Morgunblaðið - 13.08.2011, Side 27

Morgunblaðið - 13.08.2011, Side 27
FRÉTTIR 27Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Breskir lögreglumenn eru afar ósáttir við að stjórnmálamenn eigni sér heiðurinn af því að hafa stöðvað óeirðirnar í borgum landsins með harðari aðgerðum og segja gagnrýni á störf sín ómaklega. Sir Hugh Orde, formaður félags lögreglustjóra, sagði í gær að lögreglan hefði getað breytt um aðferðir vegna þess að fjölmargir liðsmenn hefðu verið kall- aðir til starfa úr sumarleyfi. Theresa May innanríkisráðherra segist hins vegar sjálf hafa gefið lögreglunni skipun um „öflugri aðgerðir“. Orde sagði að menn yrðu nú að ræða hreinskilnislega hvaða afleið- ingar það myndi hafa ef ríkisstjórn Davids Camerons forsætisráðherra héldi fast við áform sín um að lækka framlög til lögreglunnar um 20%. Cameron gagnrýndi í þingumræð- um á fimmtudag lögregluna fyrir að hafa ekki beitt nógu öflugu liði til að kæfa strax óeirðirnar. „Fyrst í stað brást lögreglan við eins og um væri að ræða verkefni við að hindra óspektir á almannafæri fremur en það sem þetta var í reynd: glæpir,“ sagði ráðherrann. Starfandi yfir- maður Lundúnalögreglunnar, Tim Goodwin, viðurkenndi að mistök hefðu verið gerð, ef lögreglumenn hefðu getað horft inn í framtíðina myndu þeir „að sjálfsögðu hafa gert hlutina með dálítið öðrum hætti“. Ljóst er að brotamennirnir voru af mörgu tagi. Að sögn Guardian sáu foreldrar 18 ára stúlku hana í beinni sjónvarpsútsendingu í Enfield þar sem hún braut rúðu í verslun með grjótkasti og fagnaði ákaft. Foreldr- arnir létu lögregluna vita og var stúlkan handtekin. Hún hreppti ný- lega þann heiður að vera ásamt hópi annarra unglinga gerð sérstakur sendiherra ólympíuleikanna sem halda á í London næsta sumar. Ósáttir við Cameron  Yfirmenn bresku lögreglunnar segjast hafa gripið til harkalegri aðgerða gegn óeirðaseggjunum og ekki þurft leiðsögn pólitíkusa til að ná tökum á ástandinu Myndir af grunuðum » Breska lögreglan mun um helgina láta sendibíl með sex fermetra skjá aka um götur Birmingham og birta þannig yfir 50 andlitsmyndir af meintum óeirðaseggjum í von um að fólk beri kennsl á þá. » Yfir 1.700 manns hafa ver- ið handtekin og rúmlega 500 ákærð fyrir innbrot og skemmdarverk síðustu daga. Dómstólar landsins hafa starfað allan sólarhringinn og þegar hafa nokkrir verið fundnir sekir og fangelsaðir. Reuters Á verði Cameron ásamt lögreglu- manni við Downingstræti 10 í gær. Þjóðverjar minnast þess í dag að 50 ár eru liðin síðan kommúnistar í Austur-Þýskalandi hófu að reisa Berlínarmúrinn sem klauf síðan borgina í nær þrjá áratugi, hér sést skreyting á vesturhliðinni: Trabant brýst í gegn. Múrað var upp í glugga sem sneru að vestrinu en þrjár og hálf milljón manna hafði þegar flúið vestur yfir þegar múr- inn var reistur. Ráðamenn í Austur- Berlín sögðu að múrinn væri vörn gegn „fasistaöflum“ í vestri en öll- um var ljóst að mannvirkinu var að- eins ætlað að hindra að komm- únistaríkið tæmdist af fólki. Næstu áratugina reyndu um 5.000 manns að flýja og beittu oft ótrúlegri hugkvæmni í þeim til- raunum. Um 150 manns létu lífið enda var vörðum skipað að skjóta ef þeir yrðu varir við flóttamenn. Reuters Fyrir 50 árum læstu ráðamenn austur-þýskra kommúnista öllum dyrum í fangelsinu Hálf öld frá byggingu múrsins Sádi-Arabar framleiða nú um 10% af allri olíu sem notuð er í heiminum og eru stærstir í útflutn- ingi á olíu. En blikur eru á lofti ef marka má skýrslu fjárfest- ingabankans Jadwa í Sádi-Arabíu. Um 80% Sádi-Araba vinna hjá ríkinu, spilling er mikil og opinber útgjöld aukast um 13% árlega. Íbú- unum fjölgar hratt og olíunotkun innanlands er mikil, enda er hún niðurgreidd, fáir sjá nokkra þörf á að fara sparlega með hana. Reistar eru stöðvar sem vinna vatn úr sjó og nota til þess olíu, vatnið er m.a. notað til að vökva grasbletti á svæðum þar sem sumarhitinn getur farið í 50 gráður á Celsíus. Jadwa segir að með sama áframhaldi muni þjóðin nota alla olíuna til innan- landsþarfa árið 2027. Ætt Abdullah konungs, alls nokk- ur þúsund manns, hefur áratugum saman keypt sér þokkalegan, póli- tískan frið með olíugróðanum og þaggað niður í óánægjuröddum. En ekki mikið lengur, ef marka má Jadwa. kjon@mbl.is Senn mun fjara undan olíugróða Sádi-Araba Abdullah konungur Bandarískir vísindamenn hafa búið til rafræna örflögu sem er þynnri en mannshár, loðir