Morgunblaðið - 13.08.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ernir
Fjölmenni Það voru hvorki meira né minna en 100 hlaupagarpar og í raun tveir til sem skokkuðu í vikunni.
upp úr sófanum og hefur nú hlaup-
ið fjölda kílómetra, yfir í fólk sem
er rétt að komast í að geta hlaupið
fimm km. Hópnum er skipt gróf-
lega í þrennt, 10 km, hálft mara-
þon og heilt maraþon, og æfir hver
með sínu markmiði. Hver hleypur
á sínum hraða og leiðirnar skiptast
eftir vegalengd. Yfirleitt leggur all-
ur hópurinn af stað saman og er
hlaupið mikið niður á Norðurbakk-
ann í Hafnarfirði. Þar er hlaupið
eftir stígunum og svo skilur leiðir
eftir því hversu langt fólk ætlar að
fara. Þeir sem fara lengst fara út á
Álftanes á meðan hinir fara út að
Hrafnistu. Þannig er reynt að
halda hópnum saman
þannig að fólk tilheyri
hópi og finni til sam-
kenndar.
Út fyrir
þæginda-
rammann
„Það segja
það allir sem
hafa komið til okkar
að áður hafi þeir
verið að hlaupa innan
ákveðins þæginda-
ramma og aldrei
reynt of mikið á sig.
En við erum með
brekkuhlaup og tröppu-
hlaup og spretti til þess
að auka þolið og úthaldið.
Það að æfa með hópi og
eftir prógrammi skiptir
gríðarlega miklu máli til
að ná einhverjum árangri. En yfir
það heila erum við ekki afreksfólk
heldur fólk sem vill gera þetta að
lífsstíl og halda heilsu og styrk.
Ég er nú sjálf búin að vera með
vægt brjósklos í ein 10 ár og það
fer betur í mig að skokka en
ganga, svo þetta geta allir og ég
hleyp bara meðan ég get,“ segir
Sigríður og segist hafa „dútlað“
við þetta ansi lengi. Hún byrjaði
að hlaupa 1,5 til 3 km í kringum
1985. Hún hefur nú farið þrjú hálf
maraþon en ætlar að hlaupa 10
km í ár. Bakið leyfi ekki meira en
hún haldi ætíð sínu striki, hætti
aldrei heldur fari frekar rólega.
Uppskeruhátíð
maraþonsins
„Þótt við hlaupum ekki í hópi
í Reykjavíkurmaraþoninu er það
samt mjög félagslegt athæfi. Við
hitum upp saman og fáum okkur
að borða eftir á. Innan skokkhóps
Hauka er raðað í sveitir og er
samkeppni á milli hópanna. Eftir
maraþonið eru veitt verðlaun og
haldin uppskeruhátíð. Maður er
manns gaman og gaman að gera
eitthvað saman. Ég hleyp oft með
bernskuvinkonu minni en við
ákváðum fyrir 10 árum að gera
það að rútínu að spjalla á skokk-
inu frekar en yfir kaffibolla. Dá-
lítið eins og karlarnir fara saman
í golf. Þannig getur maður fengið
margt út úr hlaupunum í einu;
útiveru, hreyfingu og skemmti-
legan félagsskap,“ segir Sigríður.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011
Dagskrá
8.30-9.00 – Skráning
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofunnar
Francis Gurry, forstjóri Alþjóðahugverkastofnunarinnar, WIPO
Raimund Lutz, aðstoðarforstjóri Evrópsku einkaleyfastofunnar, EPO
Christian Archambeau, aðstoðarforstjóri, Office for Harmonization
in the Internal Market, OHIM
10.30-11.00 – Kaffi
Jesper Kongstad, forstjóri dönsku einkaleyfastofunnar
Ásta Valdimarsdóttir framkvæmdastjóri, Madrid skráningarkerfið,
World Intellectual property Organisation, WIPO
Yvonne Dörfler, sérfræðingur í hugverkadeild þýskra tollayfirvalda
12.30-14.00 – Hádegisverður á Kolabrautinni
Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður og útgefandi
Sigga Heimis, hönnuður
Stefán Einar Stefánsson, Actavis
15.10-15.30 – Kaffi
Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir, CCP
Tatjana Latinovic, Össur
Ásgeir Ásgeirsson, Marel
Orri Hauksson, Samtök iðnaðarins
17.00 – Léttar veitingar
Ráðstefnustjóri:
Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEFs
Ráðstefnan fer fram á ensku
The importance of
Intellectual Property Rights
20 ára afmæli Einkaleyfastofunnar
Formleg opnun upplýsingasíðu um falsanir og hugverkaréttarbrot
Ráðstefnugjald er 8.500 kr.,
hádegisverður innifalinn
Vinsamlega skráið þátttöku
á www.els.is fyrir 15. ágúst
– Falsanir og brot gegn hugverkarétti
Alþjóðleg ráðstefna í Hörpu 18. ágúst 2011
Dagana 11.-14. ágúst næstkomandi
verður hátíðin Matur og menning
haldin í Vesturbyggð og Tálknafirði.
