Morgunblaðið - 22.06.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
5 6 3 4
6 4 1 5
1 3 8 2
8 3 5 1 9
2 6
5 8
8 3
2 4
6 1
8 1
5 9 1
7 4 5
7 3
6 4 5 9
4
3 8 4 6
1 5 6 8
6 7 3
3 8
9 7 6 4
7
4 3 9
7 2 8 5
2
7 1 2 4
9 3 8
6 9 5
8 2 3 9 1 6 7 4 5
9 1 6 5 7 4 3 8 2
7 5 4 2 8 3 1 6 9
5 6 2 8 3 9 4 7 1
3 4 7 1 6 2 9 5 8
1 8 9 4 5 7 6 2 3
2 7 1 6 9 5 8 3 4
6 9 5 3 4 8 2 1 7
4 3 8 7 2 1 5 9 6
8 6 1 4 3 9 2 5 7
5 7 2 6 8 1 3 4 9
4 9 3 5 7 2 1 6 8
3 4 9 8 2 6 7 1 5
7 8 5 1 4 3 6 9 2
2 1 6 7 9 5 8 3 4
9 2 8 3 6 4 5 7 1
1 3 4 2 5 7 9 8 6
6 5 7 9 1 8 4 2 3
6 7 3 2 1 4 5 9 8
8 9 2 6 5 7 1 4 3
1 4 5 3 9 8 2 6 7
3 2 4 1 6 5 8 7 9
5 6 8 7 4 9 3 1 2
7 1 9 8 2 3 4 5 6
2 3 1 5 7 6 9 8 4
4 8 6 9 3 1 7 2 5
9 5 7 4 8 2 6 3 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 22. júní,
173. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í sam-
anburði við þá dýrð, sem oss mun
opinberast. (Rm. 8, 18.)
Víkverji kann að meta breyta til-högun við upphaf laxveiðinnar
í Elliðaánum. Í stað þess að borg-
arstjóri renndi fyrir fyrsta laxinn
kom það í hlut Gunnlaugs Sigurðs-
sonar, sem jafnframt var tilkynnt
að væri Reykvíkingur ársins.
Gunnlaugur finnst sennilega ekki á
mörgum boðslistum á menningar-
viðburði og opnanir. Hann hefur
búið í sama fjölbýlishúsinu í 40 ár
og tilnefndi einn nágranna hans
hann með þessum orðum: „Gunn-
laugur hefur alla burði til þess að
vera í hópi fyrirmyndar Reykvík-
inga, sem láta sér annt um um-
hverfi sitt og stuðla jafnframt að
friðsælu sambýli fólks með ólíkar
skoðanir og viðhorf eins og gengur
og gerist í fjölbýlishúsum borg-
arinnar.“ Víkverji velti fyrir sér
þegar Harpa var opnuð hvers
vegna almenningi hefði ekki verið
boðið með einhverjum hætti, t.d.
með slembiúrtaki úr þjóðskrá.
Þessi nýbreytni við opnun Elliða-
ánna er góðs viti, auk þess sem at-
hygli Víkverja vakti að einn þriggja
í dómnefnd um Reykvíking ársins
var valinn úr þjóðskrá, þ.e. Gunnar
Ólafsson lífefnafræðingur.
x x x
Fyrst Víkverji er farinn að talavel um Reykjavíkurborg er
ekki úr vegi að segja frá fyrirbær-
inu Borgarvefsjá, sem hann var að
átta sig á þótt flestum lesendum
hafi sjálfsagt verið málið kunnugt.
Þannig er mál með vexti að Vík-
verji dró fram hlaupaskóna, fór út
að hlaupa, hljóp beint af augum þar
til hann fór að þreytast, sneri þá við
og hljóp til baka. Víkverji var nokk-
uð rogginn, en fannst slæmt að vita
ekki hvað hann hefði hlaupið langt.
Eftir ábendingu lóðsaði hann sig
inn á Borgarvefsjána og viti menn,
þar er hægt að rekja slóð sína eftir
stígum og stéttum borgarinnar og
fá vegalengdina samstundis út-
reiknaða. Þar er einnig hægt að fá
reiknað út flatarmál og sjá hvernig
borgin hefur þróast undanfarna
áratugi með landfyllingum í sjó
fram og nýjum hverfum þar sem
landið lyftist. Borgarvefsjá er hið
mesta þing. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 álygar, 8 bjart, 9
nagla, 10 orsök, 11 þrástag-
ast á, 13 sár, 15 fóru á kaf,
18 með tölu, 21 op milli
skýja, 22 slétt, 23 sjúgi, 24
kraftmikill.
Lóðrétt | 2 illvirki, 3 beiska,
4 nagdýr, 5 rúlluðum, 6 sak-
laus, 7 mynni, 12 sædrif, 14
reyfi, 15 róa, 16 skarð, 17
kvendýrum, 18 hafna, 19
smá, 20 sláin.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 vitur, 4 þögul, 7 ræman, 8 ætlar, 9 der, 11 agar, 13
barr, 14 úrinu, 15 frúm, 17 rass, 20 kná, 22 jafna, 23 liðar, 24
tíðin, 25 tíran.
Lóðrétt: 1 virða, 2 tomma, 3 rönd, 4 þvær, 5 gilda, 6 lærir, 10 ef-
inn, 12 rúm, 13 bur, 15 fljót, 16 úlfúð, 18 auður, 19 sárin, 20
kann, 21 álft.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Viðbúnaður.
Norður
♠1094
♥D865
♦ÁD7
♣G54
Vestur Austur
♠ÁD872 ♠G63
♥943 ♥K102
♦10642 ♦KG8
♣10 ♣9862
Suður
♠K5
♥ÁG7
♦953
♣ÁKD73
Suður spilar 3G.
Hversu vakandi er austur? Sagnir
ganga 1G (15-17) í suður og 3G í
norður. Vestur spilar út ♠7 (fjórða
hæsta), austur lætur gosann og suður
tekur með kóng. Hvernig er staðan í
litnum?
Austur á að vita að spaðinn er frír.
Vestur er með þrjú spil fyrir ofan
sjöuna og þau hljóta að vera ♠Á-D-8,
enda ekki öðrum til að dreifa.
Jæja, sagnhafi spilar laufi á gosann
í öðrum slag og vestur fylgir með ein-
mana tíu. Hvaða sögu segir það?
Jú, sagnhafi á þrjá efstu fimmtu.
Ásamt með ♠K og rauðu ásunum eru
öryggir slagir sagnhafa þar með átta.
Hann reynir vonandi við þann níunda
með því að svína ♦D, en hitt er líka
möguleiki að …
„Hjartadrottning,“ segir sagnhafi
skyndilega. Er austur viðbúinn?
22. júní 1939
Mesti hiti hér á landi, 30,5 stig
á Celcius, mældist á Teigar-
horni í Berufirði í Suður-Múla-
sýslu. Sama dag var hitinn
30,2 stig á Kirkjubæjar-
klaustri í Vestur-Skaftafells-
sýslu og 28,5 stig á Fagurhóls-
mýri í Austur-Skaftafellssýslu.
22. júní 1970
Hljómsveitin Led Zeppelin
skemmti á Listahátíð í Laug-
ardalshöll í Reykjavík. „Tveir
æðisgengnir klukkutímar,“
sagði gagnrýnandi Morg-
unblaðsins sem taldi þetta
stærstu og merkilegustu bítla-
tónleika sem haldnir hefðu
verið hér á landi.
22. júní 1991
Hjónum frá Hellissandi var
bjargað eftir að þau féllu 20
metra niður í sprungu á Snæ-
fellsjökli. Síðar var atburð-
urinn sviðsettur fyrir banda-
ríska sjónvarpsþáttinn 911.
22. júní 2009
Pétur Markan skoraði mark
fyrir Val í úrvalsdeildinni í
knattspyrnu eftir átta sek-
úndna leik gegn ÍBV. Það var
talið met.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„Ég tók forskot á sæluna, hélt upp á afmælið
með því að fara með börnunum mínum þremur
og maka til Benidorm og erum við nýkomin
heim,“ segir Ester Þorvaldsdóttir, hjúkr-
unarstjóri á heilsugæslusviði Heilbrigðisstofn-
unar Suðausturlands á Höfn í Hornafirði, en hún
er fimmtug í dag.
Fjölskyldan varði viku á sólarströndinni og
segir Ester að um frábæra ferð hafi verið að
ræða. „Benidorm er mjög falleg og flott á þess-
um tíma. Við erum með krakka á aldrinum 16 til
23 ára og fundum við öll eitthvað við okkar
hæfi,“ segir Ester. Aðspurð segir hún að fjölskyldan hafi farið tals-
vert saman til útlanda en að ferðinni hafi ekki áður verið heitið á
sólarströnd.
En það verður ekki stoppað lengi heima því í dag, á sjálfan
afmælisdaginn, verður haldið af stað á ættarmót í Laugalandi í
Landsveit. Það er föðurætt Esterar sem þar kemur saman um
næstu helgi. „Ættarmót eru alltaf skemmtileg og nauðsynleg til
þess að halda tengslum við fólk,“ segir Ester sem hlakkar til þess
að hitta og gleðjast með ættingjunum næstu daga. hjorturjg@mbl.is
Ester Þorvaldsdóttir er fimmtug í dag
Fögnuður á sólarströnd
Nýirborgarar
Auckland,
Nýja-Sjálandi.
