Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
Gott grínhögg í andlitið
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
„Mér líður vel og ég er spenntur fyr-
ir kvöldinu. Ég held að húmorinn
minn höfði vel til Íslendinga sem
virðast hafa mjög dökkan húmor
sem er gott. Mér skilst að borgar-
stjórinn ykkar sé grínisti sem er
sprenghlægilegt í sjálfu sér,“ segir
uppistandarinn Jon Lajoie sem stíg-
ur á svið í Háskólabíói í kvöld og
skemmtir íslenskum aðdáendum
sínum. Hann segir það hálf-
undarlegt að venjast þeirri stað-
reynd að fólk um allan heim horfi á
það sem hann búi til í kjallaranum
heima hjá sér. Hefði hann gert þetta
fyrir 10 árum hefði enginn á Íslandi
vitað af honum en þetta sé það góða
við Youtube og slíka miðla.
Oft bara að fíflast
Jon er kannski ekki allra enda
gengur hann oft alla leið í gríninu og
lengra en það. „Mér er sama hvort
fólki finnst ég fyndinn eða ekki. Mér
finnst allt í lagi ef fólk nær kímni-
gáfunni en er kannski ekki sér-
staklega hrifið af henni. Mér finnst
hins vegar leiðinlegt þegar fólk skil-
ur ekki húmorinn og tekur mig of
bókstaflega. Stundum nota ég frek-
ar klúrar og beittar aðferðir til að
koma einhverju á framfæri en skila-
boðin eru oftast andstæða þess sem
ég er að gera. Þegar ég stend uppi á
sviði og segi rasistabrandara þá veit
fólk að ég er í karakter og finnst
þetta ekki sjálfum. Brandarinn er
fyndinn af því að karakterinn er al-
gjör hálfviti og það er fyndið að
hlæja að þeim. Þannig að ég geri
grín að hlutum og er háðskur en oft
og tíðum er ég bara að fíflast. Ég
skrifa aldrei neitt út frá því að
hneyksla fólk eða móðga. Mér finnst
öfgar einfaldlega fyndnar og grín er
næstum eins og að kýla einhvern í
andlitið. Ef þú ætlar að kýla ein-
hvern í andlitið hefur það meiri áhrif
ef viðkomandi á ekki von á högginu
og þú lætur virkilega vaða. Þannig
held ég að það losi frekar um ýmis
tabú að ganga skrefi lengra,“ segir
Jon.
Allir að henda tómötum
Það hefur tekið Jon talsverðan
tíma að komast hingað en hann hef-
ur verið önnum kafinn við hlutverk í
sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum.
Einnig hefur hann verið á sýninga-
ferðalagi um Bandaríkin og Kanada
en Ísland er fyrsti viðkomustaður
hans fyrir utan Norður-Ameríku.
„Ég er spenntur og held að þetta
verði góð lífsreynsla. Ef allir byrja
að henda tómötum í mig, þá það. Svo
lengi sem allir eru að henda tómöt-
um og hafa borgað sig inn,“ segir
Jon í léttum dúr. Í alvöru talað seg-
ist hann vera mjög þakklátur að hér
sé hópur sem vilji koma og sjá hann.
Jon lærði leiklist í Montreal og lék í
fransk-kanadískum sjónvarpsþætti
um árabil auk þess að vera í hljóm-
sveit. Uppistandið þróaðist síðan út
frá því að hann byrjaði að setja
grínvídeó á netið. Í daglegu lífi seg-
ist Jon alltaf hafa verið feiminn og
ekki miðpunktur athyglinnar. „Ætli
það sé ekki ómeðvitað ástæðan fyrir
því að ég byrjaði í uppistandi. Ég
veit ekki hvernig ég á að fá athygli
en kannski tekst það ef ég stend með
míkrófón uppi á sviði …“ segir Jon
sem ætlar að flytja flest lögin sem
Íslendingar kannast við í bland við
ný lög og grín. Einnig heldur hann
námskeið í hvernig eigi að verða
frægur á netinu sem hann segir í
raun algjört grín og vitleysu. Blaða-
maður getur ekki sleppt Jon úr sím-
anum án þess að spyrja hann hvort
hann heillist sérstaklega af fyndnum
konum. „Já, þú gætir verið fjölda-
morðingi en svo lengi sem þú ert
með góðan húmor og tónlistarsmekk
þá mun ég verða ástfanginn af þér,“
segir Jon og fer mörgum fögrum
orðum um íslenskar konur.
Jon Lajoie treður upp í kvöld
Finnst öfgar einfaldlega fyndnar
Grínisti Jon Lajoie kann vel við sig á Íslandi og er spenntur fyrir kvöldinu.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
„Fyrir okkur er þetta aðalsig-
urinn, að hafa komist upp úr þess-
um riðli, sem var þvert á allar
spár evróvisjónspekúlanta heims,“
segir Matthías Matthíasson, Matti,
glaður í bragði þegar blaðamaður
slær á þráðinn til Düsseldorf. Fyr-
ir keppnina sagði Matti að riðillinn
væri erfiður pólitískt. Spurður
hvort Ísland hafi þarna brotið ein-
hvern múr segist Matti vona það.
„Ég held að þetta fyrirkomulag
með dómnefnd á móti sé að skila
sér. Þetta er blind kosning og
enginn veit hver kaus hvern.
