Morgunblaðið - 12.05.2011, Side 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign fer fram á skrifstofu
sýslumannsins á Patreksfirði, mánudaginn 16. maí 2011,
kl. 14:00.
Jóhanna Berta BA079, skipaskrárnúmer 6376, þingl. eig. Sigurður
Bergsteinsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Patreksfirði.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
11. maí 2011.
Úlfar Lúðvíksson.
Uppboð
www.naudungarsolur.is
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð
6, Reykjavík, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Bakkastaðir 73, 224-0432, Reykjavík, þingl. eig. Bergljót Harðardóttir,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Blöndubakki 9, 204-7386, Reykjavík, þingl. eig. D 40 ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Einarsnes 56a, 227-1788, Reykjavík, þingl. eig. Frosti Heimisson og
Gerður Eva Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Húsasmiðjan ehf.,
mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Gerplustræti 25, 231-2288, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ingibjörg Sigríður
Skúladóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 16. maí
2011 kl. 10:00.
Jórusel 4, 205-7399, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Linda Stefanía de
L Etoile, gerðarbeiðandiTollstjóri, mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Kleppsvegur 130, 201-8464, Reykjavík, þingl. eig. Guðni Kristófer
Hjaltalín, gerðarbeiðandiTollstjóri, mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Klukkurimi 1, 203-9682, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður B. Pétursson,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg ogTengill ehf., mánudaginn 16. maí
2011 kl. 10:00.
Kólguvað 3, 227-8568, Reykjavík, þingl. eig. Daði Gils Þorsteinsson og
Bergey Hafþórsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verkfræðinga,
mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Langholtsvegur 94, 202-0995, Reykjavík, þingl. eig. Sigríður
Ásgeirsdóttir, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, mánudaginn 16. maí
2011 kl. 10:00.
Laugateigur 34, 201-9397, Reykjavík, þingl. eig. Kristín Ýr Bjarnadóttir,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Reykjavíkurborg og
Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Nýlendugata 14, 200-0384, Reykjavík, þingl. eig. Arnarþing ehf.,
gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 16. maí 2011
kl. 10:00.
Seljabraut 36, 205-6236, Reykjavík, þingl. eig. Jens Líndal Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Sogavegur 174, 229-6029, Reykjavík, þingl. eig. Dísa LindTómasdóttir
og Ágúst Reynir Þorsteinsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslun-
armanna, mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Suðurlandsbraut 6, 201-2686, Reykjavík, þingl. eig. Fjölritun Nóns ehf,
gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Vífilsgata 15, 221-7871, Reykjavík, þingl. eig. Hans Jakob S. Jónsson,
gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 16. maí 2011 kl.
10:00.
Þrastarhöfði 47, 229-0628, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hrönn Sigurðar-
dóttir, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., mánudaginn
16. maí 2011 kl. 10:00.
Ægisgata 5, 227-3176, Reykjavík, þingl. eig. Bergþóra Linda
Ægisdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., mánudaginn 16. maí 2011
kl. 10:00.
Ægisgata 5, 227-3177, Reykjavík, þingl. eig. Hildur Margrét Ægisdóttir,
gerðarbeiðandi Arion banki hf., mánudaginn 16. maí 2011 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
11 í 2011
Raðauglýsingar
Imma á Hernum
er ein af þessum hetjum sam-
félagsins, sem enginn skuggi fell-
ur á. Hún lifði sín 90 ár án þess að
hvika frá einlægri köllun sinni og
hugsjón, sem fólst í því að fylgja
Jesú Kristi og veita samferða-
Ingibjörg
Jónsdóttir
✝ Ingibjörg Jóns-dóttir fæddist á
Akureyri 5. maí
1921. Hún lést á
Sjúkrahúsi Ak-
ureyrar 4. maí
2011.
Útför Ingibjarg-
ar fór fram frá
Hallgrímskirkju 9.
maí 2011.
mönnum stuðning
og styrk, sérstak-
lega þeim sem höfðu
úr litlu að moða.
Okkur varð vel til
vina og þau Óskar
voru góðir sam-
starfsmenn okkar
hjóna, þegar Hvíta-
sunnukirkjan var í
samstarfi með
Hjálpræðishernum
að ýmsum góðum
verkefnum gegnum árin. Einna
vænst þótti mér um þegar Herinn
bað okkur í Fíladelfíu að lána
kirkjuna okkar fyrir stóra afmæl-
ishátíð Hjálpræðishersins á Ís-
landi. Þá fengum við tækifæri til
að þjóna þessum vinum okkar sem
þekktastir voru fyrir óeigingjarna
þjónustu gagnvart öðrum.
