Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ Þ essi nýjasta gerð Subaru er væntanleg til landsins eftir áramót en við erum byrjuð að panta bíla og höfum þegar orðið vör við jákvæð viðbrögð frá þeim sem fylgjast með og hafa lesið um bílinn í erlendum blöðum,“ sagði Rúnar H. Bridde, sölustjóri Subaru. Subaru XV er með nýja og end- urbætta 2,0 lítra bensínvél sem er 148 hestöfl og sögð vera sú sparneytnasta í sínum stærðarflokki eða nálægt 5,5 lítrum á hverja 100 km eins og kemur fram í netgrein breska Auto Express- bílablaðsins. Subaru XV verður einn- ig hægt að fá með Boxer-dísilvél og beinskiptingu og þá er hann sagður eyða 4,7 lítrum á hverja 100 km skv. sömu heimildum. Með sítengt aldrif Nýi bíllinn er fjórhjóladrifinn með þverliggjandi Boxer-vél og sítengt aldrif eins og tíðkast hefur í Subaru í fjölda ára. Bíllinn er með nýju stiglausu CVT- sjálfskiptingunni sem hefur verið endurhönnuð sérstaklega fyrir XV- bílinn með góða eldneytisnýtingu leiðarljósi. Sjálfskiptur XV er með 60:40 (framan/aftan) afldreifingu á milli fram og afturhjóla sem gerir aksturinn einstaklega stöðugan. Stöðuleikastýring er einnig stað- albúnaður í nýja bílnum Að sögn Lofts Ágústssonar, mark- aðsstjóra Ingvars Helgasonar, sem er með umboð Subaru á Íslandi, hafa þegar verið pantaðir nærri tíu bílar til landsins. Þeir verða hingað komnir fljótlega eftir áramót. Má svo gera ráð fyrir að fleiri bílar verði fluttir til landsins í framhaldinu en skv. alþjóð- legum viðmiðum Subau fær Ísland ákveðinn kvóta bíla í samræmi við fólksfjölda hér sem og markaðsstöðu. Áætlað verð á bílunum hérlendis verður um fimm millj. kr. Sendibíll með sérstöðu Hjá Ingvari Helgasyni hf. hefur sendibíllinn Renault Master selst ágætlega að undanförnu, að sögn Lofts Ágústssonar. Þessi nýja lína hefur sérstöðu sakir framúrskarndi eldsneytisnýtingu; eyðir í lang- keyrslu ekki nema 7,5 lítra á hundr- aðið og um það bíl hálfum lítra meira í blönduðm akstri. „Renault leggur mikið upp úr sölu og þjónustu til fyrirtækja og sérhæfir sig í lausnum fyrir notendur hvort heldur er í fjölbreytni í útfærslum á bílunum sjálfum eða þjónustu sem veita þarf notendum til að létta undir og gera upplifun sem ánægjulegasta. Við hjá B&L og Ingvari Helgasyni leggjum okkur fram um að þjónusta notendur bíla með sömu áherslum og framleiðandi leggur til og bætum jafnvel um betur með nýjum lausn- um, svo sem endurgjaldslausri end- urskoðun þar sem farið yfir helstu slit og öryggisþætti auk þess sem hægt er að beina athygli skoðunnarmanns- ins að einhverju tilteknu atriði sem bílstjórinn hefur áhyggjur af,“ segir Bjarni Þórarinn Sigurðsson sölu- stjóri Renault og bætir við að vinsæl- ustu gerðir nýju Master bílana séu bæði til sýnis og reynsluaksturs fyrir áhugasama kaupendur en bílana megi fá í mörgum stærðum og út- færslum. sbs@mbl.is Stöðuleikastýring er staðalbúnaður Rennilegur Subaru XV er með endurbætta vél en bíllinn hefur verið endurhannaður á síðustu árum með hóflega bensíneyðslu að leiðarljósi. Subaru XV er með nýja og endurbætta bens- ínvél er nýjasta frá hin- um japanska framleið- anda. Pantanir farnar að berast til Ingvars Helga- sonar. Renault Master fær góðar viðtökur í at- vinnulífinu. Renault leggur mikið upp úr sölu og þjónustu til fyr- irtækja og sérhæfir sig í lausnum með fjölbreytni í þjónustu Morgunblaðið/Sigurgeir S Renault Hjá Ingvari Helgasyni hf. hefur sendibíllinn Renault Master selst ágætlega undanfarið, að sögn Lofts Ágústssonar markaðsstjóra fyrirtækisins. Bílar þessarar gerðar eru sparneytnir sem kemur sér vel í dag. Það er sjaldgæf sjón að sjá bifreiðar með eyru. Einn slíkur sást þó á tækni- sýningu í Japan á dögunum en tilgang- urinn var að fá aukin viðbrögð frá al- menningi um hvað þeir vildu helst sjá í þróun bíla þar í landi. Í eyrunum góðu voru innbyggð upp- tökutæki sem tóku upp allar óskir og skoðanir viðstaddra sem hvísluðu góð- um framtíðarhugmyndum bif- reiðaþróunar í eyrun. birta@mbl.is Reuters Heyrandi bíll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.