Morgunblaðið - 13.08.2011, Page 8

Morgunblaðið - 13.08.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–14, lokað á sunnudögum í sumar Vefuppboð nr. 9 Lýkur 15. ágúst Sæ m undurValdim arsson Listaverk eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinnar eru á uppboðinu. Næsta listmunauppboð verður 5. september Erum að taka á móti verkum núna í Galleríi Fold við Rauðarárstig Listmunauppboð Árni Þór Sigurðsson formaður ut-anríkismálanefndar Alþingis fann tíma í fyrradag til að kalla nefndina saman svo ræða mætti stærsta utanríkismál landsins um þessar mundir.    Tækifærið notaðiÁrni Þór svo til að veita Jóni Bjarna- syni verðskuldaða yfirhalningu, enda hafði sá leyft sér að verja hagsmuni Íslendinga gagnvart yfirgangi útlendinga. Slík fram- ganga er óheimil í miðju aðlög- unarferlinu.    Utanríkismálið sem dugði til aðÁrni Þór kallaði saman utanríkismálanefnd var hvalveiðar Íslendinga. Umræða um það þoldi enga bið og hlaut að vera fyrst á dag- skrá nefndarinnar eftir að sumar- fundabanni Alþingis var aflétt.    Fyrir rúmum mánuði höfðu for-ystumenn stjórnarandstöð- unnar sett fram skýrar kröfur um að nefndin kæmi saman til að ræða um- mæli Össurar Skarphéðinssonar í tengslum við aðlögunarviðræðurnar að ESB.    Árni Þór taldi enga ástæðu til aðverða við fundi þá, enda gafst honum með höfnuninni tækifæri til að fara ekki að þingskapalögum sem kveða á um að utanríkismálanefnd skuli vera ríkisstjórninni til ráð- gjafar í utanríkismálum.    Honum tókst um leið að fara gegnvilja þingsins um að það sé haft með í ráðum í gönuhlaupi rík- isstjórnar Íslands í Brussel.    Þar fyrir utan er ESB-umsókninauðvitað miklu minna mál en hvalveiðimálið, þannig að forgangs- röðunin var fullkomlega eðlileg. Árni Þór Sigurðsson Eðlileg forgangs- röðun STAKSTEINAR Veður víða um heim 12.8., kl. 18.00 Reykjavík 13 skýjað Bolungarvík 12 léttskýjað Akureyri 11 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 14 skýjað Vestmannaeyjar 11 skýjað Nuuk 11 heiðskírt Þórshöfn 10 skýjað Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 17 heiðskírt Helsinki 17 léttskýjað Lúxemborg 17 skýjað Brussel 18 skúrir Dublin 18 skýjað Glasgow 17 skúrir London 22 léttskýjað París 23 léttskýjað Amsterdam 18 léttskýjað Hamborg 17 skýjað Berlín 21 skýjað Vín 24 léttskýjað Moskva 22 léttskýjað Algarve 25 léttskýjað Madríd 35 léttskýjað Barcelona 26 heiðskírt Mallorca 27 heiðskírt Róm 28 heiðskírt Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 23 alskýjað Montreal 22 skýjað New York 26 heiðskírt Chicago 25 skýjað Orlando 32 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:13 21:54 ÍSAFJÖRÐUR 5:03 22:14 SIGLUFJÖRÐUR 4:45 21:57 DJÚPIVOGUR 4:38 21:27 Sid L. Scruggs III, fyrrverandi al- þjóðaforseti Lions (2010-2011) og núverandi stjórnarformaður LCIF, alþjóðlegs hjálparsjóðs Lions, er staddur á Íslandi í tilefni af 60 ára afmæli Lionshreyfingarinnar á Ís- landi, ásamt eiginkonu sinni Judy sem er einnig virk í starfi Lions. LCIF er alþjóðahjálparsjóður sem styrkir líknar- og mannúðarmál víða um heim, árlega um 30-40 millj- ónir dala. Fjölbreytt flóra verkefna Scruggs segir Lions koma að margs kyns mannræktarverkefnum og tiltekur þar Lions Quest verk- efnið, sem er lífsleikniverkefni sem hefur verið kynnt í skólum víða um heim. „Við erum með verkefnið í yfir 70 löndum og styðjum þar árlega um 12 milljónir barna, segir Scruggs. Hér á landi er þetta samvinnuverk- efni Lions og Námsgagnastofnunar. Þegar Sruggs er beðinn að út- skýra hvað Lions sé þá segir hann að hér sé um að ræða stærstu mann- úðarsamtök í heimi, með nær 1,4 milljónir félaga starfandi í 206 lönd- um. Meginverkefni samtakanna sé að vinna í þágu þeirra sem minna mega sín og hver klúbbur vinni sjálf- stætt. Einkunnarorðin séu að vinna á heimaslóð en hugsa á alþjóðavísu. Þetta er fyrsta heimsókn Scruggs til Íslands og hann segir þau hjónin afa verið spennt fyrir að koma og sýna stuðning sinn hér á landi. Til- gangur heimsóknarinnar sé m.a. að styðja við íslenskt Lionsstarf og upplýsa um verkefni annarra Lions- hreyfinga. Íslenskir Lionsmenn leggi sitt af mörkum með því að styrkja þá sem þess þurfa í sínu nærumhverfi. Einnig leggi þeir sitt af mörkum til að styrkja alþjóðlegt hjálparstarf hreyfingarinnar. Frá því árið 1970 hafi safnast um 1,5 milljónir dala sem hafi farið til mannúðarmála, bæði hér heima og erlendis. Sem dæmi, þá vinni Lions með Park- insons-samtökunum og náðst hafi að safna fyrir talgervli fyrir Blindra- vinafélagið með sölu Rauðu fjaðr- arinnar. Þá sé sérstaklega áhuga- vert að Lionsmenn fagni fyrsta sólardegi á vetri með Sólarkaffisölu. sigrunrosa@mbl.is Sólarkaffisalan áhugavert framtak  Scruggs stjórnarformaður LCIF fagnar 60 ára afmæli Lions á Íslandi Lions Sid L. Scruggs ásamt eigin- konu sinni Judy Scruggs. Brot úr dagskrá gestanna » Í gær: Sjá Lionshúsið og tæki á Reykjalundi, hitta forseta Ís- lands, skoða hjartalækn- ingatæki á Landspítala, kynning á Lions Quest, kvöldverður. » Í dag: Minningarathöfn um Magnús Kjaran stofnanda Lions á Íslandi, Blindrafélagið til að sjá talgervil og blindrahunda, hitta Ívu Marín, 12 ára vinnings- hafa í ritgerðasamkeppni, gróð- ursetja forsetatré í skógarlundi Lions. Svifflugfélag Íslands fagnar 75 ára afmæli í ár og að því tilefni verður afmælisfagnaður á Sand- skeiði í dag, laugardag. Á afmælisárinu verður frum- kvöðlum í flugi m.a. gert hátt undir höfði og á afmælishátíðinni verður minnisvarði um frum- kvöðulinn Agnar Kofoed Hansen afhjúpaður á Sandskeiði. Dagskráin verður sett kl. 14 og kl. 14.30 verður minnisvarðinn afhjúpaður. Kl. 15 verður svo boðið upp á veitingar og ýmis flugatriði. Hátíð Svifflugfélags- ins á Sandskeiði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.