Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 BAKSVIÐ Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Um þessar mundir situr að störfum nefnd, skipuð af velferðarráðherra í mars síðastliðnum, sem á að koma með tillögur að úrbótum um réttar- stöðu transfólks á Íslandi en sem stendur fjalla engin íslensk lög né reglugerðir um réttindi og skyldur transfólks, um kynleiðréttingarferlið né heldur þann mikilvæga hluta þess að skipta um nafn og kyn í þjóðskrá. Þess í stað hafa eldri lög verið túlk- uð til að mæta þörfum þessa hóps, t.d. ákváðu stjórnvöld árið 2007, í kjölfar þess að kvörtun barst til um- boðsmanns Alþingis, að á grundvelli mannanafnalaga nr. 45/1996 mætti breyta nafni og kyni einstaklings í þjóðskrá ef hann hefði gengist undir hormónameðferð í eitt ár. Í svari frá landlækni við fyrirspurn umboðs- manns í sama máli kemur fram að lagagrundvöll kynleiðréttingarað- gerða megi finna í 1. gr. laga nr. 16/ 1938 um afkynjun, þegar „kynkirtlar karla eða kvenna eru numdir í burtu eða þeim eytt þannig, að starfsemi þeirra ljúki að fullu.“ Ásættanlegar takmarkanir Anna K. Kristjánsdóttir, sem situr í nefndinni fyrir hönd Trans Íslands, segir störf nefndarinnar hafa gengið vel og vonir standi til að frumvarp um réttindi og skyldur transfólks verði lagt fram á haustþingi. „Við erum algjörlega háð viðhorfi stjórnvalda og velvilja í dag. Það eina sem hægt er að segja er að sem betur fer þá er það svo að fólkið í kerfinu er okkur hliðhollt,“ segir Anna. „Það er ekki til orð á blaði,“ bætir hún við. Þrennt þurfi að gerast: Fjalla þurfi um réttindi og skyldur transfólks í lögum, setja reglur um kynleiðréttingarferlið og tryggja réttinn til að fá nafni og kyni breytt í þjóðskrá. Sá réttur þurfi einnig að ná til þeirra sem ekki vilja eða geta gengist undir kynleiðrétt- ingaraðgerðina, svo og þeirra sem eru „intersex“, þ.e. lifa á milli kynja. „Það er alveg ljóst að það þarf að vera til einhvers konar kerfi. Þetta tekur tíma hjá hverjum og einum, það er óhjákvæmilegt, en það þarf samt sem áður að vera innan ásætt- anlegs ramma,“ segir Anna, t.d. séu reglur hvað varðar formlega nafna- og kynbreytingu mun frjálslegri víða í Vestur-Evrópu heldur en á Norð- urlöndunum. Að auki þurfi fólk að geta skotið málum sínum til áfrýjunnaryfirvalds finnist því brotið á sér í ferlinu. Anna vill ekki fara frekar út í efnisleg at- riði frumvarpsins sem nefndin vinn- ur að en segir að nái hugmyndir nefndarinnar fram að ganga ættu þessir hlutir að verða komnir í fastar skorður næsta vor, þ.e. fái þær hljómgrunn á þingi. Óttar Guðmundsson geðlæknir situr einnig í nefnd velferðarráð- herra og er sá sem hefur hvað mest látið sig málefni transfólks varða inn- an heilbrigðiskerfisins. Hann situr einnig í nefnd landlæknisembættis- ins sem á að fjalla um mál þeirra ein- staklinga sem eru í ferlinu en hún hefur ekki hist formlega í nokkurn tíma. Sitja beggja vegna borðsins „Það er unnið að því að endur- skipuleggja nefndina,“ segir Óttar, „en vandamálið er að lagaleg staða hennar er engin og formlegt vald hennar ekkert,“ segir hann. Í raun sé um að ræða vinnuhóp sem vinnur samkvæmt leiðbeiningum