveldis.
Þannig hvetur myndin áhorfendur
til að hafa samúð með Eliasi,
Christiani og foreldrum þeirra í hin-
um vestræna heimi, en hún dregur
því miður aðeins upp frekar staðl-
aðar ímyndir af eymd afrískra per-
sóna í ónefndu Afríkuríki, sem gegn-
ir því takmarkaða hlutverki að slá
áðurnefndan grunntón og skerpa á
óbilandi manngæsku Antons.
Óhugnanlegir atburðir gerast en
sættir nást og gullvægum boðskap
er miðlað á ögurstundu. Þrátt fyrir
að slíkt geti talist predikandi verður
því ekki neitað að myndin er há-
dramatísk, óvægin og afar spenn-
andi. Leikurinn er með afbrigðum
góður og hann er styrktur með flæð-
andi kvikmyndatöku. Iðandi töku-
vélin sveimar rannsakandi og ögr-
andi umhverfis persónur og afrískt
undirspil toppar hrifnæmið. Á tjald-
inu birtist stórbrotið myndefni og
átakanleg saga sem er kirfilega af-
mörkuð af vestrænni heimsmynd.
Áhorfendur ferðast og gægjast inn í
hörmungar þriðja heimsins og að-
steðjandi vá heimafyrir en eru á
endanum friðþægðir í vissu sinni um
ágæti kristilegs siðferðis, göfgi fyr-
irgefningar og mátt hins góða. Erf-
iðar aðstæður og áleitnar siðferðis-
flækjur persóna koma eftir sem áður
líklega til með að sækja á áhorf-
endur löngu eftir að sýningu mynd-
arinnar lýkur.
Að bjóða hinn vangann
Háskólabíó
Hævnen bbbbn
Leikstjórn: Susanne Bier. Handrit: And-
ers Thomas Jensen. Aðalhlutverk: Mika-
el Persbrandt, Trine Dyrholm, Ulrich
Thomsen, Markus Rygaard og William
Johnk Nielsen. 113 mínútur. Danmörk,
2010.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Þjakaðir Félagarnir Elias og Christian. Kvikmyndin Hævnen fjallar um
börn og foreldra sem bregðast ókvæða við í óvægnum aðstæðum.
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 2011
Díana Rós A. Rivera
diana@mbl.is
„Við erum bara í þessu núna, að gefa
viðtöl, ef það er ekki við Ísland þá er
það bara úti í hinum stóra heimi,“
segir Gunni Óla í Vinum Sjonna.
Blaðamaður sló á þráðinn til Jón-
atans Garðarssonar, fararstjóra ís-
lensku Evróvisjónfaranna, sem gaf
honum samband við söngvarann
þegar stund var milli stríða. Kapp-
arnir komu til Düsseldorf í Þýska-
landi í fyrradag og er dagskráin
framundan þétt. „Við fáum einn frí-
dag og hann er á morgun en svo er
þetta bara stíft eftir það,“ segir
Gunni.
Fagmannlegt
Aðspurður segir hann aðbúnað
vera til fyrirmyndar og fagmannlega
að öllu staðið. Tekið hafi verið á móti
þeim með vöfflum og vatni og við
komuna í höllina hafi þeim verið
fylgt í gegnum allt ferlið en keppnin
verður haldin í Esprit Arena-
höllinni sem er steinsnar frá mið-
bænum. Æfingin fyrsta daginn hafi
svo gengið mjög vel. Næstu tvær
vikurnar eru fullskipaðar og föstu-
dagurinn næstkomandi nokkuð stór
dagur á sviðinu fyrir þá félagana
þegar unnið verður með bæði mynd-
og hljóðupptöku. Gunni segir þó
ferlið felast í fleiru en æfingum. „Við
þurfum að vera rosalega sýnilegir
hérna úti“ segir hann og bætir við að
þeir þurfi að mæta á alls kyns skipu-
lagðar uppákomur og vera með í
veislum. „Þetta er svona rokk-
stjörnulíf í tvær vikur,“ segir hann
og hlær við.
Bjartsýni
Gunni segist vera bjartsýnn á
framhaldið og að þeir félagar muni
að sjálfsögðu gera sitt besta. „Að
sjálfsögðu stefnum við að því að fara
bara alla leið, annars værum við ekki
að gera þetta.“ Hann segir þó að
hópurinn stilli væntingum í hóf og
leggi frekar áherslu á að leggja
hjartað í þetta og vonast til að það
muni skila sér á þann hátt sem þeir
vilja til fólksins.„Við munum gera
okkar besta, svo eru bara aðrir sem
að sjá um að dæma út frá því,“ segir
hann að lokum.
Ljósmyndir/Jónatan Garðarsson.
Vinir Sjonna „Við komum til með að gera okkar besta, svo eru bara aðrir sem að sjá um að dæma út frá því,“ segir Gunni Óla, einn af Vinum Sjonna.
Rokkstjörnulíf í tvær vikur
Evróvisjónhópurinn mættur til Düsseldorf Gunni Óla, einn vina Sjonna, seg-
ir stífa dagskrá framundan Tekið á móti hópnum með vöfflum og vatni
Upptekinn Gunni Óla mæðist í mörgu, eins og aðrir Evróvisjónfarar.
Leikhús listamanna býður til
veislu í kvöld í Þjóðleikhúskjall-
aranum og verður uppákoman sú
síðasta í bili á vegum hópsins. At-
riðin verða átta eða níu, að sögn
eins meðlima Leikhúss lista-
manna, Snorra Ásmundssonar, og
ákveðin tengsl verða við List án
landamæra, fötluð stúlka mun
lesa upp ljóð. Hilmar Guðjónsson
leikari tekur þátt í gjörninga-
veislunni sem og myndlistarkon-
urnar Bjargey Ólafsdóttir og
Hulda Vilhjálmsdóttir, auk með-
lima hópsins að undanskildum
Ragnari Kjartanssyni. Þá mun
Snorri fá aftur til liðs við sig tvo
unga menn með þroskahömlun
sem frömdu með honum gjörn-
inginn „Hnakkar og skinkur“ á
sýningunni Koddu í Nýlistasafn-
inu á dögunum. Snorri segir þá
ætla að fremja nýjan gjörning í
kvöld.
Morgunblaðið/Eggert
Lokakvöld Leikhúss
listamanna í kvöld
Og enn af Snorra Ásmundssyni
og gjörningi hans, „Hnakkar og
skinkur“. Snorri vildi með gjörn-
ingnum spegla hégóma og kven-
fyrirlitningu sem íslenskt þjóð-
félag ætti að glíma við, eins og
hann orðaði það í tölvupósti, og
benda á mikilvægi þess að ólíkir
einstaklingar séu sýnilegir. Jafn-
rétti ætti að ríkja á öllum sviðum
lífsins.
Á myndbandavefnum YouTube
má sjá gjörninginn umrædda og
hafa stjórnendur Rocksbox Fine
Art, gallerís í Portland í Banda-
ríkjunum, farið þess á leit við
Snorra að hann flytji gjörninginn
þar og þá með mönnunum tveim-
ur. Snorri mun sýna í galleríinu 7.
júlí nk. Hann segir ekki enn ljóst
hvort náist að flytja „Hnakka og
skinkur“ í Portland.
Rocksbox vill sýna
„Hnakka og skinkur“