Líf og list - 01.03.1951, Page 12

Líf og list - 01.03.1951, Page 12
urhraða, svipað og býfluga, en enginn yi'irspenningur var í fasi hans, aðeins andlegt fjör. Hann spurði mig, hvort ég liefði lesið Frobenius? Eg kvað nei við. „Lestu Frobenius — það er allt þar. Skáld verða að vita eitt- hvað um orðmyndafræði menn- ingarþjóðanna“. Ilann hélt á- fram: „Samkvæmt tölvísinni eru séxtíu og fjórar grundvallarregl- ur fyrir hinum svokallaða sex- iiða bragarhætti með r'éttum þríliðum. Það, sem amar að ungu skáldunum nú, er, að þeir kunna ekki bragfræðireglur sínar. Til er frönsk bók um bragfræði — prýðileg bók. Eg skal skrifa titil- inn handa þér“. Meðan hann var að því, sagði ég honum, að ég hefði spurt T. S. Eliot eitt sinn, hvenær hann orti beztu ljóð sín, crg Eliot hefði svarað, að hann orti yfirleitt bezt, þegar hann væri staðinn upp úr inflúenzu. „Sagði hann það — jahá, ein- mitt“, sagði Pound og glotti. „En segð'u mér: hvenær yrkir þú bezt?“ „Eg þarf ekki infhienzu". HANN játaði fyrir mér, að hann ritaði beint niður á ritvél- ina, þegar hann fengist við yrk- ingar, og liann hefði nokkurs konar dálæti á ritvélinni — hún væri eini þarfi hluturinn, sem öld vélanna hefði framleitt, sér félli vel við hljóðið í henni, og hvernig stafirnir kæmu fram á blaðinu. Eg spurði hann ekki, hvers vegna handrit hans, sem hann sendi til útgefanda síns, væru svo margkrotuð af leið- réttingum, að hann hlyti að vera álíka skeytingarlaus og ónær- gætinn við setjarana og ritstjór- ana eins og Balzac var. Nokkr- um mánuðum áður hafði James Laughlin sýnt, mér handritið af písönsku kantósunum. Það var vélritað á ljósbláan pappír. I hverri línu voru útstrikanir, inn- skot, hringir með athugasemd- um og áherzlumerkjum (eins og t. d. i í gnðs bænmn setjið á- herzlumerkin rétt!). Þó voru grísku áherzlumerkin herfilega röng, þegar bókin kom út. Helm- ingur latínunnar var vitlaus og ekki heil brú i drjúgum hluta ítölskunnar. I einni af eldri kant- ósum sínum vitnaði Pound i t John Adams á þessa leið: I begged Otis to print it (the Greek prosody). He said there Nvcre no Greek types in America and if tliere were, were no typesetters cd use ’em. Það var verra nú, en bókin var að minnsta kosti prentuð'; Pound hafði nú stefnt há- menntaorðstír sínum meira í hættu en nokkru sinni fyrr. Honum var svo til sama. Það fólst óvenjuleg hámenntun bak við þetta dauft sólbrennda and- lit. Hann hafði í samræðum okkar þanið þekkingarnet sitt yfir England, Miðjarðarhafs- löndin, Ameríku og Kína, og þegar hann talaði, virtist hann hafa allar heimsbókmenntirnar í fingurgómunum. Eg sagði hon- um, að enskur bókmenntapró- fessor hefði vikið' mér úr stöðu minni hjá British Couneil í Kína. Enski prófessorinn hefði orðið svo hneykslaður á því, að ég hélt því eindregið fram, að hámenntun Pounds væri af- bragð. „Kannske hefur þessi prófess- or þinn haft rétt fyrir sér“, sagði hann hlæjandi. „Hvað er há- menntaviðurkenning? Mestu varðar að gera sér grein fyrir því, sem maður fæst við“. Hann endurtók þetta nokkrum sinn- um; hann kvaðst ekki geta ann- að en fyrirlitið þá, sem gerðu sér ekki grein fyrir viðfangsefni sínu. „Ars scnbendi (listin að skrifa) er“, sagði hann, „í fyrsta lagi innblástur, komið svo með súpuna, lærið síðan ensku“. Þannig yrði meira vit í því. Hann vék aftur að ungu skáld- unum eins og þreyttur Ædipus: „Þessir ungu menn mennta sig og lesa ekki nóg. I minni tíð lás- um við' og lærðum, þangað til við hnigum niður. Drottinn minn, það er svo margt, sem þarf að læra“. „Hvað ráðleggurðu þeim að gera?“ jJLsera einn lilut ofan í kjöl- inn — lífið er ekki einu sinni nógu langt til þess. Það veit guð, að ég vinn mikið. Hvers vegna í fjáranum vinna þessir ungu menn ekki?“ Mávarnir flögruðu lágt yfir höfð'um okkar; katatóníkarnir voru fallnir í draumamók; Boris Gudonov var loks orðinn hás. Blái skugginn, sem stafaði af álmtrénu, minnti á keilu, og ein- hvers staðar fyrir, aftan okkur var grár steinveggur liins ömur- lega geðveikrahælis, gluggarnir á því drógu til sín geisla sólar- innar. Jafnvel íkornar birtust fram úr bláum skugganum; augu þeirra voru ekki eins björt og tindrandi og augu Pounds, er hann þuldi kínverskt kvæði af miklum móði og með ógeðfelld- um áherzlum. Auðsætt var nú, að hann hafði lært kínversku að mestu leyti af eigin ramleik. Hinn alfræðilegi heili hans hafði geystst áfram inn á svið', sem engum nema afburðamönnum er gefið að kanna og nema. Og hann hlýtur að hafa verið ofurmann- lega næmur á kínverskuna, því 12 LÍF og LIST

x

Líf og list

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.