Morgunblaðið - 13.08.2011, Síða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011
✝ Geirlaug Gunn-fríður Filipp-
usdóttir fæddist á
Seyðisfirði 3. júlí
1943. Hún lést á
heimili sínu, Kaup-
vangi 43, Egils-
stöðum, 6. ágúst
2011.
Hún var dóttir
hjónanna Filippusar
Sigurðssonar, f.
16.11. 1912, d. 17.11.
2002, og Ólínu Jónsdóttur, f. 6.6.
1914, d. 21.3. 1995. Geirlaug var
önnur í röð sjö systkina. Þau eru
Sigurður, f. 1942. Hans maki er
Soffía Ívarsdóttir, f. 1950 . Eiga
þau 9 börn. Andrés, f. 1945. Maki
Þóra Ívarsdóttir, f. 1947. Þau eiga
fjögur börn. Þau slitu samvistum.
Magnús, f. 1950. Stefán, f. 1950.
Sunneva, f. 1953. Hennar maki er
Torfi Matthíasson.
Þau eiga tvær dæt-
ur. Ragnhildur, f.
1956. Sambýlis-
maður hennar var
Sigtryggur Gíslason
og eiga þau fjögur
börn. Þau slitu sam-
vistum. Maki er
Kristján Helgason.
Geirlaug fæddist
á Dvergasteini í
Seyðisfirði. Hún bjó
hjá foreldrum sínum til ársins
1975 en þá fluttist hún til Reykja-
víkur. Á þeim tíma er hún bjó í
Reykjavík starfaði hún í Bjark-
arási og Lækjarási. Árið 1985
flytur hún á Egilsstaði og vann
lengst af á Stólpa.
Útför Geirlaugar fer fram frá
Seyðisfjarkirkju í dag,13. ágúst
2011, og hefst athöfnin kl. 14.
Það er ekki auðvelt eftir daga í
móki, dofa og tárum að ná utan
um hugsanir mínar og skrifa þér
nokkur fátækleg kveðjuorð, elsku
Geira frænka mín. Nú er dagur að
kveldi kominn og ber að þakka
fyrir allt þótt ótímabært sé.
Nú set ég Ellý Vilhjálms, sem
þú elskaðir, í tækið, kveiki á kerti
og minnist góðu stundanna.
Þú varst stöðugur punktur í lífi
okkar systkina. Í gegnum tíðina
hefur þú hringt reglulega í okkur
og spjallað, talað við alla og borið
umhyggju fyrir öllum sem tengj-
ast okkar fjölskyldu. Þú hefur
fylgst með okkur stíga fyrstu
skrefin í lífinu. Þótt ung sé hef ég
fáa þekkt sem hafa stutt við sína
fjölskyldu jafnmikið og þú hefur.
Fram á seinasta dag varstu með
það á hreinu ef nýr lítill frændi
eða frænka kom í heiminn. Þú
varst Geira frænka mín og því
hlutverki sinntir þú vel.
Þegar komið var við hjá Geiru í
fjölskylduferðalögum var alltaf ís
á boðstólum, þú vissir hvað mér
fannst ís góður, svo fékk ég nóg af
knúsum og kossum frá þér og allt-
af varstu jafnglöð að sjá okkur
fjölskylduna. Þessar stundir eru
ofarlega þessa dagana, mikið á ég
eftir að sakna þess að sjá þig,
heyra röddina þína og tala við þig,
orð eru máttlaus þegar kemur að
því.
Mér er húmorinn þinn minn-
isstæður, alltaf að grínast og
hlæja, góðleg stríðni sem gladdi
og setti yndislegt prakkarabros á
andlit þitt.
Eitt grínið var það að þegar þú
hringdir í Rænku systur þína þá
var svo oft á tali; „hún talar svo
mikið þessi systir mín“, sagðirðu
þá og flissaðir. Þú gast gert erf-
iðar stundir svo léttar og skopleg-
ar. Nokkru eftir að foreldrar mín-
ir skildu hittir þú pabba á
Seyðisfirði og óskaðir honum til
hamingju með skilnaðinn, og þú
meintir það af öllu þínu hjarta.
Það eru jákvæðar hliðar á öllu
elsku frænka, og þú sást þær allt-
af og gafst okkur bros.
Þú kenndir mér svo mikið, þín
vegna er ég ekki fordómafull, þín
vegna vil ég fræða annað fólk um
gleðina sem fylgir því að þekkja
manneskju eins og þig, sem hefur
þitt einstaka hjartalag.
Ég mun berjast fyrir málstað
þínum.
Hvert sem þú fórst og hvað
sem þú gerðir fylgdi þér ljós,
hlýja og útgeislun sem engin orð
fá lýst.
Lífið verður skrítið án þín, eng-
in símtöl, engin Geira á Egilsstöð-
um.
Ég mun halda minningu þinni
á lífi og börnin mín munu svo
sannarlega fá að vita hver Geira
frænka þeirra var og munu heyra
allt um yndislegu manneskjuna
sem þú varst. Aldrei mun ég
gleyma þér.
Nú ertu komin til ömmu og afa,
í móðurfaðm og föðurhlýju.
Ég óska þess að svefninn þinn
verði vær og trúi því og treysti að
ég fái að faðma þig aftur, sem ger-
ir sorgina bærilegri.
Minning þín mun lifa í hjörtum
okkar og lýsa upp lífsleið okkar
sem elskuðum þig.
Með söknuð og trega í hjarta
kveð ég þig elsku Geira.
Ef dimmir í lífi mínu um hríð
eru bros þín og hlýja svo blíð
Og hvert sem þú ferð
og hvar sem ég verð
þarf fólk eins og þig
fyrir fólk eins og mig
(Rúnar Júlíusson)
Þín systurdóttir,
Guðborg Björk
Sigtryggsdóttir.
Við Geira vorum skyld, bæði í
föður- og móðurætt hennar. Sjö
ára gamall kom ég með foreldrum
mínum að Dvergasteini í Seyðis-
firði. Þar bar fundum okkar fyrst
saman.
Í huga mér geymi ég skýra
mynd af Geiru sem var nýorðin 15
ára og var að raka saman heyi á
túninu við bæinn. Ég kynntist
henni ekki frekar fyrr en fundum
okkar bar saman fyrir tilstilli
Önnu Guðnýjar systur minnar,
þegar við nær aldarfjórðungi síð-
ar heimsóttum Geiru frænku á
sambýli fatlaðra á Egilsstöðum.
Geira var frændrækin í sinni
barnslegu einlægni. Hún fagnaði
frænda sínum og átti strax í mér
hvert bein. Hún tengdist Tótu
konunni minni og börnunum okk-
ar með sama hætti. Hún var gest-
risin og vildi taka vel á móti gest-
um sínum. Í áranna rás bjó Geira
víða við margbreytileg skilyrði.
Búsetusaga hennar virðist mér
endurspegla stefnur og strauma í
viðhorfum til fatlaðra. Þegar
Geira flutti ein í litla blokkaríbúð í
samræmi við tískuhugmyndir um
að fatlaðir ættu rétt á að búa ein-
ir, þá leið Geiru ekki vel. Í næstu
heimsókn var hún flutt í lítið rað-
hús þar sem hún bjó með annarri
konu. Það átti betur við hana, eins
félagslynd og hún var.
Árla á laugardagsmorgni
hringdi Geira óvænt og spurði
hvort ég ætlaði ekki að sækja sig
á sambýli fatlaðra inni í Voga-
hverfi þar sem hún var stödd.
Hún var að koma í heimsókn, svo
þyrfti hún líka að heimsækja for-
eldra Tótu sem hún hafði hitt á
Egilsstöðum. Hún var að herma
upp á mig nær tveggja ára gamalt
heimboð, sem ég var búinn að
steingleyma. Úr varð viðburða-
ríkur og skemmtilegur dagur.
Góðar minningar frá deginum
með Geiru eru oft rifjaðar upp.
Hún byrjaði á að gefa yngsta syni
okkar, sem þá var á öðru ári,
rauðan bangsa. Bangsinn fékk
nafnið Geiri. Hann varð fylgifisk-
ur og tyggðavinur stráksa alla
barnæskuna. Það var einstök
upplifun að fara þennan dag með
Geiru í heimsóknir og eftirminni-
leg er ferðin austur fyrir fjall þar
sem víða var stoppað. Geira var
ófeimin að tala við fólk sem við
hittum og sagði því að þetta væri
hann Halldór frændi sinn og hún
Tóta. Fyrst brá okkur við op-
inskáa einlægnina, en síðan
reyndum við að laga okkur að
samskiptamáta Geiru, þetta var
jú hennar dagur. Við sem eigum
að teljast með óskerta greind höf-
um byggt innra með okkur
margskonar hömlur í samskipt-
um við ókunnugt fólk. Geira hafði
ekki þörf fyrir hömlur af því tagi.
Nú er Geira fallin frá. Við fáum
ekki lengur að njóta lífsgleði
hennar, skringilegra og skemmti-
legra tilsvara. Geira bjó ekki yfir
þeim gáfum sem þjóðfélagið setur
á háan stall, en hún auðgaði og
setti svip á samfélagið á Egils-
stöðum. Þegar vel er að málum
staðið auðga Geira og félagar
hennar á vernduðum vinnustöð-
um mannlífið. Það dylst engum
sem t.d. heimsækir og skoðar
samfélagið á Sólheimum í Gríms-
nesi, þar eru unnin skapandi verk
sem auðga íslenskt samfélag.
Allar góðu minningarnar um
Geiru eiga eftir að hlýja okkur
Tótu og börnunum um hjartaræt-
ur um ókomin ár. Við þökkum
Geiru frænku minni það sem hún
gaf af sér og vottum samúð okkar
þeim sem hennar sakna, bæði
fjölskyldu hennar og vinum.
Halldór Árnason.
Kæra Geira.
Okkur langar til að senda þér
okkar hinstu kveðu og þakka þér
fyrir allar yndislegu samveru-
stundirnar, umhyggjuna, gjaf-
mildina og kærleikann. Síðast en
ekki síst öll gullkornin frá þér
sem eiga eftir að lifa með okkur
um ókomna tíð.
Minning þín lifir.
Samúðarkveðjur frá öllum.
Fyrir hönd samstarfsfólks
í Stólpa,
Helga Dögg Teitsdóttir.
Geirlaug, ég þakka þér fyrir
hvað þú varst góð við Aldísi. Það
er gaman að hafa kynnst þér. Al-
dísi fannst gaman að búa með þér
á sambýlinu, alltaf gaman að tala
við þig og vera með þér í Bjark-
arási. Guð geymi þig.
Innilegar samúðarkveðjur til
allra ættingja.
Stefán sendill.
Geirlaug Gunnfríð-
ur Filippusdóttir
✝ Hulda Tóm-asdóttir fæddist
á Sauðárkróki 3.
apríl 1942. Hún lést
á heimili sínu 2.
ágúst 2011.
Foreldrar henn-
ar voru Tómas
Björnsson, trésmið-
ur á Sauðárkróki, f.
27. ágúst 1895, d. 3.
október 1950, og Lí-
ney Sigurjónsdóttir
húsmóðir, f. 25. júní 1904, d. 19.
mars 1986. Systkini Huldu eru:
Lovísa, f. 13. júní 1938, og Hauk-
ur, f. 4. júlí 1946. Hinn 31.12.
1969 giftist Hulda eftirlifandi
eiginmanni sínum, Kára Val-
garðssyni húsasmiði, f. 13. júlí
1942. Foreldrar Kára eru Val-
garð Einar Björnsson, f. 30. nóv-
þeirra eru: a) Arna Rún, f. 25.4.
1991, b) Daníel Karl, f. 14.2.
1994, c) Elvar Páll, f. 10.8. 2000.
Sonur Ragnars af fyrra hjóna-
bandi er Elías Þór, f. 13.6. 1983, í
sambúð með Rakel Huld Bald-
ursdóttir, f. 23.10. 1983. Dóttir
þeirra er Ísabella Emma, f. 3.5.
2011. 3) Kári Arnar, f. 19.7. 1983,
í sambúð með Kristínu Ingu
Þrastardóttur, f. 13.10. 1986.
Dóttir þeirra er a) Sara Björk, f.
24.4. 2010. Hulda starfaði allan
sinn starfsferil hjá Pósti og síma,
síðar Íslandspósti, að frátöldum
2-3 árum þegar hún var um tví-
tugt, þar sem hún starfaði hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga og
Verslunarfélagi Skagfirðinga.
Hulda hóf störf hjá Pósti og síma
1.12. 1963 og hætti störfum eftir
46 og hálft ár hjá Íslandspósti
31.5. 2009.
Hulda verður jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 13.
ágúst 2011, athöfnin hefst kl. 14.
ember 1918, d. 15.
október 2000, og
Jakobína Ragnhild-
ur Valdimarsdóttir
f. 2. ágúst 1921.
Hulda og Kári hófu
búskap á Kamba-
stíg 4, Sauðárkróki,
en fluttu síðan á
Smáragrund 21.
Hulda og Kári eiga
þrjú börn: 1) Ragn-
ar Þór, f. 18.6. 1962,
í sambúð með Freyju Jónsdóttur,
f. 19.9. 1965. Börn þeirra eru: a)
Davíð Arnar, f. 20.5. 1989, b)
Agnes Huld, f. 17.6. 1991, í sam-
búð með Haraldi Antoni Har-
aldssyni, f. 12.3. 1985, c) Ágústa
Líney, f. 7.11. 1997. 2) Linda
Dröfn, f. 21.4. 1965, gift Ragnari
Grönvold, f. 14.7. 1959. Börn
Elsku mamma, mikið er skrítið
að hugsa til þess að koma norður
og þú ekki til staðar. Þú varst fyr-
irmynd mín í svo mörgu. Mörg
hafa símtölin verið til að fá ráð-
leggingar varðandi eldamennsku,
bakstur, handavinnu ofl. Þú varst
svo vandvirk með allt sem þú tókst
þér fyrir hendur, hvort sem það
var að sauma, prjóna, hekla eða
heimilið. Ef eitthvað stóð til hjá
okkur þá varst þú mætt suður að
hjálpa okkur. Þú vildir alltaf
hjálpa og ef þú vissir ekki svarið
þá leitaðir þú eftir því. Það var aft-
ur á móti erfiðara að fá að hjálpa
þér, þú vildir ekki láta hafa neitt
fyrir þér.
Í fyrra þá veiktist þú alvarlega
og varst flutt á sjúkrahúsið á Ak-
ureyri og var þér vart hugað líf í
einhverja klukkutíma. Við komum
norður til að vera hjá þér, en þér
fannst algjör óþarfi að við værum
að fara úr vinnu til „hanga yfir
þér“ á Akureyri, þú værir ekkert
veik, við áttum að drífa okkur suð-
ur. Þetta lýsti þér mjög vel. Raggi
minnist enn á að þegar við bjugg-
um í Ísrael 1989 þá sendir þú hon-
um vacumpakkaðan súrmat í
pósti. Þú vissir hvað honum fannst
þetta gott. Mikið var Raggi hissa
þegar pakkinn kom, hann gat ekki
staðist að opna hann um leið og
byrja að borða, við misjafnan
fögnuð viðstaddra, sem fannst
lyktin ekki góð. Við eigum öll eftir
að sakna þín mjög mikið, en ég
veit að nú líður þér betur, því þú
varst veikari en við gerðum okkur
grein fyrir því þú kvartaðir aldrei.
Kveðja
Linda.
Elsku mamma.
Nú er komið að kveðjustund.
Heilsu þinni hafði hrakað mikið
síðustu tvö árin og það var ljóst
hvert stefndi en aldrei grunaði
mig að þetta skyldi enda svona
snöggt eins og það gerði. Ég hefði
viljað segja þér mikið meira og
tala meira við þig. Það verður að
bíða betri tíma. Ég á eftir að sakna
þín mikið en ég get þó huggað mig
við það að þjáningum þínum er
lokið og þú ert komin á betri stað.
Ég vil nota tækifærið og þakka
starfsfólkinu á Heilbrigðisstofn-
uninni á Sauðárkróki fyrir allt
sem það gerði fyrir þig í veikind-
um þínum. Einnig vil ég þakka
sérstaklega starfsfólkinu á gjör-
gæslu FSA fyrir að hjálpa þér og
okkur fjölskyldunni að hafa þig
hjá okkur í eitt og hálft ár í viðbót.
Ég þakka þér samveruna öll
mín 28 ár, þú varst minn besti vin-
ur.
Hvíldu í friði, elsku mamma.
Blessuð sé minning þín.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi.
(23. Davíðssálmur)
Elsku pabbi, megi guð gefa þér
styrk til að takast á við sorgina.
Takk fyrir allt, elsku mamma.
Minning þín er ljós í lífi okkar fjöl-
skyldunnar.
Þinn sonur,
Kári Arnar.
Elsku Hulda.
Ég trúi því ekki að þú sért farin
frá okkur. Ekki hafði mig órað
fyrir því að tíminn sem við fengj-
um saman yrði svona stuttur. Við
áttum eftir að fá að kynnast betur
og þú áttir eftir að fá að fylgjast
með Söru Björk stækka og dafna.
Ég á fullt af góðum minningum
um tíma okkar saman og þar á
meðal er ein sem er mér efst huga,
þegar þú komst suður til okkar í
nýju íbúðina okkar og dvaldir hjá
okkur í viku. Þú varst svo ánægð
að við værum komin í góða og
stóra íbúð til framtíðar og Sara
Björk var búin að fá sitt herbergi.
Það var alltaf jafn notalegt að
koma til ykkar á Smáragrundina
og spjalla um daginn og veginn og
fá kjöt í tómat sem þú eldaðir,
mikið rosalega var það alltaf gott.
Eins kenndir þú mér að búa til
karrýsósu frá grunni því þér
fannst það óþarfi að kaupa hana í
pökkum, því það væri svo einfalt
að búa hana til.
Þú varst svo ánægð þegar litla
ömmustelpan þín kom í heiminn
en þú hefðir viljað geta sinnt henni
meira en þú gast gert. Þú gerðir
þitt besta, passaðir Söru Björk á
meðan við fórum í golf og reyndir
að hjálpa eins mikið og heilsan
leyfði. Ég er þó afar þakklát fyrir
þann tíma sem Sara Björk fékk að
eyða með þér.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Elsku Kári, ég bið guð að
styrkja þig á þessum erfiðu tím-
um.
Takk fyrir allt, elsku Hulda. Ég
kveð þig með söknuði.
Kristín Inga.
Elsku móðursystir mín, Hulda
Tómasdóttir, er látin.
Minningar streyma fram sem
eiga rætur allt frá barnæsku fram
á unglingsár þegar ég dvaldi
reglulega fyrst hjá ömmu minni
og síðar hjá Huldu á Sauðárkróki.
Þessar minningar eru mér afar
kærar, þeim fylgir mikil hlýja og
góðar tilfinningar sem lögðu
grunn að góðu sambandi okkar
Huldu. Dvöl okkar hjóna á Sauð-
árkróki sumarið 1988 styrkti vina-
böndin á milli okkar Huldu og
Kára með reglulegum samveru-
stundum. Meðan ég stundaði þar
vinnu fannst Huldu ekkert tiltöku-
mál að létta undir í sínu sumarfríi
með barnapössun. Heimsóknir á
Sauðárkrók gerðust tíðari og hafa
verið fastur liður hjá okkur hjón-
um á hverju sumri. Gjarnan var
farið í veiði- eða skoðunarferðir og
ung frændsystkin hittust og öttu
kappi í ærslafullum leikjum. Þeg-
ar ró færðist yfir á kvöldin voru
rifjaðar upp minningar og sögur
úr Skagafirðinum. Gestrisni
þeirra Huldu og Kára var óþving-
uð og gott var að njóta afslappaðs
andrúmslofts á heimili þeirra.
Hulda var hæglát og hafði
þægilega nærveru. Hún gekk
hljóðlega en skipulega til verks
þannig að heimilisverkin voru
unnin án þess að maður tæki eftir
að haft væri fyrir þeim. Allt var á
sínum stað, alveg sama hvar var
litið.
Að leiðarlokum er mér þakk-
læti efst í huga. Þakklæti fyrir
samveru, vináttu og tryggð.
Við Árni og börn vottum Kára,
Ragnari, Lindu, Kára Arnari og
fjölskyldum þeirra okkar innileg-
ustu samúð.
Blessuð sé minning Huldu
Tómasdóttur.
Karitas Ívarsdóttir.
Elsku amma okkar.
Takk fyrir allar góðu stundirn-
ar og að vera alltaf til staðar fyrir
okkur öll þessi ár.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Guð geymi þig.
Kveðja,
Davíð Arnar, Agnes Huld
og Ágústa Líney.
Hulda Tómasdóttir HINSTA KVEÐJA
Elsku amma, takk fyrir
allt á þessum stutta tíma
sem ég hafði með þér.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín ömmustelpa,
Sara Björk.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 551 3485/896 8284 (24 tíma vakt)
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri - S. 892 8947