Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 15
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Fjöldi barna skemmti sér kon- unglega við slökkvistöðina í gær- morgun, þrátt fyrir skítakulda. Ár- legu eldvarnaverkefni um Loga og Glóð fyrir elstu nemendur leikskóla bæjarins lauk þar með formlega.    Krakkarnir fengu að skoða öll tól og tæki slökkviliðsins, hlaupa undir stóra bunu og sprauta úr kraftmikilli slöngu. Nokkrir náðu að sprauta á sjálfan slökkviliðsstjórann sem varð hundblautur! En sem betur fer í hlífð- argalla …    Landsmót í skólaskák hefst í dag. Keppni fer að mestu fram í Síðuskóla en hefst reyndar í skákheimilinu í Íþróttahöllinni kl. 16.    Mótorhjólasafn Ísland verður formlega opnað næsta sunnudag. Þá hefði Heiðar Jóhannsson orðið 57 ára, en hann lést í vélhjólaslysi sumarið 2006 og safnið er tileinkað minningu hans. Safnkosturinn samanstendur af hjólunum hans Heidda auk gjafahjóla sem koma víðsvegar að.    Í fínu formi, kór eldri borgara á Akureyri, fagnar 25 ára afmæli um þessar mundir. Kórinn verður með tónleika í Glerárkirkju á sunnudag- inn kl. 16. Stjórnandi er Gunnfríður Hreiðarsdóttir.    Landsbankinn á Akureyri hefur samið við knattspyrnudeildir KA og Þórs um stuðning við þær næstu tvö ár en jafnframt afsalað sér auglýs- ingum á búningum félaganna og boð- ið þeim að vela sér gott málefni á bún- ingana í staðinn.    KA valdi Krabbameinsfélag Ak- ureyrar en Þór valdi Þroskahjálp á Norðurlandi eystra. Merki þessara tveggja málefna prýða því búninga félagsins í sumar.    Stofnaðir verða áheitasjóðir fyrir Krabbameinsfélags Akureyrar og Þroskahjálp á Norðurlandi eystra og greiðir bankinn ákveðna upphæð fyr- ir hvern sigur meistaraflokks KA og Þórs á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Öðrum fyrirtækjum og ein- staklingum er frjálst að heita á liðið sitt og leggja góðu málefni lið. Í tilefni af stofnun áheitasjóðanna mun Landsbankinn styrkja hvort málefni um sig um 500.000 kr.    Gítarunnendur í bænum eiga góða daga framundan; gítarhátíð á Græna hattinum, þar sem m.a. fræg- asti gítarleikari Japans spilar. Morgunblaðið/Skapti Gaman Mikael Blær af Síðuseli aðstoðar Björn Björnsson slökkviliðsmann. Logi og Glóð glöð FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 Meðal þess sem gagnrýnt hef- ur verið er að ákæra var gefin út sjö mánuðum eftir að Al- þingi samþykkti málsóknina, og er hún nánast orðrétt eftir þingsályktun Alþingis. Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, segir ákæruskjalið hálfgert auka- atriði í málinu. Þegar málið sé þingfest þurfi að vera búið að leggja grunn að því með gagnaöflun. Og hún hafi tekið lengri tíma en reiknað var með. „Við höfum ekkert setið á höndunum og beðið eftir að geta sent frá okkur þessa einu og hálfu blaðsíðu,“ segir Sig- ríður og einnig að Geir og verj- andi hans viti manna best hvers vegna þetta hafi tekið þennan tíma. Sátu ekki á höndunum GAGNAÖFLUN TÓK TÍMA Fimmtudagur 12. maí. Sauðárkrókur kl. 12 á Mælifelli, Aðalgötu 7. Akureyri kl. 18 á Strikinu, Skipagötu 14. Föstudagur 13. maí. Akranes kl. 12 á Gamla kaupfélaginu. Mánudagur 16. maí. Reykjavík kl. 12 á Grand hótel, Sigtúni 38. Reyðarfjörður kl. 18 í fundarsal AFLs Búðareyri 1. Þriðjudagur 17. maí. Selfoss kl. 12 á Hótel Selfoss. Miðvikudagur 18. maí. Suðurnes kl. 12 á Flughóteli. RAFIÐANAÐARSAMBAND ÍSLANDS Stórhöfða 31 | 110 Reykjavík | sími: 580 5200 | Fax: 580 5220 | rsi@rafis.is KYNNINGAFUNDIR VEGNA KJARASAMNINGS RSÍ OG SA/SART Á ALMENNA MARKAÐNUM fyrst var lögfest með sakamálalög- unum, ekki hafa vakið hrifningu hjá ákæruvaldinu „af því að ákæran á einmitt að skýra sig sjálf með lýs- ingu á sakarefninu. Það á ekki að þurfa rökstuðning umfram, nema í málflutningi.