stofnunar sem nú heitir WPATH og fjallar um greiningu og meðferð kynsemdar- raskana. Sömu viðmið séu notuð á Norðurlöndunum og á Óttar í góðu samstarfi við kollega sína í Svíþjóð. Hann er ánægður með ferlið eins og það er en fagnar því að unnið sé að því að koma ferlinu í fastari skorður. „Það sem ég myndi vilja sjá gerast er að það yrðu tveir aðilar sem kæmu að þessum málum, annars vegar þeir sem greindu viðkomandi og hefðu til meðferðar og hins vegar þeir sem gæfu grænt ljós á ferlið. Hérna eru sömu aðilar beggja vegna borðsins en það er auðvitað að hluta til vegna þess hve við erum fámenn,“ segir hann. Kynleiðrétting lagalegur transdans  Engin íslensk lög né reglugerðir gilda um réttindi og skyldur transfólks, kynleiðréttingarferlið né rétt þess til breytinga á nafni og kyni í þjóðskrá  Úrræðalaus sé þeim neitað um hormónameðferð eða aðgerð „Ferlið“ – kynleiðrétting transfólks KK í KVK Transkona: Einstaklingur fæðist í karlmannslíkama en upplifir sig sem konu. KVK í KK Transmaður: Einstaklingur fæðist í kvenmannslíkama en upplifir sig sem karl. Algengt er að transfólk byrji á að tala við sálfræðing, ekki síst til að hjálpa sér að sættast við hlutskipti sitt. Það er þó ekki nauðsynlegur hluti af ferlinu. Einstaklingur hittir geðlækni sem hefur umsjón með meðhöndlun transfólks og óskar þess að hefja ferlið. (Sumir eru þegar farnir að lifa í „nýja“ kynhlutverkinu.) Framhaldið er ákveðið í samstarfi við geðlækninn, sem hittir viðkomandi reglulega í gegnum allt ferlið. Fyrsta skrefið í ferlinu er að byrja að lifa daglegu lífi í „nýja“ kynhlutverkinu. Þ.á m. að taka upp nýtt nafn, annan klæðaburð, vera í vinnu eða námi o.s.frv. Byrjar að lifa daglegu lífi sem kona. Byrjar að lifa daglegu lífi sem karl. Flestar transkonur láta eyða skeggi (og jafnvel líkamshárum) með rafeyðingu eða leysigeisla. Það getur tekið nokkur ár. Oft eru brjóst fjarlægð snemma í ferlinu. Viðkomandi tekur nokkur sálfræði-, persónuleika- og greindarpróf til að útiloka geðraskanir eða -kvilla sem gætu haft áhrif á dómgreind og ákvarðanatöku. Með samþykki geðlæknis getur transmanneskjan hafið hormónameðferð, og fer þá til innkirtlalæknis sem hefur umsjón með kynhormónagjöf. Eftir eitt ár á hormónum (og tvö ár í ferlinu) er hægt að sækja um nafn- og kynbreytingu í þjóðskrá. Fram að því hefur viðkomandi þurft að nota skilríki, greiðslukort, vegabréf o.s.frv. með gamla nafninu, sem hefur oft óþægindi í för með sér. Umsókn um nafnskipti er háð samþykki geðlæknis og landlæknis. Á sama tíma, sé ekkert annað sem kemur í veg fyrir það, getur geðlæknir skrifað meðmælabréf sem er nauðsynlegt til að fá að fara í kynfæraaðgerðina. Meðmæli tveggja lækna þarf til. Sumt transfólk kýs að fara ekki í þá aðgerð, stundum af heilsufarsástæðum. Eftir aðgerðina breytist hormóna- gjöfin, en heldur áfram alla ævi. Transkonum er ráðlagt að geyma brjóstastækkun þar til 2-3 árum eftir byrjun hormónameðferðar. Lífið heldur áfram … 1 ár 1 ár 1 ár 1 ár Líkamlegar (og stundum andlegar) breytingar gera smám saman vart við sig vegna hormónameðferðar. Tölfræði » Anna segir að eitt sinn hafi verið talað um að hlutfall