Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ
A
uðvitað fylgir þessu starfi
að hafa snert af bíladellu
enda vekja fallegir og
vel gerðir bílar alltaf at-
hygli. Að bílarnir séu
framúrstefnuleg listasmíði held ég
samt að skipti flesta ekki svo ýkja
miklu í raun. Þetta er í grunninn
ekki annað en að komast til og frá
vinnu, út í búð og með börnin í
skólann. Þess vegna er ég alltaf
mjög hrifin af smábílum og núna
síðustu árin Toyota Yaris, þægi-
legum bíl sem skilar mér alltaf á
áfangastað,“ segir Sif Björk Birg-
isdóttir bílasali.
Þúsund bíla á skrá
Í sl. viku opnaði Sif nýja bílasölu,
Bílaprís, sem er við Klettháls.
„Þetta er svona allt að smella
saman. Ég er að fá tölvukerfi,
samband við alls konar gagnalind-
ir sem þarf og standsetja húsnæði
og bílaplan. Þetta gerist ekki eins
og að smella fingri. Undirbúning-
urinn tekur langan tíma og svo er
að fá bíla í sölu en algengt er að
vera með um það bil þúsund slíka
svo allt virki vel,“ segir Sif sem
hefur lengi starfað við bílasölu.
Síðustu árin hefur hún unnið með
bróður sínum Agnari Bergmann
og saman hafa þau rekið Bílalíf.
En nú eru þau komin með sína
söluna hvort og eru báðar við
Klettháls í Reykjavík; á bíla-
sölusvæði sem er sérhannað með
alla aðstöðu til fyrirmyndar
Bílaprís hefur fengið góðar við-
tökur. „Það er búið að vera ótrú-
lega mikið rennirí hérna síðustu
daga. Ég er mjög ánægð með
hvernig þetta fer af stað,“ segir
Sif sem aflaði sér réttinda sem
löggiltur bílasali fyrir tíu árum.
Þannig kann hún regluverk bíla-
viðskipta alveg upp á tíu þó að
reynslan vegi alltaf þyngst.
Þekkja fólk og mynda tengsl
„Þetta kemur allt með tímanum.
Maður lærir auðvitað fljótt á
helstu tegundir og gerðir bíla og
hvaða þættir ráða verðmyndun.
En það sem skiptir líklega mestu
er að þekkja fólk og mynda
tengsl. Muna eftir því hvenær til-
tekinn viðskiptavinur kom við,
hvernig bíl hann var að leita eftir
og slá svo á þráðinn og færa við-
komandi þær góðu fréttir að nú sé
draumabíllinn kominn og bíði eftir
nýjum eiganda,“ segir Sif sem síð-
ustu árin hefur sinnt bílasölunni í
ígripum jafnhliða námi í við-
skiptafræðum við Háskólann í
Reykjavík. Segir námið og þá
þekkingu sem hún hefur aflað sér
þar, meðal annars meistaragráðu í
alþjóðaviðskiptum, nýtast vel í
daglegu starfi.
„Hins vegar er bílasala þannig
starf að henni verður ómögulega
sinnt nema vera í þessu af fullum
krafti. Maður þarf allan daginn til
að spinna þræðina. Stundum eru
margir boltar á lofti í einu og það
getur tekið tíma að koma þeim öll-
um í mark. Auðvitað eru stundum
dæmi um að bíll sem er settur á
skrá er seldur eftir klukkutíma en
stundum tekur kannski hálfan
mánuð að ljúka máli og landa
samningi. Stundum eru mörg mál
samhangandi og fyrir nokkrum ár-
um þegar þannig stóð á náði ég að
landa átta samningum á einum
degi; sem var á einum af þessum
dögum þegar í stressinu varð að
sleppa bæði hádegismat og síðdeg-
iskaffi,“ segir Sif sem er ein fárra
kvenna sem hafa lagt bílasölu fyr-
ir sig og aflað sér löggilding-
arinnar sem fyrr er nefnd.
Greiðslukortin góður kostur
Það er talsvert um að vera á bíla-
markaði um þessar mundir. Tals-
verð eftirspurn er í dag, að sögn
Sifjar, eftir notuðum bílum og það
í öllum verðflokkum. „Regla fjár-
mögnunarfyrirtækjanna er að lána
aðeins 70% til kaupa á bílum sem
ekki mega vera eldri en árgerð
2004 sem þurfa jafnframt að vera
kaskótryggðir. Fyrir vikið henta
slík lán fyrst og fremst til kaupa á
dýrari bílum. Fyrir þá sem vilji og
þurfi enn ódýrari bíla geta bílalán
greiðslukortafyrirtækjanna verið
ágætur kostur en þau geta verið
allt að hálf milljón króna og selj-
andinn fær andvirði bílsins greitt
út eftir tvo daga,“ segir Sif Björk
Birgisdóttir sem hlakkar mjög til
þess spennandi viðfangsefnis sem
framundan er.
sbs@mbl.is
Draumabíllinn bíður eftir eiganda
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Bílasalinn Skiptir mestu er að þekkja fólk og mynda tengsl. Muna eftir því hvenær viðskiptavinur kom og hvernig bíl hann var að leita eftir, segir Sif Björk Birgisdóttir
sem er menntuð í alþjóðaviðskiptum og segir það nýtast sér vel í daglegu starfi. Ný bílasala sem Sif rekur, Bílaprís, er á Kletthálsi í Reykjavík og var opnuð nýlega.
Sif Björk Birgisdóttir
er ein fárra kvenna
sem hafa lagt bílasölu
fyrir sig. Opnar nú
nýja bílasölu á Klett-
hálsi í Reykjavík.
Margir boltar á lofti í
einu, hefur selt átta
bíla á einum degi.
Þetta kemur allt með tím-
anum. Maður lærir auðvit-
að fljótt á helstu tegundir
og gerðir bíla og hvaða
þættir ráða verðmyndun.
Chevrolet er
fyrsti bílafram-
leiðandinn sem
býður bíla sína
með öryggispúða
milli ökumanns
og framsæt-
isfarþega. Þessi
nýjung verður í
nokkrum bílgerð-
um Chevrolet frá
og með 2013 ár-
gerðinni.
Öryggispúðinn
er hugsaður til að vernda farþega frammí hvorn
frá öðrum við hliðarárekstur og einnig ökumann
ef hann er einn í bílnum og ekið er á hægri hlið
hans. Hann kemur einnig að miklu gagni við velt-
ur. Staðsetning hans er í stokki milli framsæt-
anna.
Rannsóknir sýna að 11% dauðaslysa ökumanna
verða vegna árekstra frá hægri hlið. Tilkoma þess-
ara púða ætti að hjálpa mikið er slík óhöpp verða
og vonandi lækka þessa tölu.
finnurorri@gmail.com
Miðjupúði Púði milli öku-
manns og framsætisfarþega
er nýjung sem Chevrolet bílar
verða fyrstir með.
Chevrolet fyrstir
með miðjupúða
Nýjung væntanleg í bíla framleiðandans
eftir tvö ár. Eykur öryggi talsvert.
Bresk könnun leiðir í ljós að 94,6%
þarlendra ökumanna viðurkenna að
þeir brjóti hraðatakmarkanir á
hraðbrautum landsins, 1,9% vita
ekki hvort þeir gera það og 3,5%
segjast aldrei fara yfir löglegan há-
markshraða. Flestir aðspurðra vilja
að hámarkshraði verði aukinn og
benda á að David Cameron for-
sætisráðherra myndi auka vinsældir
sínar með því og enn frekar yrðu
álögur á bensín og dísilolíu lækk-
aðar.
Alls 59% styðja ekki auknar
sektir við brotum á hraðatakmörk-
unum og 81% taldi að aukinn há-
markshraði myndi engin neikvæð
áhrif hafa á umhverfismarkmið
bresku ríkisstjórnarinnar. Það virð-
ist því sem flestar reglugerðir varð-
andi bílanotkun og álögur á notkun
þeirra séu í mikilli óþökk lands-
manna í Bretlandi. Skyldi það sama
vera upp á teningnum hérlendis?
finnurorri@gmail.com
Reuters
London Bretar vilja spretta úr spori úti á vegunum og að hámarkshraði
verði hækkaður. En meðan annað er bannað er hægt að leyfa sér að
taka flugið við Tower Bridge, einkennistákn heimsborgarinnar.
Vilja meiri hámarkshraða í Bretlandi
Alls 95% ökumanna í Bretlandi
brjóta hraðatakmarkanir.
Flestir vilja ekki auknar sektir.ATZ
28”-38”
Hljóðlát og endingargóð
mtdekk.is
Söluaðili: