Morgunblaðið - 12.05.2011, Side 40

Morgunblaðið - 12.05.2011, Side 40
FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 132. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Ljót hegðun á Fésbókinni 2. Hótaði föður sínum 3. „Þetta er einhver ógeðslegur ...“ 4. Banaslys á Austurlandi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Busta Rhymes spilar í Valsheim- ilinu Hlíðarenda þriðjudaginn 17, maí, ekki 18. eins og kvittur er kominn um. Á tónleikunum koma einnig fram nokkur af stærstu nöfnunum í hipp- hopp/rapp-senu landsins. Busta Rhymes spilar þriðjudaginn 17. maí  13. þátturinn í Weird Girls Pro- ject Kitty Von Sometime var tekinn upp í Þórs- mörk um liðna helgi. Mynd- skeiðin verða not- uð við tónlist Imo- gen Heap, en tónlistarkonan vinnur að verkefni fyr- ir UNIFEM sem kallast Love The Earth. Myndir úr þættinum verða gerðar opinberar í næstu viku. Skrítnar stelpur í Þórsmörk  Ástralska hljómsveitin Cut Copy heldur tónleika á NASA við Austur- völl hinn 20. júlí. Miðasala á tónleikana hefst föstu- daginn 13. maí klukkan 10.00 og er miðaverð í forsölu 3.900 krónur. Hægt er að kaupa miðana á Midi.is og í verslunum Brims á Laugavegi og í Kringl- unni. Miðasala á Cut Copy hefst á föstudaginn VEÐUR „Kúlurnar sem við notuðum og höfum verið kærðir fyrir eru ekki ólöglegar,“ segir Freyr Bragason, fyrirliði Ís- landsmeistara Lærlinga í keilu karla, sem er óánægð- ur með að lið hans hafi ver- ið kært til tækninefndar Keilusambands Íslands, KLÍ, fyrir meinta notkun á ólöglegum kúlum í úrslita- viðureignum á Íslands- meistaramótinu á dög- unum. »1 Segjast vera með löglegar kúlur Keflvíkingar eru áfram taplausir í Pepsi-deild karla í fótbolta. Þeir jöfn- uðu metin á síðustu stundu gegn FH- ingum í gærkvöld, 1:1. Grétar Ólafur Hjartarson kom inn á sem varamaður undir lokin skömmu fyrir leikslok og var fljótur að skora. Rétt á undan var Viktor Örn Guðmundsson, varnar- maður FH-inga, rekinn af velli. »8 Grétar jafnaði fyrir Keflavík í lokin Breiðablik fékk sín fyrstu stig í Pepsi-deildinni á þessari leiktíð þeg- ar liðið vann Grindavík 2:1. Grinda- vík spilaði manni færri í 70 mínútur og það nýttu Blikar sér til sigurs. Grindavík sem komst yfir í leiknum varðist vel. Sóknarþungi Blikanna var þó meiri en þeir réðu við og Ólafur Kristjánsson, þjálfari Íslands- meistaranna, var að vonum ánægð- ur með stigin þrjú. »7 Fyrstu stig Blika ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Í DAG Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Það er létt yfir Sveinbjörgu Her- mannsdóttur á Skjóli og þrátt fyrir mikið mótlæti á langri ævi vill hún helst minnast björtu stundanna en segir slæmt að vera bundin við hjólastól. Sveina lærbrotnaði þegar hún datt í haust sem leið og rekur það til lömunar frá barnsburðinum fyrir nær 70 árum, en kvartar ekki, því hún hafi alla tíð getað unnið. Sveina hefur verið dyggur lesandi Morgunblaðsins eins lengi og hún man en hún á 100 ára afmæli í dag. Hún fylgist vel með landsmálum og er ekki sátt við að flytja eigi Vatns- berann, höggmynd Ásmundar Sveinssonar, úr nágrenni Veður- stofunnar skammt frá hitaveitu- tönkunum í Öskjuhlíð niður í Aust- urstræti og gera götuna að göngugötu, eins og kemur fram í frétt blaðsins í gær. „Hvað kemur til?