Önnur góð helgi sem tengdi
okkur nánari böndum var hvíta-
sunnuhelgi, þegar ég var beðinn
að vera með kennslu á árlegu móti
Hersins, sem þá var haldið í Vík í
Mýrdal. Þessi helgi varð afar góð
og eftirminnileg okkur mörgum,
sem þangað sóttu. Við minntumst
þessa oft, þegar við Imma hitt-
umst og glöddumst yfir þeim
tækifærum sem gefist höfðu
gegnum lífið til samvinnu og sam-
félags. Þau hjónin voru öllum leið-
togum góð fyrirmynd og góður
vitnisburður til alls samfélagsins
um hvað sannur kristindómur hef-
ur að geyma.
Ég vil blessa minningu þessar-
ar góðu vinkonu og trúsystur og
bið góðan Guð að blessa fjölskyldu
hennar og Hjálpræðisherinn og
þeirra góða starf.
Hafliði Kristinsson.
Þegar ég minnist Immu koma
mér fyrst í hug hlýjar hendur sem
héldu þétt og kærleiksrík djúp
augu sem skildu svo margt og
gerðu heiminn óháð öðru að góð-
um stað. Höndunum hlýju var oft
erfitt að sleppa, hjá henni var svo
gott að vera. Þar var ávallt frið og
ró að finna, mitt í amstri dagsins.
Þar var líka heilmikið af góðum
veitingum, gleði, söng, hljóðfæra-
leik og dillandi hlátri.
Ég samgleðst Immu þótt ég viti
að hennar verður sárt saknað. Það
hlýtur að vera dásamlegt eftir
langa ævi í sannri og fórnfúsri
guðstrú að vera hafinn til dýrðar-
innar á hinsta degi.
Ég votta ykkur öllum samúð
mína; Hákon, Ranný, Daníel,
Miriam, makar, barnabörn,
barnabarnabörn og allur sá fjöldi
sem líf hennar snerti. Minning
dásamlegrar konu mun lifa í hjört-
um okkar allra og ljúfum minn-
ingum. Það er góð tilhugsun að
vita af henni lausri við sjúkdóma
og helsi, meðal engla Guðs, aftur
hönd í hönd með Óskari sínum – já
með Óskarana báða, verðlaunin
verðskulduðu á himnum!
Kær kveðja,
Þorgerður Mattía Kristiansen.
Fallin er frá sómakonan Ingi-
björg Jónsdóttir. Ingibjörgu
kynntist ég aðallega í gegnum son
hennar, Hákon Óskarsson. Þegar
horft er til baka og samverustund-
ir okkar Ingibjargar, eða Immu
eins og hún var kölluð, eru rifjaðar
upp minnist maður mest þess hve
jákvæð og hress hún var. Þar sem
Ingibjörg fór, þar var gaman.
Ingibjörg var alltaf kát, jákvæð og
hláturmild. Hún var trúuð og
æðrulaus og varði miklum hluta
krafta sinna í óeigingjarnt starf
fyrir Hjálpræðisherinn ásamt
Óskari Jónssyni, eiginmanni sín-
um, og öðrum í fjölskyldunni.
Imma lét svo sannarlega gott af
sér leiða og aðstoðaði alltaf þá sem
minna máttu sín. Hin seinni ár bjó
Imma á Akureyri hjá Rannveigu
dóttur sinni.
Á ferð minni um Akureyri í
nóvember árið 2005 heimsótti ég
Immu einmitt þegar Rannveig
hélt upp á afmæli sitt. Þá var boðið
upp á glæsilegt kaffihlaðborð og
Imma lék á als oddi eins og hennar
var von og vísa. Þessarar stundar
og fleiri minnist ég með mikilli
hlýju. Einnig minnist ég góðra
stunda þar sem Hákon hringdi í
móður sína, sem oftar, og maður
fékk að rabba við hana í leiðinni.
Þau tvö voru í nánu og góðu sam-
bandi. Ég vil þakka Immu fyrir
þær góðu samverustundir sem við
áttum í gegnum tíðina. Hákoni,
Heiði og öðrum ættingjum og vin-
um votta ég mína dýpstu samúð
vegna fráfalls Immu. Megi Guð
blessa minningu hennar.
Siv Friðleifsdóttir.
Frændi minn, Kiddi í Brynju,
var ætíð mikill Stöðfirðingur og
bar hag byggðarlagsins fyrir
brjósti. Garðurinn neðan við
Brynju bar áhuga hans um rækt-
un lýðs og lands glöggt vitni. Þar
lagði þó ekki síður hönd á plóg eig-
inkona hans, Bjagga, eins og við
kölluðum hana. Hvergi fannst
ræktarlegri garður við íbúðarhús
á Stöðvarfirði, meðan bæði höfðu
heilsu til að sinna honum.
