Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 25
Morgunblaðið/Sigurgeir S. Grímsvötnum í lok maí á þessu ári. Myndin er tekin á bænum Fossi á Síðu. Rólegur Bæði menn og ferfætlingar taka þeim erfiðleikum, sem fylgdu eldgosinu, af yfirvegun. Aska Enn má sjá talsvert af ösku við og í nágrenni Islandia Hotel Núpar í Fljótshverfi. FRÉTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 „Sumarið hefur verið æði gott. Það var bara svo þurrt á tímabili og spratt hægt. Síðan fór að rigna aft- ur og þá tók það við sér. Við höfum verið að heyja og fórum í það að slá allt,“ segir Bjarni Kristófersson, bóndi á Fossi II á Síðu. Aðspurður segir hann að askan frá eldgosinu í Grímsvötnum sé auðvitað í heyinu og þyrlist upp þegar verið sé að vinna það en þó ekki mjög mikið. Hann segir að það eigi síðan eftir að koma í ljós hvernig heyið leggist í skepnurnar í ljósi öskunnar. „En ef þetta er þurrkað dálítið eru líkur á að þær éti það betur. Allavega var það reynslan hjá þeim í fyrra undir fjöllunum,“ og vísar þar til reynslu þeirra bænda sem urðu mest fyrir barðinu á öskunni þegar eldgos átti sér stað í Eyjafjallajökli á síðasta ári. Bjarni segir að askan hafi meðal annars haft þær afleiðingar að heyfengurinn sé mun minni en síðustu ár. „Þetta er um helmingi minna sem kemur af þessu núna. Heyfeng- urinn er mikið minni,“ segir hann. Aðspurður hvort hann hafi þurft að kaupa hey annars staðar frá vegna minni uppskeru segir hann að það hafi ekki reynt á það enn. Það eigi eftir að koma í ljós þegar lokið hefur verið við að slá og heyja. Varðandi næsta ár segir Bjarni að það verði bara að ráðast hvernig það verði. Óvíst hvernig skepnurnar taka heyinu BJARNI KRISTÓFERSSON „Við erum eiginlega ekkert farin að heyja sjálf. Við tókum níu hektara í sumar en við þurfum að kaupa megnið af okkar heyi,“ segir Björn Helgi Snorrason, bóndi og húsa- smíðameistari á Kálfafelli í Fljótshverfi, en þar urðu einna mestar búsifjar vegna eldgoss- ins í Grímsvötnum sem stóð yfir í lok maí á þessu ári. „Það er rétt síðustu tvær þrjár vikur sem smágresi hefur verið að brjótast upp úr öskunni,“ segir hann. Björn segir aðspurður að hliðstæða sögu sé að segja af bæjum í nágrenninu. Þar þurfi menn víðast hvar að treysta á aðkeypt hey þar sem eigin tún gefa ekki af sér eins og fyrri ár vegna gossins. Hins vegar sé reynt að undirbúa næsta ár eins og mögulegt sé í von um að heyfengur þá verði með svipuðu móti og verið hafi undanfarin ár. „Það er búið að endurrækta hérna að minnsta kosti tuttugu hektara. Svo er féð búið að vera að trampa niður öskuna í tún- unum í sumar þannig að maður gerir sér vonir um að þetta jafni sig að mestu,“ seg- ir Björn aðspurður um næsta ár. Hann segir að á hinn bóginn hafi ekki verið hægt að reka fé á heimalöndin þar sem hann beiti þeim á sumrin fyrr en fyrir fáeinum dögum vegna þeirra afleiðinga sem gosið hafði á þau. Borinn hafi verið áburður á beitarlöndin í sumar sem Land- græðsla ríkisins hafi útvegað. Aðspurður um aðkomu Bjargráðasjóðs að heykaupum bænda segir Björn það allt vera í ferli. Það væri hins vegar ekki alveg ljóst hvort sjóðurinn bætti allt það sem bændurnir keyptu. Þá væri heldur ekki ljóst hvort tekið yrði tillit til kostnaðar- hækkana frá því í gosinu á síðasta ári í Eyjafjallajökli. Honum skildist að það væri í skoðun. Þarf að kaupa megnið af heyinu BJÖRN HELGI SNORRASON „Sumarið hefur verið mjög gott hjá okkur. Það hefur eiginlega ekkert verið um afbókanir hjá okkur og bara gengið mjög vel,“ segir Sigríður Ágústa Guðmunds- dóttir, umsjónarmaður Islandia Hotel Núpar. Hún segir að gosið og leifar þess séu ákveðin upp- lifun fyrir þá ferðamenn sem koma á svæðið. „Þeir hafa verið að safna ösku hérna fyrir utan og spyrja mikið um gosið. Við eru einnig með myndir af gosinu til sýnis og upplýsingar um það,“ segir hún. Það hafi hins vegar vissulega verið talsvert erfitt þegar gosið stóð yfir og mikil vinna í þrif hafi fylgt í kjölfarið og lagfæring á umhverfi hótelsins. Askan berist enn inn á hótelið meðal ann- ars með ferðamönnum sem ganga í grasinu í nágrenni þess. En þegar frá líði verði þetta fyrst og fremst áhugaverður atburður ekki síst fyrir ferðamenn. Inni á hótelinu má meðal annars berja augum stækkaðar myndir af eldgosinu þar sem til að mynda er sýnt hvernig gosmökk- urinn frá fjallinu hafi smám saman aukist og hvernig allt hafi að lokum orðið grátt af ösku þannig að ekki sást handa skil. Þá er boðið upp á póstkort með myndum tengdum gosinu auk þess sem skoða má margmiðlunarefni á tölvu um það sem gestir hótelsins geta kynnt sér. Víða í kringum hótelið má enn sjá ösku í nokkru magni, meðal annars upp við húsið. Lagðar hafa verið nýjar grasþökur í kringum hótelið þar sem aska þakti þann gróður sem fyrir var en annars staðar má sjá grasið gægj- ast upp úr öskunni. Vinsælt hjá ferðafólki að safna ösku SIGRÍÐUR ÁGÚSTA GUÐMUNDSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.