Þar er lögð áhersla á kynningu
matvæla sem framleidd eru á svæð-
inu. Veitinga- og kaffihús auk gisti-
staða munu hafa á boðstólum rétti
eða matvæli unnin úr hráefni svæð-
isins. Einnig verða tónleikar og ljós-
myndasýning í tengslum við hátíðina
og því tilvalið að bragða á spennandi
mat og hlusta á góða tónlist ásamt
því að fræðast um matarmenningu
Vesturbyggðar og Tálknafjarðar.
Meðal þátttakenda í hátíðinni eru:
Hótel Flókalundur, Hótel Breiðavík,
Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti,
Skrímslasetrið Bíldudal, Vegamót
Bíldudal, Eagle Fjord Bíldudal, Mel-
ódíur minninganna Bíldudal, Tígull
Tálknafirði, Sjóræningjahúsið Pat-
reksfirði, Fjölval Patreksfirði og Alb-
ína Patreksfirði.
Matarhátíð
Matarmenning Vesturbyggðar
Smakk Hráefni af svæðinu verður
notað í ýmsa gómsæta rétti.
Spjall Kannski unga stúlkan sé að fá samþykki fisksins fyrir að borða hann.
Helgin hennar Anniear MistarÞórisdóttur, hraustustukonu heims, er vel skipu-
lögð. „Á laugardagsmorgninum fer
ég og kenni í Crossfit BC í tvo tíma
en ég er að kenna á grunnnámskeiði.
Síðan fer ég og æfi sjálf. Eftir það
fer ég í kaffiboð upp í sumarbústað í
Öndverðarnesinu þar sem öll ættin
verður. Ég verð með fjölskyldunni í
bústaðnum um kvöldið, þar verður
matarboð og allir gista sem geta. Ég
fer aftur á móti heim að pakka aftur.
Á sunnudaginn er ég að fara að
kenna Crossfit BC, klára að pakka
og fara upp á flugvöll því ég er að
fara til New York kl. 17,“ segir An-
nie Mist en hún kom frá Bandaríkj-
unum á þriðjudagskvöldið eftir að
hafa sigrað á heimsleikunum í cross-
fit í Kaliforníu. Þessi ferð verður
hinsvegar dálítið öðruvísi. „Þetta er
skemmtiferð með fimm vinkonum
mínum og tengist crossfit ekki neitt.
Ferðin var ákveðin fyrir löngu, við
erum fara í nokkurra daga ferð að
versla og skoða New York. Þetta er
fríferð í rauninni, ágæt pása.“
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
Morgunblaðið/Sverrir
Kennir crossfit og
fer til New York
Annie
Mist
Forsaga skokkhópsins er sú að
annar fyrirliði hópsins nennti
ekki lengur að sækja hlaupaæf-
ingar til Reykjavíkur. Hann
stofnaði því sinn eigin hlaupa-
hóp sem síðar varð að Almenn-
ingsíþróttadeild Hauka.
Áhersla er lögð á hinn al-
menna borgara og mark-
miðið að stuðla að lík-
amlegu heilbrigði
almennings með
regluglegum æfingum
í góðum félagsskap,
þar sem félagarnir
móta starfið og æf-
ingar. Hátindur sum-
arsins er Reykjavík-
urmaraþonið en þá
hafa öflugar sveitir frá
Skokkhópi Hauka mætt
til leiks. Þá eru
gamlárshlaup Hauka
og afmælishlaup árvissir
atburðir. Einnig keppti 50
manna hópur í Berlínarm-
araþoninu í apríl síðast-
liðnum og á næsta ári er
stefnan sett á Búdapest.
Hlaupararnir
móta starfið
SKOKKHÓPUR
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Stórborg Annie Mist mun spóka sig í stóra eplinu, New York , um helgina með vinkonum sínum.