Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Afkoma Sveitarfélagsins Árborgar batnaði um 621 milljón króna milli ár- anna 2009 og 2010 en á síðasta ári var hagnaður samstæðunnar 172 milljónir í stað 449 milljóna taps árið 2009. Þetta kemur fram í greinargerð með árs- reikningi sveitarfélagsins sem tekinn var til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær. Upphaflegar áætlanir höfðu gert ráð fyrir 429 milljóna króna tapi árið 2010 en að sögn Eyþórs Arnalds, for- manns bæjarráðs, voru tekjur umfram áætlum, verðbólga minni en vænst hafði verið og launaþátturinn sem hlutfall af tekjum lækkaði talsvert milli ára. „Þetta er hæsta krónutalan í afgang af reglulegri starfsemi frá því að sveit- arfélagið var stofnað. En við erum líka að leggja grunn að léttari strúktúr,“ segir hann. Hluti af kostnaðinum sem bókaður hafi verið á árinu sé til kom- inn vegna starfslokagreiðslna og þess háttar og umskiptin komin til að vera. Eyþór segir þó ljóst að skuldastaða Árborgar sé afar erfið en eigið fé og skuldir árið 2010 voru tæpir 12,3 millj- arðar og þ.a. voru skuldir og skuld- bindingar tæpir 9,4 milljarðar. Byrðin sé svo þung að vaxta- og verðbóta- kostnaður hafi verið hærri en fast- eignaskattarnir. „Eitt stærsta verkefni okkar er að lækka skuldirnar en fyrsta skrefið var að stöðva skuldasöfnunina og tap- reksturinn,“ segir Eyþór. Sveitarfé- lagið hafi verið komið 35% fram yfir viðmið eftirlitsnefndar sveitarfélaga en vonir standi til að myndarlegt skref verði stigið til að minnka hlutfallið á þessu ári. holmfridur@mbl.is Umskipti upp á 621 milljón króna í Árborg  Stærsta verkefnið að takast á við erfiða skuldastöðu Þetta er hæsta krónutalan í afgang af reglulegri starf- semi frá því að sveit- arfélagið var stofnað Eyþór Arnalds Sundlaug í Boðanum, þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar við Boðaþing, var vígð við hátíðlega athöfn í gær. Laugin er hönnuð með þarfir eldra fólks í huga og við hana eru tveir heitir pottar. Hún verður fyrst um sinn nýtt af íbúum hjúkrunarheimilis Hrafnistu og leiguíbúða DAS. Til framtíðar er stefnt að því að hún nýtist fleirum og vonandi sem flestum Kópavogsbúum. Bæjaryfirvöld í Kópavogi og Hrafnista í Kópa- vogi hafa gert með sér tímabundið samkomulag um að Hrafnista greiði kostnað við mannahald laugarinnar en bærinn sér um annan rekstrarkostnað. Að vígsluathöfninni lokinni stungu nokkrir eldri borgarar sér til sunds í nýju lauginni og létu vel af henni. Ný sundlaug vígð í Boðanum í Kópavogi Morgunblaðið/Sigurgeir S. Laugin hönnuð með þarfir eldri borgara í huga Lögreglumenn í gengu hús úr húsi í grennd við heimili Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í gær og ræddu við íbúa. Tilgang- urinn var sá að kanna hvort ein- hver af nágrönnum ráðherrans byggi hugsanlega yfir upplýsingum sem gætu varpað ljósi á hver eða hverjir köstuðu grjóti í rúður á húsi hans. Aðgerðin hófst upp úr klukkan fjögur síðdegis og tóku a.m.k. 7-8 lögreglumenn þátt í henni. Málið litið alvarlegum augum Sigurbjörn Víðir Eggertsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn og yf- irmaður lögreglustöðvar 5, segir að tilgangurinn hafi verið að kanna til þrautar hvort íbúar hefðu séð eitt- hvað sem gæti gagnast lögreglu við rannsókn málsins en lögregla líti atvikið eðlilega afar alvarlegum augum. Hann hafði ekki fengið upplýsingar frá lögreglumönnunum um hvort íbúar hefðu getað veitt gagnlegar upplýsingar, það myndi væntanlega skýrast