“ Hún segist engan flöt finna á því enda óljóst hvar hún ætti þá að byrja rökstuðninginn og hvar hann enda. Ítarlega skjalaskrá fylgir Ákæran er, að mati Sigríður, alls ekki óskýr en málflutningurinn mun snúast um að leiða rök að þeim sak- argiftum sem þar koma fram, líkt og hefðbundið er í sakamálum. „Meðal annars mun fylgja mjög ítarleg skjalaskrá, sem verður vel yfir hundrað síður. Og þetta er meira en skjalaskrá því þetta er lykillinn að málinu. Þar verður skilgreining á öll- um þeim skjölum sem lögð eru fram, hver tilgangurinn er með framlagn- ingu þeirra og undir viðkomandi ákæruliðum. Þar eru menn því komnir með gott yfirlit yfir það sem sækjandinn í málinu leggur upp með; rökstuðning fyrir ákæruliðun- um. En ég set þetta ekki inn í ákæru- skjalið.“ Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um ákæruna á opinberum vettvangi er Jón Magnússon, hæstaréttalögmað- ur og fyrrverandi þingmaður Sjálf- stæðisflokks. Á vefsvæði sínu segir hann að athyglisvert sé að í ákær- unni séu „ákæruatriði vegna mála sem heyrðu ekki undir forsætisráð- herra heldur aðra ráðherra, m.a. við- skiptaráðherra“. Hann segir að mið- að við almennu ákæruatriðin hefið eins mátt ákæra þáverandi forsætis- ráðherra Bretlands og jafnvel for- seta og fjármálaráðherra Bandaríkj- anna. „Veikur málatilbúningur“ Hæstaréttarlögmaðurinn Brynjar Níelsson, og formaður lögmanna- félags Íslands, segir að ákæruvald- inu sé vorkunn að reyna að smíða ákæru úr þessari þingsályktun þingsins. Hann bendir á að Geir sé ákærður fyrir athafnaleysisbrot, sem er samkvæmt ákvæðum laga heimilt, en til þess að fá fram sakfell- ingu þurfi að tilgreina í ákæru hvað Geir gat gert til að afstýra falli bank- anna. Ekki sé nóg að segja að hann hafi átt að gera eitthvað. Þá sé ekki vitað hvort athafnaleysi Geirs, eða það sem hann gerði, hafi hugsanlega dregið úr tjóni íslenska ríkisins. Rétt eins og ekki er vitað hvort það hefði ekki aukið tjónið hefði Geir fram- kvæmt eitthvað af því sem í ákær- unni segir. Brynjar segir ákærur af þessu tagi í skötulíki og er nokkuð viss um að hún yrði ekki tekin góð og gild fyrir almennum dómstólum í venju- legum málum. „En þetta mál er að vísu ekki venjulegt.“ Hvað varðar annan kafla ákær- unnar segir Brynjar að þar sé jafnvel að finna undarlegri lýsingu á refsi- verðri háttsemi. „Þar finnst mér sem ákæruvaldið segi í einu orðinu að ekki hafi verið haldinn ráðherra- fundur um yfirvofandi háska en í næstu setningu að það hafi verið gert en ekki nógu mikið og ekki formlega. Þetta er veikur málatilbúningur.“ Rökstuðningur í málflutningnum  Saksóknari Alþingis segir að ákæran á hendur Geir eigi að skýra sig sjálf með lýsingu á sakarefninu  Formaður lögmannafélagsins segist óviss um að ákæran yrði tekin góð og gild hjá almennum dómstól BAKSVIÐ Andri Karl andrikarl@mbl.is „Það er í raun enginn rökstuðningur í ákærunni. Maður hefði átt von á að það væri einhver rökstuðningur fyrir ákæruatriðum og tenging við gögn málsins, en það er rýrt. Maður hefur efasemdir um að þetta gangi svona,“ sagði Andri Árnason, verjandi Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð- herra, í samtali við fréttavef Morg- unblaðið, mbl.is, á þriðjudag. Sigríð- ur J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, segir ákæruna skýra og ekki eigi að þurfa frekari rökstuðn- ing í henni nema sem fram komi í málflutningi. Í lögum um meðferð sakamála er tilgreint hvað skal koma fram í ákæruskjali. Orðrétt segir í d-lið 152. gr. laganna að í henni skuli greina svo glöggt sem verða megi „rök- semdir sem málsóknin er byggð á, ef þörf krefur, svo sem ef mál er flókið eða umfangsmikið, en röksemda- færslan skal þá vera gagnorð og svo skýr að ekki fari á milli mála hverjar sakargiftir eru.“ Sigríður segir þetta ákvæði, sem Brynjar Níelsson Sigríður J. Friðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.