Morgunblaðið - 12.05.2011, Side 20

Morgunblaðið - 12.05.2011, Side 20
U ndanfarið hefur hegðun of margra þingmanna verið á þann veg að ekki verður lengur við unað. Forseti Alþingis verð- ur að setja sig í hlutverk skóla- stjóra og lesa yfir þeim vandræðabekk sem nú fyllir þingið. Í hvaða skóla sem er á landinu, á hvaða vinnustað sem er, myndi sú hegðun sem þjóðin hefur orðið vitni að hjá þingmönnum kalla á alvarlegar áminningar og loforð hins brotlega um að endurtaka ekki framferðið. Fyrir einhverjum mánuðum sýndi þing- maður Samfylkingar slíka harðneskju við fundarstjórn á nefndarfundum að fleiri en ein- um samstarfsmanni hans var stórlega misboð- ið. Þingmaðurinn baðst afsökunar og hefur vonandi tekið sig á. Vart er til of mikils mælst að þingmenn geti stjórnað fundum án þess að koma öðrum fundarmönnum í verulegt uppnám. Þingmaður Sjálfstæðisflokks varð svo uppvís að því að hella sér yfir blaðamann með slíkum fúkyrðaflaumi að penar konur roðna við að heyra þann samsetning. Stjórnmálamaður á að vita að hann getur ekki annað en tapað á því að missa svo illa stjórn á sér í samtali við fjöl- miðlamenn. Auðvitað má segja að fjölmiðlamenn þurfi ekki endilega að hlaupa í fjölmiðla með það sem stjórn- málamenn segja við þá í reiðikasti í einkasamtali. En flestum fjölmiðlamönnum finnst slíkt einmitt vera frétt. Þingmaður Vinstri-grænna sakar þingmann Sjálf- stæðisflokks um að þiggja mútur og botnar ekkert í því þegar sjálfstæðismaðurinn reiðist þeirri ásökun. Þegar þingmaður sakar annan um glæp ætti að vera sjálfsagt að hann leggi fram gögn máli sínu til sönnunar. Á öðrum vinnustöðum væri ásökun eins og þessi tekin mjög alvarlega en á þingi er látið eins og það sé bara hluti af djobbinu að sverta mannorð vinnufélaga. Annar þingmaður Vinstri-grænna kallar þingkonur Sjálfstæðisflokksins fasistabeljur. Varla flokkast slíkt tal undir góða mannasiði. Þingkonurnar virðast í huga þingmannsins helst sekar um að tilheyra Sjálfstæð- isflokknum, rétt eins og þar sé á ferð ein- hvers konar glæpaklíka. Sem er auðvitað fjarri sanni. Sjálfstæðisflokkurinn er nauð- synlegt mótvægi við hina of útbreiddu vinstri-villu, berst gegn forræðishyggju og styður einstaklingsframtakið. Íhaldsstimpillinn sem flokkurinn hefur er bara notalegur. Það er fremur auð- velt að kunna vel við hæfilega íhaldssemi, hún virkar traustvekjandi. Hvað eftir annað sýna skoðanakannanir að þjóðin ber litla virðingu fyrir Alþingi. Alþingismenn gera svo hvað þeir geta til að draga enn úr þessu trausti með furðulegu framferði, sem börn kæmust ekki einu sinni upp með. Forseti Alþingis hlýtur að bregðast við og leitast við að aga þingmenn og kenna þeim góða siði. Staðan er sú að því miður eru alþingismenn ekki góð fyrirmynd fyrir æsku landsins. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Vandræðabekkur á þingi 20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eitt helstametn-aðarmál ríkisstjórnarinnar frá því hún tók við völdum fyrir rúm- um tveimur árum hefur verið að gjörbylta sjávar- útvegi landsins. Þetta er stór- kostlega undarlegt í ljósi þess að íslenski sjávarútvegurinn er fyrirmynd annarra og að hann er sá atvinnuvegur sem hefur verið hvað mikilvægastur fyrir íslenskt efnahagslíf, ekki síst eftir að bankarnir féllu með þeim hamförum sem á eftir fylgdu. Ríkisstjórn sem hefði haft það að markmiði að atvinnulíf landsins næði sér sem fyrst eftir áfallið hefði stuðlað að stöð- ugleika í sjávarútvegi og forðast allt sem aukið gæti óvissu og valdið áföllum í greininni. Sú ríkisstjórn sem nú situr fór öf- uga leið og hefur látið aðvör- unarorð frá sérfræðingum og innan úr greininni sjálfri sem vind um eyru þjóta. Við bætist að vinnubrögðin við að koma breytingunum á eru öll jafn ógæfuleg og áformin sjálf. Skipuð var nefnd til að vinna að breytingum og í henni eru fulltrúar allra helstu hags- munaaðila og allra