Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 6
Guðmundur Felix Grétarsson missti báða handleggi rétt
fyrir neðan axlir í vinnuslysi árið 1998. Hann var uppi í há-
spennumastri þegar hann fékk 11 þúsund volta straum
með þeim afleiðingum að hann féll 8 metra og braut flest
bein í líkamanum. Vegna brunasára varð að fjarlægja
handleggina.
Guðmundur bíður eftir að franski skurðlæknirinn Lion-
el Badet upplýsi hann um hvort 30 manna skurðlækna-
teymi hans muni græða á hann hendur, en það yrði þá
fyrsta aðgerð sinnar tegundar í heiminum. „Ég setti mig í
samband við hann árið 2007, hafði séð hann í Kastljósinu á
Íslandi, og hef verið í skoðun síðan,“ segir Guðmundur.
„Þeir hafa skoðað ástandið á taugum og beinum og það lít-
ur allt vel út,“ segir Guðmundur. Guðmundur hefur unnið
síðustu fjögur ár að því að komast í þessa aðgerð. Hann
hefur farið tvisvar til Frakklands og gengist undir ýmiss
konar próf. Allar niðurstöður hafa verið jákvæðar en Guð-
mundur mun fá endanlegt svar 9. september næstkom-
andi. Verði aðgerðin samþykkt mun biðtími taka við sem
getur varað frá nokkrum dögum upp í tvö ár eða þangað til
að handleggir fást til ágræðslunnar.
Ríkið tryggir ekki handaágræðsluaðgerðir
Guðmundur fær enga aðstoð hjá íslenska ríkinu þar sem
aðgerðin flokkast undir „tilraunaaðgerð“ en hún kostar í
kringum 21 milljón. Svölurnar, félag fyrrverandi og starf-
andi flugfreyja, hafa styrkt góð málefni undanfarin ár.
Svölurnar hafa nú þegar styrkt Guðmund um fimm hundr-
uð þúsund krónur.
Leggja þær áherslu á að styrkja þá einstaklinga sem
njóta ekki opinberra styrkja hjá Tryggingastofnun. Svöl-
urnar stefna að því að halda ótrauðar áfram. Hægt er að
veita framlög til styrktarsjóðsins á vefsíðunni svolurnar.is
Guðmundur Felix mun hlaupa fyrir „Handahlaup“ í
Reykjavíkurmaraþoni 20. ágúst næstkomandi. Stofnuð
hefur verið Facebook-síða undir nafninu Handahlaup þar
sem góður hópur fólks leggur sín lóð á vogarskálarnar til
að aðstoða Guðmund við að fá handleggi grædda á sig.
Hægt er að styrkja Guðmund með því að hringja í 901
5100, 901 5200 og 901 5500. Unnið er að því að styðja Guð-
mund þar sem hann hefur þurft að mæta ýmiss konar
kostnaði vegna slyssins. mep@mbl.is
„Svona aðgerð hefur
aldrei verið gerð áður“
Fær svar eftir 9. september Rannsóknir gefa góða von
Mynd/Árni Sæberg
Styrkir Svölurnar, félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja, styrktu Handahlaup Guðmundar um 500 þúsund
krónur. Hægt er að styrkja hlaupið á hlaupastyrkur.is ef flett er upp á nafni Guðmundar.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
„Ég hef ekkert komið nálægt
þessu og ekki einu sinni dottið
þetta í hug, en ég segi bara takk
fyrir,“ segir Olgeir Engilbertsson
í Nefsholti í Rangárvallasýslu. Í
dag standa vinir Geimstöðvar-
innar, Víbon-trukks Olgeirs, fyrir
hátíð og söfnun í Landmannalaug-
um til að fjármagna langþráða
viðgerð á bílnum.
Olgeir og Geimstöðin, sem er af
árgerð 1953, þykja ómissandi í ár-
legri fjallferð á Landmannaafrétt,
enda verið með í för óslitið frá
því 1977 þegar Olgeir var nýbú-
inn að eignast bílinn. Sjálfur hef-
ur hann farið á fjall síðan 1964.
Vinstri hlið Geimstöðvarinnar
þarf viðgerðar við og af þeim sök-
um var ákveðið að efna til söfn-
unar til að tryggja áframhaldandi
viðveru Víbonsins í fjallferðum.
Grilluð verður bleikja sem Fjalla-
fiskur veiðir í vötnum Land-
mannaafréttar, Fjallafang mun
láta alla kaffisölu dagsins renna
til söfnunarinnar og skálaverðir
Ferðafélagsins baka klatta. Allir
eru velkomnir í Landmannalaug-
ar til að leggja sitt af mörkum í
söfnunina frá klukkan 12 til 20
með lifandi tónlist og góðu fólki.
Þeir sem ekki eiga heimangengt
geta lagt gömlum bíl lið með því
að gerast vinir hans á Facebook
og fengið þar nánari upplýsingar.
Nafnið er þannig til komið að
þegar fyrri eigandi gerði bílinn út
í ferðir upp að Vatnajökli var sett
á hann toppgrind og stafir búnir
til úr teinum og settir á grindina.