Mínar fyrstu minningar um
Kidda tengjast honum og afa sam-
an. Þeir voru líkir á ýmsan hátt, en
afi gamli hafði vinninginn í Kirkju-
bólsþvermóðskunni. Kiddi gat
verið stríðinn, en umfram allt góð-
ur leiðbeinandi, er hvatti hina
yngri til góðra verka. Kári, sonur
hans, átti reiðhjól, sem gera þurfti
við. Faðirinn hefði auðveldlega
getað kippt því, sem á bjátaði,
fljótt og vel í liðinn. Þess í stað lét
hann Kára semja við mig og fleiri
að takast verkefnið á hendur. Með
því að eiga aðgang að hollum ráð-
leggingum tókst okkur að gera
reiðhjólið gangfært á nýjan leik.
Sú kunnátta, sem þarna fékkst,
nýttist okkur við seinni tíma við-
gerðir og ekki sakaði að eiga ætíð
aðgang að viðeigandi verkfærum í
bílskúrnum í Brynju. Til að halda
upp á viðgerðina á fyrsta hjólinu
trakteraði Kiddi okkur með nið-
ursoðnum ávöxtum. Sú uppske-
ruhátíð hefur ætíð staðið mér í
fersku minni og enn þann dag í
dag leikur sætubragðið af blönd-
uðu ávöxtunum og safanum úr
dósinni um bragðlauka mína í
huganum.
Kristinn Brynjólf-
ur Helgason
✝ Kristinn Brynj-ólfur Helgason
vélstjóri fæddist á
Kirkjubóli við
Stöðvarfjörð 27.
september 1920.
Hann andaðist á
Hjúkrunarheim-
ilinu Hulduhlíð á
Eskifirði 30. janúar
2011.
Útför Kristins
fór fram frá Stöðv-
arfjarðarkirkju 5. febrúar 2011.
Kiddi var stoltur
af uppruna sínum og
talaði stundum um
Erlend afa sinn, sem
bjó á Kirkjubóli, en
stundaði af kappi
sjávarútveg og hafði
aðstöðu á svonefnd-
um Erlendarreit.
Hann sagði þann
gamla hafa farið
daglega margar
ferðir milli báts og
býlis og aldrei fallið verk úr hendi.
Til að nýta ferðirnar átti hann
burðarpoka og bar ætíð á milli
áhöld eða varning til veiðiferða og
undirbúnings þeirra, eða eitthvað
sem tengdist rekstri heimilisins,
svo sem kol, saltfisk eða nýmeti úr
sjó og annað, sem hafið gaf af sér.
Sem betur fer slitnuðu tengsl
okkar frændanna aldrei, þótt ég
flytti burt úr byggðarlaginu sem
báðum var svo kært. Við ræddum
saman í síma þótt stundum yrði of
langt á milli. Auk þess heimsótti
ég hann a.m.k. einu sinni á ári til
að aðstoða hann og þar áður þau
hjónin í árlegu verkefni sem ekki
verður umflúið. Þau voru góð
heim að sækja og var gaman að
sitja í stofunni í Brynju og renna
augum yfir bókarkili og kanna
innihald ritverka, sem hann og hin
skáldmælta og rómantíska frú
Sigurbjörg höfðu dálæti á. Síðar,
er við sátum tveir saman í litlu
íbúðinni í Heiðmörk, sýndi hann
mér myndir frá fyrri tímum og af
fjölskyldunni. Einnig fékk ég að
líta munina í og úr smíðaherberg-
inu. Þannig kýs ég að muna hann
nú, skrambi hressan karl, sem gat
litið stoltur til baka og kaus að
hafa ætíð eitthvað að bardúsa, al-
veg eins og Erlendur afi hans og
allir hinir, sem tóku þátt í að gera
Stöðvarfjörð að því sem hann varð
og hefði getað orðið áfram, ef
gæfuhjólið hefði ekki hægt á sér –
alla vega tímabundið.
Megi minning Kidda í Brynju
lifa í verkum þeim, er hann skildi
eftir sig og í hugum okkar, sem
hann þekktum.
Björn Hafþór Guðmundsson.
Meira: mbl.is/minningar
✝ Sigríður BirnaHallfreðsdóttir
fæddist í Reykjavík
27. október 1925.
Hún lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði
30. apríl 2011. For-
eldrar hennar voru
hjónin Sigurjóna
Magnúsdóttir, f. í
Reykjavík 29.10.
1903, d. 19.8. 1955,
og Hallfreður Guð-
mundsson sjómaður og síðar
hafnsögumaður, ættaður úr
Gufudalssveit, f. 23.6. 1896, d.
29.12. 1988. Þau bjuggu fyrst í
Reykjavík og síðar á Akranesi
þar sem Sigríður Birna ólst
upp frá unga aldri. Systkini
Sigríðar Birnu voru: Magnús, f.
5.12. 1928, d. 22.4. 2002,
kvæntur Guðrúnu Andr-
ésdóttur, Runólfur Óttar, 26.3
1931, d. 30.08. 2003, kvæntur
Ragnheiði Gísladóttur og
yngstur var Halldór Hall-
grímur, f. 7.1. 1940, d. 29.8.
1973, kvæntur Júlíönu S.
Helgadóttur.
Hinn 26.9. 1953 giftist Sig-
ríður Birna Símoni Sím-
onarsyni, skipstjóra og útgerð-
armanni á Akranesi, f. 17.2.
1928 í Hellisfirði við Norðfjörð.
Foreldrar hans voru Símon
Jónsson, bóndi í Hellisfirði, f.
5.10. 1856, d. 16.2. 1934, og
kona hans Sigríð-
ur Helgadóttir, f.
30.8. 1890, d. 24.4.
1969. Börn Sigríð-
ar Birnu og Sím-
onar eru: 1) Sig-
urjóna,
héraðsdómari, f.
23.12. 1954, d.
29.12. 2001, maki
Björn Einarsson,
öldrunarlæknir,
börn þeirra: Einar
Teitur, f. 1985, Halldór Orri, f.
1987, Snædís, f. 1991. 2) Bryn-
dís, framhaldsskólakennari
Garðabæ, f. 1956, eiginmaður
Ásgeir Guðnason, f. 1947, vél-
fræðingur, börn þeirra: Dögg,
f. 1983, og Ösp, f. 1983. 3) Hall-
freður Óttar, tæknifræðingur,
f. 1959, eiginkona Laufey
Ófeigsdóttir, framhaldsskóla-
kennari, f. 1961, börn þeirra:
Ásdís, f. 1982, Sigríður Birna,
f. 1991, og Jón Ófeigur, f. 1993.
4) Edda, forstöðumaður hjá
Tollstjóra, f. 1961, eiginmaður
Vésteinn Benediktsson, fjár-
málastjóri, f. 1956, börn þeirra:
Símon Óttar, f. 1981, Dagbjört,
f. 1987, Benedikt Steinar, f.
1990, og Elín Eir, f. 1999.
Barnabarnabörnin eru sex tals-
ins.
Útför Sigríðar Birnu fór
fram frá Vídalínskirkju í
Garðabæ 6. maí 2011.
Tengdamóðir mín Sigríður
Birna Hallfreðsdóttir, Sía, hefur
kvatt okkur. Nú hefur hún yf-
irgefið jarðneskan líkama sinn.
Síðustu æviárin voru henni erfið
sakir heilsubrests. Megi Guð
gefa að sál hennar verði frjáls til
allra athafna sem hugur hennar
hefur staðið til.
Ég kynntist Síu 1974 þegar ég
var að gera hosur mínar grænar
fyrir einni af þremur dætrum
hennar. Sía hafði eins og grand-
varri móðir sæmir allan vara á
steggnum sem var að trufla
vanabundið heimilislíf sjómanns-
konu. En eftir að Sía bauð mér á
heimili sitt í matarboð í fyrsta
sinn bar ekki skugga á okkar
samskipti. Sía ól önn fyrir börn-
um sínum fjórum og sá um öll
verk í fjarveru eiginmanns síns,
Símonar Símonarsonar, skip-
stjóra og útgerðarmanns á
Akranesi. Ekki er það ofsögum
sagt að börnin hennar fjögur og
síðar barnabörnin höfðu forgang
fyrir öllu öðru í hennar lífi. Hún
var boðin og búin að hjálpa og
leggja fram sína krafta kæmu
þeir að gagni. Þau voru ófá
skiptin sem Sía tók sér frí í
vinnu til að koma suður til Hafn-
arfjarðar og búa hjá okkur
Bryndísi í skemmri eða lengri
tíma til að hjálpa okkur með
börnin okkar í veikindum Bryn-
dísar.
Sía var mjög gestrisin og naut
þess að taka á móti fólki, hún
naut þess betur því meira sem
hún hafði fyrir gestum í mat og
drykk. Einnig hafði hún unun af
ferðalögum og mannfagnaði.
Þegar börnin þeirra Símonar
uxu úr grasi gafst aukinn tími til
frístunda og naut hún þess að
ferðast með eiginmanni sínum,
vinum og kunningjum víða, bæði
um landið sitt og til Evrópu-
landa. Um leið og ég þakka fyrir
að hafa átt kost á að kynnast Síu
og hennar hjartahlýju og miklu
mannkostum votta ég aðstand-
endum mína innilegustu samúð
og blessun.
Ásgeir Guðnason.
Sigríður Birna
Hallfreðsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar
endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni
á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfar-
ardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi
ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dreg-
ist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morg-
unblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er
unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru
eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem
nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er
um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsingar um for-
eldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar