Morgunblaðið - 12.05.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
Nóg verður um að vera í sveitarfé-
laginu Árborg alla helgina. Í dag verð-
ur sett hin árlega bæjarhátíð Vor í Ár-
borg og verður fjöldinn allur af
áhugaverðum viðburðum í boði.
Frítt er í sund fyrir börnin á Selfossi
og Stokkseyri, myndlistarsýningar eru
víða, boðið verður upp á kynbótasýn-
ingu hrossa og hestamannamót. Það
verður söngur og tónlist, markaðir,
fuglaskoðun, gönguferðir og harm-
onikkuball. Á laugardeginum verður
ratleikur fyrir börn við Húsið á Eyr-
arbakka og þar verður einnig börnum
boðið á hestbak.
Dagskrá hátíðarinnar má sjá á vef-
síðunni www.arborg.is.
Endilega …
… skellið ykkur
á Vor í Árborg
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Lömb Vorið er komið í Árborg.
Nú er síðasta
tækifæri til að
merkja alla heim-
ilismeðlimi á póst-
kassann eða póst-
lúguna ef þeir eiga
að fá póstinn sinn
í hendurnar.
Frá 15. maí, sem
er á sunnudaginn,
afhendir pósturinn
aðeins sendingar sem stílaðar eru á
þá sem merktir eru á lúgu eða póst-
kassa heimilisins. Þessi vinnuregla
hefur ávallt verið viðhöfð til íbúa fjöl-
býlishúsa og verður því engin breyt-
ing þar á segir á vefsíðu póstsins.
Með þessu vill pósturinn tryggja að
allir landsmenn fái eingöngu þann
póst sem þeim er ætlaður. Því er mik-
ilvægt að allir íbúar heimilisins séu
vel merktir til að póstur berist til
þeirra og sé ekki endursendur.
Heimili
Póstkassi Verður
að vera vel merktur.
Merkið
póstkassann
Fyrir þá sem eru að fara að breyta
heima hjá sér ætti vefsíðan Home-
styler.com að vera gagnleg. Eins og
segir á síðunni er þar boðið upp á
fljótlega og ókeypis leið til að hanna
draumaheimilið.
Þarna er hægt að teikna upp húsið
(eða íbúðina) og máta svo hvað er
hægt að gera til að það líti sem best
út. Það er hægt að velja liti á veggina,
húsgögn, eldhúsinnréttingu, allt inn
á baðið, gardínur og margt fleira sem
tilheyrir heimilum.
Þá má sjá útkomuna á mynd sem
skoða má í þrívídd. Með þessu er
hægt að sýna hvað maður vill í stað-
inn fyrir að þurfa að útskýra það.
Vefsíðan er einföld í notkun en það
krefst vissulega smáþolinmæði og
tíma að dúlla sér við að byggja upp
hús og raða inn í það. En það auð-
veldar leiðina að því að skapa
draumaheimilið.
Vefsíðan www.homestyler.com
Teiknið upp draumaheimilið
Skannaðu kóð-
ann til að fara inn
á vefsíðuna.
Tónleikarnir á Akureyri verða í
Hömrum í Menningarhúsinu
Hofi nk. laugardag kl. 14.
Á dagskránni eru íslensk og
norræn sönglög sem og létt lög
m.a. frá Írlandi, Skotlandi og
Bandaríkjunum.
Hinn bráðefnilegi skagfirski
harmonikkuleikari Jón Þor-
steinn Reynisson ætlar að spila
á nikkuna á milli atriða, m.a.
músík eftir Paganini, Piazzolla
og Wagner.
Veirurnar hafa gefið út tvo
diska, Stemmningu og Jóla-
stemmningu.
Facebook: Sönghópurinn
Veirurnar.
Harmonikkan
verður þanin
SKEMMTILEG DAGSKRÁ
Morgunblaðið/KristinnMargraddað Hann hljómaði heldur betur kröftuglega hinn sameinaði skagfirski og sunnlenski söngur á æfingu hjá Veirunum.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þau eru yndisleg en ekki allt-af auðveld. Þau láta vissu-lega vel að stjórn í söng, enkannski síður á öðrum svið-
um,“ segir Guðbjörg R. Tryggva-
dóttir, söngstjóri Veiranna, og upp-
sker hlátrasköll Veirumeðlima sem
mættir eru á æfingu hjá henni enda
stórviðburður framundan, tónleikar
fyrir norðan næsta laugardag, í Hofi
á Akureyri. „Það er gaman að
stjórna þessu skemmtilega fólki.
Þetta er góður hópur og þau syngja
eins og englar,“ segir Guðbjörg sem
hlakkar til að fara norður í sinn
heimabæ með hópinn um helgina.
„Við ætlum að gera allt vitlaust,“
segir hún og skellihlær og gefur takt-
inn í næsta lag.
Veirurnar samanstanda af
Skagfirðingum og Sunnlendingum
en uppistaðan á þó ættir að rekja
norður í land. Skagfirðingurinn Ólaf-
ur Sveinsson hefur verið í Veirunum
frá upphafi en bróðir hans, Jóhann
Pétur Sveinsson lögfræðingur sem
lést fyrir tæpum sautján árum, var
driffjöðrin í stofnun og uppgangi
kórsins. „Forsaga málsins er sú að
fyrir um 25 árum stofnuðum við
nokkrir krakkar úr Skagafirði kór og
fórum í einni kippu inn í Skagfirsku
söngsveitina og á innanhúss-
samkomu þeirrar sveitar vorum við
svo beðin um að búa til hóp til að
troða upp. Við æfðum nokkur lög og
sungum á þessari skemmtun. Síðan
var spurt úr salnum hvað kórinn héti
og við sögðum eins og satt var að við
hétum ekkert. Jói bróðir lagði þá til
að við hétum Veirurnar því það hefði
aldrei náðst fullmönnuð æfing vegna
veikinda. Reyndar halda sumir sem
heyra nafnið að þetta sé kvennakór,
en það er ekkert verra.“
Syngja líka áttraddað
Ólafur segir Jóa bróður sinn
hafa verið prímus mótor í að gera
hópinn að einhverju sem var meira
en þetta eina skipti. „Fyrst æfðum
við aðeins ef eitthvað stóð til hjá ein-
hverjum sem tengdist söngsveitinni
Sönggleðin ræður ríkjum
Sönghópur Skagfirðinga og nokkurra Sunnlendinga kallar sig Veirurnar og hefur
sungið saman í 25 ár. Flestar syngja Veirurnar í öðrum kórum og í hópnum eru
mikil fjölskyldutengsl. Þar eru fimm systkinabörn, frændur, frænkur, systur, bræð-
ur, hjón og vinir. Þau hafa öll ánægju af því að syngja saman raddað og ætla að
gleðja norðanfólk með söng sínum á laugardaginn í Hofi á Akureyri.
Fimur Jón Þorsteinn.
Þjóðhagsleg áhrif orkunýtingar
Dagskrá:
Mat á flæði beinnar erlendrar fjárfestingar í orkufrekan iðnað á Íslandi
Dr. Helga Kristjánsdóttir, hagfræðingur
Orkutengd verkefni til atvinnuuppbyggingar
Þórður Hilmarsson, forstöðumaður hjá Íslandsstofu
Þjóðhagslegur ávinningur orkutengds iðnaðar
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samáls
Fundarstjóri: Gunnar Guðni Tómasson, deildarforseti Tækni- og verkfræðideildar HR
Fundurinn er opinn og aðgangur ókeypis.
Skráning á www.si.is
Samtök iðnaðarins, Háskólinn í Reykjavík og Samál
standa fyrir fundaröð um orkumál í
Háskólanum í Reykjavík, Herkúles 5, 2. hæð
Föstudaginn 13. maí kl. 8.30 - 10.00