Morgunblaðið - 13.08.2011, Síða 9

Morgunblaðið - 13.08.2011, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Verðhrun 60-80% afsláttur af öllum vörum www.gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22 ÚTSÖLULOK laugardag opið 11-16 25-60% afsláttur Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR Við undirritaðir, heimilislæknar í Domus Medica, hættum störfum þann 31. ágúst næstkomandi. Um leið og við þökkum góð samskipti við samlagsfólk okkar, vekjum við athygli á, að tveir heimilislæknar munu hefja störf við Domus Medica 1. september og mun tilkynning berast frá þeim fljótlega. Sigurður Jónsson, læknir Guðmundur Elíasson, læknir. STARFSLOK Bonito ehf. Friendtex Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is VILTU SKEMMTILEGAAUKA VINNU? FRIENDTEX Á ÍSLANDI LEITAR AÐ FLOTTUM HEIÐARLEGUM KONUM TIL AÐ KYNNA OG SELJA FRIENDTEX TÍSKUFÖT NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 568 2870 EÐA 691-0808 kíkið á friendtex.is Nýr vörulisti er kominn á netið Pantaðu vörulistann við sendum þér listann frítt heim þann 2. september nk. Hjá okkur færðu þá leiðsögn sem þú þarft og það er enginn kostnaður fyrir þær sem vilja prófa. Kynnið ykkur málið fyrir 20. ágúst 3 FYRIR 2 AF KERTUM Í töflu yfir aflahæstu laxveiðiárnar í Morgunblaðinu hefur nokkrum sinn- um komið fram í sumar að í Blöndu sé veitt á 19 stangir. Þar er aðeins veitt á 16 stangir. Beðist er velvirð- ingar á mistökunum. Glossið á neistinn.is og víðar Áður kom fram að Dior-glossið til styrktar átakinu Á allra vörum feng- ist í apótekum og víðar. Nánar til- greint fæst glossið á neistinn.is og í viðurkenndum Dior-snyrti- vöruverslunum, t.d. Hagkaupum, Lyfjum og heilsu, Hygeu og Sig- urboganum. LEIÐRÉTT Sextán stangir í Blöndu Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Facebook hefur fylgt svolítið lög- málinu að skjóta fyrst og spyrja svo. Það hefur alltaf þótt erfitt að átta sig á notkunarreglum á Facebook. Við pælum lítið í því hvað við erum að samþykkja með því að vera á Facebook og það lifir í krafti þess fjölda sem þrífst þar,“ segir Bjarki Valtýsson doktor í boðskipta- og menningarfræðum. Í dag mun hann fjalla um persónuupplýsingar og Facebook á norrænu fjölmiðlaráð- stefnunni Nordmedia sem er nú haldin í tuttugasta sinn á Akureyri. Bjarki segir persónuupplýsinga- hugtakið vera að breytast samfara vinsældum samfélagsmiðla eins og Facebook. „Í rannsókn minni skoð- aði ég notendaskilmála og einka- málastefnu miðilsins. Þetta er svolít- ið svört greining, því notendaskil- málarnir eru ekkert sérstaklega hagstæðir notendum og þeim er ekki gert auðvelt fyrir að breyta persónu- stillingum. Ég tók líka viðtöl við danska Facebook-notendur á aldr- inum 20-25 ára. Í ljós kom að þetta unga fólk er meðvitað um að það er að deila ýmsu persónulegu á Facebook, t.d. að gefa Facebook ákveðinn höfundarétt að myndum af börnunum sínum. En það sem kom mér á óvart er að þeim er alveg sama. Þau vita af möguleikunum sem eru í boði, eins og að búa til sér- staka hópa fyrir vini eða fjölskyldu, en nýta sér það ekki. Mér finnst þessi hugsun endurskilgreina þau viðmið sem við höfum um það sem á heima í einkalífinu og það sem á heima á opinberum vettvangi ef það má orða það svo,“ segir Bjarki. Hann segir það oft gleymast að Facebook er einkafyrirtæki sem þrífst á því að flestir séu inni á miðl- unum og deili sem mestu. „Þetta er markaðsmiðill sem lifir á því að lokka til sín fólk, 750 milljónir í þessu tilfelli, og selja auglýsingar. Þeir búa til umhverfið, við fyllum það af innihaldi og þeir fá allan pen- inginn. Ég spurði ungu Facebook- notendurna hvort þeim fyndist ekk- ert bogið við þetta en þeim fannst það ekki og bentu á aðra þætti þar sem miðillinn nýttist þeim t.d. í vinnu. Fólk sér Facebook frekar sem notendavænan þjónustumiðil en kúgandi afl. Við erum svo vön að hugsa um okkur sem neytendur frekar en notendur.“ Álitinn notendavænn miðill frekar en kúgandi afl Morgunblaðið/Ernir Facebook Það er margt að sjá og margt að varast á netinu.  Facebook að breyta viðmið- unum um einkalíf Jón Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra hefur sent formönnum sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd- ar, utanríkismálanefndar og um- hverfisnefndar Alþingis bréf vegna ummæla sem féllu á sameiginlegum fundi nefndanna í fyrradag um mál- efni Alþjóðahvalveiðiráðsins. Jón gerir alvarlegar athugasemdir við framgöngu Marðar Árnasonar, for- manns umhverfisnefndar, eftir fund- inn. Jón skírskotar til þess að Mörður birti blogg um nefndafundinn og sagði þar að sjávarútvegsráðherra hefði fengið einróma stuðning stjórnarandstæðinga en nær allir stjórnarsinnarnir hefðu spurt hvassra spurninga um framgöngu sendinefndar Íslands í hval- veiðiráðinu. Jón segir í bréfinu að skrif Marðar séu einkar ósmekkleg og framganga sendinefndarinnar hafi verið í fullu samræmi við álykt- un Alþingis frá 1999 um að hval- veiðar skyldu stundaðar á Íslandi. Hnútukast milli Jóns og Marðar Jón Bjarnason Mörður Árnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.