Líf og list - 01.12.1951, Side 12

Líf og list - 01.12.1951, Side 12
^ eftir dr. Sigixrð Þórarinsson LAGERKVIST EGAR líður að þeim tíma er bókmenntaverð- launum Nóbels er úthlutað, en það er hinn tíunda nóvember, eru venjulega miklar bolla- leggingar og getgátur um það í sænskum blöðum, hver hreppa muni þessi eftirsóttu verðlaun, sem auk heiðursins, er þeirn fylgir, nema nú hálfri miljón íslenzkra króna. Að þessu sinni var óvenju- lega hljótt um þessi mál, virðast flestir hafa þótzt vissir um að svo myndi fara sem fór, að Pár Lag- erkvist hlyti verðlaunin. Það var og skoðun flestra, að hann væri mjög vel að þeim kominn, og að sá eini Norðurlandabúi, sem koma myndi til greina annar en hann, væri Halldór Kiljan, en menn hafa fyrir löragu gefið upp von um að Mar- tin Andersen Nexö, sem einnig á þessi verðlaun skilið, muni nokkum tíma fá þau. Kunnur danskur bókmenntafræðingur hefur látið svo um mælt, að „ef tákna ætti sænskan skáldskap síðan 1914 með nafni eins skálds yrði það tvímælalaust nafnið Pár Lagerkvist“. Ég hygg, að fáir, sem til þekkja, muni andmæla þessum orðum. Pár Lagerkvist, sem síðan 1940 situr á stóli Esaias Tegnérs og Verners von Hei- denstam sem „einn af átján“ í Sænsku Akadem- á fáa, en góða vini, og þeir telja hann bezta mann og einn hinna vitrustu, er þeir hafi kynnzt. Kunningjar hans telja hann hlédrægan, gæddan ljóma, sem nú sé farinn að fölskvast. Hann sé ekki laus við kaldhæðni, og hnýsni hans um hagi bræðra hans í syndinni sé gegndarlaus. Næstum því á hverjum morgni hripar hann á blað með blýanti h. u. b. 500 orð, en það eru gagnorðar setningar, sem síðar verða uppistaðan í einni bók, sem kemur út að ári liðnu. Eins og flestir atvinnurithöfundar er hann ekki að bíða eftir því, að andinn komi yfir hann. En hann er ó- líkur þessum stéttarbræðrum sínum í því, að hann kærir sig oftast kollóttan um dómana, sem felld- ir eru um rit hans. Einkum lætur hann lönd og leið þá ritdómara, sem vantrúaðir eru. Um þá segir hann: „Þeir eru svo fjarri kristilegri hugs- un, að þeir komast ekki inn í minn heim.“ ... Og Dostojevski HVE MIKILS verður Greene metinn af kom- andi kynslóðum? Verður hann settur jafnhátt íunni, er tvímæfalaust frumlegastur og sérstæð- astur núlifandi rithöfunda Svía. Sem leikritaskáld á hann, eftir dauða Kaj Munks og Nordahl Griegs, fáa eða enga jafningja á Norðurlöndum. Sumir PAR LAGERKVIST Hemingway og Faulkner? Verður hann langlíf- ari í bókmenntum en Evelyn Waugh? Verður hann nefndur í sömu andrá og Dostojevski? Þess- um spurningum verða komandi kynslóðir að svara. En gagnvart þessum þrem samtíðarmönn- um getur Greene að minnsta kosti staðið keikur. Hann stendur þeim fyllilega á sporði í tækni, og er laus við kæki þá og sérvizku, er gætir í stíl þeirra. Hann er gersneyddur þeim uppskafnings- hætti og þeirri tilgerð, sem einkenna stíl Waughs. En sé hann borinn saman við Dostojevski, sem hneykslaði samtíð sína öðrum fremur á öldinni, sem leið, verða allar bækur hans til samans tæp- lega jafnar sögunni Bræðurnir Karamazov. En að slíkur samanburður sem þessi skuli geta kom- ið nokkrum til hugar, sýnir, hve sjálfsagður hann er. Graham Greene fæst, eins og Dostojevski, fyrst og fremst við gott og illt, og það gerir hann af einlægri innri þörf. Á því sviði á hann ekki marga keppinauta. 12 LÍF og LIST

x

Líf og list

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.