Morgunblaðið - 13.08.2011, Síða 52
LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 225. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Biður Íslendinga afsökunar
2. Börn Jacksons geisla af hamingju
3. Breivik hringdi í lögreglu
4. Velur fórnarlömbin af handahófi
Rithöfundurinn, sýningastjórinn og
listgagnrýnandinn Nicolas Bourriaud
flytur fyrirlestur í dag á málþingi í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í
tengslum við sýningu í safninu. »45
Bourriaud flytur
fyrirlestur á málþingi
Kvartett gítar-
leikarans Ómars
Guðjónssonar
kemur fram í dag
kl. 15 á öðrum
tónleikum djass-
tónleikaraðar
veitingastaðarins
Munnhörpunnar í
tónlistarhúsinu
Hörpu. Í kvartettnum eru auk Ómars
þeir Ingi Björn Ingason, Helgi Svavar
Helgason og Matthías Hemstock.
Tónleikarnir fara fram utandyra ef
veður leyfir.
Kvartett Ómars
í Munnhörpunni
Tónlistarkonan Ellen Kristjáns-
dóttir heldur tónleika á Café Rósen-
berg með dætrum sínum Siggu, Betu
og Elínu, Eyþóri Gunnarssyni hljóm-
borðsleikara og Þorsteini Einarssyni
gítarleikara sunnudaginn nk., 14.
ágúst, kl. 21. Ellen gaf snemma árs út
plötuna Let me be
there sem hún
vann með Pétri
Hallgríms-
syni.
Ellen heldur tónleika
á Café Rósenberg
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi norðaustanátt, 8-18 m/s síðdegis, hvassast við austur-
ströndina. Dálítil væta austast, skýjað norðantil en bjart með köflum suðvestanlands.
Á sunnudag Norðaustan 8-13 m/s og rigning norðan- og austanlands, en annars skýjað
og þurrt. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast sunnanlands.
Á mánudag Ákveðin norðanátt á vestanverðu landinu, annars hægari. Rigning á norðan-
verðu landinu, en þurrt syðra. Fremur hlýtt veður, einkum sunnanlands.
ÍR-ingar eru með forystu eft-
ir fyrri daginn í bikarkeppni
frjálsíþróttasambandsins
sem fram fer í Kópavogi.
Enginn met féllu í gær en
mikil stemning var enda tak-
markið að safna stigum fyrir
sitt lið. ÍR-ingar eru einnig
með forystu í kvennaflokki
en FH í karlaflokki. »4
ÍR rakaði saman
flestum stigum
„Það er prófraun að vinna lið sem
hefur ekki tapað leik í sumar, sér-
staklega á heimavelli þess þar
sem liðið gat fagnað en það verð-
ur að bíða með það,“ sagði
Skagamaðurinn Guðjón Þórðar-
son, þjálfari BÍ/Bolungarvíkur,
nýliðanna í 1. deild karla, eftir
2:1 sigur á ÍA á Akranesi. Það
var fyrsta tap Skagamanna í
sumar en þeir eru enn efstir í
deildinni og þurfa eitt stig úr 6
næstu leikjum. »1
Lærisveinar Guðjóns
frestuðu fögnuði ÍA
Morgunblaðið hitar ítarlega upp fyrir
úrslitaleikinn í Valitor-
bikar karla í knatt-
spyrnu sem fram fer á
Laugardalsvellinum í
dag. Guðmundur
Benediktsson
spáir í spilin en
hann hefur
leikið með lið-
unum sem
mætast, Þór
og KR. Auk
þess er stillt
upp líklegum
byrjunar-
liðum og
rætt við leik-
menn. » 2-3
Upphitun fyrir bikar-
úrslitaleik KR og Þórs
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
„Þetta eru sögur fyrir unglinga og
fullorðna, dálítið blóðugar, gerast í
skálduðum heimi á miðöldum. Þarna
eru ófreskjur, galdrar, afturgöng-
ur …“ Svo lýsir Elí Freysson efnivið
fantasíubóka sinna. Fyrsta bókin
kemur út hjá Sögum í haust en Elí er
líka búinn með næstu tvær og vinnur
nú að þeirri fjórðu. Ítarlegt viðtal er
við hann í Sunnudagsmogganum.