“ spyr hún. „Styttan er fín þar sem hún er og passar vel þarna á hæðinni. Þetta er slæmt. Það á aldrei að loka Austurstræti fyrir bílum. Þá er búið að eyðileggja borgina. Það kemur ekki til mála. Ég er algerlega á móti því. Ef ég fer á Kaffi París verður að keyra mig þangað því ég get ekki gengið neitt.“ Tengingar Árið 1965 keypti Sveina fyrst íbúð, í bakhúsi við Hverfisgötu 88 í Reykjavík. „Það andaði svo góðu að mér þegar ég kom inn að ég fann það þegar ég kom yfir þröskuldinn inn í eldhúsið að þarna vildi ég vera,“ segir hún. „Þarna leið mér vel og þarna var gott að búa.“ En ástæða er fyrir öllu. Sveina segir að Guðrún, sem hafi áður átt íbúðina, hafi verið dóttir Þórðar sem kenndur hafi verið við Hjalla, verslunina á Laugavegi 45 þar sem hún hafi áður unnið og kynnst barnsföður sínum Maurice Henry Woodward, sem var í breska flug- hernum. „Hann kom á kaffistofuna og bað um te og ristað brauð. Eftir þetta kom hann á hverjum degi,“ segir hún með blik í augum. Júlíana Rut, dóttir þeirra, fæddist 17. nóv- ember 1942. Þá var hann farinn aft- ur til Englands og til stóð að mæðg- urnar kæmu síðar en af því varð ekki vegna veikinda Sveinu, sem lamaðist upp að mitti við barns- burðinn. Þau hittust aftur 35 árum síðar og Sveina ber honum og öðr- um vel söguna. „Fólkið hefur verið afskaplega gott við mig og mér þyk- ir geysilega vænt um fólk,“ segir hún. „Þó að ég hafi haft lág laun vantaði mig aldrei neitt, ég skulda engum og hef engan svikið. Ég keypti mér mína íbúð sjálf og kom mér vel áfram.“ Aldrei loka Austurstræti  Sveinbjörg Her- mannsdóttir kát og glöð 100 ára Morgunblaðið/Sigurgeir S. 100 ára Sveinbjörg Hermannsdóttir hefur upplifað ýmislegt, man margt á langri ævi og hefur frá mörgu að segja. Sveinbjörg Hermannsdóttir hefur unnið mikið á langri ævi og alla tíð sinnt láglaunastörfum. Fyrir vikið hafði hún aldrei mikið á milli hand- anna. Hún hafði til dæmis ekki efni á því að fara í Kvennaskólann í Reykjavík og sótti sér því menntun í Námsflokka Reykjavíkur eftir efni og ástæðum og keypti sína fyrstu íbúð þegar hún var komin á sex- tugsaldurinn. Hún var í vist, starf- aði lengi á hótelum í Reykjavík og lauk störfum á vinnumarkaðinum á Borgarspítalanum eftir að hafa unnið á Landspítalanum. „Ég fór úr allri gleðinni á hótelunum í alvöru lífsins á spítölunum,“ segir hún. „Það var mikil breyting.“ Hún segir að skemmtilegra hafi verið að vinna á hótelunum en átökin mun meiri á spítölunum. Auk þess hafi hún allt- af verið viðkvæm og því átt erfitt með að horfa upp á fólk liggja bana- leguna. En hún sé sátt við allt og alla og njóti lífsins á Skjóli. Keypti fyrst íbúð á sextugsaldri ALLA TÍÐ Í LÁGLAUNASTÖRFUM Á föstudag Norðlæg átt, 3-8 m/s og dálítil rigning norðaustan- og austanlands, en annars víða skúrir. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast syðst. Á laugardag NV 3-8 og dálítil rigning norðaustan- og austanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skúrir á Vestfjörðum og smásúld á Austur- landi en annars skýjað með köflum. Hiti 1 til 7 stig norðanlands en 8 til 15 stig sunnanlands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.