transsexúalfólks, þeirra sem klára ferlið með aðgerð, væri 1 á móti 30 þúsund. Nýlegar töl- ur frá Hollandi sýni hins vegar að fjöldi þeirra sé nær því að vera 1 á móti 7.500. » Í Svíþjóð gangast árlega í kringum 60 einstaklingar undir kynleiðréttingaraðgerð. Anna K. Kristjánsdóttir Transfólk Það er erfitt að takast á við það andlega að fæðast í röngum líkama og eins gott að leggja vel skóaður í þá torsóttu vegferð að leiðrétta mistökin. A-nefnd stjórnlagaráðs, sem fjallaði m.a. um mannréttindakafla nýrrar stjórnarskrár, varð ekki á eitt sátt um að taka sérstaklega til réttinda transfólks í 6. gr. sem fjallar um jafnræði, með því að setja orðið kynvitund í upptaln- ingu greinarinnar. Breytingartillaga Silju Báru Óm- arsdóttur um að bæta orðinu inn, sem borin var undir atkvæði á 17. ráðsfundi, var felld með 11 at- kvæðum á móti 10 en 3 sátu hjá. Ástrós Gunnlaugsdóttir, sem var einn flytjenda tillögunnar, var for- fölluð á fundinum, og því afar mjótt á munum. „Það hefði haft geysilega þýð- ingu hefði þetta komist inn,“ segir Anna K. Kristjánsdóttir. „En að þetta skuli ekki hafa komist inn verður til þess að maður fer strax að hugsa: hvernig er hægt að breyta þessari stjórnarskrá?“ „Kynvitund“ fékk ekki inni STJÓRNLAGARÁÐ Í haust munu nokkrir einstak- lingar gangast undir kynleiðrétt- ingaraðgerð á Landspítalanum en þær verða gerðar af sænskum lækni, Gunnari Kratz, sem einnig framkvæmdi þær fjórar aðgerðir sem gerðar voru á Íslandi í fyrra. Kratz er eini sérfræðingurinn á Norðurlöndunum sem fram- kvæmir svokallaða clitorplasty á konum sem vilja verða karlar, þ.e. breytir snípnum í getnaðarlim. Enn liggur ekki ljóst fyrir hver mun greiða kostnaðinn við að- gerðirnar en Óttar segir hann mjög hóflegan og mun minni en margur haldi. Enn fremur hafi þeir rangt fyrir sér sem tala um að margir hafi farið í aðgerð í fyrra, þvert á móti hefði eðlilegur fjöldi verið tuttugu aðgerðir síð- ustu tíu ár, sé miðað við töl- fræði frá Sví- þjóð, þar sem sextíu ein- staklingar gangast undir kynleiðrétting- araðgerð ár hvert. „Þetta er uppsafnað,“ segir Óttar, „einn fór í aðgerð í kringum 2001, annar 2009 og síðan fjórir 2010, þannig að þetta er mjög eðileg tíðni.“ Óttar segir að auk hans hafi Jens Kjartansson lýtalæknir og Arna Guðmundsdóttir innkirtla- sérfræðingur komið að málum þeirra einstaklinga sem fara í að- gerð í haust en með þeim í nefnd landlæknisembættisins sitja Arn- ar Hauksson og Jens Guðmunds- son kvensjúkdómalæknar. Kostnaðarsamt ferli Einn viðmælandi, sem er á leið í aðgerð áætlaði lauslega að lág- markskostnaður einstaklings við kynleiðréttingarferlið væri tæp ein og hálf milljón en þá er ekki meðtalinn kostnaður við horm- ónalyf, sem viðkomandi mun taka alla sína ævi, né heldur aðgerðina sjálfa, sem hann vonar að verði greiddur af ríkinu. Sem dæmi um kostnaðarliði má nefna tíma hjá sálfræðingi, geð- lækni og hormónalækni, geisla- og rafmagnsháreyðingu, horm- ónalyf, lýtaaðgerðir og ný skilríki. Enn óljóst hver borgar  Nokkrir á leið í kynleiðréttingaraðgerð í haust  Sænskur sérfræðingur framkvæmir aðgerðirnar Óttar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.