Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 www.gtyrfingsson.is - S. 568 1410 / 482 1210 - gt@gtbus.is Grænir og góðir síðan 1969 Yfir 800 þriggja punkta öryggisbelti! Sérpantaðu rútur með þriggja punkta öryggisbeltum Sérpantaðu 4x4 fjallarútur Sérpantaðu lúxusrútur • • • Nýjar lúxusrútur Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Eftirspurnin er töluvert mikið meiri en fram- boðið. Það koma íbúðir á skrá hjá okkur sem eru jafnvel farnar samdægurs. Leigusalar virðast sumir nýta sér eftirspurnina og leigu- verð hækkar í takt við það,“ segir Herdís Brynjarsdóttir, starfsmaður hjá leigumiðlun- inni Leigulistanum, aðspurð um stöðu leigu- markaðarins á höfuðborgarsvæðinu. „Viðmiðunarverð fyrir fjögurra herbergja íbúð á fyrstu þremur mánuðum ársins var 1.362 krónur á fermetra. Er þá miðað við 104 fermetra íbúð. Síðan hefur eftirspurnin aukist. Sé listinn yfir framboðið skoðaður í dag er lægsta verðið á höfuðborgarsvæðinu fyrir fjög- urra herbergja íbúð 130.000 krónur fyrir 95 fermetra íbúð. Annað dæmi er að 86 fermetra íbúð í Kópavogi er á 150.000 krónur, sem er langt í frá hæsta leiguverðið, en það er þá kom- ið í 1.744 kr. á fermetra. Þriðja dæmið er 70 fermetra íbúð í Hlíðahverfinu í Reykjavík, en leigan er 150.000 krónur, eða ríflega 2.000 kr. á hvern fermetra. Leiguverðið í dag er það hæsta sem ég hef séð.“ Leiga og húsnæðislán – Er þetta því ný staða á leigumarkaðnum á Íslandi? „Já. Leigan virðist komin langt yfir afborg- anir húsnæðislána. Þetta tvennt virðist því oft ekki í samhengi.“ – Þannig að þeir sem eru að leigja út eru að maka krókinn? „Já, jafnvel. Ég veit dæmi þess að fjögurra herbergja, um það bil 80 fermetra íbúð, í 101 Reykjavík, sé boðin á 180.000 krónur. Í sama borgarhluta vill fólk fá upp undir 75.000 krónur á mánuði fyrir 20 fermetra stúdíóíbúð. Fer- metraverðið er komið upp undir 3.000 krónur á stúdíóíbúðum og tveggja herbergja íbúðum í sumum tilfellum. Margir vilja þó vera sann- gjarnir um verð og hafa þannig meira val um góða leigjendur og losna um leið við slit á íbúð- um vegna leigjendaveltu.“ Herdís segir leiguna mörgum þungur baggi. „Margir eiga í ströggli vegna hækkandi leigu- verðs. Fólk hringir til okkar áður en það skráir sig sem áskrifendur og spyr um stærð og stað- setningu á húsnæði í boði. Það verður ítrekað fyrir vonbrigðum þegar það heyrir tölurnar og kemst að því að þær eru ekki í þeirra verð- flokki. Það er mjög erfitt fyrir einstaklinga að leigja nema þeir taki sig saman. Það er oft varla fyrir leigjendur að leigja einir og sér,“ segir Herdís Brynjarsdóttir. Leigan hækkar og hækkar  Húsaleiga á fjögurra herbergja íbúðum farin að nálgast 200.000 kr. á mánuði í vissum hverfum  Á undanhaldi að einstaklingar geti leigt íbúð á eigin spýtur  Fermetraverð nálgast jafnvel 3.000 kr. Morgunblaðið/Ómar Dýrt Reykjavík séð frá Hallgrímskirkjuturni. Dæmi eru um að leiga á fjögurra herbergja íbúð- um í póstnúmerinu 101 nálgist orðið 200.000 krónur á mánuði. Á sama tíma er lítið byggt. „Við erum með rúmar 800 leigueiningar. Úthlutuninni er að ljúka. Þegar henni er lok- ið verða á milli 500 og 600 umsækjendur á biðlista. Staðan var mjög slæm þegar góð- ærið stóð sem hæst. Biðlistar styttust eftir bankahrun en eru nú aftur farnir að lengj- ast. Við vitum að margir eiga í vandræðum og ljóst er að námsmenn ráða illa við háa húsaleigu á almennum markaði á höfuð- borgarsvæðinu,“ segir Rebekka Sigurðar- dóttir, upplýsingafulltrúi hjá Félagsstofnun stúdenta. Guðmundur Magnússon, formaður Ör- yrkjabandalags Íslands, segir stöðuna auka enn á ærinn vanda öryrkja. „Mörgum geng- ur mjög illa að ráða við leiguna. Hún hækk- ar og hækkar en ráðstöfunartekjur standa í stað. Ég hef ekki horft fram á svona erfiðan leigumarkað. Þetta versnar með hverri viku.“ Friðrik Á. Ólafsson, formaður meist- aradeildar hjá Samtökum iðnaðarins, segir skort á nýjum og smærri íbúðum á mark- aðnum. Framkvæmdastoppið dragist á langinn og stefni í að hafa þau þensluáhrif að leiða til verðhækkunar þegar nýtt og dýrara húsnæði kemur á markað. Að- spurður hvort leggja þurfi áherslu á að byggja ódýrara húsnæði svarar Friðrik því til að íburður síðustu ára sé undantekning frá hefðinni. Leiguverð of hátt NÁMSMENN OG ÖRYRKJAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.