Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ | 17
522 4600
www.krokur.net
Krókur er sérhæft fyrirtæki í flutningum og björgun ökutækja.
Ef bíllinn þinn bilar er mikilvægt að fá fagmenn til að flytja bílinn á réttan og öruggan hátt.
Krókur býður m.a. uppá:
24 stunda þjónustu allt árið um kring
Taktu Krók á leiðarenda
!" #$% &
á þinni leið
M
ercedes-Benz Actros
sem nýlega kom á
markað er fyrsti flutn-
ingabíllinn sem er
hannaður að öllu leyti
út frá Euro VI viðmiðum um um-
hverfisvernd. Þessu til viðbótar lagði
Mercedes-Benz meira en einn millj-
arð til fjárfestinga í verksmiðjum og
tækjum til framleiðslu flutningabíls-
ins.
Viðamiklar prófanir
Nýr Actros fór í viðameiri prófanir
en þekkst hafa til þessa. Alls var
gerðinni ekið í yfir 20 milljónir km.
þar af í yfir 40
gráða hita í
Sierra Nevada
eyðimörkinni og
40 gráða frosti við
heimskautsbaug.
Opnað var fyrir
pantanir á þess-
um nýja flutn-
ingabíl í júlí sl í
Mið-Evrópu.
Helsti keppinaut-
ur nýja bílsins er
reyndar fyrri
gerð hans, Actros MP3, sem hefur
selst í yfir 700 þúsundum eintaka frá
markaðssetningu hans og er því
mest seldi vörubíllinn í sínum stærð-
arflokki í Evrópu.
„Nýr Actros eyðir frá 4-7% minna
af dísilolíu en núverandi gerð, Act-
ros MP3. Hann er því orkunýtnasti
dísilknúni langflutningabíllinn í Evr-
ópu í Euro VI flokknum,“ segir Páll
Halldór Halldórsson, sölustjóri at-
vinnubíla hjá Öskju, sem er umboðs-
fyrirtæki Mercedes-Benz á Íslandi.
Aukin hlutdeild
„Þetta má þakka nýrri aflrás sem
styðst við nýjustu vélartækni, þar á
meðal X-Pulse innsprautunarkerfið,
hringrás fyrir afgasið, sérstakri
meðhöndlun á afgasi með Blue Tec
dísiltækninni og lokaðri sótagnasíu.
Þessi búnaður hefur verið árangurs-
prófaður af viðskiptavinum í Banda-
ríkjunum og Japan í yfir 70.000 öku-
tækjum. Áreiðanleiki búnaðarins og
sparneytni hefur átt sinn þátt í að
stórauka markaðshlutdeild Merce-
des-Benz í þessum löndum.“
Að sögn Páls Halldórs má búast
við að Askja geti afhent við-
skiptavinum sínum nýjan Actros á
fyrstu mánuðum næsta árs.
sbs@mbl.is
Vörubíll Nýr Mercedes-Benz Actros er komin úr verksmiðju. Askja afhendir fyrstu bílana snemma á næsta ári.
Benz boðar sókn með nýjum flutningavagni. Nýr
Actros var prófaður á Pólnum og í ofurhita eyði-
merkur. Nýtir orkuna vel. Áreiðanlegur búnaður og
sparneytni á þátt í aukinni markaðshlutdeild.
Páll H.
Halldórsson.
Benz Actros
kominn á mark-
að í Evrópu
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is