nánar í dag. Árásin var gerð upp úr klukkan þrjú aðfaranótt síðastliðins laug- ardags. Grjóthnullungum var kast- að í húsið og brotnuðu tvær rúður. Ráðherrann og eiginkonu hans sakaði ekki. runarp@mbl.is Leituðu að mögu- legum vitnum  Lögreglan ræddi í gær við íbúa í ná- grenni við heimili innanríkisráðherra Morgunblaðið/Júlíus Lögreglan Mikill viðbúnaður við heimili innanríkisráðherrans. HB Grandi hefur fjárfest fyrir meira en fjóra milljarða króna í uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði frá því að HB Grandi og Tangi sameinuðust fyrir sjö árum, að því er segir í fréttatilkynningu. Vilhjálmur Vilhjálmsson, deild- arstjóri uppsjávardeildar HB Granda, segir að á þessu ári sé fyr- irhugað að fjárfesta fyrir rúmar 200 milljónir króna á Vopnafirði. „Þessa dagana er verið að setja upp nýjan blástursfrysti og auk þess er verður komið fyrir nýrri út- rásarlögn og nýjum tækjum til hreinsunar á frárennsli frá upp- sjávarfrystihúsinu. Öll uppbygging hefur tekist mjög vel, enda reynt og traust fólk sem við höfum fengið til liðs við okkur.“ Langstærsti vinnuveitandinn HB Grandi er langstærsti vinnu- veitandinn á Vopnafirði. „Launagreiðslur til starfsmanna á staðnum voru í fyrra samtals tæp- ar 500 milljónir króna en fastráðnir starfsmenn í landi eru um 55. Í sum- ar verða þeir svo helmingi fleiri þegar vertíðin stendur sem hæst.“ Vilhjálmur segir að samstarfið við heimamenn hafi gengið ein- staklega vel. „Við reynum eins og hægt er að beina viðskiptum okkar til fyr- irtækja og einstaklinga á staðnum. Vonandi verður komandi vertíð gjöful, þetta er gríðarleg fjárfest- ing sem þarf að standa undir sér.“ HB Grandi eykur fjár- festingar á Vopnafirði HB Grandi Fjárfest hefur verið myndarlega á Vopnafirði. Héraðsdómur Austurlands dæmdi í gær konu og karl- mann frá Erítreu í mánaðarlangt fangelsi fyrir að framvísa föls- uðum ítölskum vegabréfum við komuna til lands- ins með Norrænu á þriðjudag. Bæði konan og karl- maðurinn eru tvítug að aldri. Þau játuðu bæði brot sitt. Maðurinn framvísaði vegabréfi með nafni ítalsks manns, sem fæddur er 1983 en konan vegabréfi með nafni ítalskrar konu. Refsingin er í samræmi við dóma- hefð sem hefur skapast hér á landi vegna brota af þessu tagi. Fólkið var dæmt til að greiða málskostnað, maðurinn 75 þúsund krónur og kon- an 64 þúsund krónur. Krafðist mað- urinn vægustu refsingar, taldi sig hafa verið á leið til Kanada og ekki hefði verið um ásetning að ræða. Dæmd fyrir föls- uð skilríki Norræna Parið var dæmt í fangelsi. Banaslys varð á Kambanesi á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur í fyrrakvöld þegar bíl var ekið út af þjóðveginum. Fór bíllinn nokkrar veltur og ökumaður, sem var einn á ferð, kastaðist út úr bílnum og lést á vettvangi skömmu seinna. Maðurinn sem lést hét Eyþór Stefánsson. Eyþór var 44 ára gamall sjómaður, fæddur 31. janúar 1967, ókvæntur og barnlaus. Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði fer með rannsókn málsins, í samvinnu við rannsóknarnefnd um- ferðarslysa. Þetta er fimmta banaslysið í um- ferðinni í ár en á sama tíma í fyrra höfðu þrír látist í tveimur banaslys- um. Allt síðasta ár létust átta manns í sjö umferðarslysum. Fimm banaslys í umferðinni Banaslys Frá vettvangi slyssins. Morgunblaðið/Albert Kemp Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Siemens þvottavélar, þurrkarar og uppþvottavélar á tilboðsverði. Hreint & klárt í maí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.