Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 12
V
ið erum að fást við lifandi ís-
lenska náttúru og verðum
að umgangast hana af auð-
mýkt. Með hlýnandi veð-
urfari eru meiri breytingar
á jöklum landsins en áður hafa verið.
Það veldur því að sýna þarf mikla að-
gát þegar ekið er um jöklana,“ segir
Jónas Guðmundsson, verkefnisstjóri
hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Velji hættuminnstu leiðirnar
Í fyrra var hrundið af stað verkefni
þar sem sprungusvæði á jöklum
landsins eru kortlögð í þaula, með
það markmið að auka öryggi. Vonast
er til að kortin auðveldi fólki að velja
hættuminnstu leiðirnar og forðast
hættuleg sprungusvæði. Með tilliti til
þessa hafa verið unnin kort af öllum
jöklum landsins og eru þau aðgengi-
leg á vefsetrinu www.savetravel.is
hvar einnig má nálgast GSP-punkta
af þeim leiðum sem öruggastar mega
teljast. Þúsundir hafa nú aflað sér
þessara korta sem bæði er hægt að
prenta út á PDF-formi en einnig
hlaða niður í GPS-staðsetningartæki
eins og flestir jeppamenn eru með í
bílum sínum.
Á sl. tíu árum hafa orðið sex bana-
slys á jöklum en í fjórum tilvikum
lést fólk eftir að hafa fallið í sprungur
eða svelgi. Eftir slys á Langjökli átti
ferðahópur innan Ferðaklúbbsins
4x4 frumkvæði af því að kanna
hvernig kortleggja mætti hættur,
bæði þekkt hættusvæði og einnig
þær slóðir þar sem sprungur leynast
undir snjóþekjunni að vetrarlagi. Er
afrakstur þess starfs það sem að
framan greinir.
Nýjar úrfærslur nauðsyn
„Við erum búnir að kortleggja alla
jökla landsins og erum nú að færa
inn nýjar útfærslur af Snæfells- og
Langjökli. Það er mjög nauðsynlegt
að setja reglulega inn nýjar upplýs-
ingar, sem við öflum meðal annars
með gervihnattamyndum, ferilskrán-
ingum ýmiskonar og samtölum við
fjallamenn,“ segir Jónas um kortin
sem hafa fjóra einkennisliti. Blátt
merkir svæði án sprungna og síðan
eru sprungusvæðin flokkuð í grænt,
gult og rautt með sama hætti og um-
ferðarljós á gatnamótum gefa til
kynna hve áhættusamt er að fara um.
„Flestir hinna stóru skriðjökla
sem falla frá Vatnajökli, Hofsjökli og
Langjökli, eru framhlaupsjöklar.
Slíkir hlaupa fram á nokkurra ára-
tuga fresti og verða ófærir vegna
sprungna frá sporði og upp að ísa-
skilum í mörg ár á eftir. Þannig hafa
orðið miklar breytingar á Langjökli
síðustu árin og á einu hlýju sumri
nam jökulbráðnun úrkomu þriggja
ára,“ útskýrir Jónas og bætir við að
nú sé unnið að uppfærslu kortanna
eftir upplýsingum sem var aflað í
sumar. Ekki standi til að mæla með
mörgum leiðum á hverjum jökli, ein-
ungis þeim öruggustu hverju sinni.
Hvað varðar Langjökul hefur
ferðaþjónustufólk og hjálparsveitir í
Borgarfirði tekið að sér að fylgjast
með Langjökli til stuðnings þessari
vinnu með sama hætti og aðrir jöklar
séu undir smásjánni í öryggisskyni.
sbs@mbl.is
Jöklajeppi Fjallafarar verða að taka með í reikninginn að vegna úrkomu breytast jöklarnir mikið og springa af þeim sökum.
Jökull Ferðir um jöklana krefjast fyllstu aðgæslu og varúðar eins og best sést á þessari mynd af sprungnum Langjökli. Þar hafa orðið alvarleg slys en betri kort eiga að gegna fyrirbyggjandi hlutverki.
Kortleggja leiðir
á jöklunum
Sprungnir jöklar undir smásjána. Örugg ferðalög.
Hægt að nálgast upplýsingar á netinu. Aðgátar er
þörf. Mörg slys hafa orðið á síðustu árum.
Öryggi Erum núna búin að kortleggja
alla jökla, segir Jónas Guðmundsson.
Með hlýnandi veðurfari eru
meiri breytingar á jöklum
landsins en áður hafa ver-
ið. Það veldur því að sýna
þarf mikla aðgát þegar ek-
ið er um jöklana.
12 | MORGUNBLAÐIÐ
LÁN Í6V
AXTAL
AUST
MÁNUÐ
I
– Örugg þjónusta í yfir 40 ár
Kópavogur, Smiðjuvegi 68-70, s ími 544 5000
Njarðvík, Fitjabraut 12, sími 421 1399
Selfoss, G agnheiði 2 , s ími 482 2722 SÓLNING
Skútuvogi 2 | 104 Reykjavík | Sími 568 3080 | www.bardinn. is
Vetrardekk í miklu úrvali
Sólning er með úrval af vetrar- og heilsársdekkjum fyrir allar
gerðir bifreiða frá mörgum af stærstu dekkjaframleiðendum
heims. Hafðu samband og kynntu þér verð og gæði.
Umboðsmenn um land allt. Afgreiðslutímar í Sólningu, Smiðjuvegi: Virka daga 8.00–18.00.