Stormur Levi Kuru
fæddist 24. júlí 2010 kl.
4.15. Hann vó 3.670 g og
var 54 cm langur. For-
eldrar hans eru Rúna
Lind Kristjónsdóttir og
Arana Kuru.
Flóðogfjara
22. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.48 0,9 10.56 3,1 16.57 1,1 23.18 3,2 2.56 24.05
Ísafjörður 0.20 1,9 6.50 0,6 12.47 1,7 18.52 0,8 1.35 25.35
Siglufjörður 2.51 1,2 9.03 0,3 15.21 1,0 21.14 0,5 1.18 25.18
Djúpivogur 1.46 0,7 7.41 1,8 13.57 0,7 20.09 1,8 2.10 23.49
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Varastu að eyða um efni fram í því
sem við kemur börnum og skemmtun í dag.
Láttu flokkadeilur eiga sig, en vertu skjót/ur
til þegar til þín verður leitað um miðlun mála.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Margir fá snilldar skyndihugmyndir, en
þú ert ein/n af fáum sem kunna að láta þær
lifna við. Þú passar ekki í hlutverk fórn-
arlambs.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú átt gott með að umgangast
aðra svo þú skalt nýta þér þann hæfileika
sem best þú getur. Leggðu þig fram, en
mundu að það ert þú sem stjórnar, ekki
tæknin.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Viðhorf þitt er að hallmæla ekki því
sem þú hefur ekki prófað. Ef einhverjar
breytingar þarf að gera, þurfa þær að vera í
allra þágu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Í dag væri réttast að einbeita sér að
heimili og fjölskyldu. Máli skiptir að vera til
staðar og hlusta.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Láttu þér ekki bregða, þótt þú upp-
götvir einhver mistök. Vinur býr yfir með-
fæddu innsæi sem hjálpar honum til þess að
skynja lausnina sem leynist undir niðri.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það muna reyna á samböndin í fjölskyld-
unni og þú mátt hafa þig alla/n við til þess að
halda fólkinu saman. Fjör, ánægja og
skemmtanir eru í spilunum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Farðu varlega í ferðaáætlanir í
dag því þú gætir lent í því að þurfa að afbóka.
Ekkert liggur á í sambandi við fasteignakaup.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það kann að vera að fjármálin
séu þér þyngri í skauti en þú vilt vera láta.
Einbeittu þér að eigin starfi. Beittu þér af
skynsemi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Mundu að sjaldan veldur einn þá
tveir deila. Að hafa of mikinn tíma til þess að
gera áætlanir er hættulegt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þið eru óvenju upptekin/n af
vinnunni og fjármálunum. Strikaðu orðið
„ætti“ úr orðaforðanum þínum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert ekkert fórnarlamb lengur.
Æfðu þig að ganga, tala og vinna eins og þú
eigir heiminn.
Stjörnuspá
Grímur í Ása-
túni er 50 ára.
Í tilefni af af-
mælinu verður
hann og fjöl-
skyldan stödd í
reiðhöllinni á
Flúðum hinn 24.
júní nk. og bjóða
þau vinum og vandamönnum að
gleðjast með sér. Mæting kl. 20.
Klæðnaður að hætti hússins.
50 ára
1. f4 Rf6 2. Rf3 d5 3. g3 c6 4. Bg2 Db6 5.
b3 g6 6. Bb2 Bg7 7. e3 Bg4 8. h3 Bxf3 9.
Dxf3 Rbd7 10. O-O O-O 11. g4 Re4 12.
Bxg7 Kxg7 13. d3 Rd6 14. Rd2 f5 15. d4
Rf6 16. c3 fxg4 17. hxg4 Rde4 18. Rxe4
Rxe4 19. Hfc1 e5 20. Hc2 exf4 21. exf4
Dc7 22. Hf1 Hae8 23. Bh1
Staðan kom upp á Meistaramóti Fjón-
ar í Óðinsvéum í Danmörku. Argentíski
stórmeistarinn Pablo Lafuente (2555)
hafði svart gegn íslenskum kollega sín-
um, Henrik Danielsen (2545). 23… Rg5!
24. Dg3 Hxf4! 25. Hcf2 svartur hefði
einnig staðið til vinnings eftir 25. Hxf4
Dxf4. 25… Hef8 26. Hxf4 Hxf4 27. Kg2
Hf7 28. Hxf7+ Dxf7 29. De5+ Df6 30.
Dc7+ Kg8 31. Kg3 b5 32. c4 bxc4 33.
bxc4 dxc4 34. Bxc6 Dxd4 35. Db7 De3+
36. Kg2 Dd2+ 37. Kf1 Dd1+ 38. Kf2
Dd2+ 39. Kf1 Df4+ 40. Ke1 De3+ og
svartur innbyrti vinninginn nokkru síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik