Morgunblaðið - 13.08.2011, Page 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011
Emma og Dexter eyðasaman nóttinni eftir há-skólaútskriftina. Hún eróörugga gáfnaljósið.
Hann myndarlegi, ríki glaumgos-
inn. Frá fyrstu kynnum er ljóst að
þau eiga eftir að fylgjast að í lífinu,
í gegnum þykkt og þunnt.
Í bókinni Einn dagur, eftir
breska leikarann David Nicolls,
sem nú er búið að kvikmynda, er
fylgst með Emmu og Dexter 15.
júlí ár hvert frá 1988 og til 2007.
Vináttan blómstrar og dýpkar á
tímabilum en þegar annað þeirra
tekur feilspor í lífinu titra vin-
áttuböndin – eða er þetta kannski
ást?
Em og Dex. Dex og Em. Varla
er hægt að nefna annað þeirra án
þess að minnast á hitt. Á þeim tutt-
ugu árum sem þeim er fylgt eftir
þroskast þau úr uppreisnargjörnum
og sjálfhverfum ungmennum í
metnaðarfulla og sjálfstæða full-
orðna einstaklinga. Eða svona
næstum því. Þau feta lífsleiðina
með ólíkum hætti, Emma er var-
kárari en Dexter lifir lífinu eins og
hver dagur sé sá síðasti. En bæði
eru þau í leit að sjálfu sér og stóla
hvort á annað á þeirri vegferð.
Einn dagur er því mikil þroska-
saga og mjög sannfærandi sem slík.
Unga fólkið, fullt af hugsjónum,
þarf smám saman að fara að lifa í
heimi hinna full-
orðnu, hvort sem
þeim líkar betur
eða verr. Hver
kannast ekki við
það?
Nicholls gerir
tíðarandanum á
hverju ári skil
með skemmti-
legum og lifandi
hætti, hvort sem um er að ræða
tækni, tísku, tónlist, lífsstíl almennt
eða pólitík. Stemning hvers árs,
hvers áratugar, dansar stundum
bókstaflega á síðunum svo óvænt
fortríðarþrá vaknaði í brjósti mínu.
Munið þið hvað lífið var yndislegt
án farsíma, án netsins en þó svo
magnað þegar þetta tvennt kom til?
Em og Dex hrifu mig strax nótt-
ina sem þau lágu saman í einbreiða
rúminu í litlu íbúðinni í Edinborg
árið 1988, svo ung og full af draum-
um um framtíðina. Rétt að kynnast
en neistafluginu á milli þeirra
kannski betur lýst sem flugeldasýn-
ingu þótt það sé sett fram fínlega
og af hógværð. Samband þeirra er
einlægt og tilfinningaþrungið, en þó
er saga þeirra full af húmor og oft
stútfull af gáska og fjöri.
Alla bókina stóð ég með þeim,
hlakkaði til að hitta þau að ári,
þyrsti í að vita hvort nú væru þau,
eins og ég, búin að átta sig á því að
þau ættu að vera saman að eilífu.
Einn dagur er þó engan veginn
fyrirsjáanleg ástarsaga, þótt hún sé
vissulega uppfull af rómantík. Hún
spilar á allan tilfinningaskalann,
stundum mjög harkalega. Og þegar
síðustu blaðsíðunni er flett og ekki
fleiri orð til að lesa langar mann
einfaldlega að hefja lesturinn upp á
nýtt.
Hrífandi dagur
Skáldsaga
Einn dagur
bbbbn
Eftir David Nicholls. Arnar Matthíasson
þýddi. Bjartur gefur út. 430 bls.
SUNNA ÓSK
LOGADÓTTIR
BÆKUR
Höfundurinn Einn dagur eftir David Nicholls „spilar á allan tilfinningaskal-
ann, stundum mjög harkalega,“ segir m.a. í dómnum.
Þokkadísirnar Ásdís Rán og Ósk
Norðfjörð eru miklar söngkonur
og voru þær að senda frá sér lagið
„All you need is love“. Lagið var
frumflutt í gær í þætti Heiðars
Austmann á útvarpsstöðinni FM
957 við góðar undirtektir. Þetta er
í fyrsta skipti sem þær syngja
saman, en þær hafa gefið út lög
hvor í sínu lagi. Fyrirsæturnar,
sem kalla sig Blondies, fengu góða
hjálp við gerð lagsins, en Halldór í
Mínus samdi textann og Biggi Bix
mixaði lagið.
Morgunblaðið/Eggert
Ljóshærð Ásdís Rán myndar ásamt Ósk Norðfjörð tvíeykið Blondies.
Blondies: Ásdís Rán og Ósk Norðfjörð
Justin Timberlake þykir líkleg-
astur til þess að hljóta aðalhlut-
verkið í endurgerð af myndinni
Dirty Dancing. Timberlake mun
þá leika dansarann Johnny Castle,
hlutverk sem Patrick Swayze
gerði frægt í upprunalegu mynd-
inni sem kom út árið 1987. Fleiri
Hollywoodstjörnur koma til
greina, en leikarar á borð við
Chris Hemsworth, sem lék aðal-
hlutverkið í myndinni Þór (Thor)
og High School Musical-stjarnan
Zac Efron eru einnig nefndir til
sögunnar. Talið er líklegast að
Emma Stone hljóti aðal-kven-
hlutverkið í myndinni.
Leikari Justin Timberlake hefur leikið í
myndum á borð við The Social Network.
Justin Timberlake
í Dirty Dancing?
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
STRUMPARNIR 3D M. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 L
STRUMPARNIR Með ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L
GREEN LANTERN 3D kl. 10:20 12
CAPTAINAMERICA 3D kl. 10:30 12
HORRIBLEBOSSES kl. 8 - 10:20 12
HARRYPOTTER7-PART2 3D kl. 8 12
BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 2 - 5:30 L
GREEN LANTERN 3D kl. 5:50 - 8 - 10:30 12
BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 1:30 L
BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 L
CARS 2 3D Með ensku tali kl. 3:40 L
HORRIBLE BOSSES kl. 8 12
HARRY POTTER 7 - PART 2 kl. 1:30 - 10:10 12
COWBOYS & ALIENS kl. 8 - 10:30 14
STRUMPARNIR 3D M. ísl. tali kl.1:30 -3:40-5:50 L
HORRIBLE BOSSES kl. 8 12
BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 L
BAD TEACHER kl. 5:50 - 10:10 14
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
COWBOYS & ALIENS kl. 5:30 - 8 - 10:30 14
FRIENDS WITH BENEFITS kl. 8 12
GREEN LANTERN kl. 10:30 12
BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 L
KUNGFUPANDA2 M. ísl. tali kl. 3 L
/ SELFOSSI/ KRINGLUNNI
H H H H H
- T.M - THE HOLLYWOOD
REPORTER
H H H H H
- L.S - ENTERTAINMENT
WEEKLY
„THE BEST 3D
SINCE AVATAR“
- SCOTT MANTZ,
ACCESS HOLLYWOOD
H H H
-T.V. KVIKMYNDIR.IS/
- SÉÐ OG HEYRT
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
ATHUGIÐ GLÆNÝ STUTTMYND SÝND Á UNDAN CARS 2
FRÁ HÖFUNDUM
"SVALARI BÍLAR
OG MEIRI HASAR"
- T.D. -HOLLYWOOD
REPORTER
H H H H
- J.C. -VARIETY
H H H H
- P.T. -ROLLING STONES
H H H H
LEIFTUR MCQUEEN OG KRÓKUR
ERU AFTUR MÆTTIR, BETRI EN NOKKURN TÍMANN
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ 750 kr.
FRÁÁ
ÁBÆR
GAMA
NMYN
D
JENNFIER ANNISTON JASON BATEMAN JAMIE FOXX JASON SUDEIKIS COLIN FARRELL KEVIN SPACEY CHARLIE DAY
88/100
- CHICAGO SUN-TIMES
91/100
- ENTERTAINMENT WEEKLY
100/100
- ST.PETERSBURG TIMES
- KVIKMYNDIR.IS
H H H H
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI
OG KEFLAVÍK
RYAN REYNOLDS
BLAKE LIVELY
MARK STRONG
GEOFFREY RUSH
„ÞAÐ ER SVO SANNARLEGA NÓG
UM AÐ VERATIL AÐ HALDA
3D-GLERAUGUM ÁHORFENDA
LÍMDUM Á ALLA MYNDINA.“
70/100 HOLLYWOOD REPORTER
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
- R.C - TIME
H H H H H
ÞAÐ GETUR VERIÐ ERFITT AÐ LOSA SIG
VIÐ LEIÐINLEGAN YFIRMANN EN ÞEIR ÆTLA AÐ REYNA...