Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ Þ essir jeppar fengu strax góðar viðtökur þegar þeir komu á markaðinn hér ár- ið 1997. Sönnuðu fljótt hve vel þeir henta að- stæðum á Íslandi og nú fjórtán ár- um síðar eru 95% þeirra bíla sem skráðir hafa verið út á göturnar enn í umferð,“ segir Gunnar Gunn- arsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Bernharðs hf. Honda CRV eru bílar sem hafa reynst Íslendingum afar vel. Salan hefur á öllum tímum verið góð, ekki síst á árunum 2005 og 2006 en nærri lætur að markaðurinn hafi þá tekið við um 500 bílum hvort árið um sig. Alls eru í dag um 3.500 CRV-bílar á götunum hér á landi og enn stækkar flotinn. Í ár hafa selst 110 bílar; það er á samdráttarskeiði í bíla- viðskiptum þótt nú sé lítið eitt að lifna yfir. Vörugjöld verði 41% Vörugjöld við innflutning bíla stjórnast í dag af útblæstri á gróð- urhúsalofti. Þumalputtareglan er þá sú að eftir því sem bíllinn mengar minna eru álögurnar lægri. Breyt- ingar í þessa átt voru gerðar um síð- ustu áramót þegar vörugjöld á Hondu CRV fóru í 36% og fara um komandi áramót í 41% – sem jafn- gildir 13,8% hækkun. Í dag er al- gengt verð á bílum þessarar gerðar 5,5 milljónir kr. en mun með vöru- gjaldabreytingum í byrjun árs 2012 hækka um að jafnaði 200 þúsund kr, sem er 4% verðhækkun. Vörugjöld- in hækka svo enn frekar þegar árið 2013 gengur í garð. „Það hjálpar hvorki bílaumboð- unum né fólkinu í landinu að þyngja álögur á bílainnflutning enn frekar, nú þegar við erum að koma okkur út úr mesta samdráttarskeiði grein- arinnar. Vörugjaldahækkunin er vanhugsuð. Einnig er mikilvægt að gera sem flestum kleift að vera á sæmilega stórum og traustum bíl- um, þannig að fólk sé öruggt úti á vegunum,“ segir Gunnar. Tankurinn dugar í mánuð Bernhard er einnig með umboð fyr- ir Peugeot á Íslandi. Bílar þeirrar gerðar njóta vaxandi vinsælda, enda er innkaupsverðið hagstætt og eyðslan sáralítil. „Díselbílar í 508 týpunni eyða sáralitlu og hægt er að fara 1.800 kílómetra á tankinum það er hring- inn í kringum landið og til viðbótar svo héðan úr Reykjavík og norður á Akureyri. Menn hafa talað um að í stað þess að fylla á tankinn einu sinni í viku dugi að fara mán- aðarlega og sá mismunur á elds- neytiskostnaði getur í einhverjum tilvikum samsvarað til dæmis því sem greitt er í mánaðarlega afborg- anir af bílaláni,“ útskýrir Gunnar sem telur sparneytinn Peugeot 508 betri kost en aðra sambærilega sem knúnir eru metani. Stöðvar með slíku eldsneyti eru aðeins tvær á landinu öllu, það er í Hafnarfirði og Reykjavík, en díselstöðvar eru hins vegar í nánast hverri byggð. sbs@mbl.is Vörugjaldahækkun er vanhugsuð Morgunblaðið/Sigurgeir S Peugeot 508 Njóta vinsælda, enda er verðið hagstætt. Hægt er að fara 1.800 kílómetra á tankinum það er hringinn í kringum landið og til viðbótar norður á Akureyri úr Reykjavík, Honda CRV eru bílar sem hafa reynst Íslendingum afar vel. Salan er góð. Bernhard er einnig með um- boð Peugeot. 508 týpan eyðir og mengar sáralítið. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Góður Honda CRV jeppar hafa verið á markaði á Íslandi síðan 1997. 95% þeirra bíla sem skráðir hafa verið í umferð, segir Gunnar Gunnarsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Bernharðs hf. Vökvadælur Vökvamótorar Stjórnbúnaður Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf Vökvakerfislausnir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.