Morgunblaðið - 13.08.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011
199.900.-
verd adeins
KOMINN AFTUR!
VINSAELASTI SÓFINN OKKAR ER
KOMINN AFTUR!
tilbodnú baedi
haegri og
vinstri legubekkur
pantanir óskast sóttar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Það var mikið um dýrðir í Reykjanesbæ í gær-
kvöldi þegar óperan Tosca eftir Giacomo Pucc-
ini var frumsýnd í uppsetningu óperufélagsins
Norðuróps. Uppsetningin er óvenjuleg, söngv-
ararnir ferðast á milli staða og verða áhorfendur
að fylgja á eftir. Fyrsti þáttur óperunnar var
fluttur í Keflavíkurkirkju, annar þáttur í safn-
aðarheimili kirkjunnar og sá þriðji í garðinum
þar á milli. Aðeins tvær sýningar eru á verkinu,
sú fyrri var í gærkvöldi og sú síðari er á morgun.
Tosca fjallar um ástir og afbrýði og er ein
frægasta og vinsælasta ópera allra tíma.
Óperan Tosca frumsýnd
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Lífleg óperusýning í og við Keflavíkurkirkju
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans,
segir að spítalinn geti ekki mætt frek-
ari niðurskurði án þess að slíkt muni
bitna á þjónustu við sjúklinga.
„Við höfum minnkað það mikið við
okkur og dregið saman seglin að hér
er ekkert meira að hafa. Ef ætlunin er
að spara hér meira og hafa frekari nið-
urskurð í fjárlögum þá tel ég að
stjórnvöld verði hreinlega að taka
ákvörðun um hvers konar þjónustu á
að veita á Landspítalanum. Þetta er
spurning um hvers konar þjónusta er
veitt í heilbrigðiskerfinu,“ segir Björn.
Hann segir einnig að margir haldi
því nú fram að boðaður 1,5% niður-
skurður í velferðarkerfinu sé ekki
nægilegur. „Það er hins vegar mis-
munandi hvernig niðurskurður síð-
ustu ára hefur komið niður og ég
bendi á að við höfum lent í verri nið-
urskurði en margir aðrir.“
Björn kvað fast að orði í föstudags-
pistli sínum á vef Landspítala í gær
og sagði að niðurskurður í framlögum
til Landspítalans hefði numið 23% frá
árinu 2008.
Fækkað um 800 starfsmenn
Í lok janúar árið 2009 voru starfs-
menn Landspítala 5.218 talsins en í
lok maí síðastliðins voru þeir 4.621.
„Það hefur verið alveg óheyrilega erf-
itt að ná endum saman hjá okkur. Það
er ekki hægt að skera meira niður
hér. Starfsfólkið er búið að gera sitt.
Starfsemi spítalans stendur mjög
tæpt og ef þetta heldur svona áfram
þarf að minnka þjónustuna og koma
upp biðlistum. Við erum að reyna að
halda uppi sama þjónustustigi á spít-
alanum með 600 færri starfsmenn og
23% minna fé.“ Aðspurður gat Björn
ekki nefnt dæmi um hvers konar
þjónusta gæti verið lögð af vegna nið-
urskurðar. „Við þurfum að sjá hver
niðurstaðan verður í fjárlögum. Það
verða erfiðar ákvarðanir sem við
þurfum að taka í samráði við velferð-
arráðuneyti.“
Birna Jónsdóttir, formaður
Læknafélags Íslands, segir að Land-
spítalinn sé einstakur spítali á Íslandi
enda sé þar í boði margs konar heil-
brigðisþjónusta sem ekki sé völ á ann-
ars staðar. „Varaspítalinn, ef svo má
að orði komast, er þá Sjúkrahúsið á
Akureyri, sem er svo aðkreppt að það
getur ekki starfað án þess að fá
hækju frá Landspítalanum. Hvar
ætla menn sér að skera niður? Ef
Landspítalinn getur ekki haldið uppi
þjónustu þá þýðir það, fyrir venjulegt
fólk, að sækja þarf hana út fyrir land-
steinana.“ Hvorki náðist í Guðbjart
Hannesson velferðarráðherra né
Steingrím J. Sigfússon fjármálaráð-
herra vegna málsins í gær þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
Landspítali er á þanmörkunum
Forstjóri Landspítala segir spítalann berjast við að halda sama þjónustustigi með 600 færri starfs-
menn og 23% minna fé „Þetta er spurning um hvers konar þjónusta er veitt í heilbrigðiskerfinu“
Björn Zoëga Birna Jónsdóttir
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Gríðarlega mikið er af makríl í sjónum við strendur Ís-
lands um þessar mundir. Í Garði hefur verið mikið um að
fólk geri sér ferð niður á bryggju og veiði sér þar í soðið.