stjórn- málaflokka. Sú nefnd náði sátt um ákveðna niðurstöðu, en þá kom strax í ljós að forystu rík- isstjórnarinnar og helstu tals- mönnum hennar í málinu hugn- aðist ekki sáttaleiðin. Nefndarskipunin hafði aðeins verið sýndarmennska. Samráði var slitið og málið unnið áfram í leynd á bak við tjöldin. Engu var sinnt ítrekuðum óskum útgerð- armanna um að fá að ræða við forystu ríkisstjórnarinnar og með einstrengingslegri afstöðu sinni tókst rík- isstjórninni að stór- skaða kjarasamn- ingaviðræður og nánast að hindra að samningar næðust. Þá gerist það að forysta ríkisstjórnarinnar lætur að því liggja að hún ætli að taka tillit til útgerðarinnar í tillögum sínum. Hún lofar því einnig að kynna málið á lokuðum fundi fyrir útgerðarmönnum, en það yrði eftir að lokið hefði verið við að semja frumvörpin. Þetta út- spil er í raun lýsandi fyrir vinnu- brögð ríkisstjórnarinnar. Í stað þess að hafa samráð er málið klárað á lokuðum fundum og í stað þess að kynna málið fyrir opnum tjöldum er ákveðið að það verði kynnt á lokuðum fundi. Viðbrögð útgerðarinnar hafa skiljanlega verið þau að hún hafi ekkert við lokaðan fund að gera eftir að ríkisstjórnin er búin að ákveða án samráðs og þvert á sáttaleið að leggja fram stór- skaðleg frumvörp. Ólíkt rík- isstjórninni telur Lands- samband íslenskra útvegsmanna að þegar málið er komið á þetta stig sé réttast að kynna það öllum almenningi í stað þess að halda lokaðan fund, sem er augljóslega aðeins sýnd- armennska. Viðbrögðin við lokaða fund- arboðinu eru enn fremur skilj- anleg þegar horft er til þess að ríkisstjórnin virðist ekkert tillit ætla að taka til útgerðarinnar. Allt sem fram hefur komið bendir til þess að áformin séu enn þau að bylta sjávarútveg- inum þannig að stór hluti út- gerðarinnar lendi í gríðarlegum erfiðleikum og fótunum verði kippt undan rekstri margra fyr- irtækja. Ríkisstjórnin beitir öllum brögðum í árásum sínum á sjávarútveginn} Aðförin heldur áfram Skoskir sjálf-stæðissinnar unnu hreinan meirihluta þing- manna á sjálf- stjórnarþingi sínu í nýlegum kosningum í Bret- landi. Þóttu það mestu tíðindi kosninganna, ekki síst þar sem sá sigur mældist ekki í könn- unum. Það eykur spennu vegna þessara úrslita að sig- urvegarinn hafði lengi lofað því að láta fara fram þjóð- aratkvæði um hvort Skotland skyldi verða sjálfstætt ríki að öðru leyti en að konungs- sambandinu yrði ekki rift. Vekja þær fyrirætlanir litla hrifningu sunnan landamær- anna. Skrif fjölmiðla endurspegla þetta. Þar er sagt að hefðu Skotar verið sjálfstæðir þegar bankakreppan reið yfir hefðu þeir far- ið jafn illa út úr henni og Írar og Íslendingar, eins og það er orðað. Þá er átt við að skoskir bankar hafi í raun verið komnir í þrot og breskir skattpeningar verið notaðir til að halda þeim á floti. Skotar einir hefðu ekki haft bolmagn til slíks. En sennilega hefðu skoskir bankar ekki not- ið svo óhóflegs lánstrausts nema vegna þess freistnivanda sem fólst einmitt í því að ósjálfbærni þeirra væri ekki það sem mestu skipti, heldur hitt að fall þeirra myndi smit- ast yfir á breska banka og því yrði þeim bjargað. Sú var ein- mitt skýringin á að bresk yf- irvöld öxluðu ábyrgð á Icesave án þess að spyrja Íslendinga. Veruleg tíðindi urðu í síðustu kosningum í Skotlandi} Þokast Skotland nær sjálfstæði? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is A far erfitt getur verið að meta hvenær umgengni við foreldri er andstæð hagsmunum barns og sýslumanni getur verið verulegur vandi á höndum við að ákveða hvenær takmarka eigi um- gengni með hagsmuni barnsins í huga. Svo segir Eyrún Guðmunds- dóttir, deildarstjóri sifja- og skipta- deildar Sýslumannsembættisins í Reykjavík. Hún segir mikilvægara að reyna að ljúka málum með sátt, frem- ur en dómsvaldi. Eyrún var meðal frummælenda á morgunverðarfundi fræðsluhópsins Náum áttum í gær, þar sem fjallað var um hvort hagsmunir barna væru hafðir að leiðarljósi við ákvarðanatöku í forsjár- og umgengnismálum. Í barnalögum er lögð áhersla á gagn- kvæman rétt foreldris og barns til umgengni nema það sé andstætt hagsmunum barns. Samkvæmt lögunum skal barn vera með lögheimili skráð hjá öðru foreldrinu og búa þar að staðaldri, en njóta reglubundinnar umgengni við það foreldri sem það býr ekki hjá. Undanfarin áratug hefur það færst mjög í vöxt að forsjá sé sameiginleg við skilnað eða sambúðarslit og í dag á það við í um 90% tilfella. Deili for- eldrar um forsjá geta þeir höfðað mál fyrir dómi sem lyktar með því að öðru foreldrinu er falin full forsjá. Þungar ásakanir á báða bóga En forsjá segir hinsvegar ekki til um hvernig umgengninni er háttað. Eyrún segir það algengan misskilning hjá foreldrum að sameiginleg forsjá hafi sjálfkrafa í för með sér umgengn- isrétt aðra hverja viku. Engar formlegar reglur eru hins- vegar til um hvernig umgengni eigi að vera háttað. „Þannig getur umgengni verið mikil þótt forsjá sé bara hjá öðru foreldrinu og eins getur hún verið lítil þó að forsjáin sé sameiginleg.“ Það sem helst getur orðið til þess að um- gengni sé takmörkuð hefur að sögn Eyrúnar reynst vera ofneysla áfengis og fíkniefna, andlegur eða líkamlegur heilsubrestur og slakar heimilis- aðstæður eða ofbeldi. Þegar foreldri geri kröfum um að umgengni eigi að vera takmörkuð getur hinsvegar kom- ið upp erfið sönnunarstaða. Í slíkum málum hefur sýslumað- ur það úrræði að leita eftir umsögn barnaverndar eða fagaðila um málið. Helga Jóna Sveinsdóttir, deildarstjóri hjá Barnavernd Reykjavíkur, sagði að aðkoma barnaverndar að umgengn- ismálum væri iðulega mjög erfið enda málin bæði viðkvæm og flókin. „Oft heyrum við ótrúlega þungar ásakanir á bága bóga og finnum ekkert sem styður þær þegar gagna er aflað.“ Frumábyrgðin foreldranna „Það sem að mínu viti þarf að gera til að tryggja að hagsmunir barna séu í heiðri hafðir í svona mál- um er fyrst og fremst að allir sem að þeim koma hafi það skýra markmið að ljúka sem flestum málum með sátt foreldra en ekki með ákvörðun yf- irvalds. Enda bera foreldrarnir frum- ábyrgð á velferð barnsins,“ sagði Ey- rún á fundinum í gær. „Það verður að segjast eins og er að oft virðist sem deilurnar nærist á óuppgerðum málum foreldra sem snúast síður um það hvað barninu er fyrir bestu. Það er mjög mikilvægt að finna leiðir til að hjálpa þessum for- eldrum að ná betri tökum á sínu hlut- verki og ná með því að setja hags- muni barnsins í forgrunn.“ Umgengnismál bæði viðkvæm og flókin Álfheiður Steinþórsdóttir sál- fræðingur var meðal frummæl- enda á fundinum og sagði það fagnaðarefni að í frumvarpi að nýjum barnalögum fælust breytingar sem settu barnið meira í brennidepil en áður. Hún segir forsjár- og um- gengnisdeilur oft mjög þung- bærar fyrir börnin sama á hvaða aldri þau séu þótt foreldrar haldi gjarnan að börnin séu ekki meðvituð um deilurnar. „Ég held það sé mjög mikilvægt að færa fókusinn frá valdabaráttu foreldranna og að barninu og þörfum þess.“ Deilan geti verið hatrömm en leiðin til árangus sé að fá báða foreldra til að gera sér grein fyrir áhrif- um þess á hag barnsins, sem allir foreldrar vilji sem bestan. Barnið sett í brennidepil NÝ BARNALÖG JÁKVÆÐ Hjólað úr skólanum Það er dýrt að ala upp börn og enn frekar þegar bætur lækka. Forsjá barna úr sambúðarslitum 1999-2009 199 9 200 0 200 1 200 2 200 3 200 4 200 5 200 6 200 7 200 8 200 9 600 500 400 300 200 100 0 Tölur fyrir 5 ára tímabilin sýna árleg meðaltöl. Í 32. og 33. grein barnalaga (20, 1992) er kveðið á um sameiginlega forsjá. Lög þessi tóku gildi 1. júlí 1992. 2009: Bráðabirgðatölur. Móðir með forsjá Faðir með forsjá Sameiginleg forsjá 28 5 25 1 24 3 19 8 18 4 13 2 13 1 76 53 47 41 8 7 13 6 6 4 5 2 1 6 4 37 6 37 0 53 1 47 7 50 3 43 8 39 9 4 37 49 7 51 7 59 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.