Elí er tæplega þrítugur Akureyr-
ingur með Asperger-heilkenni. Auk
skrifta vinnur hann sem lagermaður í
Nettó. Hann hefur fengist við skriftir
í nærri áratug og árangur erfiðisins
kemur senn í ljós. Tómas Her-
mannsson hjá Sögum tók Elí vel þeg-
ar hann sendi honum póst með þrem-
ur löngum fantasíusögum, tilbúnum
til útgáfu. „Ég var búinn að prófa all-
ar útgáfur á Íslandi nema tvær þegar
ég talaði við Tómas. Menn hafa sjálf-
sagt ekki þorað að gefa út sögu eftir
algjörlega óreyndan mann,“ segir Elí
sem var himinlifandi þegar Tómas
ákvað að gefa sögurnar út. Elí vinnur
nú að því að þýða kafla úr bókinni á
ensku því Tómas ætlar að sýna hann
á bókaráðstefnunni í Frankfurt í
október.
Lætur ímyndunaraflið ráða
Aðdragandinn að skrifum Elís er
ekki flókinn, honum finnst gaman að
láta ímyndunaraflið ráða ferðinni og
fór bara að skrifa því hann langaði til
þess. „Ég vinn í Nettó
frá sjö á morgnana til
tvö og skrifa ekki á
meðan, og á það til að
stíflast eða vera upp-
tekinn af öðru. En ég
skrifa þegar ég hef
tíma og ímyndunar-
aflið er fyrir hendi.
Það tekur reyndar
minnstan tíma að
skrifa; aðalmálið er að
fá góða hugmynd að fléttu
og karakterum. Þegar það er klárt
kemur textinn tiltölulega fljótt. Það
mikilvægasta í þessum bransa er hins
vegar að endurskrifa og að vera vilj-
ugur til þess; ég var 14 mánuði með
fyrstu útgáfu af fyrstu bókinni, sem
ég skrifaði reyndar á ensku, en þýddi
hana seinna á íslensku og endurskrif-
aði ótal sinnum. Mér hefur farið mik-
ið fram síðan þá. Maður lærir af
reynslunni. Mig minnir að ég hafi
verið tíu mánuði að skrifa þriðju bók-
ina,“ segir Elí. Sem unglingur greind-
ist hann með Asperger-heilkenni en
veit ekki hvort það hefur haft áhrif á
skrifin. „Ég efast þó um að ég væri að
skrifa ef ég væri ekki svona sérvitur!
Ég hangi að minnsta kosti heima við
að skrifa í stað þess að gera eitthvað
félagslegra og það hefur virkað mér í
hag.“
Skrifar blóðugar fantasíusögur
Fyrsta skáldsaga
Elís Freyssonar
kemur út í haust
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Verðandi rithöfundur Elí Freysson hefur gert handrit að þremur fantasíudoðröntum. Sá fyrsti kemur út í haust.
„Ég get ekki betur séð en að Elí
Freysson sé að ríða á vaðið með
fantasíuformið í sinni nú-
tímalegu mynd hér á landi,
og Meistari hinna blindu sé
bókstaflega fyrsta
skáldsaga sinnar teg-
undar í íslenskum bók-
menntaheimi. Hann er
sá fyrsti til að skrifa og
gefa út harðkjarna póst-
tolkíenska fantasíu-
skáldsögu sem er með-
vituð um „lögmál“ og hefðir forms-
ins, og vinkar til þeirra á
vingjarnlegan hátt. Elí er líka úr
kynslóðinni sem ólst upp með hlut-
verkaspil sem eðlilegan hluta af af-
þreyingarflórunni, og þess eru
merki í skáldsögunni. Hún ber með
sér að höfundur hefur lifað og
hrærst í þessum heimi lengi, bæði
lesið og spilað,“ segir Björn Þór Vil-
hjálmsson, bókmennta- og kvik-
myndafræðingur og stundakennari
við HÍ, um fyrstu bók Elís.
Meðvitaður um hefðir formsins
MEISTARI HINNA BLINDU