„Hér hjá okkur er afskaplega mikið af makríl og marg-
ir – ekki síst Íslendingar sem eru af erlendu bergi brotn-
ir – hafa verið duglegir við að fara hér niður á höfn til að
veiða,“ segir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði.
Hann segir að þetta sé þriðja sumarið í röð sem mikil
fiskgengd sé við bryggjuna. „Þá koma margir sér fyrir
hérna á bryggjunni og veiða. Margir flaka jafnframt fisk-
inn hérna á staðnum. Við höfum lifað á þessu frá örófi
alda og þessi sjálfsbjargarviðleitni er til fyrirmyndar.“
Heilu makríltorfurnar sáust jafnframt úr háhýsum við
Borgartún og niðri við Sæbraut í Reykjavík í gær.
Ferðalöngum, sem voru á leið í lundaskoðunarferð í Við-
ey í fyrradag, brá ennfremur í brún þegar þeir sáu
hrefnu rétt undan landi í eynni. „Það er ekki oft sem
maður sér hvali svona nálægt Viðey,“ sagði Magnús
Axelsson, leiðsögumaður hjá Sérferðum. „Hann var
greinilega að elta makrílinn, sjórinn hreinlega bullsauð
af makríl á þessum slóðum.“
Makríll heldur til unnvörp-
um við strendur landsins
Hvalur sást elta makríltorf-
ur alla leið upp að Viðey
Ljósmynd/Magnús Axelsson
Veiðar Laumuleg hrefna við Viðey.
Í gærkvöldi
hafði um tíu
milljónum
verið heitið á
hlaupara sem
ætla að
hlaupa til
góðs í Reykja-
víkurmara-
þoninu. Árið
2009 söfnuðst
alls níu milljónir en í fyrra námu
áheitin 30 milljónum.
Þeir sem þekkja hlaupara í
Reykjavíkurmaraþoninu geta flett
honum upp á hlaupastyrkur.is og
heitið á einstaka hlaupara eða lið í
boðhlaupinu.
Tíu milljónum verið
heitið á hlaupara
Umferð um höfuðborgarsvæðið í
júlí var 4% minni en í júlí í fyrra,
samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni. Útlit er fyrir að
umferðin í ár dragist saman um
2-3% og verði svipuð eða heldur
meiri en árið 2006. Frá áramót-
um hefur umferðin dregist saman
um 3,2%.
Sá fyrirvari er settur við sam-
dráttinn í júlí síðastliðnum að
óvenju mikill samdráttur mældist
á Hafnarfjarðarvegi, líkt og í jan-
úar, en ekki hefur fundist hald-
bær skýring á því.
Umferð um borgina
og nærsveitir svipuð
og á árinu 2006
„Það væri ábyrgðarlaust af okk-
ur að segja ekki frá þessu,“ seg-
ir Björn Zoëga, forstjóri Land-
spítala. Heildarútgjöld frá hinu
opinbera til spítalans árið 2011
eru 33 milljarðar króna. „Upp-
reiknað í krónum dagsins er
þetta rúmlega átta milljörðum
króna minna en í fjárlögum árs-
ins 2008. Þetta er 23% nið-
urskurður. “
23% niður-
skurður
BJÖRN ZOËGA