Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 2. M A Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  110. tölublað  99. árgangur  SÖNGGLAÐAR VEIRUR SUNGIÐ LENGI SAMAN HERA DÁIR ALLT DANSKT STJÖRNUR VERÐA TIL Í CANNES VIÐSKIPTABLAÐ OG FINNUR.IS MIKILVÆG HÁTÍÐ 37SYNGJA EINS OG ENGLAR 10 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hofsjökull hefur tapað 5% af rúm- máli sínu, eða um tíu rúmkílómetr- um af ís, undanfarin 15 ár. Starfs- menn Veðurstofu Íslands mældu nýverið afkomu liðins vetrar á norðanverðum jöklinum og reyndist vera um 1,73 metra aukningu að ræða. Það er 18% betri vetrar- afkoma en að meðaltali árin 1988- 2010, samkvæmt bráðabirgðanið- urstöðum, en tölurnar eru nokkuð dæmigerðar fyrir jökulinn í heild. Í fyrravetur var afkoman á sama svæði aðeins 0,98 metrar, sú minnsta sem mælst hefur frá upp- hafi mælinga á jöklinum árið 1988. Mikil leysing í fyrra Síðasta sumar mældist hins veg- ar mesta leysing sem um getur frá upphafi mælinga á Hofsjökli. Gjóska úr Eyjafjallajökli jók á sól- bráð á jöklinum og átti sinn þátt í að leysingin varð jafnmikil og mæl- ingar sýndu. Það hafði svo áhrif á ársafkomuna en eins og fyrr er get- ið hafði hún aldrei mælst eins lág og í fyrra. Það kom Þorsteini Þorsteinssyni, jöklafræðingi hjá Veðurstofunni, ekki sérlega á óvart að ákoma á jökulinn í vetur skyldi vera yfir meðaltali. „Nei, í sjálfu sér ekki miðað við hvernig veðurlagið hefur verið, sér- staklega eftir jól. Það hefur verið talsvert mikil úrkoma á landinu og það var talsvert mikill snjór á há- lendinu.“ »12 Jöklarnir minnka ár hvert  Vetrarafkoma Hofsjökuls reyndist yfir meðaltali í ár Eyjamenn eyðilögðu gleði Valsmanna á 100 ára afmælinu á Hlíðarenda í gær með 1:0 sigri í úrvalsdeild karla í fótbolta. Markið kom í uppbótartíma en Eyjamenn léku einum færri í seinni hálfleik. Heil umferð fór fram í gær- kvöldi og KR-ingar komust á toppinn með 2:0 sigri á Víkingi. » Íþróttir Eyðilögðu afmælisgleðina Morgunblaðið/Golli Kristján Jónsson kjon@mbl.is „Ríkisstjórnin hefur með þessu ekki staðið við þau loforð sem hún gaf í tengslum við kjarasamninga um að við myndum hafa traustan rekstrargrundvöll,“ segir formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, Adolf Guðmundsson. Hann segir að auk þess sé margt mjög óljóst í kvótafrumvörpum Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra. „Þetta er hryllingur, það er t.d. ekki skýlaus endurnýjunarréttur, menn hafa bara 15 ár og eru ekkert öruggir með framhaldið,“ sagði Adolf. „Við viljum lengri nýting- artíma og skýlausan rétt til end- urnýjunar. Hann er mjög óljós, við höfum bara rétt til viðræðna. Við vitum ekkert hvað það þýðir. Þarna er líka bann við framsali á aflahlutdeild sem er mjög stórt mál. Menn vita þá ekki hvort þeir geta selt félögin sín eða hlutabréf- in, hvort þeir geta sameinast. Þetta eru það mikil inngrip að þetta er bara þjóðnýting og eignaupptaka.“ Hann segir að takmörkun á fram- sali kvóta hafi ekki endilega mikil áhrif á fjárhag fyrirtækjanna en minna framboð verði á leiguheim- ildum, minna svigrúm fyrir kvóta- litlar útgerðir til að halda sér gang- andi. „Nema þeir verði í pólitískri út- gerð. Við vitum ekkert hvernig þessum leigukvótum verður háttað, hvernig ríkið ætlar að leigja frá sér og hvað mikið lendir í leigu. Hluti af leigupottunum verður boðinn upp en við vitum ekkert hvernig út- færsla á því verður. Það er ekkert um það í frumvarpinu.“ Gert er ráð fyrir að heildar- greiðslurnar fyrir kvóta geti farið í 5,6 milljarða króna haustið 2012. Adolf segir að þessar hækkanir þrengi einnig að fyrirtækjunum. Á fundi í sjávarútvegsráðuneytinu í gær hafi ekkert komið fram um það hver hugsanleg efnahagsáhrif breytinganna gætu orðið. MFrumvörpin gætu kollvarpað »4 Ríkisstjórnin ekki staðið við gefin loforð  Formaður LÍÚ segir kvótafrumvörp merkja „þjóðnýtingu og eignaupptöku“  Að minnsta kosti tíu létust í jarð- skjálfta sem varð nálægt bænum Lorca, um 120 km suðvestur af Alicante, á Spáni í gær. Skjálftinn mældist 5,2 stig á Richter- kvarðanum og átti upptök sín á um 10 kílómetra dýpi. Jarðskjálftinn er sá mannskæðasti í landinu í 40 ár en fjöldi bygginga hrundi og var miðbær bæjarins rýmdur. Margir slösuðust í skjálftanum og mikil ringulreið ríkti í kjölfar hans í gær- kvöldi. Skæðasti skjálftinn á Spáni í 40 ár Reuters  Íslendingar komust sem kunnugt er áfram í úrslitakeppni Evróvisjón á laugardag og voru dregnir upp úr síðasta umslaginu þriðja árið í röð, en líkurnar á því að það gerist eru aðeins 1 á móti 5.814, eða 0,0172%. Í undankeppni Evróvisjón greiddu Íslendingar 12% fleiri atkvæði en í undankeppninni á síðasta ári, þrátt fyrir að kostnaður við hvert at- kvæði hafi hækkað um 19 krónur frá því í fyrra. Síminn bauð við- skiptavinum sínum að senda frí sms til útlanda og svo virðist sem marg- ir hafi tekið áskorun fyrirtækisins um að minna vini og ættfólk erlend- is á að kjósa Ísland. »14, 36 Sáralitlar líkur á síðasta umslaginu Reuters Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að bókun ríkisstjórninnar um að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi komi að efnislegri umræðu um kvótamálið og tryggt verði að sjávarútvegurinn hafi góð rekstrarskilyrði hafi verið mikilvæg. „Það merkir að fyrirtækin verði alþjóðlega samkeppnisfær, það er það sem við miðum við. Ef það verður þannig að þetta frumvarp rýri sjávarútveginn allsvakalega þá förum við ekki út í þriggja ára samning. Þá er samningurinn upp í loft.“ Fer allt upp í loft? KJARASAMNINGARNIR OG KVÓTINN Vilmundur Jósefsson –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBL AÐINU Í DAG Bandarískur kaupsýslumaður, sem er kvæntur íslenskri konu, bauðst haustið 2009 til að leggja fram landsvæði í Kólumbíu til gull- leitar gegn því að íslenskir fjár- festar legðu fram 1,1 milljarð kr. til kaupa á tækjum. Var ætlunin með þessu að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans. Höfðu þingmennirnir Tryggvi Þór Herbertsson og Jón Gunn- arsson forgöngu um að koma á fundum með fjárfestum. Fallið var frá verkefninu í fyrra. »Viðskipti Fjárfestum boðið að fjármagna gullleit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.