Þannig að pólitíkin er kannski
ekki alveg jafnsterk í undanriðl-
unum og í lokakeppninni. Á end-
anum held ég bara að lagið hafi
verið gott, við skiluðum því af
mikilli einlægni og ég held að fólk
hafi fallið fyrir því,“ segir Matti.
Skáluðu fyrir góðu kvöldi
Það var sannarlega óvænt
ánægja á þriðjudagskvöldið þegar
íslenska evróvisjónlagið komst
áfram í aðalkeppnina. Spennan var
orðin nærri óbærileg undir lokin
og eflaust margir sem hafa hoppað
upp úr sófanum af hamingju þegar
síðasta landið var lesið upp.
„Við bjuggumst alveg eins við
því að komast áfram en þegar bú-
ið var að opna níu umslög og
Rússland, Noregur og Tyrkland
voru öll eftir skáluðum við bara
fyrir góðu kvöldi, vorum ánægðir
með okkar og afskrifuðum þetta,“
segir Matti enda var gleðin mikil
þegar í ljós kom að Ísland komst
áfram. „Þegar íslenski fáninn kom
þarna í lokin þá bara tapaði maður
sér og gleðin rauk upp,“ segir
Matti og skellihlær. Nokkra at-
hygli hefur vakið að norska lagið
skyldi ekki komast áfram en Matti
segir það hafa verið eitt af uppá-
haldslögum íslenska hópsins og
hóparnir tveir hafi verið mikið
saman síðastliðina daga.
Gott sæti á laugardaginn
Eftir keppnina tóku við fjöl-
mörg viðtöl á stórum blaðamann-
fundi. Þar var líka dregið í næstu
riðla og fékk Ísland 21. sæti en
það þykir mjög gott að vera frek-
ar aftarlega. Heima á hóteli biðu
síðan hópsins einir 100 Íslend-
ingar og stukku liggur við út úr
runnum, segir Matti, þegar þeir
stigu út úr rútunni. Það var því
mikil gleði sem ríkti meðal Íslend-
inganna. Hópurinn hélt síðan í
heimsókn í Euroklúbbinn þar sem
þeir tóku lagið og fóru í nokkur
viðtöl. „Síðan fórum við bara
snemma heim enda þreyttir eftir
daginn,“ segir Matti sem er lít-
illega hás eftir kvöldið en segir
það bara vera þar sem hann sé
nývakaður. „Við erum allir í topp-
formi og leggst vel í okkur að
halda áfram eins og við erum að
gera. Við förum í gufuna hérna á
hverjum degi og syndum aðeins til
að halda okkur ferskum,“ segir
Matti. Gærdeginum ætluðu söngv-
ararnir að eyða í rólegheitum og
gera vel við sig með eiginkonum
sínum. „Í dag er í raun eini frí-
dagurinn þannig séð og við ætlum
að eyða honum með konunum okk-
ar sem komu hingað í fyrradag.
Síðan vill nú líka þannig til að
konan mín á 35 ára afmæli í dag
svo við ætlum líka að fagna því,“
segir Matti.
Gleði Það kom íslenska Evróvisjónhópnum sannarlega á óvart að komast áfram í aðalkeppnina á laugardaginn.
Töpuðu sér af gleði
Íslenska evróvisjónlagið komst áfram í aðalkeppnina á laugardaginn
Íslenski hópurinn verður 21. þjóðin til að stíga á svið
Færeyska
hljómsveitin
ORKA mun
halda útgáfu-
tónleika á Ís-
landi 25. maí
næstkomandi.
Fara tónleikarn-
ir fram á Só-
dómu en um líkt
leyti verða líkir fríir tónleikar í
Norræna húsinu. Tónleikarnir
eru vegna plötunnar ÓRÓ, sem er
önnur plata hennar, en hún kom
út í apríl síðastliðnum. Leiðtogi
ORKU, Jens L. Thomsen stofnaði
sveitina árið 2005 ásamt og vin-
um og félögum úr tónlist-
arbænum Götu m.a. Platan Li-
vandi oyða kom út 2008, en þar
er að mestu notast við heima-
smíðuð hljóðfæri og var hún tek-
in upp á sveitabæ. Síðan þá hefur
sveitin ferðast víða um heim og
haldið hljómleika. Platan nýja
var hins vegar tekin upp í vöru-
skemmu á hafnarsvæðinu við
Þórshöfn.
Hin færeyska ORKA
með tónleika á Íslandi
Bar 11 og Tuborg hafa tekið
höndum saman og ætla að vera
með sumartónleikaröð á Bar 11 í
allt sumar. Frítt verður inn á alla
tónleikana en markmiðið er að
bjóða upp á allt það besta í ís-
lensku tónlistarlífi. Fyrstu tón-
leikarnir verða á föstudaginn
kemur kl. 21.00 en þá mun hljóm-
sveitin LEGEND stíga á stokk.
Hún er samstarfsverkefni
Krumma Björgvinssonar og Hall-
dórs Björnssonar og var það sam-
eiginlegur áhugi á rafrænni tón-
list sem leiddi þá félaga saman.
Nafn sveitarinnar vísar í fræga
mynd Ridley Scott um baráttu
ljóss og skugga.
Tónlistarveisla
á Bar 11 í sumar