Á henni stendur því „Geimstöðin.“
Annars hefur margt verið gert
fyrir bílinn. Í hann var sett dís-
ilvél árið 1981, en áður var í hon-
um bensínmótor. 1999 var hægri
hliðin tekin í gegn en nú er kom-
inn tími á þá vinstri. Þá er í hon-
um Ford-gírkassi og skipt hefur
verið um afturdrif. „En fram-
drifið hugsa ég að sé upprunalegt
og millikassinn er orginal,“ segir
Olgeir. „Þetta er svona hálf-
gerður veitingastaður, félags-
miðstöð og fjarskiptamiðstöð,“
segir hann um hlutverk bílsins í
smalamennskunni. „Þetta eru
upphaflega sjúkrabílar frá hern-
um. Þegar ferðamenn fóru að fá
sér yngri bíla þá söknuðu margir
hreyfinganna því hann var með
svo góða fjöðrun. Þetta fer hægt
yfir en maður sullast þetta
áfram,“ segir Olgeir, ánægður
með liðsstyrkinn.
Hefur farið í leitirnar síðan ’77 og skal halda því áfram
Geimstöðin hans Olgeirs
fær langþráðan liðsstyrk
Morgunblaðið/RAX
Viðgerð Hér sést Olgeir hálfur undir vélarhlífinni eitthvað að fínstilla dísil-
vélina, en við bílinn standa Þórður Guðnason og Hugrún Hannesdóttir.
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Allur gangur er á því hvort veitu-
fyrirtæki innheimta umhverfis- og
auðlindagjald af heitavatnsnotkun
heimila aðeins af notkuninni sjálfri
eða einnig af fastagjaldinu, notkun
mæla og slíku.
Samkvæmt samtölum við starfs-
menn veitufyrirtækja innheimta HS
Veitur, Orkuveita Reykjavíkur og
Rarik skattinn einnig af fastagjald-
inu, en sagt var frá því í Morg-
unblaðinu í gær að hitaveitan á
Flúðum leggur skattinn aðeins á
vatnsnotkunina sjálfa. Ekki er ann-
að að sjá á verðskrá Norðurorku á
vefnum, en að hún geri það sama.
Spyrja ráðuneytið um túlkun
„Í ljósi þessara upplýsinga mun-
um við kanna hvort við séum ekki
að innheimta þetta með réttum
hætti og munum senda fyrirspurn
til fjármálaráðuneytisins um það,“
segir Eiríkur Hjálmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur.
Að hans sögn hafa ákvæði laga
um umhverfis- og auðlindaskatt
verið túlkuð svona vegna þess að
þegar fjallað sé í þeim um rafork-
una sé talað um ákveðna upphæð á
hverja kílóvattsstund, en þar sem
kveðið sé á um heita vatnið sé talað
um smásöluverð. Inni í því er fasta-
gjaldið.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er einnig mismunandi ná-
kvæmlega hvernig kerfi veitufyrir-
tækjanna eru úr garði gerð. Sum
hafa mæla sem mæla nákvæmlega
lítramagnið sem fer inn á hvert
heimili, en önnur notast við svokall-
aða hemla, sem hleypa aðeins
ákveðnu magni í gegnum sig og því
er aðeins borgað fast gjald. Þetta
getur ráðið mismunandi fram-
kvæmd í einhverjum tilfellum.
Rukkun orku-
skatts á reiki
Sumir leggja skatt á fastagjaldið, aðrir ekki
Margt smátt...
» Hjá Orkuveitu Reykjavíkur
munar það um 250 krónum á
ári fyrir hvert heimili, hvort 2%
auðlindaskattur er tekinn af
mælanotkuninni eða ekki.
» Um 60.000 heimili eru í við-
skiptum við OR og gerir þetta
því í kringum 15 milljónir króna
í skatttekjur sem það munar
fyrir ríkissjóð hvernig innheimt
er hjá OR og á þriðja tug millj-
óna fyrir allt landið.
„Mér finnst þetta alveg yndislegt, auðvitað er þetta
rosaleg aðgerð og maður er náttúrulega svolítið
kvíðinn þess vegna, en ég hef alltaf haft þá trú að að
þessum tíma kæmi,“ segir Guðlaug Þórs Ingvadóttir,
móðir Guðmundar. „Mér finnst bara stórkostlegt að
hann sé að fara í fyrstu aðgerð í handaágræðslu sem
hefur verið framkvæmd,“ segir Guðlaug. „Ég held að
ástæðan fyrir því að hann þykir góður kandídat sé
skapgerðin hans. Hann er svo jákvæður og duglegur.
Við erum endalaust búin að vera bíða, finnst mér og
núna er svarið loksins að koma,“segir Guðlaug. Ég er
rosalega spennt og er mjög þakklát, það hafa allir
verið svo jákvæðir í að styðja okkur.“
Jákvæðni og dugur
hafa sitt að segja
LÆKNAVÍSINDI
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Myndlista
vörur
í miklu ú
rvali
Strigar, ótal stærðir
frá kr.195
Acryllitir 75 ml
kr.480
Gólftrönur
frá kr.4.395
Þekjulitir/Föndurlitir
frá kr.480 16 ára
Verkfæralagerinn
Fullt af nýjungum í lista-og föndurdeild
Blýantar, Strokleður, Trélitir, Tússlitir,
Teikniblokkir, Teiknikol, Föndurlitir,
Þekjulitir, Vatnslitir, Akrýllitir, Olíulitir,
Penslar, Skissubækur, Vattkúlur, Vír,
Vatnslitablokkir, Leir, Lím, Kennara-
tyggjó, Föndurvír,Límbyssur, Lóðboltar,
Hitabyssur, Heftibyssur, Málningar-
penslar og málningarvörur
í miklu úrvali