Morgunblaðið - 12.05.2011, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
Tæplega 8.000 tillögur bárust í
nafnakeppni Mjólkursamsölunnar
meðal 12 ára barna og yngri um
nafn á Mjólkurkúna sem prýðir litlu
mjólkurfernurnar.
Buna, Drophildur, Klaufey, Mía
muu og Ísabella voru meðal nafna í
keppninni. Að lokum hlaut kýrin
nafnið Skvetta sem ungur drengur,
Kristófer Logi Ellertsson úr Hafn-
arfirði, valdi. Þar með hlaut hann
fyrstu verðlaun en 22 önnur börn
völdu þetta nafn og var dregið úr
hópnum. Kristófer Logi hlaut í
verðlaun iPod nano og árskort í
Húsdýragarðinn. Öll börn sem
völdu fyrrnefnd nöfn sem voru í
undanúrslitum fengu í viðurkenn-
ingarskyni bol með mynd af kúnni.
Mjólkurkýrin Kýrin hlaut nafnið Skvetta.
Kýrin heitir Skvetta
Ný dögun, samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð munu bjóða upp á svo-
kallað opið hús mánaðarlega í sum-
ar. Fyrsta opna húsið verður haldið
í dag, fimmtudag, kl. 19.30 í safn-
aðarheimili Háteigskirkju þar sem
fólk getur komið saman, spjallað,
miðlað sinni reynslu, eða hlustað og
fengið sér kaffi. Venjulega er byrj-
að með stuttu innleggi en svo er
samveran í höndum þeirra sem
koma en þó er enginn knúinn til að
tjá sig. Samtalið er bundið fullum
trúnaði, segir í tilkynningu.
Sorg í sumar
Í dag, fimmtu-
dag, verður
boðið upp á
fræðslugöngu
um Grasa-
garðinn í
Laugardal þar
sem hátíðar-
liljur í blóma
verða skoð-
aðar. Hjörtur
Þorbjörnsson, safnvörður og for-
stöðumaður Grasagarðsins, sér um
leiðsögn. Fræðslugangan hefst við
aðalinnganginn kl 17. Þátttaka er
ókeypis og öllum opin.
Í Grasagarðinum vaxa mörg af-
brigði af hátíðarliljum en til þeirra
teljast til dæmis páskaliljur og jóns-
messuliljur. Fjölbreytileikinn er
mikill og getur að líta ýmsar sam-
setningar í blómalit.
Fræðsluganga um
Grasagarðinn
STUTT
Alþjóðlegur blær hefur verið yfir
grunnskólanum í Bolungarvík
þessa vikuna, en í heimsókn hafa
verið 22 nemendur frá fimm Evr-
ópulöndum auk tólf fullorðinna
fylgdarmanna. Soffía Vagnsdóttir
skólastjóri segir að líf og fjör sé í
skólastarfinu þessa daga og mikil
innspýting fyrir skólann og raunar
allt bæjarfélagið að fá þessa góðu
gesti, sem búa á heimilum nem-
enda.
Um er að ræða þátttöku Bolvík-
inga í svonefndu Comenius-Evrópu-
verkefni og af hálfu Bolvíkinga tek-
ur 9. bekkur þátt. Nemendur skól-
ans hafa þegar farið til Tékklands
og Spánar og næsta vetur fara hóp-
ar til Lúxemborgar og Þýskalands,
en Austurríki er einnig meðal þátt-
tökuþjóða í verkefninu. „Þetta sýn-
ir okkur að lítill skóli getur alveg
tekið þátt í svona verkefni með
miklu fjölmennari skólum frá
margfalt stærri stöðum,“ segir
Soffía skólastjóri. aij@mbl.is
Fjölþjóðlegt
á Bolungarvík
Keppni Krakkarnir drógu ekki af sér þegar efnt var til
sérstakra Comenius-Ólympíuleika á Bolungarvík.
Fiskanöfn Kristín Dóra Magnúsdóttir skoðar sig um á
fiskmarkaðnum, sem var einn af viðkomustöðunum í
hópavinnunni. Þar áttu nemendur að finna út hvaða
fisktegundir þar væri að finna og finna nöfn þeirra á
öllum tungumálum þátttökulandanna.