Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 32
32 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 Ískalt andlit Allt frá frumbernsku mannskepnunnar hef- ur hún lært að sækja lækningu til náttúr- unnar. Síðustu ár hef- ur orðið mikil vakning í þá veru að rifja upp þessa gömlu virku þekkingu. Ung og áhugasöm kona opnar fyrirtæki á horni Skólavörðustígs og Laugavegar. Selur aðallega gömlu og sjúku fólki hin ýmsu grös og segir fólki hvaða áhrif þau hafa á líkamann. Innan stundar frá setn- ingu reglugerðar voru varðhundar Brusselvaldsins mættir hjá þessari góðu konu til að gera henni nánast ómögulegt að reka sína góðu starf- semi, sem er til fyrirmyndar. Hvað skyldu mútuþægir brusselistar hafa þegið frá lyfjafyrirtækjunum fyrir þennan góða gjörning? „Allt fyrir okkur.“ Viðar Sigurðsson. Hattar Ég var að vona að Ís- lendingar færu að ganga meira með hatt eftir að hafa horft á konunglega brúð- kaupið. Margar konur, sem eru með þunnt hár og heldri konur með þunnt hár að aft- an, yrðu glæsilegri og karlmenn, hárlitlir eða hárlausir, líka. Þegar mikið rok er fer hárið oft úr skorðum, þá er sniðugt að vera með hatt. Hattaaðdáandi. Ást er… … að segja ekki orð, þó þú sjáir fyrstu merki um skalla. Velvakandi Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, gönguhópur kl. 10.30, vatnsleikfimi kl. 10.45, myndlist/prjónakaffi kl. 13. Jóga kl. 18. Árskógar 4 | Handavinna/smíði/ útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Helgi- stund kl. 10.30. Myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist, handa- vinna, skartgripagerð. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, botsía kl. 10.45. Listamaður mánaðar- ins. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9, handavinna kl. 13, hugleiðsla kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Ramma- vefnaður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15. Til hádegis tekið á móti handverki á vor- sýninguna 14. og 15. maí. Allir, sem eiga muni unna í vetur, eru hvattir til að vera með. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Handavinna, ganga kl. 10, handav. og brids kl. 12, jóga kl. 18. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Qi gong kl. 8.10, vatnsleikfimi kl. 11.15, handavinnuhorn kl. 13, síðustu tímar í karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14, Garða- kórinn, æfing kl. 16. Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund umsj. sr. Svavar Stefánsson kl. 10.30. Frá hádegi perlu/bútasaumur/myndlist. Lagt af stað í Þjóðleikhúsið kl. 19. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, leik- fimi kl. 9.30. Botsía kl. 10.30, félagsvist kl. 13.30. Hraunsel | Qi-gong kl. 10, leikfimi kl. 11.20, glerskurður kl. 13, félagsvist og pílukast kl. 13.30, dansleikur á morgun föstudag kl. 20.30, Þorvaldur Hall- dórsson leikur, kr. 1.000. Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin opin kl. 8-16. Botsía kl. 10. Hannyrðir kl. 13. Félagsvist kl. 13.30. Hæðargarður 31 | Við hringborðið kl. 8.50. Listasmiðja kl. 9. Spænska kl. 12. Leikfimi kl. 10. Þegar amma var ung kl. 10.50. Tónar og Trix frá Þorlákshöfn gestir Sönghóps Hjördísar Geirs kl. 13.30. Línudans undir stjórn Ingu kl. 15. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogsskóla kl. 17. Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi á morgun föstudag kl. 9.30. Listasmiðja kl. 13 á morgun föstudag. Laugarneskirkja | Vorferð í Vindáshlíð. Fargjald, leiðsögn og veitingar kr. 2.500. Fararstjóri Sigurbjörn Þorkelsson. Brott- för frá Laugarneskirkju kl. 13.15. Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10. Handa- vinna kl. 9. Vöfflukaffi. Leirlist- arnámskeið/útskurður kl. 9. Vesturgata 7 | Handavinna, glerskurður (Tiffany’s), ganga kl. 9.15. Kertaskreyt- ingar kl. 13. Kóræfing kl. 13. Leikfimi kl. 13. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand NÚNA ÞURFUM VIÐ AÐ BERJAST VIÐ DREKANN. MÉR HEFUR ALDREI TEKIST AÐ KOMAST FRAMHJÁ HONUM HVERNIG FÓRSTU AÐ ÞESSU?! ÉG OG SJÓNVARPS- FJARSTÝRINGIN ERUM BÚIN AÐ VERA AÐ ÆFA SAMAN MINNIÐ MITT HLÝTUR AÐ VERA AÐ VERSNA MEÐ ALDRINUM AF HVERJU? ÉG MISSTI AF HREKKJAVÖKUNNI Í ÁR EKKERT ALVARLEGT, BARA KLÓSETT- SETUSLYS NÝR HATTUR? JÁ, VAR AÐ KAUPA HANN MÉR FANNST VERA KOMINN TÍMI TIL AÐ BREYTA AÐEINS TIL, HVAÐ FINNST ÞÉR ELSKAN MÍN? ÞÚ FÆRÐ STIG FYRIR HEIÐARLEGA TILRAUN... HVERNIG Á ÉG AÐ FINNA OFURÞRJÓT TIL AÐ BERJAST VIÐ SÁ EINI SEM ÉG VEIT UM Í BORGINNI ER SANDMAN OG HANN HEFUR BÆTT RÁÐ SITT ÉG VEIT AÐ HANN HEFUR BÆTT RÁÐ SITT, EN... ...JAMESON VEIT ÞAÐ EKKI ÉG ER EKKI FRÁ ÞVÍ AÐ ÉG ÆTTI AÐ GETA NÝTT MÉR ÞETTA HVAÐ ER KÓNGULÓAR- MAÐURINN NÚ AÐ BRALLA? SÁLFRÆÐ- INGUR ÉG ÞORI EKKI AÐ FARA Í LEIKSKÓLANN ÉG SKIL EKKI AF HVERJU, ÞAÐ ER ENGIN GÓÐ ÁSTÆÐA FYRIR ÞVÍ ÉG HUGSA UM ÞETTA DAG OG NÓTT... ÉG ER SVO HRÆDD! ÞÚ ERT ALVEG EINS OG ALLIR HINIR KRAKKARNIR, SVONA BORGAÐU NÚ Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Stefán Friðbjarnarson sendiVísnahorninu stutta Mogga- kveðju: „Góðkunningi minn, Sig- urður Björnsson málarameistari, gaukaði að mér frábærri stöku eftir Jökul Pétursson málarameistara (d. 1973), eftir að hafa lesið ölvísur Vísnahornsins sl. fimmtudag: Öls við neyzlu áður var aðal veizlu-bjarminn, þegar geislar gleðinnar gátu beizlað harminn.“ Þegar saman koma gleði og harmur í vísu, þá kemur mér hug vísa skáldsins Sigurðar Pálssonar, sem var fæddur rétt fyrir 1646, lög- réttumaður í Skógarnesi. Lárus afi minn sagði þessa vísu öðrum betri, en Sigurður orti er hann reið frá greftrun sonar síns: Saman kemur hrygðin hrum, hrimult stundum af jeg þrym. Gamans þó að glansi brum, glymur undir sorgarbrim. Sigrún Haraldsdóttir leit yfir Mó- ann er hún vaknaði í vikunni, dáðist að vorinu og lífinu, og varð að orði: Vorið lífgar völl og hlað, vellur hátt í spóanum, gráar eru gæsir að gamna sér í móanum. Gylfi Þorkelsson var einnig í vor- hugleiðingum: Eftir rok og regn í nótt, röðull vermir svörðinn. Út þá springa sprotar fljótt og spariklæðast börðin. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af gleði og harmi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.