við hörund fólks og getur svignað og tognað eins og húðin, segir í Financial Times. Talið er að flagan, sem hlaðin er smárum og nemum ásamt sendi- og móttökubúnaði, verði í fyrstu eink- um notuð til að mæla starfsemi hjarta og heila, en síðar verði hún notuð sem allsherjar tölvuviðmót fyrir líkamann. Fólk með tauga- sjúkdóm geti t.d. notað hana til að miðla hugsun beint í tölvu. Þeir sem þurfa að notast við raf- eindatæki af þessu tagi þurfa ekki lengur að burðast með leiðslur og teip sem venjulega þarf á slík tæki. Flagan þarf yfirleitt enga rafhlöðu, hún fær næga orku þegar notand- inn hreyfir sig, einnig er hægt að búa hana örsmáum sólarrafhlöðum. kjon@mbl.is Örflaga sem lagar sig að húðinni Fjöldi Sómala reynir enn að komast til grannríkjanna vegna átakanna í landinu og hungursneyðar af völdum þurrka sem herja nú á svæðinu sem nefnt er Afríkuhornið. Sameinuðu þjóðirnar hafa farið fram á 500 millj- ónir dollara til að aðstoða flóttafólkið en aðeins fengið um helming fjár- hæðarinnar. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fimmtudag að ríkið myndi veita 17 milljónir doll- ara aukalega til baráttu gegn hung- ursneyð á Afríkuhorninu, þar af fengju Sómalar 12 milljónir. Birgðir sem nú eru til af mat munu verða búnar í september ef ekki verður út- vegað meira, að sögn Aftenposten. Alls ógnar nú hungurdauðinn um 12 milljónum manna á svæðinu, þar af 3,6 milljónum í Sómalíu. Ísl- amistasamtökin al-Shabab, sem berjast gegn stjórn Sómalíu, beita almenning hótunum til að klófesta húsdýr og korn. Einnig óttast fólkið að samtökin ræni börnum, alveg nið- ur í átta ára aldur, og geri þau að hermönnum. Mannréttindasamtökin Amnesty International segja mörg dæmi um slíkt athæfi. kjon@mbl.is 200 km 554.585 19,110 146,600 Hættustig vegna hungurs og átaka júlí-ágúst 2011: 1 2 3 4 5 Engin hætta eða mjög lítil Hrun eða hungursneyð Svæði sem fá litla hjálp Nokkur hætta Veruleg hætta Bráðavandi Áætl. fjöldi fólks sem þarf aðstoð Fjöldi flóttamanna Heimildir: ReliefWeb, OCHA Hungursneyðin í Sómalíu Djíbútí-borg Mogadishu Flóttamanna- búðir og skráðir íbúar Dadaab 400.579 Dollo Ado 118.271 Spáð hungursneyð ágúst-desember 3,7 millj. KENÍA Nairobi Addis- Ababa DJÍBÚTÍ 4,6 millj. 238.423 EÞÍÓPÍA SÓMALÍA 3,2 millj. (4) (3) Áætluð þörf fyrir peningahjálp (í dollurum) Djíbútí Eþíópía Sómalía Kenía 33 246 398 1.063 Óskir um hjálp: 2,48 milljarðar dollara 741 Veitt: 52% Veitt aðstoð: 48% 9% 39% 47% 52% (V. flóttafólks) (Júl-des) 1,19 milljarðar SÞ biðja um aukna aðstoð Kristján Jónsson kjon@mbl.is Sveiflurnar á fjármálamörkuðum hafa verið geysimiklar síðustu daga og vikur. Þegar óvissan og hræðslan er mikil þarf lítið til að koma af stað kvitti sem getur síðan kostað fyr- irtæki og einstaklinga tugi eða hundruð milljarða króna á örskots- stundu þegar hlutabréf hríðfalla. Aftenposten í Noregi segir að grein í breska götublaðinu Mail on Sunday á sunnudag hafi næstum því komið franska risabankanum So- ciété Générale á kné en götublaðið sagði að hann væri að fara á hausinn. Hlutabréf hans féllu um liðlega 20% á miðvikudag og nær 700 milljarðar ísl. króna gufuðu upp, eigendum bankans til skelfingar. Frönsk blöð segja að grein götu- blaðsins (sem það hefur nú beðist af- sökunar á) hafi byggst á skáldsögu er birtist sem framhaldssaga í 12 köflum í blaðinu Le Monde. Þar er söguhetjan bandarískur blaðamaður sem sendur er til Evrópu til að kynna sér stöðu efnahagsmálanna. Hann kemst að því að Société Générale sé að fara á hausinn og einnig sé ítalska bankanum Uni- Credit ógnað. Í texta sögunnar eru margar vís- bendingar um að ekki sé um veru- leikann að ræða heldur uppspuna, nöfnum breytt og fleira í þeim dúr. Blaðamenn Mail on Sunday segjast ekki hafa stuðst við skáldsöguna, ekki einu sinni séð hana en mörg lykilatriði í henni koma heim og saman við „fréttina“. Það sem hefur gert grein Mail on Sunday trúverðuga er að Société Générale hafði nýlega skýrt frá miklu tapi á öðrum ársfjórðungi vegna vandans í Grikklandi. Franska stjórnin skýrði á miðviku- dag frá því að hún myndi halda bráðafund um fjármálaókyrrðina og varð þetta til að ýta undir sögusagn- ir um að stjórnin væri að undirbúa björgunaraðgerð fyrir bankann. Byggðist „frétt- in“ á skáldsögu?  Franskur banki nær hruninn Kvittur Getur það verið satt að ...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.